Þjóðviljinn - 30.01.1986, Page 7

Þjóðviljinn - 30.01.1986, Page 7
Þau Stefán Viðarsson og Hlíf Káradóttir, starfsmenn í Múlakaffi voru önnum kafin við að útbúa þorratrogið þegar Ijósmyndara Þjóðviljans bar að garði,, og þegar lítið bar á laumuðu þau harðfiskflís eða öðru góðgæti uþþ í sig. Mynd. Sig. Þorratrogið Slegist um þorramatinn í ár eru liðin þrjátíu ár síðan þorrablótið var endurvakið. Það var Halldór Gröndal, þá- verandi eigandi Naustsins, sem með aðstoð Kristjáns Eld- járns, þáverandi þjóðminja- varðar, sem ákvað árið 1956 að bjóða gestum veitingahússins upp á þessa fornu rétti, sem margir hverjir fundust ekki lengur í búri nútímamannsins. Það að blóta þorrann átti greiðan aðgang að þjóðarsálinni og nú er svo komið að margir álíta þetta fornan sið sem hafi fylgt okkur allt frá heiðni. Flest félagasamtök hóa saman félögum sínum til að lyfta sér upp í skammdeginu og við að renna hákarli niður með brennivínstári og um sveitir landsins eru haldin fjölmenn þorrablót og sækja þau allir sem vettlingi geta valdið. Sálin í sýruna í öllum matvöruverslunum eru kjötborðin yfirfull af súrmeti og feitmeti þessa dagana og að sögn þeirra sem Þjóðviljinn hafi sam- band við, er þorramaturinn rifinn út, eða einsog einn kaupmaður- inn orðaði það: Það er slegist um þorramatinn með kjafti og klóm. Þjóðviljinn ákvað að grennsl- ast fyrir um verðlag og ýmislegt annað viðvíkjandi þorramatinum og hafði samband við nokkra að- ila, sem annaðhvort framleiða eða selja þessa vöru. Vitaskuld var fyrst haft samband við Naustið þar sem í ár eru liðin þrjátíu ár frá því að siðurinn var endurvakinn þar á bæ. Ómar Hallsson, veitingamað- ur á Naustinu, sagði að það væri erfitt fyrir sig að spá í hvort það hefði aukist stöðugt að almenn- ingur blótaði þorrann. Það hefur hinsvegar verið mjög góð aðsókn á Naustinu undanfarin ár þegar boðið er upp á þorramatinn. Sagði hann að það væri einkum eldri kynslóðin sem kynni vel að meta þorramatinn. Yngra fólk væri meira á varðbergi gagnvart þessum mat, en þrátt fyrir það verður það æ algengara að ungt fólk komi í Naustið og panti þorramat og taldi Ómar það mjög ánægjulega þróun. Ómar vildi vara fólk við súr- meti sem sumar matvöruverslan- ir framleiddu sjálfar. Sagði hann að það væri allt of mikið um að menn væru að flýta sér og til að hraða sýringunni helltu þeir ediki yfir kjötið. „Sumt af þessu sem er selt sem þorramatur er and- skotann enginn þorramatur held- ur afskræming á honum.“ Hjá Naustinu er þorramatur- inn verkaður á staðnum. Er mat- urinn settur í mjólkursýru á haustin og snúið reglulega eftir gömlum og gegnum reglum. Kostar þorramatur fyrir einn í Naustinu krónur 1090. Og hvað er gert til að minnast þrjátíu ára afmælisins? „Þess er minnst með því að framreiða eins góðan þorramat og nokkur kost- ur er á,“ sagði Ómar. „Því get ég lofað þér að í ár höfum við lagt sálina í sýruna.“ Mikil aukning Stefán Ólafsson hjá Múlakaffi sagði að það hefði átt sér stað gífurleg aukning í þorramatnum undanfarin ár. Sagði hann að hjá Múlakaffi væri framleitt sama magn ár eftir ár og önnuðu þeir nokkurn veginn eftirspurn. Á móti kæmi að svo til hver einasta matvörubúð væri nú farin að bjóða upp á þorramat og eftir því sem hann best vissi væri slegist um þetta með kjafti og klóm í verslununum. Þorramaturinn sem Múlakaffi býður upp á er verkaður á staðn- um og er kjötið sett í súrt á haustin og látið liggja í ámum í þrjá mánuði og skipt reglulega um pækil. „Við stöndum að þessu einsog var gert í gamla daga, á þann eina hátt sem mögulegt er að framleiða þessa vöru svo vel sé.“ Einsog Ómar taldi Stefán alltof algengt að verið væri að af- skræma þorramatinn með því að láta súrmatinn liggja í ediki í nokkra daga í stað þess að verka hann á gamla mátann. Sagði hann að með því væri verið að plata fólk. Hjá Múlakaffi er hægt að kaupa þorramatinn í mismunandi pakkningum. Tólf hundruð gramma þorrakassi sem inniheld- ur 14 tegundir af þorramat og er ætlaður fyrir tvo, kostar 590 kr. Þá er hægt að kaupa þurrkassa sem kostar 350 kr. og súrkassa sem kostar 240 kr. Múlakaffi býður líka upp á þorramat í trog- um fyrir fimm eða fleiri og kostar það 490 kr. á manninn. Stefán sagði að töluvert væri um að Múlakaffi sæi um að senda þorramat til íslendinga erlendis, t.d. hefðu íslendingafélögin í Kaupmannahöfn og Ösló pantað undanfarið mat frá Múlakaffi. Eftirspurn varla annað Hjá Veitingamanninum feng- ust þær upplýsingar að þar væri þorramatur bara afgreiddur til fyrirtækja sem er.u í föstum við- skiptum við Veitingamanninn eða hafa verið í viðskiptum. Var okkur sagt að þeir önnuðu ekki meiru, en mikið hefur verið hringt og spurt hvort hægt væri að fá þorramat þaðan. Hjá Kjötbúðinni Borg var tekið í sama streng, þeir anna varla eftirspurninni. Var okkur tjáð að mjög góð sala hefði verið í þorramatnum þar sem af er þorr- anum. „Fólk virðist hafa mikla ánægju af þessu.“ 600 gr. bakki af þorramat kost- ar hjá Borg kr.150, og var okkur Fimmtudagur 30. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.