Þjóðviljinn - 30.01.1986, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 30.01.1986, Qupperneq 6
VtÐHORF Gísla B. Bjömssyni svarað Reynir Ingibjartsson skrifar En ég kann þvíafskaplega illaþegarfólk virð- isthaldiðþeirri hugsun aðþað „eigi“ blöð, flokka og jafnvel heila borg. Imínum huga á dagblað eins og Pjóðviljinn að vera miðill en ekki málpípa Sá ágæti maður, Gísli B. Björnsson gerir mér óvæntan heiður í Þjóðviljanum sl. þriðju- dag, með því að gera að umtals- efni grein mína um forval Al- þýðubandalagsins 17. jan. sl. í Þjóðviljanum. Þar sem nokkuð ber á því að mér eru gerðar upp skoðanir í þessari grein og út- úrsnúningum beitt, má ég til að svara fyrir mig og fagna um leið öllum umræðum um Alþýðu- bandalagið og næstu borgar- stjórnarkosningar. DV auglýsir eftir stjórnarandstöðu í grein minni var á það bent, að kannski myndi almenningur hér í borg betur eftir umræðum um setu fulltrúa Alþýðubandalagsins í nefndum og ráðum borgarinnar, en málefnabaráttunni og árangri af henni. Nefnd var sem dæmi seta Gísla í afmælisnefndinni „hans Davíðs". Já Davíðs segi ég. Ekki er ég í vafa um að reynsla og þekking eins fremsta auglýsinga- manns landsins nýtist í þeirri nefnd, en í hverra þágu? Hafa þeir sem horft hafa á sjónvarp, hlustað á útvarp, lesið b'öðin eða stundað samkvæmis- lífið ekki orðið varir við það að undanförnu, hver leikur fyrsta leiknum, klippir á borða, segir fyrstu sögnina eða kjassar feg- urðardísir? Ekki ber þar mikið á fulltrúum minnihlutaflokkanna, sem eiga þó að hafa lagt fram til- lögurnar. Jafnvel forseti borgar- stjórnar fær ekki að opna mál- verkasýningu, nema fjarveru borgarstjórans við það tækifæri sé sérstaklega getið. Hvað er 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar orðið annað en „skrautsýning borgarstjórans" svo vitnað sé í málflutning Kvennaframboðsins og borgarbúar eru nú farnir að skilja? Jafnvel leiðarahöfundi DV er nóg boðið og segir í ný- legum leiðara undir yfirskrift- inni, - GÚLLIVER: „Sjónvarpið sýnir Gúlliver í Putalandi. Reykvíkingar þurfa ekki lengi að leita síns Gúllivers. Þar er kominn borgarstjórinn, Davíð Oddsson. Hann kemur fram við minnihlutamenn í borg- arstjórn og aðra borgarfulltrúa eigin flokks sem Gúlliver væri á ferð. Vissulega getur verið hag- stætt að hafa sterkan borgar- stjóra. Þá er auðvitað gaman að hafa syngjandi borgarstjóra sem leikur fyrir lýðinn. En vesöld minnihlutaflokkanna er alltof mikil. Hún er ekki í samræmi við lýðræðisstefnuna. Vissulega er Davíð Oddssyni ekki um það að kenna. En æskilegra væri, að í Reykjavíkurborg væri einhver annar kostur, eitthvað sem fólk gæti treyst til borgarstjórnar, ef núverandi meirihluti brygðist.“ Seinna í leiðaranum segir um minnihlutann: „Þar hefur verið á ferð höfuð- laus og sundraður her. Minni- hlutinn er jafnan einstaklega óvitur í áróðri gagnvart hinum sterku sjálfstæðismönnum." Kaupi ekki Morgunblaðið Já áróðurinn. Er það ekki hann, góður eða slæmur sem býr til þá mynd sem fólk hefur fyrir sér af borgarmálastarfinu sem öðru? Kannski til að verjast nokkuð einhliða áróðri, hef ég haft það fyrir reglu að kaupa og lesa ekki Morgunblaðið. Það var því hlálegt að lesa það í grein Gísla, að ég væri líklega tryggur lesandi Moggans, en læsi Þjóð- viljann bara öðru hvoru og þá helst eitthvað misjafnt um Al- þýðubandalagsmenn í borgar- málastarfi eða lof um frammi- stöðu Kvennaframboðsins á sama vettvangi. Ég verð því að koma því á framfæri, að á mínu heimili hefur Þjóðviljinn verið keyptur alla nrína búskapartíð og borinn út í nærliggjandi götur að ekki sé minnst á happdrættismiða og önnur fjárútlát fyrir málgagn- ið. Ég hef líka verið í hópi þeirra lesenda, sem hafa fagnað faglegri andlitslyftingu (þökk sé m.a. Gísla B.) og efnislegri opnun, sem felst m.a. í því að flytja ekki aðeins „góðar" fréttir af samherj- um en „vondar“ af andstæðing- um. Fyrir bragðið hef ég oftast losnað við að lesa Morgunblaðið. En ég kann því afskaplega illa þegar fólk virðist haldið þeirri hugsun, að það „eigi“ blöð, flokka og jafnvel heila borg. I mínum huga á dagblað eins og Þjóðviljinn að vera miðill en ekki málpípa, flokkur eins og Alþýðu- bandalagið á að vera baráttutæki en ekki hagsmunahópur og borg- armálastarf á að þjóna íbúunum en ekki þeim sem taka þátt í starf- inu. Ég dreg ekki í efa að fulltrúar Alþýðubandalagsins í borgar- málastörfum hafa unnið vel og heiðarlega, ekki síst Adda Bára Sigfúsdóttir, sem brátt mun yfir- gefa borgarstjórn með reisn og virðingu, en á þeim fjölmiðlun- artímum sem við lifum, dugar ekki lengur að bíða þess að ein- hver taki eftir starfinu og meti það. Kvennaframboðið á ekkert blað og hefur engan skipulagðan stjórnmálaflokk að styðjast við, en fulltrúar þess hafa eftir því sem ég best fæ séð, leitast við að þjóna fólki í borginni sem þarf á því að halda, og reynt með marg- víslegum hætti að koma vanda þess á framfæri í fjölmiðlum. Að reyna að gera lítið úr þessu lýsir best þeim sem það gerir. Áfram messaguttar eða? I leiðara DV sem áður er vitn- að til, eru Sigurjóni Péturssyni ekki vandaðar kveðjurnar og honum líkt við „messagutta“ hjá borgarstjóranum. Það er heldur ömurlegt að hljóta slíka samlík- ingu eftir 16 ára barning við íhaldið í borginni og oft nokkurn árangur. Slíkt er ægivald hægri pressunnar og hún á jafn auðvelt með að niðurlægja sem upphefja. Undir slíkum kringumstæðum er það að sjálfsögðu mikilvægast, að gefa ekki höggstað á sér, en hafa jafnframt á lofti þau vopn sem bíta. Ég fæ ekki betur séð, en nú sé verið að gera allt það fólk, sem vinnur að borgarmálum, að messaguttum hjá borgarstjóran- um. Bráðum verður ekki hægt að taka ákvörðun í nokkurri nefnd eða ráði, nema með hans sam- þykki. Það er því ekki furða þótt leiðarahöfundur DV hafi nokkr- ar áhyggjur af lýðræðinu. Við þessar kringumstæður mun skipta miklu hver verður niðurstaðan í forvali Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík á morg- un og laugardag. Það er sérstak- lega jákvætt við þetta forval, hversu stór hópur af yngra fólki með víðtæka reynslu og þekk- ingu, gefur nú kost á sér í borg- arstjórnarslaginn. Baráttuviljinn leynir sér ekki og engin minni- máttarkennd gagnvart „hinum sterku sjálfstæðismönnum.“ Ekki ber að vanmeta þekkingu og reynslu af starfi í nefndum og ráðum borgarinnar, en reynsla af lífinu í borginni skiptir þó miklu meira máli. Baráttuviljinn er þó mikilvægastur eins og nú er kom- ið málum. Messagutti hjá Davíð skal ég aldrei verða. Reynir Ingibjartsson Konur eiga leikinn Margrét Pála Ólafsdóttir skrifar Að auki vil ég koma þeirri skoðun minni á framfœri að við verðum að komafram með sterkan lista frambjóðenda, sem bermeðsér ferskan blæ og er líklegur til að vinna á öðrum forsendum Nær 4 ár eru liðin frá valdatöku Davíðs Oddssonar, borgarstjóra í Reykjavík. Þau ár hafa ekki far- ið fram hjá neinum. Við vinstra fólk unnum borg- ina einu sinni - og töpuðum henni aftur. Til eru margar og mismun- andi söguskýringar á þeim at- burðum, en söguskýringar eru ekki viðfangsefnið núna. Fram- undan er að bretta upp ermar og vinna - og vinna þessar kosningar í vor. Davíð Oddsson hefur verið borgarstjóri þeirra, sem mest mega sín, öðrum hefur ekki verið hampað. Þannig er niðurstaða síðustu ára einfaldlega að konur, börn og gamalmenni hafa orðið undir. Ef litið er sérstaklega til dag- vistarmálanna, sést greinilega að núverandi borgarstjórn lítur fyrst og fremst á dagvistarheimilin sem geymslustaði og staðan í innra starfi heimilanna hefur verið sér- lega erfið á þessu kjörtímabili. Það hefur EKKI EINU SINNI VERIÐ ÓBREYTT ÁSTAND, heldur AFTURFÖR. Stór orð, rétt er það. Ekkert hefur verið gert til að bæta starfsaðstæður starfsfólksins og að auki hefur komið til stórfelldur flótti bæði fóstra sem og ófaglærðs fólks vegna smánarlegra launakjara borgarstarfsmanna. Það vill nefnilega þannig til að við vinn- um á hinum frægu töxtum - og konum er ekki hyglað með auka- greiðslum undir borðið á einn eða annan veg. Það fellur í hlut annarra. Þótt vinstri meirihlutan- um hafi um margt verið mis- lagðar hendur, tókst þó að koma á aldursblönduninni á dagheimil- unum og fækka þannig börnum og fjölga starfsfólki svo dæmi sé tekið. Þeir foreldrar, sem hafa horft upp á starfsmannaekluna og þar af leiðandi erfiðleikana á góðu uppeldisstarfi, óska vart eftir áframhaldandi stjórn hinna „sterku.“ Ég nefni launamálin hér á undan sem ástæðu fyrir starfs- mannaskorti á barnaheimilum. Við skulum nefnilega ekki gleyma því að það er ekki aðeins ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar, sem stendur að lág- launastefnunni. Stjórnvöld borg- arinnar hafa staðið að sömu smánarsamningunum við sitt starfsfólk - sparað sér hundruð miljóna þar á, enda fjárhagsstaða borgarinnar talin góð. ÞESS HEFUR LAUNAFOLK EKKI NOTIÐ, en portúgalskt grjót prýðir nú Laugaveginn. Launa- fólk á að sjá þess merki á launa- seðlinum, hverjir fara með völdin í þess sveitarfélagi, í Reykjavík fer það ekki milli mála. En nóg um það. Við Alþýðu- bandalagsfólk missum ekki sjón- ar af markinu og höfum nóg upp á Davíð að klaga. Að auki vil ég koma þeirri skoðun minni á framfæri að til viðbótar verðum við að koma fram með sterkan lista frambjóð- enda, sem ber með sér ferskan blæ og er líklegur til að vinna á ÖÐRUM FORSENDUM. Síðan væri ekki síðra að sjá, að konur í okkar flokki þurfi ekki kvenna- framboð til að hafa áhrif. Að þessu sögðu fagna ég framboði varaformannsins okkar, Kristín- ar Á. Ólafsdóttur, og spái henni brautargengi í komandi forvali. Er ekki tímabært að konur eigi leikinn? Margrét Pála Ólafsdóttir. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. janúar 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.