Þjóðviljinn - 21.02.1986, Síða 12

Þjóðviljinn - 21.02.1986, Síða 12
HEIMILIÐ / Búsetablokkin Odýrar og glæsilegar íbúðir Fjölbýlishús það sem Búsetl hyggst reisa í Grafarvogi er mjög reisuleg bygging, sér- stæð útiitslega séð en þrátt fyrir það eru hagsýnissjónar- miðin látin ráða ferðinni. Verð staðalíbúðar er áætlað um 3,5 milljónir en sambærileg íbúð í Búsetablokkinni á að kosta um tvær milljónir. Húsinu er ætlaður staður á hæsta punktinum í Grafarvogi og er því gríðarlegt útsýni til allra átta. I norður blasir við Esjan, Akrafjall og Skarðsheiði en í for- grunni eru sundin blá. í suður eru Bláfjöll, vestur höfuðborgin og austur Mosfellssveitin. Það er því sama hvar í húsinu búið er, útsýn- ið frá öllum íbúðunum er gríðar- legt. I venjulegum fjölbýlishúsum eru flestar íbúðirnar með glugga bara á göflunum en í Búseta- blokkinni eru þrír gluggaveggir á hverri íbúð. Þær eru því mjög bjartar, fá lýsingu frá langvegg og báðum göflum. Þetta hefur það jafnframt í för með sér að aðeins einn sameiginlegur veggur er með öðrum íbúðum, þannig að hávaðatruflanir frá nágrönnun- um eru í lágmarki. íbúðafjöldinn er 46 íbúðir, 16 tveggja herbergja, 15 þriggja og 15 fjögurra herbergja. Tveggja herbergja íbúðirnar eru 62 fer- metrar og fjögurra herbergja íbúðirnar 88 fermetrar að flatar- máli. Sérhver fermetri er svo ný- ttur til hins ýtrasta. Allar íbúðirnar byggja á sömu módeluppbyggingunni, þannig að baðherbergi, eldhús og and- dyri er eins í þeim öllum og eru þær allar sniðnar að kröfum fatl- aðra. Þá er borðstofan sú sama í öllum íbúðunum. Eini mismun- urinn á íbúðunum er sá að her- ■. ' ^ ý _ _ ^ . -v. _ Teikning af fjölbýlishúsi Búseta, sem á að rísa við Frostafold 14-16 í Grafarvogi. bergjum er fjölgað með því að lengja íbúðirnar. Þannig hefur tekist að halda hönnunarkostn- aði í lágmarki. Húsið byggist upp á þrem turn- um, eru tveir þeirra 9 hæðir en einn 8 hæðir. Á jarðhæð eru geymslur og sameiginlegar hjólhesta- og vagnageymslur auk tveggja íbúða. Á hverri hæð eru svo tvær íbúðir í turni. samtals sex á hæð. Á milli turnanna er svo lyftuhús og er brunastigi einnig í því. Stigagangurinn er mjög bjartur því hann fær inn lýsingu úr þrem áttum. Hann er jaframt mjög rúmgóður, og þar sem lyft- an er, aðal samgöngutækið innanhúss, kemur enginn inn á stigagang nema hann eigi þangað erindi. Jafnframt því að hver íbúð hef- ur geymslu á jarðhæð, eru geymslur í íbúðunum, bæði í þriggja og fjögurra herbergja íbúðunum, en í tveggja herbergja íbúðunum er mjög gott geymslupláss í skápum. Þá er að- staða fyrir þvottavél og þurrk- skáp í öllum íbúðunum, en jafn- framt er sameiginlegt þvottahús á efstu hæðinni. Á efstu hæðinni er einnig 60 Valdimar Harðarson, arkitekt. Mynd:. E.ÓI. Veifa ek röngum hl „Við settum okkur það tak- mark að íbúðirnar yrðu mjög þokkalegar og allur frágangur átti að vera til fyrirmyndar, en jafnframt átti að forðast allt bruðl,“ sagði Valdimar Harðar- son, arkitekt, þegar blaðamað- ur Þjóðviljans ræddi við hann um Búsetablokkina, sem hann hannaði sl. sumar fyrir verk- takafyrirtækið Hagvirki, sem kom með hagstæðasta tilboð- ið í fjölbýlishús fyrir bygging- arsamvinnufélagið. „Ég held að okkur hafi tekist þetta bæri- lega og væri mikill skaði ef kerfið gerði mönnum ókleift að reisa þetta hús.“ „Húsið byggir á póst- módernisma og ég lagði mig fram við að gera íbúðirnar þannig úr garði að íbúarnir geti notið útsýn- isins sem best, enda á húsið að rísa á einhverjum besta útsýnis- stað á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru íbúðirnar byggðar upp á mög einfaldri grunnteikningu þannig að hönnunarkostnaðurinn verð- ur í lágmarki. í krafti þess hversu mikið er sameiginlegt með öllum íbúðunum og að sami verktakinn sér um bygginguna á öllum stig- um, gat tilboðið orðið svona lágt. Strax í upphafi var ákveðið að leggja metnað í verkið íbúðirnar eiga að vera vandaðar". Valdimar er þekktastur fyrir Sóleyjar-stólinn, sem þýskir aðil- ar framleiða nú og selja grimmt um gjörvalla heimsbyggðína. Það Rættvið Valdimar Harðarson, arkitekt, um Búsetablokkina, Sóley og það að betraerað veifa öngutréen röngu liggur því beint við að spyrja hann hvernig gangi að samræma þetta tvennt, húsgagnaarkitektúr og húsahönnun. „Það má segja að ég stundi þetta tvennt jöfnum höndum, þó hefur húsahönnunin haft yfir- höndina hingað til. Ætli 70% af vinnutímanum fari ekki í húsin og 30% í húsgögnin. Það er mjög þægilegt að blanda þessu svona saman því vinnubrögðin eru mjög ólík. Húsgögnin byggja fyrst og fremst á hugdettu. Eg fæ einhverja hugmynd sem ég skoða í ákveðinn tíma og annaðhvort 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. febrúar 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.