Þjóðviljinn - 18.02.1986, Blaðsíða 8
MANNLIF
Tveir ungir skíöamenn á leið í brekkurnar. Það kostar nokkra bið eins og sjá má en áhugafólk um skíðaíþróttina lætur slíkt ekki á sig fá. Mynd Sig.
..w
Líf og fjör í Bláfjöllum
Góð nýting á brekkunum. Mynd Sig.
Það var bjart yfir Bláfjalla-
svæðinu þegar Þjóðviljamenn
beygðu inn á afleggjarann við
Rauðuhnjúka sunnudag einn
fyrir nokkru. Þetta var stuttu eftir
hádegi og greinilegt að mikill
fjöldi manns var á sömu leið.
Þegar ekið var inn á bflastæðin
við skíðasvæðin var varla nokk-
urt svæði laust. En það var mikil
hreyfíng á fólki, með þolinmæði
og útsjónarsemi mátti finna eitt
og eitt laust stæði. Þorsteinn
Hjaltason, fólkvangsvörður,
tjáði okkur að í eins góðu veðri
og var þennan dag kæmu á fjórða
þúsund manns á svæðið. Hann
sagði að þrátt fyrir þennan mikla
fjölda væri sjaldgæft að örtröð
myndaðist á svæðinu, lyftur væru
það margar og fólksfjöldinn
dreifðist nokkuð jafnt yfir dag-
inn. „Hvað varðar endurbætur“,
sagði Þorsteinn, „er þó brýnast
að umferðarmál verði bætt. Það
er bráðnauðsyniegt að hringakst-
ur sé um svæðið, það er ótækt að
bflar sem eru að koma á svæðið
þurfi að mæta þeim sem eru að
fara. Vegurinn er það þröngur að
lítið má út af bera til þess að um-
ferðaröngþveiti myndist.
Þetta er á áætlun fyrir næsta ár
og ég er að vona að það haldist“,
sagði Þorsteinn.
Inni í skála Bláfjallanefndar
var margt um manninn. Þar er
veitingasala sem fólk notar sér
óspart. En mikið var um að fólkið
snæddi sitt nesti í eigin bílum. En
það eru ekki allir í einkabfla-
bransanum. Upp í Bláfjöll eru
tíðar rútuferðir úr nærliggjandi
byggðrlögum, jafnvel ofan af
Skaga og frá Selfossi. Þorsteinn
sagði að nú væri verið að innrétta
húsnæði í kjallara skálans sem
væri ætlað þeim sem vildu bregða
sér inn fyrir og snæða nestið sitt.
Það var greinilegt á öllu að fólk
skemmti sér hið besta í Bláfjöll-
um þennan góðviðrisdag, skíða-
menn hafa tekið gleði sína aftur
eftir snjóleysi síðasta vetrar. Þar
tala myndir Sigurðar sínu máli.
-IH
Bjarki Karlsson heitir hann þessi lyftuvörður við eina af minni lyftunum. „Fín vinna “, sagði hann. „Fullt af fallegu
kvenfólki". Mynd Sig.
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlftjudagur 18. febrúar 1986