Þjóðviljinn - 18.02.1986, Síða 7

Þjóðviljinn - 18.02.1986, Síða 7
Umsjón: Sigurður Á. Friðþjófsson DJODVILJINN Málefni fatlaðra Enn langt íland Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins flytur í hentugra húsnœði, en tugir barna bíða eftir aðfáþar nauðsynlega þjónustu Fullyrða má að á síðustu árum hefur orðið veruleg breyting til batnaðar á félagslegri þjónustu við fatlað fólk þótt enn vanti mikið á að hún sé fullnægjandi. Samkvæmt fjárlögum yfirstand- andi árs er gert ráð fyrir að varið verði 420 milj. kr. til rekstrar- kostnaðar stofnana og þjónustu fyrir fatlaða á vegum félagsmála- ráðuneytisins. Þar að auki eru til ráðstöfunar vegna stofnkostnað- ar 80 milj. kr. í Framkvæmda- sjóð fatlaðra, en þar er átt við bæði líkamlega og andlega fatlað fólk. Tryggja jafnrétti Markmiðið með lögum um málefni fatlaðra er að tryggja þeim jafnrétti og skilyrði til að lifa eðlilegu lífi í þjóðfélaginu. f samræmi við það hefur verið unn- ið að skipulegri uppbyggingu á þjónustu fyrir fatlaða um allt Íand. Stjórnarnefnd málefna fatl- aðra er skipuð 7 fulltrúum. Er verkefni hennar m.a. að gera til- lögur um úthlutun úr Fram- kvæmdasjóði fatlaðra. Stjórn- arnefndin fer einnig með stjórn Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, sem nýlega hefur tekið til starfa, eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu. Landinu er skipt í 8 þjónustu- svæði og eru þau hin sömu og kjördæmin og fræðsluumdæmin. A hverju svæði er 7 manna svæð- isstjórn þar sem samtök fatlaðra eiga þrjá fulltrúa, 2 eru fulltrúar sveitarfélaga og svo héraðslæknir og fræðslustjóri. Margvísleg þjónusta Komið hefur verið upp marg- víslegri svæðisbundinni þjónustu fyrir fatlaða svo sem sambýli, sem á þessu ári verða orðin 21, vernduðum vinnustöðum, skammtímafóstruheimili, með- ferðarheimili, þjónustumið- stöðvum, leikfangasöfnum, sum- ardvalarheimili, æfingar- stofnunum o.fl. Samkvæmt lögunum geta for- eldrar eða framfærendur fatlaðra barna undir 18 ára aldri fengið fjárhagsaðstoð og á sl. ári fengu framfærendur 300 barna slíkar greiðslur. Heimilt er og að veita fötluðum fjárhagslega aðstoð vegna námskostnaðar og vinnu í heimahúsum. Á nokkrum svæð- um fer fram atvinnuleit fyrir fatl- aða. Fjöldi fatlaðra á sambýlum og öðrum fámennum visteining- um er um 150 manns. Um 140 manns er á öðrum vistheimilum og um 400 manns stunda vinnu á vernduðum vinnustöðum. Þeir Valgeir Eyjólfsson og Valtýr Ármannsson voru að leggja síðustu hönd á innréttingunaþegarþessarimynd varsmellt af. Mynd Sáf. Jón Oddur var kampakátur er tíðindamenn Þjóðviljans litu við í Kjarvalshúsi fyrir skömmu. Ljósm. Sig. Greiningar- og ráðgjafarþjón- usta ríkisins, sem nú hefur tekið til starfa, er í tveimur einbýlishús- um á Seltjarnarnesi og hvorugu þó hentugu. Þar verður megin áhersla lögð á að mæta brýnustu þörfum, sem er mat og meðferð á fötlun forskólabarna. Samt fer því fjarri að unnt sé að fullnægja þörfinni á þessu svið með núver- andi aðstöðu og starfsliði. í Kjar- valshúsi er listi yfir 40-50 börn, sem þangað hefur verið vísað á undanförnum 3 árum og ekki hef- ur verið unnt að sinna og stöðugt berast nýjar tilvísanir. Á sl. ári sóttu um 160 manns þjónustu á athugunardeildinni og mikill hluti þeirra þarf áframhaldandi þjónustu á Greiningar- og ráð- gjafarstöðinni. Um 30 af eldri skjólstæðingum stöðvarinnar eiga að hefja skólagöngu næsta haust og þurfa ítarlegt mat fyrir þann tíma. Þriggja ára börn og yngri, sem vísað er til stöðvarinn- ar og sett í forgangshóp verða að bíða í nokkra mánuði áður en út- tekt á fötlun þeirra fer fram. Nefnd, sem fjallað hefur um starfsemi Greiningarstöðvarinn- ar telur, að um 180 börn úr hverj- um árgangi muni leita til stöðvar- innar. Sýnir þetta hversu brýnt það er, að stöðinni verði búin betri aðstaða. Þarf bæði til að koma hentugra húsnæði og veru- leg aukning á starfsliði. Nú starfa við stöðina, sálfræð- ingar, talkennarar, félagsráð- gjafi, sérhæfðir barnalæknar, endurhæfingarlæknir, sjúkra- þjálfarar, þroskaþjálfar og sér- hæfðar fóstrur. Auk þess eru svo til ráðgjafar barnageðlæknir og sérkennarar fyrir blinda. Flest er þetta fólk í hlutastörfum. Starfsemin fer fram með tvennu móti á göngudeild og at- hugunardeild. Flest yngstu börn- in eru á göngudeildinni en hin eldri á athugunardeildinni. Þang- að koma börnin daglega til dag- vistunar í nokkrar vikur og eru í umsjá sérþjálfaðra fóstra, þroskaþjálfa og annarra sérfræð- inga. Síðan er leitað meðferðar- úrræða úti í þjóðfélaginu um ráð- gjöf veitt um meðferð. -mhg Akranes Skóli reistur af nemendum Nemendur verknáms í Fjölbraut reistu skólahús Tvær nýjar kennslustofur voru teknar í gagnið hjá Fjöl- brautarskóla Akraness i upp- hafi þessa árs. Skólastofur þessar eru í sér húsi, sem nemendur við verknámsdeild Fjöibrautaskólans hafa reist sjálfir og var vinnan við húsið hluti af námi þeirra. Þegar blaðamaður Þjóðviljans var staddur uppi á Skaga fyrir nokkrum dögum, ákvað hann að skoða þetta mannvirki. Tveir nemendur voru að leggja síðustu hönd á verkið er blaðamaður knúði dyra. Það voru þeir Valgeir Eyjólfsson, sem er Strandamað- ur og Valtýr Ármannsson, innfæddur Skagamaður. Þeir eru báðir í húsasmíðanámi og Ijúka í vor. Var Valgeir að festa upp fatahengi, en Valtýr að ganga frá skránni á útidyrunum. Tjáðu þeir blaðamanni að nemendur hefðu byrjað að smíða einingarnar í húsið í fyrravetur og hefði svo verið hafist handa við að reisa það sl. haust. Var húsið að mestu fullfrágengið fyrir jól, utan að eftir var að draga í raf- lagnir. Til að hægt væri að nýta skólastofurnar á vorönn, var ákveðið að útskrifaðir rafvirkjar sæju um þann þátt byggingar- innar, í stað þess að bíða eftir rafvirkj anemendunum. Það vor um sex nemendur sem tóku að sér að byggja húsið undir yfirumsjón Ólafs Ólafssonar, sem er aðalennari í verknáms- deildum. Teikningar eru hannað- araf Magnúsi Óiafssyni. í annarri stofunni fer fram teiknikennsla en hin er notuð undir alhliða kennslu. Sögðu piltarnir að þetta hefði verið mjög lærdómsríkt og mun meira lifandi nám en yfirleitt er boðið upp á í verknámskennslu. Vonuðust þeir til að framhald yrði á svona framkvæmdum. Þórir Ólafsson, skólameistari, sagðist ekki búast við framhaldi á þessu, að minnsta kosti ekki í bili, því þetta væri háð fjárveitingum til skólans. Sagði hann að þetta hefði verið gert í tilraunaskyni og hefði tilraunin heppnast mjög vel, nemendur hefðu skilað fyrsta flokks vinnu og skólinn myndi búa lengi að verki þeirra. -Sáf Þrlðjudagur 18. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.