Þjóðviljinn - 21.02.1986, Page 17
HEIMURINN
Indland
Lögreglan handtekur 10.000 manns
Lögreglan stöðvar mótmœlagöngu með fjöldahandtökum, þar á meðalþingmenn ogforingja
stjórnarandstöðuflokka sem reyndu að mótmœla hœkkunum á nauðsynjavörum
Nýja Delhí- Lögreglan handtók
um 10.000 manns í gær, þar á
íran/írak
Flugvél
skotin
niður
Teheran - Hin opinbera ír-
anska fréttastofa, IRNA, sagði
frá því í gær að íraskar þotur
hefðu í gær skotið niður íran-
ska farþegaflugvél. Fréttastof-
an sagði að um það bil 40
manns hefðu farist.
Sagt var að flugvélin sem var af
Fokker Friendship gerð, hefði
sprungið í loft upp á flugi og allir
hefðu farist. Fulltrúi Irakshers
sagði að þetta væri rakalaus lygi.
Irna sagði að í vélinni hefðu
verið meðal annarra, gamlir full-
trúar í íranska hernum. Einnig
voru í vélinni að hennar sögn,
átta þingfulltrúar, hópur lögfræð-
inga sem ætluðu að heimsækja
bardagasvæðin þar sem íranir
hafa tekið syðri hlutann af Faw
fenjasvæðinu.
Einn af þeim eldri fulltrúum í
íranska hernum, sem voru um
borð í vélinni var að sögn Irna,
Hojatoleslam Mahallati, en hann
var sérstakur fulltrúi Ayatollah
Khomenys í hinum sérstöku Is-
lömsku byltingarvarðsveitum.
Hún er nú voldugasta hersveitin í
íran. franska byltingarvarð-
sveitin er í forystu í þeirri sókn
inn í írak sem nú stendur yfir og
kallast „Dögun 8“.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR /nrn-rcc
HJÖRLEIFSSON R fc U I fc K
rm
meðal þingmenn og forystu-
menn stjórnarandstöðuflokka
í mótmælagöngu sem stefndi
til þinghússins til að mótmæia
verðhækkunum á nauðsynja-
vörum.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
mættu ekki til þingfundar í gær
þar sem ræða átti fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar. Forset-
inn ávarpaði tóman salinn. Auk
mótmæla í höfuðborginni voru
5000 manns í mótmælagöngu í
Bombay.
Um það bil 500 óeirðarlög-
reglumenn börðu mótmælendur
með kylfum til þess að koma í veg
fyrir að þeir kæmust að þinghús-
inu og strætisvagnar voru notaðir
til þess að aka hinum handteknu
á brott. Vitni sögðu að fólk inni í
strætisvögnunum hefði brotið
rúðu á vögnunum og hrópað víg-
orð gegn Gandhi. forsætisráð-
herra: Börn okkar munu deyja úr
hungri vegna verðhækkananna.
Aðalmótmælin gegn verð-
hækkunum verða hins vegar 26.
febrúar þegar allsherjarverkfall-
ið skellur á. Stéttarfélög opin-
berra starfsmanna sem eru með
sex milljónir félaga hafa þegar til-
kynnt að þau muni taka þátt í Delhí sagði í gær að þeir sem taka þátt í því að safnast saman
verkfallinu. tekið höfðu þátt í mótmælunum fleiri en fimm á götum úti en það
Varalögreglustjórinn í Nýju hefðu verið handteknir fyrir að er bannað.
Óeirðir og mótmæli enn á ný í Indlandi. 10.000 manns handteknir í gær.
Sovétríkin
Ný geimstöð í loft
Stórtskrefígeimrannsóknum, segja Sovétmenn
Moskvu - Tilkynnt var í Sovét-
ríkjunum í gær að risastórri
rannsóknarstöð sem ætti að
vera grunnurinn að varanlegri
mannaðri miðstöð fyrir vís-
indalegar og efnahagslegar
rannsóknir í framtíðinni, hefði
verið skotið á loft. Stöðin verð-
ur á sveimi umhverfis jörðina.
Tass fréttastofan sagði að hin
nýja stöð væri nefnd „Mir“
(Friður). Hún er með sex hliðum
fyrir geimför til þess að lenda á og
tæki ýmis konar til þess að vinna
við. Tass lýsti geimskotinu sem
nýju skrefi í geimrannsóknum.
Sagt var að allt gengi samkvæmt
áætlun.
Alexei Leonov, fyrrum
geimfari, sagði Tass að stöðin
væri upphafið að brotthvarfi frá
rannsóknum yfir í framleiðslu í
stórum stíl í geimnum. Sú geim-
stöð Sovétmanna sem fyrir er á
braut umhverfis jörðu, Salyut 7,
mun hafa verið of lítii fyrir þessi
verkefni. Sagt var frá því að
geimstöðinni hefði verið skotið á
loft til heiðurs hinu árlega þingi
sovéska kommúnistaflokksins
sem hefst á þriðjudaginn.
Sovétríkin hafa oft lýst yfir
þeirn ásetningi sínum að setja á
loft geimstöð sem væri mönnuð
til frambúðar. í nokkur ár hefur
verið keppst við að auka þann
tíma sem menn eru í geimnum í
einu. Fyrir tveimur árum síðan
komu þrír geimfarar til jarðar
eftir að hafa verið í mettíma í
geimnum, 238 daga, um borð í
Salyut 7. Síðasta ferðin á síðasta
ári olli hins vegar vonbrigðum í
Sovétríkjunum þar sem einn úr
þeim hópi veiktist og félagar hans
þurftu að fara nteð hann til baka í
nóvember síðastliðnum. Síðan þá
hefur Salyut 7 verið ómönnuð í
geimnum.
Svíþjóð
Grasrótamppreisn gegn Palme
Olof Palme er ímótvindiþessa dagana. Grasrótin íflokknum og virkir meðlimir ístéttarfélögunum
gagnrýna forystu flokks og Alþýðusambandsins. Órói íflokknum er eiginlega
gleðiefni, segir ritari flokksins hress á móti
Stokkhólmi — 30.000 félagar í
sænska sósíaldemókrata-
flokknum og Alþýðusamband-
inu hafa skrifað undir skjal þar
sem efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar er mótmælt. í
skjalinu er krafist hækkunar
grunnlauna fyrir alla og auka
prósentuhækkunar til þeirra
lægstlaunuðu.
Uppreisnin gegn Palme og
leiðtoga Alþýðusantbandsins,
Stig Malm hefur vakið mikla at-
hygli í Svfþjóð. Sænsku dagblöð-
in nefna hana „Dalauppreisnina“
og vísa þannig til bændaupp-
reisnarinnar sem Gustav Vasa
stýrði gegn harðstjórn Danakon-
ungs á sömu slóðum á árunum
eftir 1520. „Stjórnin og Alþýðu-
sambandið standa ekki lengur
með verkamönnum,“ segir Ake
Wiklund, formaður starfsmanna-
félagsins í Saab-Scania verk-
smiðjununi í Falun. Hann hóf
undirskriftasöfnina fyrir jólin síð-
ustu. Laun sænskra iðnaðar-
verkamanna hafa minnkað sem
nemur heilum mánaðarlaunum
síðan 1976. Wiklund og félagar
hans eru í dag með 41 til 48 krón-
ur sænskar á tímann. Árslaunin
eru á bilinu 85 til 95 þúsund krón-
ur sænskar. Á sama tíma hafa
aldrei verið jafn margir
milljónamæringar í Svíþjóð.
Fjöldi atvinnurekenda hafa not-
að sér hlutafjárútboð til að auka
við tekjur sínar á meðan meðal-
Svenson hefur fylgst með
launaumslaginu skreppa saman.
Og þegar ríkisstjórnin veitti sér
17% launauppbót um síðustu jól,
var langlundargeð iðnaðarverka-
manna í Falun á þrotum. Á svona
tímum skömmumst við okkar
fyrir að vera sósíaldemókratar,
segja stöðugt fleiri iðnaðarverka-
menn.
Wiklund gekk úr flokknum í
haust. Hann segist ekki vilja vera
í félagsskap þeirra sem setja
hagsmuni atvinnurekenda ofar
hagsmunum verkamanna. „Það
er til nokkuð sent nefnist sam-
staða í verkalýðshreyfingunni,"
segir Wiklund. „Við sættum okk-
ur ekki við að láglaunahóparnir
eigi að sýna hógværð," segir
hann.
Mótmælin gegn Palme urðu
enn harðari þegar stjórnin lagði
fram fjárlögin fyrir næsta ár, í síð-
asta mánuði. Þau voru í litlum
tengslum við loforðin sem Palme
hafði gefið í kosningabaráttunni í
haust. Það var margt sem fólki
fannst vanta, en það var spurn-
ingin um atvinnuleysistryggingar
sem hlcypti eldi í grasrótina. Fólk
átti von á að þær yrðu auknar. Þá
aukningu var hins vegar ekki að
finna í fjárlögunum og fólkið
sagði hingað og ekki lengra.
Árangurinn af því varð sá að
fjárlögin voru endurskoðuð og
ýmsum liðurn var bætt inn í til að
mæta kröfum. Aftonbladet sem
er málgagn Alþýðusambandsins,
hefur þetta eftir virkum félögum í
samtökunum: „Flokksforustan í
Stokkhólmi skilur ekki hvað við
erunt að segja. Almennir
flokksfélagar þekkja sig ekki í
eigin flokki. En nú verða Feldt og
Palme að hlusta. Við höfum ekki
áhuga á því lengur að láta reka
okkur áfram eins fénað.“
Og virknin eykst dag frá degi.
Wiklund og félagar reikna með
því að nú í vikulokin verði þeir
búnir að safna 40.000 undirskrift-
um. Það er engin ástæða til að
ætlast til að þar með ljúki and-
ófinu. Þeir sem skipulagt hafa og
tekið þátt í þessu andófi ætla sér
að halda óopinberan fund nteð
vorinu í Falun. „Það sem nú þarf
eru miklar launahækkanir," segir
Wiklund. „Láglaunahópar ættu
að fá 20%, þeir ríku ekki neitt,“
segir formaður starfsmannafé-
lagsins og talar þar í andstöðu við
flokksforystuna.
Byggt á Ny Tid og Dagbladet.
—IH
Olof Palme. Eitt sinn sagði hann
„Valdið til verkamanna1'.
Föstudagur 21. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17