Þjóðviljinn - 30.01.1986, Side 5
Hinn 16. janúar sl. var fjár-
hagsáætlun Reykjarvíkurborgar
tekin til umræðu, og afgreiðslu
hennar lauk laust fyrir hádegi
hinn 17. eftir 18 klst. fund.
f fjárhagsáætlun meirihluta
kemur skýrt fram stefna hans og
forgangsröðun mála. Það þarf
engum að koma á óvart að sem
endra nær urðu félagsmálin út-
undan en gatnaframkvæmdir fá
að venju myndarlega fjár-
veitingu.
Alþýðubandalagsmenn í borg-
arstjórn báru fram margar til-
lögur um breytingar á fjárhagsá-
ætlun sem ganga í þveröfuga átt.
Við lögðum áherslu á félagslegar
úrbætur en á móti lögðum við til
að dregið yrði úr útgjöldum til
gatnagerðar. M.a. lögðum við til
að hætt yrði við byggingu bíla-
geymsluhúss í Kvosinni, sem
kosta á 20 miljónir, en engin þörf
er fyrir slíkt hús nú.
Mig langar til að geta hér nokk-
urra þeirra tillagna sem við flutt-
um og tengjast sérstaklega félags-
málum, en margar þeirra eru
unnar í samráði við ýmsa flokks-
menn.
Aldraöir
Eins og allir sem lesa Þjóðvilj-
ann vita hefur Sjálfstæðismeiri-
hlutinn ekki byggt og tekið í notk-
un eina einustu íbúð fyrir aldraða
á kjörtímabilinu, enda lengjast
biðlistarnir stöðugt og neyðará-
stand ríkir hjá allt of mörgum.
Við lögðum til að borgarstjórn
beitti sér fyrir samstarfi milli
Reykjarvíkurborgar, ríkis og
verkalýðshreyfingarinnar um
átak til bygginga þjónustuíbúða
og dvalarheimila fyrir aldraða, og
skyldi stefna að því að á næstu 4-5
árum yrði leystur vandi a.m.k.
600 aldraðra. Nú eru á annað
þúsund á biðlistum. Sjálfstæðis-
menn hafa lagt áherslu á að
styrkja félagasamtök sem eru að
byggja söluíbúðir fyrir aldraða
með því að byggja þjónustu-
kjarna í húsunum. í það fóru á
síðasta ári 9.4 miljónir og sam-
kvæmt áætlun 1986 eiga að bætast
við 58.7 miljónir. Þessar söluí-
búðir leysa því miður ekki vanda
þeirra öldruðu sem verst eru
staddir, þ.e.a.s. þeirra sem nú
eru og lengi hafa verið á biðlist-
um félagsmálastofnunar. Ein-
ungis töluvert fjársterkir einstak-
lingar hafa möguleika á að kaupa
sér íbúðir í þessum húsum. Sama
gildir um parhús við dvalarhei-
mili aldraðra Seljahh'ð, sem borg-
in er að byggja en þau eiga að
kosta 3.2 miljónir. Þau munu ein-
ungis vera fyrir verulega stöndugt
fólk. Þess vegna er nauðsynlegt
að berjast áfram af fullri hörku
fyrir byggingu þjónustu- og dval-
arheimilisíbúða fyrir aldraða.
Vinstri meirihlutinn hóf rekst-
ur dagvistar fyrir aldraða í tengsl-
um við þjónustuíbúðir við Dal-
braut. Sú þjónusta hefur verið
afar vinsæl og stuðlað að því að
þeir aldraðir sem það vilja geti
búið á heimilum sínum sem
lengst. Allt þetta kjörtímabil höf-
um við lagt á það áherslu að hald-
ið yrði áfram á þessari braut og
fluttum nú enn einu sinni tillögu
um að keypt yrði hús í gamla
bænum, þar sem flestir aldraðir
búa, og hafinn rekstur dagvistar.
Meirihlutinn (Davíð) felldi þessa
tillögu, taldi að peningum væri
betur varið til annarra hluta - því
miður. Eins voru felldar tillögur
okkar um að koma á sendiþjón-
ustu fyrir aldraða og fatlaða í
borginni. Aldraðir og fatlaðir
hafa lengi bent á nauðsyn þessar-
ar þjónustu. Dæmi eru um það að
fólk sem þarf á lyfjum að halda,
þurfi að panta leigubíl til að sækja
þau fyrir sig, þannig að ofan á
lyfjakostnaðinn bætist leigubíla-
kostnaður. Eins eru leigubílar
pantaðir til að fara í banka og
greiða reikninga. Við lögðum til
að keypt yrði bifreið og ráðinn
starfsmaður, kostnaður yrði 1.7
milj. Þessi mikilvæga og
nauðsynlega þjónusta hefði
breytt mjög aðstæðum margra
aldraðra og fatlaðra til hins betra.
2 miljónir vildum við að færi til
þess að koma á heimilishjálp um
helgar. Hún er nú veitt á virkum
dögum eingöngu, sem engan veg-
inn er nægilegt. Það er fyrir
marga algjörlega óviðunandi að
fá enga aðstoð frá föstudegi til
mánudags.
Við lögðum til að ráðinn yrði
starfsmaður í hálfa stöðu til þess
að koma upp tómstundaklúbbum
með frjálsu sniði fýrir fólk á
hvaða aldri sem er, í þeim tilgangi
að rjúfa þá einangrun sem margt
fólk býr við og brúa kynslóðabil.
Bentum við á mjög vel heppnaða
starfsemi af þessum toga í Kópa-
vogi, en þar tókst mjög vel til
með ráðningu starfsmanns.
Dagvistun barna
Eins og mönnum er kunnugt
drógust byggingar dagvistar-
heimila mjög saman strax eftir
síðustu kosningar. Vegna mjög
mikils þrýstings borgarfulltrúa
minnihlutans og ekki síst borgar-
búa hefur nú fyrir kosningar ver-
ið reynt að klóra í bakkann. Við
fluttum tillögu um að bætt yrði
við þá upphæð sem meirihlutinn
leggur til 15 miljónum til þess að
hægt sé að hraða byggingu dag-
vistarheimilis í Ártúnsholti, en
þar búa margar einstæðar mæð-
ur. Hægagangurinn á fyrstu árum
núverandi meirihluta er því
átakanlegri að borgarsjóður hefir
verið ríkur eins og risinn í fjallinu
- öfugt við borgarbúa. En þá ber
að hafa í huga að það hefur aldrei
verið stefna Sjálfstæðisflokksins
að byggja næg og góð dagvistar-
heimili fyrir öll börn.
Unglingamál
í fyrra fluttum við mjög margar
tillögur um úrbætur í málefnum
unglinga. M.a. lögðum við til að
ráðinn yrði sérstakur starfsmaður
til að samhæfa allt það starf sem
nú er unnið vegna vímuefnavand-
ans, og bentum á að vinnubrögð
hefðu verið fálmkennd og ó-
markviss. Haustið 1984 hófst á
vegum Félagsmálastofnunar
hópstarf með unglingum sem
komist höfðu í vandræði vegna
vímuefnaneyslu. Það starf hélt
svo áfram á árinu 1985, og var þá
bætt við hópstarfi með foreldr-
um. Þetta hvort tveggja er mjög
mikilvægt, og það olli því miklum
vonbrigðum, furðu og hneykslun
að sjá að fjárveiting til þessa
starfs var skorin niður. Starfs-
menn sem hafa á þessum málum
verulega þekkingu og reynslu
leggja eindregið til að hópstarf-
inu verði haldið áfram. En Davíð
telur sig ekki þurfa á ráðleg-
gingum frá sérfræðingum að
halda - hann vill ráða sjálfur.
Fíkniefnakvikmynd er hans
lausn, en kostnaður við hana eina
mun nema um þrefaldri þeirri
upphæð sem áætluð var í hóp-
starfið. Raunar er kvikmynd af
Alþýðubandalagsmenn í
borgarstjórn bárufram
margar tillögur sem
gengu íþveröfuga átt.
Við lögðum áherslu áfé-
lagslegar úrbœtur
þessu tagi af mörgum talin létt-
væg í fyrirbyggjandi starfi - en
best hefði verið að gera hvort
tveggja. Minnihlutinn allur lagði
til að farið yrði að hugmyndum
starfsmanna um 500 þúsund kr.
til hópstarfsins, en það eins og
annað var fellt og Davíð úthlut-
aði 50 þús. krónum. 800 þúsund
lögðum við til að varið yrði til að
gangast fyrir námskeiðum fyrir
ungt fólk, sem af einhverjum
ástæðum hefur dottið út úr nárni
og hefur ekki fasta atvinnu. Á
þessum námskeiðum vildum við
að fram færi kynning á mögu-
leikum til náms og starfs og að
námskeiðum loknum væri þessu
unga fólki veittur stuðningur í því
sem þau kunna að vilja taka sér
fyrir hendur. Kópavogur hefur
gengist fyrir slíkum námskeiðum
og þóttu þau gefast vel. Auðvitað
ætti starfsemi sem þessi að vera
fastur liður í borgarkerfinu, e.t.v.
sem samvinnuverkefni Vinnu-
miðlunar, Fræðsluskrifstofu og
Félagsmálastofnunar. Þetta þótti
Davíð ekki spennandi verkefni
og var því að sjálfsögðu fellt.
Félagsmálastofnun
Starfsmenn hverfaskrifstofa
Félagsmálastofnunar hafa borið
fram ósk um fjölgun starfsmanna
vegna gífurlegs vinnuálags. Þessi
fróma ósk þeirra þarf ekki að
koma á óvart, því vegna kjara-
skerðingarinnar og innleiðslu fá-
tæktar í borgina á ný hefur
beiðnum um aðstoð fjölgað um
64% frá hausti ’82 til hausts ’83.
Þess má geta að árinu áður fækk-
aði þeim sem aðstoð fengu. Da-
víð vill ekki horfast í augu við
afleiðingar af kjararánsstefnu
ríkisstjórnarinnar og felldi því til-
lögur okkar um fjölgun. En sam-
hliða aukinni fátækt í borginni
hefur erfiðum barnaverndarmál-
um fjölgað mjög og þyngd hvers
máls aukist. Allt þetta kallar á
fleira starfsfólk, sérstaklega í
forræðis- og ættleiðingarmálum.
Felld var tillaga um það ásamt
með tillögu um að koma á svo-
kölluðum bakvöktum fjölskyldu-
deildar Félagsmálastofnunar
vegna barnarverndarmála. Bak-
vaktir eiga að sinna bráðavanda-
málum barna og unglinga sem
þarfnast tafarlausrar aðstoðar.
Þessi þjónusta er lagaleg skylda
Reykjarvíkurborgar skv.
ákvæðum í barnaverndarlögum.
Þörfin á þessari þjónustu hefur
aldrei verið meiri en nú, þegar
svo margar fjölskyldur eiga í erf-
iðleikum.
Kvennaathvarf
Kvennaathvarfið hefur sýnt og
sannað gildi sitt. Fjölmargar kon-
ur hafa dvalið þar ásamt börnum
sínum, og sem dæmi má nefna að
hinn 13. janúar sl. höfðu 23 kon-
ur og 38 börn dvalið þar. Á þessu
máli tók meirihlutinn með afar
sérkennilegum hætti. Styrkurinn
hækkar ekki á milli ára, sem er
auðvitað raunlækkun, og það
sem meira er: Hann á ekki að
veita nema með sérstakri ákvörð-
un borgarráðs. Sem sagt ef Davíð
kemst að þeirri niðurstöðu að
reksturinn sé ekki með þeim
hætti að honum sé hann fullkom-
lega þóknanlegur, þá getur svo
farið að kvennaathvarfið fái eng-
an styrk. Bent hefur verið á að ef
borgin tæki yfir reksturinn þá
yrði hann mun dýrari, því veru-
legur hluti starfsins þar er sjálf-
boðavinna. Tillaga alls minni-
hlutans um hækkun styrks og að
skilyrði yrðu felld brott náðu ekki
fram að ganga.
Unga kynsloöin
Unglingar í Félagsmiðstöðvum
borgarinnar héldu bráðskemmti-
legan og vel undirbúinn borgar-
stjórnarfund hinn 24. okt. sl. Það
olli þeim töluverðum vonbrigð-
um hve fáir borgarfulltrúar meiri-
hlutans sýndu þann áhuga að
mæta og sérstaklega var borgar-
stjóra saknað. Unglingarnir hafa
Iíka orðið fyrir vonbrigðum með
áframhaldið - við þau hefur ekki
verið talað, þrátt fyrir gagnmerk-
ar tillögur þeirra um ýmislegt það
sem betur má fara í borginni. Þau
lögðu áherslu á ódýrari strætis-
vagnaferðir og mánaðarkort sem
meirihlutinn vill ekki fallast á,
eins og kunnugt er. Þau báru
fram tillögur um úrbætur í mál-
efnurn unglinga, með sérstakri
áherslu á vímuefnavandanum.
Þau ræddu um nauðsyn á gjör-
breytingu á starfsemi Vinnu-
skólans og margt fleira.
Á hátíðlegum stundum er oft
talað um að ráðgast eigi við ung-
lingana sjálfa áður en stórar á-
kvarðanir í unglingamálum eru
teknar. Það verður hins vegar
minna úr framkvæmdum. Það
kom skýrt í ljós þegar felld var
tillaga okkar um að borgin not-
færði sér góðar hugmyndir ung-
linganna og þeirra frumkvæði
með þvi að skipa viðræðuhóp
sem tæki sérstaklega fyrir félags-
og tómstundastarf unglinga og
rædd starfsemi Vinnuskólans. I
tillögu okkar fólst einnig að við-
ræðunefndin fengi 1.5 milj. til að
mæta kostnaði við breytingar og
nýjungar sem nefndin kynni að
leggja til. Ennfremur vildum við
að viðræðuhópurinn kannaði
hvort ekki væ.ri æskilegt að halda
unglingadansleiki í Laugardals-
höll mun oftar en nú er.
í útvarpsþætti nú nýlega var
verið að segja frá fundi æskufólks
í Tónabæ, þar sem litið var um
öxl og rætt um helstu atburði á ári
æskunnar. Flestum sem þar töl-
uðu kom saman um að borgar-
stjórnarfundur æskunnar hefði
verið það markverðasta sem
gerðist á árinu. Hins vegar lýstu
þau yfir hneykslun sinni yfir því
hve illa borgarfulltrúar meirihlut-
ans sóttu fundinn og sérstaklega
fannst þeim snautlegt að borgar-
stjóri skyldi ekki geta séð af ein-
um klukkutíma í að hlusta á unga
fólkið, hann sem er þó alls staðar
og alltaf, sögðu þau.
Unglingarnir sendu borgar-
stjórninni undirskriftarlista þar
sem þau skoruðu á borgarfulltrú-
ana að styðja tillögu okkar. 300
undirskriftir söfnuðust á ör-
skömmum tíma. En nei. 1.5 milj.
til þessa starfs og 500 þús. í vímu-
efnavarnir var ekki hægt að sam-
þykkja. Öndvegissúlurnar áttu
að kosta nákvæmlega þessa upp-
hæð. Hvort hefði peningum verið
betur varið í uppbyggjandi starf
með unglingum eða í plastsúlur?
Sjálfstæðismeirihlutinn hefur
svarað. Þess sjást nú lýsandi
dæmi á borgarmörkunum.
Fimmtudagur 30. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 5
Guðrún Ágústsdóttir.
Þomblót ABK í Þinghóli
laugardagskvöldið 1. febrúar.
Hið vinsæla þorrablót Alþýðubandalagsins í Kópavogi verður haldið á laugardagskvöldið í Þinghóli,
Hamraborg 11. Húsið verður opnað kl. 19.00 og verður þá gestum boðið upp á lystauka. Kl. 20.00 verður
hinn vinsæli þorramaturfrá Sveinbirni á borðum. Meðan á borðhaldi stendur verður flutt fjölbreytt dagskrá.
• Á dagskrá er m.a. ávarp frá Birni Ólafssyni
bæjarfulltrúa, gamanmál flutt af Helga Seljan al-
þingismanni, söngur stúlknakórs úr Kársnesskóla
undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, fjöldasöngur
o.fl.
• Að loknu borðhaldi og dagskráratriðum mun
dansinn duna til kl. 3 um nóttina. Tríó Ásgeirs
Sverrissonar ieikur.
• Aðgöngumiði að blótinu gildir sem happdrættis-
miði og verða vinningar dregnir út um kvöldið.
Tryggið ykkur miða og borð í dag frá kl. 18.30
- 21.00 í Þinghóli, sími 45715. Skemmtinefndin. Björn Ólafsson Þórunn Björnsdóttir Helgi Seljan