Þjóðviljinn - 21.02.1986, Síða 14
HEIMILIÐ
Valgerður og dóttir hennar Elín Birna við eitt risablómið að Víðigerði 1. Ljósm.: E.ÓI.
Blómarækt
Blómin
eru ómiss-
andi á
heimili
Spjallaö við Valgerði Björnsdóttur,
mikla blómaræktarkonu í
Reykjavík, um blómin, ræktun
þeirra og umönnun
Ég kom hingað í starfskynn-
ingu frá Selfossi, og það fyrsta
sem ég gerði var að fara að Víði-
gerði 1 með ljósmyndara og taka
viðtal við Valgerði Björnsdóttur
og Elínu Birnu dóttur hennar 3
ára, því sagt var að hún ætti
mikið af stórum og fallegum
stofublómum.
Þegar við komum inn var það
fyrsta sem við tókum eftir stór
Hawairós sem hún sagði að
mamma sín hefði gefið sér af-
leggjara af fyrir 10 árum. Val-
gerður segir að henni þyki vænst
um Hawairósina því hún er búin
að fylgja henni allan búskap.
Hún segir að blóm eigi mjög erfitt
með að flytja. „Við fluttum árið
1983 að Víðigerði 1 og þá hrundu
öll blöðin af og ég hélt að þau
myndu drepast", sagði Valgerð-
ur.
Við litum aðeins í kringum
okkur og þá komum við auga á
annað stórt blóm sem hún sagði
að væri japönsk stofulind, og er
svo mikill vöxtur á því að hún
hefur ekki kynnt öður eins. „Það
hafði vaxið upp undir loft en þá
fór ég með það út síðastliðið sum-
ar og klippti af því. Fólki var far-
inn að ofbjóða vöxturinn, það
hafði ekki einu sinni frið fyrir því
og því klippti ég af því, en sem
betur fer náði það sér á strik aft-
ur.
Mér þykir mjög vænt um blóm-
in en tala nú samt ekki við þau.
Mér finnst þetta mjög skemmti-
legt tómstundagaman. Það þýðir
ekkert að vera að fást við þetta ef
fólk hefur engan áhuga. Ég hef
t.d. oft gefið fólki blóm, sem
nennir ekkert að hafa þau, og
blómin verða ljót og loks deyja
þau“, sagði hún ennfremur.
„Það er vandamál þegar ég fer í
sumarfrí. Þá verð ég alltaf að fá
einhvern til að vökva fyrir mig og
þegar ég kem heim aftur sé ég
hvað þau hafa stækkað."
Við spurðum Valgerði hvort
hún væri ekkert hrifin af kaktus-
um, því við sáum enga. Þá sagði
hún okkur að hún hefði einu sinni
þegar hún var lítil stungið sig svo
illa á kaktusi að hún hafi ekki
þolað þá síðan.
„Maðurinn minn hefur ekki
eins gaman af blómum og ég en
þau eru honum ómissandi inni á
heimi!inu.“
- Oft er sagt að ef maður steli
afleggjurum þá komi þeir betur
til, heldur þú að það sé rétt?
„Nei, það held ég ekki því að af
sumum blómum er ekki hægt að
taka afleggjara. En einu sinni
þegar ég var úti á Júgóslavíu stal
ég afleggjara og hann hefur bara
komið vel til.“
Við spurjum Elínu dóttur Val-
gerðar hvort hún hafi gaman af
blómum og hún segist hafa ofsa-
lega gaman af þeim. Hún á 1
blóm hjá ömmu.
í lokin spurðum við Valgerði
hvort hún gæti ráðlagt okkur
eitthvað um blómarækt og hún
sagði að aðeins væri hægt að
rækta blóm ef maður hefði
áhuga, og passaði líka að ofvökva
ekki blómin. „Þetta er mikil
vinna en mjög skemmtileg".
Við þökkum Valgerði og Elínu
Birnu fyrir spjallið.
- Þ.E.Þ.
Hollensk leðursófasett
- Hagstætt verð -
Góðir greiðsluskilmálar.
JIE
Jón Loftsson hf.
. i •:]
-•-iLZC LiiQQaqjJ
- i_ — _ ~J 1-JiJOO.j'rv
Hringbraut 121 Sími 10600
Opið í öllum deildum
til kl. 20 í kvöld.
Opið laugardag kl. 9-16.
Jli
KORT
Þórdís
Þórðar-
dóttir í
starfs-
kynningu
skrifar
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. febrúar 1986