Þjóðviljinn - 01.12.1985, Blaðsíða 10
Nokkrir úr Rauðhólavinnuhópi Æskulýðsfylkingarinnar. Þar má kenna m.a. Harald Steinþórsson, Lárus Bjarnfreðsson og Herdísi Óiafsdóttur.
Allir félagarnir
tókuundiríVagla-
skógi sumarið
1947ÍÆskulýðs-
fylkingarferðalagi
þegarNallinn var
sunginn...
Með íþrótta-
bandalagi Isa-
fjarðar í Noregs-
ferð 1957.
Stjórn Fram árið 1958 með formanninn Harald Steinþórsson í öndvegi. Frá v. Carl Bergmann, Sveinn Ragnarsson, Jón Sigurðsson, Axel Sigurðs
son, Haraldur, Böðvar Pétursson, Hannes Sigurðsson, Jón Þorláksson, Sigurður Hannesson og Guðbjörg Pálsdóttir.
það 1960 að Sigurður, sem þá var
kosinn inná alþingi á þátt í því að
mynda viðreisnarstjórnina með
Sjálfstæðisflokknum. Það líkaði
okkur vinstri mönnum mjög illa
og stilltum við Kristjáni Thorlaci-
us upp sem formanni í kosning-
unum á BSRB-þinginu 1960 gegn
Sigurði. Við höfðum kosning-
una, Kristján fékk 63 atkvæði en
Sigurður 62, - það munaði mjóu.
Þessi kosning Kristjáns var byggð
á traustu samstarfi vinstri manna
og á formlegum málefnasamn-
ingi, sem ég tel mig hafa verið
allan tímann að vinna eftir sem
stjórnarmaður og síðar fram-
kvæmdastjóri BSRB.
Mannréttindi
heimt
- Þessi málefnasamningur hef-
ur hvérgi verið birtur áður, en í
honum segir að jafnframt því sem
vinstri menn sameinist um upp-
stillingu til stjórnar BSRB, vilji
þeir beita sér fyrir framgangi ým-
issa mála.
- Dæmi: Unnið verði að því
með öllum tiltækum ráðum að
opinberir starfsmenn fái samn-
ingsrétt um kaup og kjör, m.a.
með því að stuðla að flutningi
frumvarps til laga á alþingi um
þetta efni. Þar voru ákvæði um
mótmæli við lífskjaraskerðingu
þáverandi rfkisstjórnar, hækkun
söluskatts, vaxtaokri og gengis-
fellingu. Um markvissa baráttu
fyrir styttingu vinnutímans og af-
nám lægstu launaflokka. Lýst
stuðningi við óskerta landhelgi
og brottför hersins af landinu.
Undir þetta sögulega plagg rit-
uðu nafn sitt sósíalistarnir Har-
aldur Steinþórsson, Þórhallur
Pálsson og Þorsteinn Óskarsson,
- og Framsóknarmennirnir Krist-
ján Thorlacius, Svavar Helgason
og Einar Ólafsson.
- Til þess að pólitísk átök yrðu
ekki til að veikja samtökin var
samt ævinlega leitað víðtæks
samkomulags manna úr öllum
stjórnmálaflokkum um skipan
'stjórnarinnar og innan BSRB
hefur einmitt skapast hefð um
skiptingu stjórnarinnar milli
stærstu aðildarfélaganna. Hins
vegar voru átökin ævinlega um
oddaaðstöðuna í formennskunni.
Og KTlstján Thorlacius fékk
þannig fyrsta áratuginn ævinlega
framboð á móti sér, - allt til 1970.
- Eftir að viðreisnarstjórnin
leið undir lok og eftir að allir
stóru stjórnmálaflokkarnir hafa
skipst á að sitja í ríkisstjórnum
tóku flokkspólitísku áhrifin að
þverra í þessum slag. Og skipt-
ingin sem komið var á um 1960 er
nú gjörsamlega horfin. Mér skilst
meiraðsegja að á síðasta þingi
BSRB hafi Sjálfstæðisflokkurinn
verið eini stjórnmálaflokkurinn
sem kallaði á sína fulltrúa og
stillti saman strengi.
- Ég tel mig hafa unnið eftir
málefnaplaggi vinstri manna frá
því árið 1960. 1962 verð ég vara-
formaður í BSRB og hef staðið í
þessu að fullu síðan. Þetta var
orðið gífurlegt vinnuálag hjá
mér, svo ég varð að hætta kennsl-
unni 1973, enda þá kominn í fulla
vinnu hjá BSRB fyrir löngu.
- Það varð að ráði að fela mér
og Guðjóni Baldvinssyni að
undirbúa fyrstu kröfugerð sam-
takanna sem leysti af hólmi úrelt
launalög frá 1955. Og ég verð
fyrsti starfsmaður Kjararáðs sem
sá um samningsgerðina á árunum
1963-1970 og oftast málflytjandi
fyrir dómstólum, bæði Kjara-
dómi og Kjaranefnd.
Margir
áfangasigrar
- Opinberir starfsmenn bjuggu
við óréttlát launalög. En samn-
ingsréttarlögin 1962 færðu okkur
verulegar kjarabætur í fyrstu
samningunum 1963. 1 samning-
unum 1965 kom talsvert aftur-
hvarf, en með starfsmati 1970
tókst að nýju að ná nokkrum
jöfnuði við aðra, - en aftur
reyndist skammt í afturhvarfið
1971-72. Einnig má geta þess að í
starfsmatssamningunum var inn-
leidd 40 stunda vinnuvika hér á
landi - sem síðan var lögfest hjá
öðrum í kjölfarið.
- Viðbrögð okkar voru þau
1973 að fá samningsréttinum
skipt milli BSRB og félaganna í
aðalkjarasamning og sérkjara-
samning. Heildarsamtökin fjöll-
uðu um launastiga og vinnutíma,
en félögin um röðun starfsheita
og einstaklinga í launaflokka. Þó
hélst það ranglæti að verkfalls-
réttur gilti hvorki um aðalkjara-
samning né sérkjarasamning,
bæði í samningunum 1974 og
1975.
- Við svo búið mátti ekki
standa. Óánægja magnaðist sí-
fellt með Kjaradóm og svar okk-
ar BSRB-manna hlaut að vera
krafan um verkfallsrétt. Sá áfangi
náðist fram 1. apríl 1976 fyrst
eftir víðtæka skoðanakönnun og
hótanir í kjölfarið.
Verkfallsvopninu
beitt
- Þeir áfangar sem ég hef hér
rakið skiluðu verulegum kjar-
abótum í samningum þeim sem í
hönd fóru. En strax árið 1977
vorum við neydd til að nota verk-
fallsréttinn. Við lentum í hörku-
átökum, þriggja vikna verkfalli,
sem færði okkur um síðir veru-
legar bætur í aðalkjarasamningi.
- í rauninni tel ég þá samninga
vera þá bestu, sem við höfum
gert. I fyrsta lagi vegna þess, að
þá náðist fram sérstök hækkun á
lægstu launaflokkunum. Okkur
tókst að skapa visst fordæmi fyrir
önnur stéttasamtök, en fram að
þessum samningum hafði því
jafnan verið öfugt farið. Án verk-
fallsréttar fengu opinberir starfs-
menn allir kauphækkanir í kjölf-
ar harðrar stéttabaráttu Dags-
brúnar og annarra verkalýðsfé-
laga - en í þessu fyrsta verkfalli
tókst okkur að gjalda að nokkru
gamla þakkarskuld með mikilli
hækkun lægstu launanna.
Þá náðust einnig fram veru-
legar bætur fyrir miðbik launa-
stigans þarsem fjölmennustu
hóparnir í BSRB eru, í stað sam-
þjöppunar og kyrrstöðu sem
flestir félagar okkar höfðu orðið
að þola lengi.
- Þegar stjórnvöld gripu til
þess ráðs að kippa samningnum
úr sambandi í ársbyrjun 1978, -
þá tókst samstaða um harðvítug-
ar mótmælaaðgerðir meðal
verkalýðssamtakanna í mars. Ég
hafði vænst að þessi samstaða
yrði upphafið að nánara sam-
starfi heildarsamtaka launafólks,
- en það hefur því miður brugð-
ist.
Hjúpað huliðshjálmi
- Því er ekki að neita að samn-
ingsgerð stéttarfélaga hefur
löngum verið sveipuð huliðs-
hjálmi, þarsem yfirborganir og
launaskrið hafa tekið völdin af
samstilltri baráttu fyrir betri
launakjörum. Og þegar svo
stjórnvöld ganga á lagið með eft-
irlætis áróður sinn um að verð-
bólga og léleg hagstjóm þeirra sé
til komin vegna samninga launa-
fólks, þá er ekki von á góðu. Og
einmitt þetta, að stjórnvöld
reyna sífellt að sýna fram á gagns-
leysi samtakamáttar einsog þau
gerðu 1977 og ekki síður eftir
verkfallið 1984, - verður til að
veikja traustið á stéttabaráttunni
og persónu- og starfshópapot
t’ekur völdin.
- Þetta er einn þátturinn í þeim
vandkvæðum sem BSRB á við að
et j a í dag, - og er í raun staðreynd
hjá öllum stéttarsamtökum undir
niðri.
- Flestir samningar verkalýðs-
hreyfingar eru með sömu ein-
kennum og ísjakinn, þ.e. að yfir-
borðið sýnir aðeins lítinn hluta,
en kjarabæturnar eru fólgnar
undir yfirborðinu, - þá er
eitthvað meira en lítið að. Það er
því afar hlálegt að skipulag stétt-
arfélaga og heildarsamtaka skuli
aldrei hafa verið rætt, hvorki
milli BSRB og ASÍ eða t.d.
BSRB og BHM. Og við erum
meira að segja í málaferlum um,
hvort félagafrelsi skuli ríkja hér á
landi eða gömul forgangsréttar-
ákvæði.
Hreinskiptin
umrœða -
gjörbreytt skipulag
- Ég held að heildarsamtökin
þurfi að taka upp beinar og
hreinskiptnar umræður um þessi
vandamál. Það gæti einnig verið
þarft málefni fyrir verkalýðs-
flokka og málgögn launafólks að
fjalla á gagnrýninn hátt um skipu-
lagsmál. Þar hefur verið þagað
þunnu hljóði um skipulagsmál og
starfshætti bæði í Þjóðviljanum
og annars staðar.
- Það er eitt einkenni á skipu-
lagi BSRB sem ég tel mjög þarft
og öðrum til eftirbreytni, - þ.e.
sú kvöð að allsherjaratkvæða-
greiðsla skuli fara fram um samn-
inga og tilheyrandi fundahöld um
allt land. Og ég vil vekja athygli á
því, að allsherjaratkvæðagreiðsla
hefur farið fram átta sinnum á
síðastliðnum átta árum. Það er
Haraldur í útilegu með Æskulýðsfylkingunni á ísafirði sumarið 1946.
nauðsynlegt að fólk sem á að lifa
af umsömdum launum, leggi það
á sig að kynna sér kjarasamninga
og móta afstöðu til þeirra.
- í mörg ár hef ég viðrað þá
hugmynd að hér verði gjörbreytt
um skipulag, þannig að samning-
ar fari meira eftir stofnunum og
vinnuveitendum. Ég sé t.d. ekki
þörfina á því að samningar við
ríkið og ríkisstofnanir séu gerðir
af tugum stéttarfélaga, þ.e.
BSRB, BHM, Sambandi banka-
manna og ótal félögum í ASÍ.
Það sem tengir þau öll saman er
mun þýðingarmeira en það sem
sundrar þeim.
- Síðan ættu þessi samtök að
finna sér skipulagsform og sam-
vinnugrundvöll sem styrkir þau
sem viðsemjendur við atvinnu-
rekendur. Við skulum gæta að
því, að staða opinberra starfs-
manna hefur mjög breyst. Ráðn-
ingaformið hefur breyst þannig
að æviráðningin gamla er úr sög-
unni, gagnkvæmur uppsagnar-
réttur ríkir einsog á svokölluðum
„frjálsum markaði”. Þegar svo
við þetta bætist að einkageirinn
er kominn í auknum mæli á opin-
bert framfæri verða skilin milli
stéttasamtaka opinberra starfs-
manna og annarra félaga enn ó-
ljósari.
- Fjölmiðlar hafa æ mikilvæg-
ara hlutverki að gegna í okkar
þjóðfélagi. Mér finnst þeir um of
bundnir starfi einstakra forustu-
manna svo og verkfallsátökum,
en fjalli síður um innihald samn-
inga og árangur þeirra, og hvern-
ig t.d. stjómvöld ætíð leitast við
að eyðileggja árangur samninga.
Það gengur líka illa að leiðrétta
hvers konar misrétti, einsog t.d.
þegar bent er á með réttu að op-
inberir starfsmenn hafi dregist
afturúr, þá gerist ekkert. Það fást
engar úrbætur þótt öll rök mæli
með slíkum leiðréttingum. Það
þarf sannarlega að hvessa þessa
baráttu á öllum vígstöðvum.
Hverf glaður
af vettvangi
- Það er langt síðan ég ákvað
að hætta strax og ég fengi rétt til,
þó svo ég fái ekki með því móti
hæstu prósentutölu á lífeyri. Það
er nú orðinn aldarfjórðungur frá
því við vinstri menn gerðum
„byltinguna” 1960 og ég hef auk
framkvæmdastjórastarfans verið
ritstjóri Ásgarðs í yfir 20 ár. Þessi
störf hafa aukist og vaxið einsog
BSRB sem samtök. Ég er líka
þeirrar skoðunar að það sé alls
ekki gott fyrir stéttasamtök að
sömu mennirnir séu í forystu svo
áratugum skipti, - þannig að ég
er afskaplega sáttur við að hætta
núna.
- Blessaður vertu, ég vil ekkert
láta uppi hvað ég tek mér fyrir
hendur, - það er enginn hörgull á
áhugamálum, það er víst, sagði
Haraldur Steinþórsson fram-
kvæmdastjóri íbygginn að lok-
um. Og Þjóðviljinn óskar þeim
manni, sem hóf starfið fyrir
verkalýðshreyfingu og sósíalisma
í æsku, hjartanlega til hamingju
með afmælið og óskar honum
velfamaðar. -óg
HflNS PETERSEN HF
Umboösmenn um land allt
Kort með umslagi. Minnsta pöntun er 10 stk. eftir sömu mynd.
skemmtil
þinni eigi
upphæö.
Taktu mynd sem fyrst eöa veldu eina góöa úr
safninu og við sjáum um aö gera úr henni kort
sem stendur upp úr jólakortaflóöinu í ár.
Allt sem viö þurfum er filman þín.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. desember 1985