Þjóðviljinn - 18.01.1986, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 18.01.1986, Qupperneq 6
Ragnhei&ur Runólfsdóttir var fyrir skömmu útnefnd íþróttamaður ársins 1985 á Akranesi. Ragnheiður er í. hópi albestu sundmanna landsins og náði mjög góðum árangri á árinu 1985, bæði innanlands og utan, og setti fjölmöra íslandsmet. Magnús Oddsson formaður íþróttabandalags Akraness afhenti Ragnheiði veglegan bikar og tók Árni Árnason myndina við það tækifæri. England 13 eftir úr l.deild Nú er loksins endanlega Ijóst hvaða félög mætast í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu næsta laugardag, 25. jan- úar. Mikið var um frestanir og jafntefli í 3. umferð og lauk leikjum ekki fyrr en í fyrrakvöld þegar Sheff. Wed. vann WBA 3-2. Þessi lið mætast um næstu helgi: Arsenal-Rotherham Aston Villa-Millwall Chelsea-Liverpool Everton-Blackburn Hull-Brighton Luton-Bristol Rovers Manch.City-Watford Notts County-Tottenham Peterborough-Carlisle Reading-Bury Sheff.Utd-Derby County Sheff.Wed.-Orient Southampton-Wigan Sunderland-Manch.Utd West Ham-lpswich York-Altrincham Eins og sést á þessu eru 13 lið úr 1. deild meðal þeirra 32 sem eftir eru í kcppninni, níu féllu út í 3. umferð. í 16-iiða úrslitunum verða mest 10 1. deildarlið eftir þar sem þrjár innbyrðis viður- eignir eru í umferðinni. Ein þeirra, Manchester City og Wat- ford, verður sýnd beint í íslenska sjónvarpinu. —VS 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ■ Pólverjar unnu 22-20 ogfengu sínfyrstu stig í mótinu Kristján Arason og nafni hans Sigmundsson stóðu sig einna best íslensku leikmannanna og Steinar skoraði góð mörk úr horninu, sem er ekki hans vana- lega staða. Steinar og Kristján gerðu 5 mörk hvor, Atli 3, Páll 3, Guðmundur 2, Geir 1 og Þorgils Óttar Mathiesen 1. Lokaumferð mótsins fer fram í dag og ísland leikur við B-lið Dana. Heiðurinn er í veði, það yrði ekki glæsilegt að tapa þar og sitja uppi í botnsæti keppninnar. —VS Knattspyrna íslands- mótið inn- anhúss Fyrri hluti íslandsmótsins í innanhússknattspyrnu fer fram um hclgina og verður leikið í 2. og 3. deild. Að vanda fer mótið fram í Laugardalshöllinni og hefst kl. 11 í dag. Hér kemur dagskrá mótsins um helgina: 3. deild Laugardagur 11.00 Víkverji-Valur Rf. 11.22 Árroðinn-Stjarnan 11.44 Afturelding-Vorboðinn 12.06 Einherji-Leiknir R. 12.28 Valur Rf.-Stjarnan 12.50 Víkverji-Árroðinn 13.12 Vorboðinn-Leiknir R. 13.34 Afturelding-Einherji 13.56 Árroðinn-Valur Rf. 14.18 Stjarnan-Víkverji 14.40 Einherji-Vorboðinn 15.02 Leiknir R.-Afturelding 15.24 Hafnir-Árvakur 15.46 Víkingur Ó.-UMFN 16.08 Stokkseyri-ÍBV 16.30 Reynir Á.-Leiknir F. 16.52 Árvakur-UMFN 17.14 Hafnir-Víkingur Ó. 17.36 (BV-Leiknir F. 17.58 Stokkseyri-Reynir Á. 18.20 Víkingur Ó.-Árvakur 18.42 UMFN-Hafnir 19.04 Reynir Á.-lBV 19.26 Leiknir F.-Stokkseyri 2.deild Sunnudagur 11.00 Bolungarvlk-Neisti 11.22 Leiftur-HSÞ.b 11.44 Ármann-lK 12.06 fBl-Þróttur N. 12.28 Neisti-HSÞ.b 12.50 Bolungarvík-Leiftur 13.12 (K-Þróttur N. 13.34 Ármann-lBl 13.56 Leiftur-Neisti 14.18 HSÞ.b-Bolungarvík 14.40 IbI-Ik 15.02 Þróttur N.-Ármann 15.24 Dómarar-Formenn Kn.deilda 15.46 Austri-Víkingur R. 16.08 HV-Léttir 16.30 Reynir S.-lR 16.52 Grindavík-Víðir 17.14 Dómarar-Stjóm KSl 17.36 Víkingur R.-Léttir 17.58 Austri-HV 18.20 IR-Víðir 18.42 Reynir S.-Grindavík 19.04 Stjórn KSl-Form.Kn.deilda 19.26 HV-Víkingur R. 19.48 Léttir-Austri 20.10 Grindavik-lR 20.32 Víðir-Reynir S. Keppni í 1. og 4. deild og kvennaflokki fer fram 21.-23. fe- brúar. Nú er leikið eftir nýjum reglum, þannig að skora má mark hvaðan sem er af vallar- helmingi andstæðinga. Þess má geta að Reykjavíkurmótið hefst á mánudag kl. 17 með keppni í 6. flokki og 2. flokki. Keppni lýkur á föstudag og verður keppt í mfl. kvenna á þriðjudag en í mfl. karla á fimmtudag og föstudag. —VS Þorsteinn Gunnarsson lék á fimmtudagskvöldiö sinn 100. meistaraflokks- leik með KR I körfuknattleik. Porsteinn er aðeins 22ja ára en er kominn með mikla reynslu og hefur verið fyrirliði KR-inga. Jón Sigurðsson þjálfari KR afhenti honum viöurkenningu fyrir leikinn, sem var gegn UMFN, og tók E.ÓI. þá þessa mynd. Brasilía Minelli ráðinn? Miklar líkur eru á að Rubens Minelli, 54 ára þjálfari Corinthi- ans, verði ráðinn landsliðsþjálf- ari Brasilíu eftir að Pinto Guim- araes var kjörinn forseti brasil- íska knattspyrnusambandsins í fyrrakvöld. Brasilíumenn eru taldir sigurstranglegastir í heimsmeistarakeppninni í Mex- íkó, þrátt fyrir að þeir hafi ekki enn ráðið landsliðsþjálfara. Min- elli hefur náð mjög góðum ár- angri með félagslið í Brasilíu en aldrei verið beðinn um að stýra landsliðinu. —VS/Reuter Hingað til hefur yfirleitt mátl sætta sig sæmilega við tap fyrir Pólverjum í landsleik í hand- knattleik. Fyrir leik liðanna í Baltic-keppninni í Næstved í Dan- mörku í gærkvöldi höfðu þeir unnið 18 af 24 viðureignum þjóð- anna, þótt íslandi hafi gengið ein- na best gegn þeim af þjóðum Austur-Evrópu. En þegar pólska liðið er í öldudal einsog nú og búið að liggja bæði fyrir A- og B-liði Dana verður að setja spurningar- merki við þá frammistöðu ís- lenska liðsins að tapa fyrir því, 20-22. Þar með er ísland komið í botnsæti keppninnar, nokkuð sem ekki virtist yfirvofandi eftir sigurinn góða á Dönum í fyrsta leik. Pólverjar skoruðu tvö fyrstu mörkin en Atli Hilmarsson og Kristján Arason jöfnuðu metin, 2-2. Island náði síðan yfirhönd- inni, ekki síst vegna þáttar Krist- jáns Sigmundssonar sem varði tvö vítaköst á fyrstu 10 mínútun- um. fsland komst í 4-3 og síðan 6-4 en leiddi síðast 7-6. Pólland komst yfir, 7-8 og 8-9 en Atli jafn- aði rétt fyrir hlé, 9-9. Fyrstu 6 mínútur seinni hálf- leiks réðu úrslitum. Þá gerðu Pól- verjar fjögur mörk og staðan var skyndilega 9-13. Páll Ólafssori tók sig til og gerði þrjú mörk í röð, 12-13, og Kristján varði inná milli sitt þriðja vítakast. En næstu þrjú mörk voru pólsk, 12-16, og útlitið svart á ný. íslensku leik- mennirnir gáfust ekki upp og minnkuðu muninn í 16-17. Pól- land komst í 16-19 og 17-20 en spennan var ekki úti. Geir Sveinsson jafnaði, 20-20, með miklu harðfylgi þremur mínútum fyrir leikslok eftir að Steinar Birgisson og Guðmundur Guð- mundsson höfðu skorað góð mörk. Pólland náði forystu á ný, 20-21, og ísland fékk færi á að jafna. Það tókst ekki, liðið missti boltann 40 sekúmjum fyrir leiks- lok og Pólverjar létu ekki trufla sig í lokin, skoruðu 22. markið þegar 10 sek. voru eftir og tryggðu sér þar með sín fyrstu stig í mótinu. Úrvalsdeildin Pálmar bjargaði tvisvar! Tvisvar þrjú stig á lokasekúndum og Haukar unnu eftir tvœr framlengingar í Keflavík ar leiktími í framlengingu var að renna út var ÍBK aftur þrem stig- um yfir. Pálmar reyndi þá þriggja stiga skot en Guðjón Skúlason braut á honum. Pálmar fékk 3 vítaskot fyrir vikið og sýndi feiknarlegt öryggi með því að skora úr öllum, 94-94. Aftur framlengt, og spennan enn óbærileg í lokin. Jón Kr. kom ÍBK yfir, 106-105, með 3ja stiga körfu 25 sek. fyrir leikslok. fvar Webster svar- aði með því að blaka knettinum í Keflavíkurkörfuna þegar 11 sekúnd- ur lifðu. 107-106, og það voru sigur- stigin. Olafur Gottskálksson var með boltann í góðu færi þegar flautan gall en var of seinn að skjóta, Haukar fögnuðu ótrúlega naumum sigri. Pálinar var lengi í gang en var síðan bestur Haukanna. Olafur lék vel og fvar Webster einnig framanaf leiknum. Jón Kr. átti stórleik með ÍBK, Guðjón var einnig virkilega góður og Ólafur var sterkur í fráköst- unum. Keflvíkingar voru klaufar að tapa, þeir höfðu leikinn hvað eftir annað í hendi sér en það dugði ekki til. —SÓM/Suðurnesjum Pálmar Sigurðsson hefur oft skorað mikilvægar körfur fyrir Hauka en sjaldan hefur hann þó bjargað þeim frá tapi tvívegis í sama leiknum einsog gerðist í Keflavík í gærkvöldi. Haukar sigruðu þá Keflvíkinga 107-106 í tvíframlengdum spennuleik. Þegar leiknum var að ljúka voru Keflvíkingar með þriggja stiga forskot, 86-83. Pálmar jafn- aði þá með 3ja stiga skoti, 86-86, þegar 8 sekúndur voru eftir. Þeg- Keflavík 17.jan. ÍBK-Haukar 106-107 (94- 94) (86-86) (42-37) 24-16, 32-23, 42-37, 53-55, 69-66, 86-83,86-86,90-86,90-91,94-91,94- 94, 101-98, 101-103, 103-105, 106- 105, 106-107. Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 35, Guðjón Skúlason 31, Þorsteinn Bjarnason 12, Ólafur Gottskálksson 10, Hreinn Þorkelsson 8, Ingólfur Har- aldsson 6, Hrannar Hólm 2, Sigurður Ingímundarson 2. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 36, Ólafur Rafnsson 26, Ivar Webster 20, Kristinn Kristinsson 10, Eyþór Árna- son 8, Henning Henningsson 7. Dómarar: Kristinn Albertsson og Ómar Scheving — góðir. Maður leiksins: Pálmar Sigurðs- son, Haukum y Baltic Island komið í botnsætið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.