Þjóðviljinn - 30.01.1986, Side 19
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppnin
Ellert
stjórnar
Island ífimm landa
riðli
Ellert B. Schram, formaður
Knattspyrnusambands Islands,
hefur verið útnefndur formaður
framkvæmdanefndarinnar sem
sér um Evrópukeppni landsliða
1986-1988. Ellert hefur um skeið
átt sæti í stjórn Knattspyrnu-
sambands Evrópu, UEFA, og er
einn varaforseta þess.
Dregið verður í riðla fyrir
keppnina í Frankfurt þann 14.
febrúar. Ellert verður að sjálf-
sögðu viðstaddur ásamt þremur
stjórnarmönnum KSÍ sem ntunu
freista þess að ná þá strax samn-
ingum um leikina í keppninni.
Löndunum 32 verður raðað í 7
riðla, fimm lið í fjórum og fjögur
lið í þremur, og er öruggt að ís-
land verður í fimm liða riðli.
—VS
Knattspyrna
Wallace byrjar
bærilega
Skoraði í 4-0 sigri Englendinga
Bjarni Guðmundsson æfir af krafti einsog aðrir í landsliðinu. Hann er
leikjahæstur íslenskra landsliðsmanna frá upphafi og ætti að verða kominn
nálægt 200 landsleikjum að lokinni A-keppninni.
Handbolti
Englendingar unnu fremur
auðveldan sigur á Egyptum, 4-0, í
vináttulandsleik í knattspyrnu
sem háður var í Kaíró í gær.
Trevor Steven skoraði fyrsta
markið eftir 16 mínútna leik og
varnarmaður Egypta sendi bolt-
ann í eigið mark rétt fyrir hlé.
Nýliðinn Danny Wallace skoraði
þriðja markið á 55. mínútu og
Gordon Cowans hélt uppá
endurkomu sína í landsliðið með
marki, 4-0, á 74. mínútu.
Þetta var fyrsti landsleikur
milli þessarra þjóða og fengu
Englendingar hann sérstaklega
til að kynnast leikstíl Egypta —
þeir leika svipað og Marokkó
sem er í riðli með Englandi í loka-
keppni HM í Mexíkó.
—VS/Reuter
Knattspyrna
Völsungar
fá þrjá
Völsungar á Húsavík hafa feng-
ið liðsstyrk úr Reykjavík fyrir
baráttuna í 2. deild næsta sumar.
Þrír cfnilegir piltar hafa ákveðið
að leika með þeim, Framararnir
Grétar Jónasson og Eiríkur
Björgvinsson og markvörðurinn
Þorfinnur Hjaltason úr Val en
hann lék í marki Leiknis á Fá-
skrúðsfirði sl. sumar.
-VS
Flestir bestu í
Flugleiðamótinu
21 leikmaður œfir—lófara til Sviss
T uttugu og einn leikmaður æfir
nú af krafti með landsliðinu í
handknattleik fyrir Flugleiða-
mótið sem hefst í Laugardalshöll-
inni annað kvöld. Þar eru allir
okkar bestu leikmenn nema Þor-
bergur Aðalsteinsson og Alfreð
Gíslason.
Bogdan Kowalczyck landsliðs-
þjálfari mun að endingu velja 16
leikmenn úr þessurn hópi til að
taka þátt í A-keppninni í Sviss en
hverjir það verða nákvæmlega
Knattspyrna
Fjölgar hjá Blikum
Örn Bjarnason, markvörður-
inn snjalli sem leikið hefur með
Njarðvíkingum í 2. deildinni und-
anfarin ár, er genginn til liðs við
Breiðablik, nýliðana í 1. deild.
Félagi hans, Guðmundur Valur
Sigurðsson, hefur ákveðið að
gera slíkt hið sama. Báðir léku
með Haukum áður en þeir gerð-
ust leikmenn með UMFN.
Breiðablik hefur einnig fengið
til liðs við sig Harald Úlfarsson,
sterkan varnarmann úr Fylki,
Helga Ingason, sóknarmann úr
Víkingi, og varnarmanninn
Hallgrím Sigurjónsson frá
Grindavík. Þá er baráttujaxlinn
Vignir Baldursson mættur til
leiks á ný eftir að hafa þjálfað
Austra á Eskifirði sl.sumar.
—VS
liggur sennilega ekki ljóst fyrir Sigurður Sveinsson leikur þó
fyrr en eftir landsleikina við Nor- ekki með á Flugleiðamótinu,
eg hér á landi um miðjan febrúar. hann er rétt að komast í gang eftir
Flugleiðamótið hefst annað meiðslin slæmu sem hann varð
kvöld kl.19.30 í Laugardalshöll- fyrir fyrr í vetur. Þá er Þorgils
inni með leik Póllands og Banda- Ottar meiddur á hné eftir Baltic-
ríkjanna. Kl. 21 hefst síðan viður- keppnina.
eign Islands og Frakklands. Á —VS
laugardag leika Frakkland og
PóHand kl 16.30 og ísland- Körfubolti
Bandankin kl. 18. A sunnudag- _______í___________
inn lýkur mótinu, Bandaríkin og
Frakkland mætast kl. 16.30 og DaiiNIII ■
Ísland-Pólland kl. 18. IbCVÍI
Landsliðshópurinn er skipaður r *
eftirtöldum leikmönnum: CTDI'hiDTtll
Markverðir: Einar Þorvarðar- wlUI IICGHU
son, Brynjar Kvaran Kristján Reynir stendur verst að vígi í 1.
Sigmundsson og Ellert V.gfus- deildarkeppni karla í körfuknatt-
SOIa a i i h u leik eftir tap gegn Breiðabliki í
Aðrir leikmenn: Þorbjorn Sandgerði \ gafrkvöldi, 54-56.
Jensson Þorgils Óttar Mathie- Keynir var yfir nær allan leikinn,
sen, Guðmundur Guðmundsson, 29.24 f hálfleik en Blikar tr ðu
Bjarm Guðmundsson, Stemar sér sigur með góðum endaspretti.
B.rgisson Jon Arn. Runarsson, staðan í 1. deild:
Guðmundur Albertsson, S.gurð- Fram...... 15 15 0 1298.924 3Q
ur Gunnarsson, Ath Hilmarsson, Grindavík. 15 9 6 1061-1987 18
Páll Ólafsson, Kristján Arason, Breiöablik. 16 7 9 1063-1172 14
Egill Jóhannesson, Sigurður £órA...... 14 5 9 943-963 10
Sveinsson, GeirSveinsson, Júlíus |seyn r .. ,? 3 1q zzuRnn r
Jónasson, Valdimar Grímsson og
Jakob Sigurðsson. __VS
Italía
Risarnir
töpuðu
Risarnir Juventus og AC Mi-
lano töpuðu óvænt í 2. umfcrð
ítölsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Juventus tap-
aði 1-0 í Como og skoraði þar Sví-
inn Dan Corneliusson eina mark-
ið. AC Milano tapaði 1-0 fyrir 2.
deildarliðinu Empoli. Þetta voru
fyrri leikir liðanna svo öll nótt er
ekki úti. Fiorentina vann Udinese
3-1, Roma vann Atalanta 2-0 og
Verona sigraði Pisa 3-0 en þrem-
ur leikjum var frestað vcgna
snjóa.
—VS/Reuter
England
Millwall
vann Villa
Enn gengur allt á afturfótunum
hjá Aston Villa. Fallbarátta í 1.
deild og í gærkvöldi féll liðið útúr
bikarkeppninni, tapaði 1-0 fyrir
2. deildarliðinu Millwall í
London. Millwall sækir Sout-
hampton heim í 5. umferð.
Tottenham fór létt með 3.
deildarlið Notts County, 5-0, og
mætir Everton heima. Man.Utd
sigraði Sundcrland 3-0 og leikur
úti gegn West Ham eða Ipswich.
Chelsea féll óvænt útúr deilda-
bikarnum á heimavelli, tapaði 0-
2 gegn QPR. Liverpool, Oxford
og Q.P.R. eru þá komin í undan-
úrslit keppninnar og fjórða liðið
verður Arsenal eða Aston Villa.
—VS/Reuter
Getraunir
Góður afli Barkar!
Skipverjar á loðnubátnum Berki frá Neskaupstað kræktu í góðan
afla um síðustu helgi. Seðill frá þeim var með 12 rétta leiki, ásamt
þremur öðrum, í 22. leikviku. Vinningur fyrir hverja tólfu er 276,680
krónur og fyrir 11 rétta 4,839 krónur. Vinningspotturinn var samtals
1,581,037 krónur og fer vaxandi á ný. KR seldi fiestar raðir, 55,596
talsins.
Fjölmiðlaspáin fyrir 23. leikviku er þannig: > 5 _•
•O —’ f-4 rj) -Q ■
'O -Q > E 03 \Q.j>
HTS Q i— Q <0
Arsenal-Luton........................................ 1111111
Aston Villa-Southampton........................ x x 2 x x x x
Everton-T ottenham................................... 1111111
Ipswich-Liverpool.............................. 1 x 2 2 2 2 2
Newcastle-Coventry................................... 1111111
Nottm.Forest-Q.P.R............................. 1111111
Oxford-Birmingham................................. 1111112
Watford-Sheff.Wed.............................. 1 x 2 1 x 1 x
Barnsley-Norwich............................... 2 2 2 x 2 x2
Bradford C.-Wimbledon............................. 1x12x12
Leeds-Stoke.................................... 2x11111
Sheff. Utd-Brighton............................ 2 x x 1 x 1 x
Getraunir bjóða nú upp á nýja tegund getraunaseðla, seðla sem hægt
er að prenta út í tölvuprentara. Til að byrja með verða þeir aðcins á
boðstólum með 10 einföldum röðum en þegar fram líða stundir bætast
kerfisseðlarnir við.
4. deild
Fjölgun frá í fyira
Aukning á Vestfjörðum, fœkkunfyrir norðan og austan.
Skotfélagið komið með knattspyrnudeild!
Alls hafa 36 lið tilkynnt þátt-
töku í 4. deildarkcppni.ini í knatt-
spyrnu fyrir næsta sumar, eða
jafnmörg og í fyrra. Þó er víst að
liðin verða fleiri því í gær var vit-
að um a.m.k. tvö félög sem voru
sein fyrir með þátttökutilkynn-
ingar.
Þessi lið hafa tilkynnt þátt-
töku:
Suður- og Vesturland:
Eyfellingur, Stokkseyri, Hvera-
gerði, ÞórÞ., Afturelding, Hafn-
ir, Haukar, Augnablik, Víkverji,
Árvakur, Léttir, Leiknir R.,
Skotfélag Reykjavíkur, Víkingur
Ó., Snæfell og Grundarfjörður.
Grótta á eftir að skila. Eyfel-
lingur var ekki með í fyrra og
Skotfélagið er nýtt á knattspyrn-
usviðinu. Mýrdælingur var með í
fyrra en hefur ekki tilkynnt þátt-
töku.
Vestfirðir:
Hörður Patr., Höfrungur,
Stefnir, Bolungarv.k, H&V,
Reynir Hn. og Geislinn. Stefnir
og Hörður voru ekki með í fyrra
og Höfrungur á Þingeyri og H&V
frá ísafirði eru ný félög á Islands-
móti.
Norðurland:
Kormákur, Hvöt, Höfðstrend-
ingur, Svarfdælir, Vaskur, Æsk-
an, HSÞ.b, Tjörnes og UNÞ.b.
Skytturnar, Bjarmi og Árroðinn
voru með í fyrra en hafa ekki til-
kynnt þátttöku. Kormákur frá
Hvammstanga hefur ekki áður
tekið þátt.
Austurland:
Huginn, Hrafnkell, Súlan og
Sindri. Höttur, Neisti og Egill
rauði voru með í fyrra en hafa
ekki tilkynnt þátttöku.
Samkvæmt þessu fjölgar liðum
á Suðurlandi til Vestfjarða en
fækkar nokkuð fyrir norðan og
austan. f ár verður leikið í sér-
stökum riðli á Vestfjörðum í
fyrsta skipti í mörg ár og ýtir það
verulega undir þátttöku á svæð-
inu.
—VS
Fimmtudagur 30. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19