Þjóðviljinn - 11.12.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 11.12.1985, Blaðsíða 12
BÆKUR Toppur ísjakons Jóhanna Sveinsdóttir: íslenskir elsk- hugar. Átján karlmenn ræða um ástina, kynlífið, konuna og karl- mennskuna. Forlagið 1985. Við teljum okkur mikla bók- menntaþjóð, íslendingar, - og erum það kannski að magni en síður að gæðum. Það sem birtist hér í blöðum, færi í ruslakörfuna víðast hvar annars staðar, en það sem þar yrði birt í dagblöðum, kemur hér út á bók. Þessi sleggju- dómur á einkum við nýjustu dell- una í bókaútgáfu, viðtalsbækurn- ar, sem hafa að sögn bjargað Bókinni frá dauða. Sú lífgjöf ork- ar þó tvímælis að mínu mati, því að það hefur helst gerst, að dag- blaðatexti er matreiddur í vönd- uðu bandi. í stað þess að lesa vandaða framhaldsþætti í sunnu- dagsblöðunum, fá menn þetta á einu bretti í bók. Ég segi bara fyrir mig: ég tími yfirleitt ekki að borga þúsundkall fyrir slík greinasöfn,hvort sem hópur gam- als fólks er spurður um liðna tíð, afdankaðir stjórnmálamenn ljúga um feril sinn eða þjóðkunn- ar persónur draga aðeins frá gluggatjöldin, svo að forvitnir ná- grannar geti kíkt inn. Það er öllum þessum bókum sameiginlegt, að sögumönnum gefst tóm til að laga til og gera hreint áður en þeir draga frá. Við sjáum aldrei fötin eins og hráviði um gólfið eða merkishjónin að slást. Allt er slétt og fellt. Blaða- menn hérlendis búa ekki við þau starfsskilyrði að þeir geti kafað undir yfirborðið, heldur ekki þegar þeir skrifa bækur. Hér telst sá góður blaðamaður sem kemur yfirborðsmyndinni vel á fram- færi. Lesendur halda að þeir séu einhverju nær, því að þeir fá stað- festingu á þeim yfirborðskenndu hugmyndum sem þeir höfðu fyrir. Allt er með kyrrum kjörum í plastheimi íslenska lýðveldisins. Jóhanna Sveinsdóttir hefur bætt einni blaðamennskubókinni við á markaðinn, en að þessu sinni á bókin þangað nokkurt er- indi, því að Jóhanna fær 18 karl- menn til að gera svolítið nýstár- legt: segja frá tiifinningum sín- um. Þess vegna er fengur að bók- inni, þótt hún kafi ekki dýpra en • • SAGAN OLL Fólkið framan við Elliheimilið situr á bekk og rær í gráðið, raular fyrir munni sér. Breytast ekki lögin? Það hefur verið á sextugsaldri þegar ég átti leið hér um daglega. Á fuflu úti í þjóðfélagi sem nú er komið á Elliheimilið. Einn góðan veðurdag mætum við á þessa bekki. Róum í gráðið og raulum rokklögin. Falla svo mörg vel að þessu róðrarlagi: And I try And I try And I try I can’t get no! No! No! No! Hvernig eldumst við? Hvernig er hægt að lina takið á lifinu, sleppa því? Móðgun við neysluhyggjuna að eldast, hætta á túr, missa kynhvötina, hárið, tennurnar. Eins og gölluð vara. Ef sækja á framleiðandann til saka kemur í Ijós að vörumerkið er hvergi skrásett. Maðurinn er eftirlíking af fölsun. Sagan öll bls 215. saga: N ÖL] L Bókaútgáfan punktar Blönduhlíð 7 105 Reykjavík (91) - 17791 aðrar viðtalsbækur. f formála segir Jóhanna nokk- uð frá þeim skrifum, sem víða um lönd hafa orðið um tilfinninga- vanda karla í kjölfar kvenna- hreyfinga. Með kvennabarátt- unni tóku kynhlutverkin að rið- last, og þar með neyddumst við karlmenn til að endurskoða sjálfsímynd okkar. Hvers vegna grátum við sjaldnast, og er það jákvætt? Þegar konur fara að krefjast aukinnar nautnar í kyn- lífi, - ástúðar, leiks, fullnægingar og margs fleira - eigum við karlar að taka því sem áskorun um bætta frammistöðu í rúminu eða kannski sem tilefni til að hugsa um eigin kynnautn? Ótal slíkar spurningar vöknuðu, og þeirra sér stað í listrænum afurðum og umræðu síðasta áratugar. Bók- menntaverkin eru þó fyrst og fremst_áþreifanlegur vitnisburð- ur; hin eiginlega menningar- sköpun hefur farið fram í daglegu lífi, en hennar sér mun síður stað á íslandi en í nágrannalöndum. Bók Jóhönnu getur ýtt við þessu nauðsynlega sköpunar- starfi í hvunndagsmenningunni. Jóhanna hefur haft uppi á mjög ólíkum karlmönnum, en samt sameina þeir svo til allir það sem goðsagan telur ósamrýmanlegt: þeir standa sig ágætlega í sínum karlhlutverkum, og þeir eru miklar tilfinningaverur. Geta meira að segja orðað tilfinningar sínar og rætt um þær. Sumir þeirra þekkja tæpast annað en hefðbundna hlutverkaskiptingu kynja, en flestir hafa lent í því ölduróti, sem hefur riðlað henni á síðustu árum. Einstaka maður brýst við með heiftúðugri vörn. Aðrir leggja ótrauðir í þá löngu leit sem fylgir höfnun á viðtekn- um viðhorfum. Flestir mæta þó nýjum tímum með yfirborðs- GESTUR GUÐMUNDSSON kenndu frjálslyndi, þar sem undir niðri glittir í gamla tilfinninga- hnútinn. Homminn og sá bísex- úali skera sig úr; þeir virðast heiðarlegir og opinbera tilfinn- ingavanda sinn - eru kannski þess vegna á leiðinni að verða heilsteyptari menn en hinir. Þeg- ar á heildina er litið, fær þó hver og einn að byggja upp þá mynd af sjálfum sér, sem hann kýs, og maður getur í mesta lagi lagi leikið sér að því að lesa á milli línanna. f þeim skilningi ristir bókin ekki dýpra en viðtalsbækur almennt. Hins vegar opnast hér mun nkari heimur margslung- inna tilfinninga en karlmenn eru vanir að opinbera, hvort sem það er á torgum, í einkasamræðum eða jafnvel í hjónarúminu, að því er mér skilst á konum. Á undanförnum árum hafa baráttukonur oft minnst á ein- hvern reynsluheim kvenna, sem ætti að vera okkur karlmönnum lokuð bók. Samkvæmt þeim kokkabókum hefur Jóhanna ráð- ist í óvinnandi verk: kona reynir að skyggnast inn í reynsluheim karla. Þessi samlíking er þó út í hött, því að flestir karlmenn eiga auðveldara með að tala um til- finningar sínar við konur. Meðal viðmælenda Jóhönnu er þó skemmtileg undantekning á þessu, en það er 23 ára fjöllista- maður sem á karlmenn að trún- aðarvinum, og er reyndar hægt að kalla hann eina fulltrúa „nýja karlmannsins" í þessari bók. Vonandi verður bókin fleiri karl- mönnum hvatning til þess að tala saman um tilfinningar sínar, í stað þess að nota konur sem milli- liði. Ætli slíkt gerist þó almennt, fyrr en konur hafa náð jafnræði á vinnumarkaðnum og sent karl- ana heim í eldhúsin að ígrunda tilfinningahnúta sína? Ætli þessi bók seljist nokkuð að ráði, nema konur gefi hana mönnum sínum og karlvinum? Hún gæti hins vegar orðið tilefni til skemmtilegra umræðna og ef- laust leitt til betra ástalífs hér og þar. Helga Einarsdóttir skrifar um barna- og unglingabœkur Að sœttast við sjálfa sig Helga Ágústsdóttir Ekki kjafta frá Rv., Iðunn, 1985 Mikið er nú ánægjulegt að fá eina íslenska barna- eða unglingabók þar sem aðalpersón- an er stelpa. Strákar hafa nefni- lega verið aðalpersónur í öllum þeim barna- og unglinabókum ís- lenskum sem ég hef lesið í haust, hvort sem þær hafa verið eftir karla eða konur. En víkjum nú að söguþræði bókarinnar. Edda, aðalpersóna bókarinn- ar, er 15 ára þegar sagan hefst. Hún er í skóla og gengur ekki nógu vel, hún flosnar upp úr vina- hópnum, hún þolir ekki mömmu sína. Eddu líður á allan hátt illa. Smátt og smátt þroskast hún sjálf og sér að ekki er allt sem sýnist, og uppgötvar hvað í henni sjálfri býr. í lok bókarinnar líður henni orðið miklu betur, hún hefur nálgast vini sína aftur - og þeir hana - og hefur uppgötvað að pabbi og mamma eru fólk eins og aðrir, og samkomulagið hefur batnað. Ekki veit ég hvað það er sem er svo hrífandi við þessa bók. Ef til vill er það hversu sönn og látlaus hún er. En staðreyndin er að þótt ytri atburðir séu ekki stórvægi- legir þá leggur maður ekki bók- ina frá sér fyrren henni er lokið, þó að klukkan sé orðin 2 að nóttu og vinnudagur að morgni. Og maður leggur hana ánægður frá sér að lestri loknum. Stíll bókarinnar er sérkenni- legur. Sagan er til skiptis sögð í þriðju persónu, atburðirnir séðir utanfrá blandað samtölum Eddu og annarra, og í fyrstu persónu í dagbók Eddu. Málfar er lfka tví- skipt, annars vegar venjulegt lip- urt talmál í framsögn, hins vegar slangur, „táningatalmál", tals- vert enskuskotið, í samtölum unglinga og í dagbókinni. Eg býst við að einhverjir reki hornin í unglingamálið og finnist það ljótt og alls ósæmilegt, eða jafnvel tilbúið. Mér finnst það heldur ekkert fallegt, en ég tel að það sé rétt og sannferðugt. Ung- lingar tala svona. Þetta byggi ég á reynslu minni sem móður ung- linga og langri og mikilli um- gengni við mikinn fjölda ung- linga. Að vísu er mál Eddu og vina hennar í bókinni lítið eitt enskuskotnara en ég á að venjast. En áður en við hneykslumst mikið á unglingunum skulum við hugsa aðeins til þeirra sem eldri eru. Hvert okkar hefur ekki heyrt fólk um fimmtugt segja „bæ, bæ“ í kveðjuskyni? Þetta er þroskasaga Eddu. í huga og líkama 15 ára stúlku eru heil ósköp að gerast, ýmsar kenndir vakna og þunglyndi get- ur verið á næsta leiti. Edda verð- ur skotin, vinir bregðast, foreldr- arnir verða óþolandi afskipta- samir og hræddir um unglinginn, þeir gera kröfur sem ekki er hægt að uppfylla o.s.frv. Auðvitað er mamma miklu verri en pabbi, hún sinnir meira uppeldinu og dóttirin þarf meira að slíta sig frá henni. Unglingurinn vill losa sig, vera fullorðinn, láta treysta sér, en er þó jafnframt í sárri þörf fyrir ástúð, þörf fyrir að foreldr- arnir tali við hann, að þeim standi ekki á sama, að hann skipti máli. Foreldrum hættir í sögunni (og raunveruleikanum) til að taka unglinginn ekki alvarlega, ekki ræða „sín“ vandamál. Foreldr- arnir krefjast trúnaðar og hlut- deildar í erfiðleikum unglinga en veita ekki sjálf. Hér er það mál dánu systurinnar, Huldu, sem ekki má tala um og sem meira og minna eyðileggur fjölskyldulífið. - Og hér er ekki verið að skrifa um vesalings fátæka fólkið. Fjöl- skylda Eddu er vel stæð og býr í eigin húsi. Það er ánægjulegt að ekki skuli sett jafnaðarmerki milli fátæktar og fjölskylduerfið- leika. En þó get ég ekki neitað því, að mér finnst vanta svolítið í þjóðfélagsmyndina þegar fjár- hagsbasl og bágindi, sem svo áberandi eru núna í daglega líf- inu, kom hvergi við sögu. Ekki má gleyma stóra bróður í þessari bók, einu persónunni sem er dregin alveg í hvítu. Hann er bara góður, ljúfur og skynsamur. Hann upplýsir Eddu um Huldu- málin, hann faðmar systur sína og kallar hana kríli þegar hún þarf á því að halda, hann skilur möm- mu... Ég sagði hér á undan að þetta væri þroskasaga. Þroski Eddu felst í því að sættast við sj álf a sig - og þar með aðra, - finna eigin hæfileika - og eigin fegurð - og öðlast skilning á foreldrum sín- um. Hún viðurkennir að þau eru manneskjur með holdi og blóði, þau hafa hvatir, þrár og veikleika eins og „fólkið í bíómyndunum". Bókin er 119 síður. Letrið er skýrt, ég fann aðeins eina prent- villu, pappír er fallegur, brot og frágangur snyrtilegt. Engar myndir eru í bókinni, en kápu- myndin held ég ætti að vera að- Iaðandi fyrir unglinga. Bókin er fyrir u.þ.b. 12 ára og eldir. Helga Einarsdóttir. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðyikudagur 11. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.