Þjóðviljinn - 11.12.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.12.1985, Blaðsíða 8
BÆKUR og aörar góðar bókmenntir. Þetta er fjölskrúöugur sagna- heimur og afar heillandi. Ef við lítum í þessa útgáfu okkar verður fyrst fyrir okkur Bandamanna- saga sem er einskonar pólitísk ádeila á höfðingjavald 11. aldar, og ef til vill ekki síður ætlað að útmála siðleysi, spillingu og græðgi á ritunartíma sögunnar. Næst í stafrófinu er Bárðarsaga Snæfellsáss sem er allt öðruvísi, kynja- og tröllasaga. Og þannig koll af kolli, hver sagan er annarri ólík og eiginlega eiga þær það eitt sameiginlegt að vera skemmti- legar bókmenntir. Margar þjóðir eiga sér gullöld í bókmenntum, þar nægir að minna á grikki og rómverja. Við höfum það hins vegar fram yfir aðrar þjóðir að geta lesið gullald- arbókmenntirnar á því tungumáli sem þær eru skrifaðar á.“ Unglingar hrifnir — En eru þessar sögur ekki til þess eins fallnar að ala á hetju- dýrkun og þjóðernisrembingi? „Það er hægt að túlka þessar sögur með ýmsum hætti. Fátæk- linga dreymdi hér áður um hetjur á borð við Gunnar á Hlíðarenda og Guðrúnu Ósvífursdóttur, eða þá dreymdi um að geta stungið uppí höfðingja jafn snilldarlega og Skarphéðinn eða Auður kona Gísla Súrssonar. Þannig voru sögurnar og hetjur þeirra fyrir- mynd eða glæst fortíð sem gott var að ylja sér við þegar hart var í ári. Stundum hefur montið verið ríkjandi. Ég held að þessar sögur ali ekki á einu eða neinu eða fylli okkur einhverri fyrirlitningu á öðrum þjóðum og menningu þeirra. Hver túlkar sögurnar eftir sínu höfði, — og kannski veitir okkur ekki af sambandi við for- tíðina á þessum alþjóðlegu tím- um. íslendingasögurnar hafa lengi verið kenndar unglingum í skólum og það er almenn reynsla kennara að þegar tekst að yfir- vinna þá fordóma sem unglingar hafa gjarnan gegn sögunum heill- ast þeir af þeim. Þeim finnst þær skemmtilegar, auðveldari aflestr- ar en þeir héldu og ólíkar öllu öðru sem haldið er að þeim. Þetta eru ekki einfaldar bókmenntir á borð við ísfólkið og annað í þeim dúr, en samt eru þetta sögur um ástir, bardaga, hetjur og skúrka. En einfaldlega miklu betri bók- menntir.“ Á tölvutœku formi — Hvaða vinnulag hafið þið haft við gerð bókarinnar? „í stuttu máli hefur þetta verið þannig að ritstjórar velja þann texta sem byggt er á og fara síðan um hann höndum, setja greina- skil og greinamerki, taka afstöðu til þess sem orkar tvímælis, leiðrétta ritvillur handrits, osfrv. Þá er textinn settur á tölvu, próf- arkir lesnar í þaula og loks prent- að. Þetta hefur þann kost að allur textinn er aðgengilegur á því sem nefnist tölvutækt form. Það er hægt að vinna með hann. Orða- bók Háskólans hefur þegar feng- ið nokkrar sögur á disklingum og þar hafa menn ma. komist að þeirri athyglisverðu niðurstöðu að Einar Bragi skáld hefur fjöl- breytilegri orðaforða en höfund- ur Njálu. Nú erum við að vinna í seinna bindinu, það er þegar búið að setja margar sagnanna sem þar verða. Það ræðst svo af viðtökun- um hvort áframhald verður á út- gáfunni, hvort við gefum út meira af íslenskum fornbókmenntum. Við höfum áhuga á að gefa ann- ars vegar út riddara- og fornald- arsögur og hins vegar konunga- sögur,“ segir Örnólfur Thorsson. —ÞH Ættfræðiáhugamenn! _ Fyrst var það Ættarbókin Nú eru það Niðjatölin Húsatóftaætt Fyrsta niðjatalið í ritröð Sögusteins „íslenskt ættfræðisafri“ er komið út. Aðrar bækur í ritröðinni fyrir jól: Gunnhildargerðisætt og Galtarætt í Grímsnesi. Húsatóftaætt Niðjatal J6ns SæmundiMitur og kvemu hans Marjjréur 1‘otiiludóUur og Valgcrðar ('ruAmundsdónar % hknúu /uffíiðúafn NiAjauI I.$ 'V H Verið með frá byrjun. Bækumar fast í bókaverslunum. Sögusteinn hf - bókaforlag Týsgötu 8, Reykjavík Opið virka daga kl. 14-18. Pantanir í síma 28179 Sagon af Lilla blaðbera Hafliði Vilhemsson: Beygur. Skáldsaga, 191 bls. Hlöðugil 1985 í þessari nýju skáldsögu Haf- liða Vilhelmssonar segir á einum stað frá tveimur ungum drengj- um sem ákveða að byggja sér kjarnorkubyrgi uppi í fjallshlíð til að búa sig undir þá gereyðingar- styrjöld sem hinir fullorðnu voru búnir að útmála fyrir þeim. Öðr- um drengjanna, sögumanni bók- arinnar, hafði verið falið að gæta yngri bróður síns en í ákafa sínum skilja þeir hann eftir þegar þeir halda af stað til að reisa byrgið. Afleiðingin verður sú að bróðir- inn verður undir skriðu sem byggingarmeistararnir hrinda af stað í því skyni að afla sér hleðslu- grjóts. I þessum atburðum er fólgið eitt meginþemað í sögunni, spurningin: Á maður að gæta bróður síns? Þetta er eitt af mörg- um atvikum úr fortíðinni sem leita á huga sögumanns er hann rifjar upp sögu sína og segir frá feita blaðberanum og psorias- sjúklingnum Lilla sem lifir heldur drungalegri tilveru undir vernd- arvæng yfirmáta umhyggju- samrar móður sinnar í vestur- bænum. Sögumaður játar að Lilli sé í raun hann sjálfur en með því að flétta frásögninni af honum saman við sínar eigin endurminn- ingar virðir hann lífshlaup sitt fyrir sér frá tveimur sjónarhólum og úr mismikilli fjarlægð. Þessi frásagnarmáti gerir það líka að verkum að hann á auðvelt með að stökkva fram og aftur í tíma. í upphafi bókarinnar segist sögumaður skrifa einmitt svona vegna biturra og sárra minninga um fyrrverandi eiginkonu sína og hjónaband þeirra: „Mér er nauð- syn að mega deila byrði minni; hatur mitt, ijúfum kærleik blandað, er meginástæða þess að ég skrifa þessa sögu“. (bls. 7-8). Sögumaður/Lilli er niður- lægður í hjónabandinu en eftir að það leysist upp dregur hann sig inn í skel sína, breytist í mannfælið skringimenni sem er fullt sjálfsvorkunnar og eyðir tómstundum sínum í að smíða líkön af úreltum drápstólum fyrri stríða. Hreyfiafl sögunnar, ljúf- lingslæðan Kúska, kemur honum þó þegar fram líða stundir í sam- band við ýmsar sérkennilegar persónur sem eru hálf utangátta í tilverunni eins og hann sjálfur. Þau kynni eiga þátt í því að hann rífur sig smátt og smátt upp úr eymd sinni og gerir upp hug sinn til sjálfs sín og veraldarinnar. Það er ekki síst Gulla, hin holduga og hispurslausa pönkdrottning úr dreifbýlinu, sem dregur Lilla út Fugl Nínu Leikrit Ntnu Bjarkar Árnadóttur, Fugl sem flaug á snúru, hefur nú verið geftð út hjá Bókavörðunni. Leikritið var sýnt síðastliðð vor hjá Nemendaleikhúsinu. Um verk sitt hefur höfundurinn sagt meðal ann- ars: „Verkið er um fólk sem finnur ástina, sem það er hrætt við að mega ekki rækta..í verkinu fléttast nútíð og fortíð, raunsæjar senur, táknrænar senur. Ljóð og setningar tengja at- riðin þar sem við á.“ Bókin er í litlu handhægu broti, í einföldu bandi, en þó vel vandað til prentunar og frágangs. „Leikrit Nínu Bjarkar Árnadóttur hafa jafnan vak- ið verulega athygli“ segir í frétt frá útgefanda: „Það er trú okkar að í þessu verki hafi hún náð einna lengst á ferli sínum; að feta vandratað milli ljóðræns táknmáls og raunsærrar ádeilu." harmur en dauði miljóna bara statistikk" (191). Friðarsinninn Gestur/Grímur „fer yfir lækinn til að sækja vatnið en finnur það ekki, hann þarf alltaf að leita lengra og lengra“. Þó er lífið „lík- lega fólgið í því að sækja vatn í lækinn", en glæpur Lilla liggur hins vegar í því að „hafa aldrei farið út að læknum til að gæta að hvort þar rynni vatn eða lækurinn frosinn, í klakaböndum“ (181). Það kennir margra grasa í þess- ari sögu. Smátt og smátt tengir lesandinn saman í huga sér hin sundurlausu minningarbrot sögu- manns og þá atburði sem verða í lífi Lilla. Allur þessi efniviður rennur saman í eina heild. Þannig opinberast míkrokosmos sög- unnar í gjöf Gullu til Lilla sem inniheldur líkön af nútímastýri- flaugum, „andstætt makrókosm- os sem er heimur sem Lilli vill ekki vita af“ (156). Höfundur hefur gott vald á máli og segir skemmtilega frá. Bókin er uppfull af spaugilegum mannlýsingum og kostulegum at- burðum sem skapa nokkurt mót- vægi við siðferðilegan undirtón sögunnar. Útkoman er litrík og margslungin frásögn þar sem rak- in er saga af lífsháska einstakl- ings, krydduð ríku skopskyni og glúrnum athugasemdum um menn og málefni. Ég skemmti mér vel við lestur þessarar sögu. Takk, Hafliði. Sölulisti Þjóðviljans Þórarinn efstur 16 ára... og Bara stœlar efstar á lista yngri kynslóða Margsaga Þórarins Eldjárns er í fyrsta sæti á lista sem Þjóðviljinn tók saman eftir sðiu-upplýsingum frá fimm bókabúðum, - en næstu tvær voru Þórarni mjög ámóta í stigareikningi: síðara bindi ævisögu Guð- mundar Kjœrnested og pólitísk saga Vilmundar Gylfasonar, Löglegt en siðlaust. Þessar bækur voru ofarlega á blaði í öllum bókaverslunum. Listinn er þannig: 1. Margsaga/Þórarinn Eldjárn 2. Löglegt en siðlaust/Jón Ormur Halldórsson 3. Guðmundur skipherra Kjærnested/Sveinn Sæmundsson 4. Njósnir á hafinu/Alistair McLean 5. Skilningstréð/Sigurður A. Magnússon 6. Sögur og Ijóð/Ásta Sigurðardóttir 7. Gerður/Elín Pálmadóttir 8. Olíubylgjan blakka/Hammond Innes 9. Lífssaga baráttukonu/lnga Huld Hákonardóttir 10. Birtan að handan/Sverrir Pálsson Verslunarstjórar bókabúðanna voru beðnir að nefna sérstaklega þær barna- og unglingabækur sem best seldust, og lítur sá listi þannig út: 1. 16 ára í sambúð/Eðvarð Ingólfsson 2. Bara stælarl/Andrés Indriðason 3. Jólasveinabókin/Rolf Lidberg 4. Gunnhildur og Glói/Guðrún Helgadóttir 5. Blómin á þakinu/lngibjörg Siguröardóttir og Brian Pilkington. Við þennan lista Þjóðviljans verður að gera marga fyrirvara: fyrst og fremst þann að þessi könnun er engan veginn fræði- lega traust, og niðurstöður gefa í besta falli vísbendingu. Einnig þann að enn eru að koma út bækur, sem hafa ekki náð athygli og sölu. Hinsvegar sýnist úrskurður al- menna listans um þrjár efstu bækurnar nokkurn veginn óyggj- andi, og allar bækurnar á barna- og unglingalistanum virðast eiga þangað erindi, þótt okkur skjöpl- ist ef til vill á röðinni. Þess er rétt að geta að von er á lista bóksala og Kaupþings innan fárra daga. Þessar bókaverslanir fá þakkir fyiir vinsamlegt framlag upplýs- inga til listans: Bókadeild Hag- kaups, Bókabúð Máls og menn- ingar, Bókabúð Jónasar Jó- hannssonar Akureyri, Bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar, Bókabúð Lárusar Blöndal. úr skel sinni og opnar augu hans fyrir mannlífinu í kringum hann. Hér eru sagðar margar litlar dæmisögur um grimmd og skiln- ingsleysi í garð manna og mál- leysingja og vangaveltur um skyldur manna gagnvart þeim sem næst honum standa eru ofar- lega í huga sögumanns. Eldri bróðir sögumanns/Lilla, Grímur/ Gestur, sem höggvið hefur á öll tengsl við bernskuheim sinn og dvalið árum saman erlendis, berst hins vegar fyrir björgun miljónanna. Hann snýr aftur til ÁRNI ÓSKARSSON fósturjarðarinnar sem Messías og boðar frið á jörðu. Hámarki nær sagan á mikilli friðarhátíð þar sem Gestur er aðalræðumaður og tekur dæmi af bróður sínum sem hafi heldur viljað stökkva undir vörubfi en lifa við þá skelfilegu ógn gjöreyðingar sem heimurinn er ofurseldur. Lilla ofbýður þessi hagræðing sannleikans í þágu hugsjónanna og sögumanni verður ljóst að það sem skilur þá bræður að sé „sú staðreynd að dauði eins manns er 8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.