Þjóðviljinn - 21.02.1986, Qupperneq 1
Bœndafundur
Reykingar
eigna-
skattur
og
banka-
skattur?
Hagfrœðingar A SI og
VSIhafa bentá
mögulegar leiðir til
tekjuöflunar fyrir
ríkissjóð
Hagfræðingar ASÍ og VSÍ hafa
sameiginlega bent á mögulega
leið til tekjuöflunar fyrir ríkis-
sjóð, til að mæta kostnaði af nið-
urgreiðslu verðbólgunnar í 7
prósent. Hún felst f því að setja á
aukinn eignaskatt og sérstakan
bankaskatt. Rætt er um að sam-
böndin setji þessar hugmyndir
sameiginlega fram gagnvart ríkis-
stjórninni. Samkvæmt hcimild-
um Þjóðviljans eru samböndin
hins vegar ekki enn búin að leggja
blessun sína yfír þessar hugmynd-
ir hagfræðinganna.
Talað er um að setja sérstakan
launaskatt á banka og afla þannig
um 200 milljón króna. I hug-
myndum hagfræðinganna er líka
gert ráð fyrir að auka eignaskatt
um 35 til 40 prósent, og fá þannig
inn aðrar 200 milljónir. Hluta af
þessu yrði varið til að greiða nið-
ur tolla af fólksbifreiðum, og
ýmsum heimilistækjum þar á
meðal er rætt um að lækka tolla á
sjónvarpstækjum, myndböndum
og hljómflutningstækjum.
í hópi VSÍ manna sem Þjóð-
viljinn talaði við í gær var and-
staða við hugmyndirnar um
aukna skattheimtu, sérstaklega
um tillögur að auknum eigna-
skatti. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans er Vilhjálmur Egils-
son, hagfræðingur VSÍ og for-
maður ungra Sjálfstæðismanna
einn af höfundum þessara hug-
mynda.
Sjá bls 3.
Aðvörun
að handan
Gjaldþrot blasir við
Fjölmennur fundur á Breiðabliki á Snœfellsnesi ígœr:
Verðlaus búfénaður. Verðlausar bújarðir íkjölfar mjólkurkvótans.
Haukur Sveinbjörnsson bóndi: Hundruð kúa leidd til slátrunar
Hljóðið á fundinum var alvöru-
þrungið og þungt í bændum,
þeir töldu gjaldþrot fjölmargra
blasa við, verðlausar bújarðir og
verðlaust búfé ef engu yrði hnik-
að til um framkvæmd reglugerð-
ar ríkisstjórnarinnar einsog fram
kom á afar fjölmennum fundi
Samningarnir
Aukinn
bænda í Breiðabliki á Snæfells-
nesi í gær.
Fundurinn hófst um tvöleytið í
gærdag og stóð fram undir klukk-
an átta í gærkveldi. Hagfræðing-
ur bændasamtakanna gerði grein
fyrir framkvæmd framleiðslu-
kvótans og niðurskurðar á fram-
leiðslu mjólkur á fundinum - og
auk hans töluðu yfir 20 bændur
og þingmenn kjördæmisins.
Allir ræðumenn utan einn
gagnrýndi kvótann harðlega.
Margir fullyrtu að þessi kvóti
myndi valda gjaldþroti ungra
bænda sem hafa verið að fjárfesta
í tækjum og húsum að undan-
förnu og standa nú frammi fyrir
niðurskurðinum.
Haukur Sveinbjörnsson bóndi
á Snorrastöðum sagði í samtali
við blaðamann Þjóðviljans á
fundinum í gær, að nú á miðjum
Þorra væri verið að leiða hundruð
kúa til slátrunar, - ég gæti frekar
trúað á annað þúsund kúa til
slátrurnar. Bændur eiga ekki
annarra kosta völ. Það kostar
nefnilega tugþúsundir kýrfóðrið.
Og það er betra að slátra þeim
núna en ala þær fram á sumar og
mjólka þær beint í flórinn. Sjálfur
er ég nú að leiða kýr til slátrunar,
sagði Haukur.
Nánar verður sagt frá fundin-
um í Þjóðviljanum á morgun.
- Sdór
Sjá leiðara bls. 4
New York - Bandaríski leikarinn
Yul Brynner, sem dó í október
síðastliðnunt úr krabbameini, lét
taka sig upp á myndband á
dauðabeði þar sem hann varaði
fólk við því að byrja að reykja.
Á myndbandinu sem er mjög
tilfinningaríkt, að sögn fulltrúa
bandarísku krabbameinssamtak-
anna, segir Brynner m.a.: „Þar
sem ég er nú horfinn á braut vil ég
hvetja alla sem horfa á mig nú að
reykja ekki.“ Myndbandið sem
er 30 sekúndna langt verður sýnt
mjög bráðlega í sjónvarpsstöðv-
um um öll Bandaríkin.
IH/Reuter
Rokktónleikar í Árseli á morgun laugardag til styrktar starfsemi Hjálparstofnun- grundfirskum stelpum sem eru í starfskynningu á blaðinu: Snorri Sturluson,
ar kirkjunnar í Eþíópíu. Allir sem unnið hafa að undirbúningi þessara rokktón- Olafur J. Stefánsson, Snorri Geir Steingrímsson, Finnur Karl Ólafsson, Anna
leika sem hefjast kl. 19.30 (kostar 300 krónur inn) gáfu vinnu sína. Nokkrir Svansdóttir og Guðmunda Ragnarsdóttir. - Mynd SigMar
aðstandenda litu við á Þjóðviljanum í gær og sjást á myndinni ásamt tveimur
SFR/BSRB
Hvatt til verkfallsboðunar
100 mannafundur trúnaðarmannaráðs SFRfordœmir seinaganginn við
samningana. Vill kaupmátt launa 1983. Fulla verðtryggingu.
Aukinn kaupmátt. Meira samstarf milli ASÍog BSRB
Ttúnaðarmannaráð Starfs-
mannafélags ríkisstofnana
krefst þess að stjórn BSRB og
samninganefnd fari nú þegar í
fundaherferð um landið til að
brýna fólk og sameina til baráttu
og kanna vilja félagsmanna til
boðunar verkfalls og knýja þann-
ig stjórnvöld að samningaborð-
inu í fullri alvöru. Jafnframt er sá
mikli seinagangur sem verið hef-
ur í samningum um kjaramál op-
inberra starfsmanna, fordæmdur
og óbilgirni stjórnvalda kennt
um.
Þetta var samþykkt samhljóða
á mjög fjölmennum fundi í trún-
aðarmannaráði SFR í gær. Sóttu
um hundrað manns fundinn og
var þungt hljóð í öllum um hvern-
ig viðræður hafa þróast undan-
farnar vikur.
í ályktuninni er lögð áhersla á
að kaupmáttur launa verði
aukinn á árinu og stefnt að því að
endurheimta kaupmátt launa
1983. Einnig að full verðtrygging
komi á þau laun sem samið verði
um.
Þá er lögð áhersla á aö
stjórnvöld leysi vanda húsbyggj-
enda og íbúðakaupenda sem
eru komnir í greiðsluþrot vegna
misgengisins. Þá er harðlega
mótmælt hugmyndum um að
fjármagn lífeyrissjóðanna verði
veitt í ríkissjóð umfram 40% ráð-
stöfunarfjár þeirra einsog nú er
gert.
Að lokum er svo hvatt til að
samstarf BSRB, ASÍ og annarra
launþegasamtaka verði stóraukið
og að ákvarðanir um grundvallar-
atriði, sem snerta afkomu allra
launþega, séu ekki teknar nema í
fullu samráði milli þessara aðila.
- Sáf