Þjóðviljinn - 30.01.1986, Side 2
FRETTIR
iTQRGIÐ
Lánasjóður
Fmmvaipið enn ókomið
Svavar Gestsson formaður Abl.: Verið að leggja sjóðinn niðursem
tœki til að stuðla að jafnrétti til náms
Eg lít á þetta frumvarp Sverris
Hermannssonar um breyting-
ar á lögum um Lánasjóð náms-
manna sem fyrsta skrefið í þá átt
að leggja sjóðinn niður sem fé-
lagslegt tæki til að stuðla að
jafnrétti til náms. Mér sýnist að
þarna sé verið að færa kjör á
námslánum til samræmis við þau
kjör sem fólki bjóðast í bönkum,
sagði Svavar Gesísson formaður
Alþýðubandalagsins í samtali við
Þjóðviljann í gær, en að frum-
kvæði þingflokks Abl. fer fram
umræða utan dagskrár um mál-
efni LIN á alþingi í dag.
Áðurnefnt frumvarp hefur
raunar hvergi verið lagt fram, en
búist við að það verði lagt fyrir
stjórnarflokkana innan tíðar.
Frumvarpið er þess eðlis eftir því
Fisksala
sem næst verður komist að það er
líklegt til að valda miklum deilum
í þinginu og er jafnvel reiknað
með að sumir þingmenn Fram-
sóknarflokksins muni leggjast
gegn því að það verði samþykkt.
Meðal þess sem frumvarpið
felur í sér er að námslán beri 3%
vexti og innheimt verði 1% lán-
tökugjald. Endurgreiðslutími
verður styttur úr 40 árum í 30 ef
þetta nær fram að ganga og hætt
verður að taka tillit til tekna að
námi loknu. Það sem vekur kann-
ski einna mesta athygli er að gert
er ráð fyrir að skyldur fjárveiting-
avaldsins við sjóðinn verði að
engu gerðar. Sjóðurinn verði að
miða útlán sín að öllu leyti við
hvað alþingi þóknast að leggja í
sjóðinn. - gg.
Blanda, blanda, gættu þinna
handa
Mest í
gámum
Fjórir togarar frá Rcykjavík og
Hafnarfirði sigldu mcð nær allan
sinn afla á erlendan markað á sl.
ári líkt og á fyrri árunt. Þetta eru
togararnir Karlsefni, Ögri og
Vigri frá Reykjavík og Ymir frá
Hafnarfirði. Samtals seldu þessir
togarar á sjöunda þúsund tonn af
bolfiski erlendis 10 fyrstu mánuði
sl. árs.
Á þessum sama tíma voru flutt
út 26.600 tonn af bolfiski í gám-
um en 26.500 tonn voru flutt út
með fiskiskipum. 40% aflans var
þorskur, 20% karfi og ríflega
10% skarkoli. - lg.
Stúdentar
Yfir þúsund
gegn Ólafi
Félag íhaldsmanna í Háskólanum
tekur undir með stjórn SHÍ
og villað Olafur Arnarson víki úrstjórn Lín.
Ólafur Arnarson: Hefekkert umþað aðsegja
Námsmenn ætluðu að afhenda Ólafi Arnarsyni mótmæli við dyr LÍN í gær.
Hann kaus að mæta ekki á staðinn. Ljósm.: E.ÓI.
BÍSN
Olafur óskabam íhalds
Jón Bjarni Guðsteinsson formaður BÍSN: Atkvœði Ólafs ístjórn LÍN réðiþvíað
fyrstaársnemar fái ekkifyrirgreiðslu
Reyndar er það mín pcrsónu-
lega skoðun að Ólafur sé ekki
fulltrúi námsmanna, heldur sé
nokkurs konar óskabarn íhald-
sins þarna í oddastöðu í stjórn
sjóðsins, segir m.a. í yfirlýsingu
Jóns Bjarna Guðsteinssonar for-
manns BISN um setu Ólafs Arn-
arson * Vökumanns í stjórn LÍN.
í yfirlýsingunni segir einnig að
þar sem nú hafi komið fram opin-
berlega hversu „lúalegum vinnu-
brögðum menntamálaráðherra"
hefur beitt við að halda Ólafi inni
í stjórn LÍN, vilji Jón benda á að
atkvæði Ólafs á stjórnarfundi í
haust hafi orðið til þess að 1. árs
nemar fá nú enga fyrirgreiðslu
hjá sjóðnum.
Þá segir Jón: „Hversu góðvæn-
leg sem tilboð og ummæli þessara
tveggja ágætu manna, sem eiga
að fara með hagsmuni náms-
manna, kunna að vera þá ber ég
ekki meira traust til þeirra en svo
að ég krefst þess að ráðherra sjái
sóma sinn í því að veita Ólafi
lausn frá störfum í stjórn lána-
sjóðsins, og virði þar með kjör
Stúdentaráðs í það embætti er
þeim ber í stjórn LÍN.“
-gg-
Eg hef ekkert við Þjóðviljann
að segja um þetta mál. Ég hef
ekkert heyrt frá Vökumönnum
um þetta og vil því sem minnst
segja að svo stöddu, sagði Ólafur
Arnarson Vökumaður og
stjórnarmaður i LIN í gær þegar
Þjóðviljinn bar undir hann frétt í
Morgunblaðinu þess efnis að
hans eigið félag vilji hann nú út úr
stjórn sjóðsins.
Yfir eitt þúsund háskólanemar
hafa nú skrifað undir mótmæli
við setu Ólafs í stjórn LÍN, þar
sem hann situr eins og kunnugt er
þvert á vilja Stúdentaráðs, og er
sú tala meira en helmingur þess
fjölda sem tók þátt í síðustu stúd-
entakosningum. Verða Ólafi af-
hent mótmælin innan tíðar.
Stjórn Stúdentaráðs hefur ítrek-
að mótmælt þeirri ákvörðun
Ólafs að segja ekki af sér stjórn-
arsetu og eins og fram kemur
annars staðar í blaðinu í dag hef-
ur formaður Bandalags íslenskra
sérskólanema tekið undir þau
mótmæli. Nú hafa Vökumenn
sem sagt bæst í hópinn og farið
fram á það við Ólaf að hann víki
úr stjórninni, en Ólafur var upp--
haflega kosinn í stjórn fyrir hönd
meirihlutastjórnar Vöku og Fé-
lags umbótasinna, sem var felld
vegna aðgerðaleysis mnamálum
námsmanna.
Ólafur sagði í gær að ákvörð-
unar væri að vænta innan fárra
daga um það hvort hann mun
taka tillit til þessara fjöldamót-
mtgla námsmanna, sem hann var
áður fulltrúi fyrir í LÍN.
-gg-
Skák
Þröstur vann
flokka
Þröstur Árnason varð í gær
efstur í opnum flokki Skákþings
Reykjavíkur, fékk níu vinninga.
Þröstur vann einnig unglinga-
flokk og er því tvöfaldur skák-
meistari Reykjavíkur þetta árið.
Þröstur vann Andrés Áss Grét-
arsson í fyrradag, og sigur hans í
flokknum varð ljós í gærkvöldi
þegar biðskák þeirra Hannesar
Hlífar Stefánssonar og Héðins
Steingrímssonar lauk með jafn-
tefli.
Hannes Hlífar varð í öðru sæti,
fékk 8'/2 vinning. Þeir Þröstur og
Hannes eru báðir þrettán ára
gamlir. Þeir héldu í morgun
ásamt félögum sínum á norrænt
skólamót einstaklinga í Svíþjóð.
Við veljum frambjóðendur
Auglýsing um forval ABR 31. janúar og 1. febrúar
Forval frambjóöenda G-listans, við borgarstjórnar-
kosningarnar í vor, fer fram föstudaginn 31. janúar og
laugardaginn 1. febrúar kl. 10-20 í Miðgarði, Hverfis-
götu 105, 4. hæð.
Rétt til þátttöku eiga félagsmenn ABR, sem ekki skulda
meira en eitt gjaldfallið árgjald, og nýir félagsmenn,
enda greiði þeir hálft lágmarksárgjald við inngöngu,
þ.e. 500 krónur.
Minnt skal á að kosning fer þannig fram að merkt er við
sjö nöfn á kjörseðlinum með tölustöfunum 1 2 3 4 5
6, 7. ’ ’ ’ ’
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í forvalinu. Nýir félagsmenn velkomnir.
Kjörnefnd.