Þjóðviljinn - 21.02.1986, Qupperneq 2
FRÉTTIR
SKÁK
Grandastjórn
Davíð kærður á ný
Kœra minnihlutans vegna tilnefningar ístjórn Granda ítrekuð.
Minnihlutinn telur að kjósa beri stjórnarmenn borgarinnar
lltrúar minnihluta- félagsmálaráðherra í dag bréf þar Oddssyni borgarstjóra vegna til- ítrekuð.
nefningar í stjórn Granda hf. er
Borgarfulltrúar minnihluta- félagsmálaráðherra í dag bréf þar
flokkanna í borgarstjórn senda sem kæra þeirra á hendur Davíð
Spánarhús bæjarstarfsmanna í Garðabæ á Hvítu ströndinni.
Garðabœr
Bæjarstarfsmenn kaupa Spánarhús
Starfsmannafélag Garðabæjar
hefur fcst kaup á húsi í þorp-
inu Torraveja rétt hjá Alicante á
suðausturströnd Spánar (Costa
Blanca) og er kaupverðið um 550
þúsund krónur.
Frá þessu segir í Alþýðubanda-
lagi, nýútgefnu blaði Alþýðu-
bandalagsins í Garðabæ. Félagið
tekur við húsinu 1. júní og hefur í
burðarliðnum samninga við
Ferðamiðstöðina um aflsátt á
ferðum fyrir félaga sína, en sú
ferðaskrifstofa sér um ferðir til
Alicante.
Páll Ingimarsson formaður
Starfsmannafélagsins bjóst við að
menn dveldu í húsinu í þrjár vik-
ur í senn, og sagði ekkert á móti
því að húsið nýttist líka yfir
vetrartímann væri á því áhugi.
Ekki væri ákveðið hvort utanfé-
lagsmönnum yrðu boðin afnot af
húsinu.
Bæjarstarfsmenn í Garðabæ
eru tæplega 90.
ítrekuð.
Davíð Oddsson borgarstjóri
tilnefndi þá Þórarin V. Þórarins-
son lögfræðing, Þröst Ólafsson
framkvæmdastjóra Dagsbrúnar
og Ragnar Júlíusson borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn
Granda þegar af samruna BÚR
og ísbjarnarins varð, en málið
kom ekki til afgreiðslu í borgarr-
áði eða borgarstjórn. Davíð taldi
sig hafa umboð borgarráðs til
verksins, en minnihlutinn er á
öðru máli, hefur aldrei samþykkt
slíkt og krefst þess að stjórnar-
mennirnir verði kosnir í borgar-
stjórn með lýðræðislegum hætti.
Borgarfulltrúar minnihlutans
kærðu tilnefninguna til fé-
lagsmálaráðuneytisins strax í
nóvember. Félagsmálaráðuneyt-
ið kom sér undan því að taka af-
stöðu til málsins á þeirri forsendu
að ekki hefði verið fjallað um það
íborgarstjórn. Fyrirhálfum mán-
uði síðan lagði minnihlutinn hins
vegar til að borgarstjórn lýsti til-
nefninguna ólöglega, en borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
felldu tiliöguna eins og vænta
mátti.
Þegar stofnsamningur Granda
var samþykktur í borgarstjórn í
nóvember var jafnframt sam-
þykkt að bjóða hlutafé borgar-
innar í fyrirtækinu falt á frjálsum
markaði. Til þess hefur enn ekki
komið, en þess er að vænta innan
tíðar. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans hafa nokkrir aðilar
lýst yfir áhuga á þessum bréfum,
en ekki er vitað hverjir það eru.
Borgarsjóður telst nú fara með
75% hlutafjár í Granda.
- gg
Friðsemd á toppnum
Áttunda umferð mótsins fór
fram í gærkvöldi eftir dags hlé
sem menn gátu notað til hvíldar.
Ekki hvíldust þó allir og m.a.
tefldi Bent Larsen fjöltefli við 45
andstæðinga í Taflfélagsheimil-
inu. Hann vann 37, gerði 4 jafn-
tefli og tapaði 4 skákum. Meðal
þeirra sem unnu stórmeistarann
var Páll Árnason, 11 ára gamall
piltur úr Kópavogi. Er þessi góði
árangur hans ánægjulegur vitnis-
burður um þá grósku sem ríkir í
skákiðkuninni um þessar mund-
ir.
Efstu menn á mótinu gerðu
flestir jafntefli. Hansen lét skipt-
amun gegn Gheorghiu en öflugt
frípeð tryggði honum jafnan hlut.
Tal og Geller sömdu fljótt og var
það raunar eina stórmeistara-
jafnteflið að þessu sinni. Helgi
tefldi við Miles og var skák þeirra
í jafnvægi allan tímann. Margar
skákir fóru í bið og bætast örugg-
lega fleiri í hóp þeirra sem hafa
51/2 vinning þegar þeim er lokið.
Margeir á erfiða biðskák við
Kudrin en Guðmundur stendur
líklega betur í flókinni stöðu á
móti Dehmelt. Jón L. tefldi
þunga stöðubaráttuskák gegn
Seirawan. Þegar kom út í tíma-
hrak reyndi Bandaríkjamaðurinn
að flækja taflið en hann græddi
nú ekki á því og stendur Jón betur
í biðstöðunni. Skák Jóhanns fór
einnig í bið. Hann hefur peði
meira gegn Indónesanum Utut.
Hér eru menn farnir að nefna
hann skírnarnafni sínu en ekki
eftirnafninu Adianto enda nýtur
hann mikilla vinsælda meðal
áhorfenda, maðurinn langt að
kominn, býður af sér góðan
þokka, teflir hvasst og er öllum
skeinuhættur.
Úr neðri deildinni er það helst
tíðinda að bandaríski stór-
meistarinn Browne er kominn
þangað til að vera (eins og sagt
hefur verið um kvótakerfið).
Hann tapaði í gær fyrir landa sín-
um Wilder. Þrestirnir unnu báðir
sínar skákir og hafa staðiö sig
mjög vel fram að þessu. Það
verður að hafa í huga þegar litið
er á árangur hinna reynsluminni
keppenda að svona mót er afar
erfitt því enginn andstæðingur er
auðveldur viðureignar og það
verður alltaf að tefla á fullu.
Bandaríski stórmeistarinn
Bjrne er meðal elstu keppend-
anna, kominn á sjötugs aldur.
Hann minnir mig mikið á Björn
bónda á Húnsstöðum, báðir
menn heldur hávaxnir og grann-
leitir en bjartir yfirlitum. Hann
hefur teflt nokkrar vandaðar
skákir á mótinu og í gær átti hann
í höggi við Svíann Welin.
Hvítt: Byrne
Svart: Welin
Frönsk vörn
1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 - Bb4
4. e5 - c5 5. a3 - Bxc3+ 6. bxc3 -
Re7 7. Rf3 - Bd7 8. Be2-Ba4.
Þótt þessi leikur sé svolítið
skringilegur þá er hann ekki út í
loftið. Hugmyndin er að skorða
a-peð hvíts og jafnframt binda
mann við að valda peðið á c2. í
lokuðum stöðum gerir yfirleitt
ekki svo mikið til þótt sama
manninum sé leikið oftar en einu
sinni í byrjuninni.
9. 0-0 - c4 10. Rg5 - h6 11. Rh3 -
Rb-c6 12. Rf4 - Da5 13. Bd2 -
0-0-0 14. Bg4 - Kb8 15. Hbl -
Hd-e8
JÓN
TORFASON
Það væri gott fyrir svart að geta
leikið peðunum á kóngsvæng
fram (f7-f5, g7-g5 o.s.frv.). Hvít-
ur hefur hins vegar beint riddara
sínum og biskup að e6-reitnum
svo svartur verður að byrja á að
valda hann.
16. Hb2 - Rd8 17. D13 - Bc6 18.
Hal - He-f8 19. Rh5 - f5.
Svartur er kominn í hálfgerð
vandræði á kóngsvæng. Hvítur
getur í makindum undirbúið peð-
aframrásina f2-f4-f5 og svartur
þarf að gera eitthvað við því.
Ekki er gott að leika g-peðinu
fram því þá fer riddarinn til f6. Ef
hann valdar nú g-peðið með
hrók, 19. ... Hh-g8, gæti komið
20. Rxg7 Hxg7 21. Bxh6 H7-g8
22. Bxf8 Hxf8 og nú ýtir hvítur
h-peðinu áfram og óvíst að svart-
ur fái stöðvað það nema með
mannfórnum.
20. exf6 (fh) - gxf6 21. Bxh6 -
Hf7 22. Bf4+ - Ka8
abcde fgh
23. Bg3 - ...
Snjallt. Hvítur hótar nú 24.
Df4 og Db8 og mát. Riddarinn á
d8 stendur í vegi hróksins á h8
þannig að hann getur ekki valdað
mátreitinn.
23. ... - e5 24. Rxf6
Svartur gafst upp því hann
verður þrem peðum undir.
Fjölmargir áhorfendur sækja
mótið. í gær voru meðal gesta
Dagsbrúnarmennirnir Jón,
Bjarni og Sigurður, smiðirnir
Guðmundur og Árni, Páll sjó-
maður, Gunnar og Halldór kenn-
arar, Guðrún Sóknarkona og
tvær Iðjukonur.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
. O Viva Espana !
LÍN
Alltá
huldu
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra veigrar sér enn
við því að leggja frumvarp sitt um
Lánasjóð námsmanna fyrir þing-
menn stjórnarflokkanna. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
hefur forsætisráðherra einn feng-
ið að líta á gripinn, auk formanns
SUF, sem nú hefur sent
Steingrími sínar athugasemdir
við frumvarpið.
Finnur Ingólfsson formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hann hafi sent
Steingrími athugasemdir við
frumvarpið fyrir rúmri viku, en
síðan hefur ekkert spurst af því.
Finnur vildi ekki tjá sig sérstak-
lega um frumvarp Sverris, en
sagðist í mörgu mjög ánægður
með núgildandi lög, og þær
breytingar sem þyrfti að gera á
LÍN gætu vel rúmast innan nú -
gildandi laga. -gg
Efstir
Með 6V2 vinning:
Hansen.
Með 6 vinninga:
Larsen, Nikolic, Gheorghiu.
Með 5V2 vinning:
Helgi, Miles, Geller, Tal, Byrne.
skákir
í gær
(8. umferð)
Hansen-Gheorghiu.............y2-y2
Larsen-Nikolic...............V2-V2
Helgi-Miles..................V2-V2
Geller-Tal...................'h-'k
Salov-Quinteros................bið
Margeir-Kudring................bið
DeFirmian-Reshevsky..........y2.y2
Adanto-Jóhann.................t>iö
Byrne-Welin....................1-0
Dehmelt-Guðmundur S............bið
Seirawan-Jón L.................bið
Christiansen-Ligterink.........1-0
Lein-Karl Þorst..............V2-V2
Alburt-Jens Kristiansen........1-0
Browne-Wilder.................0-1
Fedorowicz-Schússler.........y2-y2
Benjamin-Burger................1-0
Dlugy-Davíð....................1-0
Jung-Sterren..................o-1
ÁsgeirÞ.-Yrjölá...............o-1
Hannes H.-Donaldson............bið
Schiller-Zaltsman............y2-y2
Guðmundur H.-Kogan.............bið
Hoi-ÓlafurK................... bið
Remlinger-Þröstur Þ...........o-1
Lárus J.-Pyhala...............o-1
BragiH.-RóbertH................i_q
Þorsteinn-Benedikt.............bið
JóhannesÁ.-Karklins........””'o-1
JónG.-Haukur A...............Vz-'k
Björgvin-Herzog............... i_g
Dan Hansen-GuðmundurG........ bið
Árni Á.-Sævar B...............g-1
LeifurJ.-HilmarK...... g-1
.Kristján-Haraldur..WW. 0-1
Áskell Ö.-Tómas....... 0-1
Þröstur-HalldorE....1-0