Þjóðviljinn - 21.02.1986, Side 22
FRÁ LESENDUM
Fyrir tvö þúsund árum - eða
svo segir sagan - var í Kína dýra-
temjari, sem átti marga apa, sem
kunnu að leika ýmsar fjölbragða-
listir. Dýratemjaranum þótti
ósköp mikið vænt um apana sína.
Hann vildi, að þeim liði vel og
þeir hefðu nóg að borða. Þess
vegna tók hann iðulega af mat
fjölskyldu sinnar til þess að gefa
þeim ábót á sitt einhæfa fæði.
Svo gerist sá atburður, að það
koma óáran í Kína. Það komu
verðbólga og vaxtahækkanir og
menn urðu að setja kvótakerfi á
hrísgrjónaræktina. Meira að
segja ráðherrar liðu skort - þó
ekki á dagpeningum. Var því
ekki undarlegt að harðna færi á
dalnum hjá fjölskyldu dýratemj-
arans. Svo ekki sé þá talað um
vesalings apana. Dögum saman
höfðu þeir ekki fengið ábót á sitt
einhæfa fæði.
Garðastrætihins-
himneskafriðar
Auðvitað mátti ekki við svo
búið standa. Var því efnt til fund-
ar í Garðastrætihinshimneska-
friðar. Þangað komu sársvangir
aparnir og þangað komu dýra-
temjarinn og fjölskylda hans. Er-
indið var að leita lausnar á vanda-
mákim.
Fyrst fullvissuðu samningsaðil-
ar hvor annan um, að mikil væru
vandamál í Kína. Síðan komu
þeir sér saman um að skrifa
keisaranum og ríkisstjórninni
bréf um vandamálin í landinu.
Kínverskt ævintýri
Svo var farið að ræða saman, því í
Kína fyrir 2000 árum skildu ailir
alla.
„Ástandið í landinu er skelfing
erfitt“, sagði dýratemjarinn.
„Samt sem áður ætla ég að teygja
mig eins langt til móts við ykkur
og ég get sökum væntumþykju
minnar í ykkar garð. Ég býð ykk-
ur því sem ábót á ykkar einhæfa
fæði þrjár hnetur handa hverjum
ykkar í hádegismatinn og fjórar
hnetur handa hverjum í kvöld-
matinn."
Allir urðu hissa
Öllum viðstöddum brá mikið í
brún. í veggblöðunum, sem eru
útbreidd í Kína, var meira að
segja fullyrt, að aparnir hefðu
ekki einu sinni ákveðið sig hvers
þeir ætluðu að krefjast af dýra-
temjaranum þegar hann flutti
ræðuna sína. Sum veggblöðin
fullyrtu meira að segja, að aparn-
ir hefðu yfirleitt ekki ætlað að
tala neitt um hnetur, heldur ban-
ana. Eftir ræðu dýratemjarans
fór hins vegar ekki hjá því að um-
ræðan snerist um hnetur en ekki
banana. Bananabarekki ágóma.
Umsvifalaust fóru allir í landinu
hinsvegar að tala um hnetur. í
sjónvarpinu sögðu frambjóðend-
ur hnetubrandara og tekið var
viðtal við eiginkonu forsætis-
ráðherrans um hvernig hún eld-
aði hnetugraut fyrir manninn
sinn. Uppskriftin var birt.
Þegar mesta undrunin var af-
staðin stóðu aparnir á fætur sem
einn maður. „Vér mótmælum all-
ir“, sögðu þeir. Svo gengu þeir
allir út.
Illt í efni
Veggblöðin sögðu að nú væri
illt í efni. Allar horfur væru á að
aparnir ætluðu að hætta að vinna
fyrir fjölskyldu dýratemjarans.
Fjölleikahúsinu yrði þá að Ioka.
Ekki myndi þá fækka vanda -
málunum í Kína.
Aftur var boðað til fundar í
Garðastrætihinshimneskafriðar.
Þar var rætt um erfiðleikana í
Kína, sérstaklega um verðbólgu-
vandamálið. Svo var keisaranum
og ríkisstjórninni aftur skrifað
sameiginlegt bréf þar sem vakin
var athygli á vandamálunum í
landinu. Svo var aftur farið að
tala saman.
Af hollustu
við ættjörðina
Dýratemjarinn kvaddi sér
hljóðs. „Ástandið í landinu er
orðið uggvænlegt", sagði hann.
„Það er uggvænlegt fyrir mig og
fjölskyldu mína og það er ugg-
vænlegt fyrir ykkur hin, sem fáið
ekki ætan bita á meðan ekki er
gengið til samninga. Af hollustu
við ættjörðina og sakir sérstakrar
væntumþykju í ykkar garð ætla
ég því fyrir hönd fjölskyldu
minnar að teygja mig lengra en
við höfum efni á. Ég býð ykkur
því sem ábót á ykkar einhæfa fæði
fjórar hnetur í hádeginu og þrjár í
kvöldmatinn.“
Alla setti hljóða. Veggblöðin
sögðu, að þetta væri auðvitað allt
annað mál. Ábótin kæmi miklu
fyrr á hið einhæfa fæði en sam-
kvæmt fyrra tilboði dýratemja-
rans. Veggblöðin sögðu að nú
hefði verulega þokast í samkomu-
lagsátt. Veggblöðin sögðu, að
nú væri komin samningsstaða.
Og það varð. í Garðastrætihins-
himneskafriðar var tekist í hend-
ur og samningar gerðir og sýning-
ar gátu hafist á ný í fjölleikahús-
inu. Vandamálunum í landinu
hafði að vísu ekkert fækkað en
tekist hafði að afstýra að þeim
fjölgaði um eitt. Allir voru sam-
mála um að það væri stórkost-
legur sigur. Köttur úti í mýri, setti
upp á sér stýri, úti er ævintýri.
2000 ára gömul saga
Sjálfsagt halda einhverjir að ég
sé að búa þetta allt saman til. En
því fer víðs fjarri. Þetta 2000 ára
gamla kínverska ævintýri er m.a.
prentað því sem næst einsog hér
er sagt frá í dönskunámsbókina,
sem yngsti sonur minn er að lesa
um þessar mundir. Þar rakst ég á
það í gærkvöldi. Þótti eins og ég
kannaðist við það einhvers staðar
frá. Og eins og gjarna er sagt í
Velvakanda MBL. Þegar lesend-
ur birta þar vísubrot sem þá rekur
minni til: „Kannast einhver les-
enda við þetta ævintýri?“. Ef svo
er vildi ég gjarna fá að vita hvort
rétt er farið með endirinn.
Þorri
Gjörbreytið launakerfinu
Við verðum að geta lifað af laununum okkar
Stúlka sem vinnur á barna-
heimili í sjöunda flokki eftir þrjú
ár. Hún er með 18805 krónur á
mánuði. Af því borgar hún í fé-
lagsgjald 1%, lífeyrissjóð 4%, - í
gjaldheimtuna 940 krónur. Þessi
stúlka leigir ódýrt með tveimur
vinkonum sínum og greiðir 3500
krónur fyrir það.
Þessi stúlka reyndi að hefja
nám í Öldungadeild en varð að
gefast upp vegna þess að hún gat
ekki fjárhagslega staðið undir
náminu. Á barnaheimilinu er
litla sem enga yfirvinnu að hafa.
Svona láglaunakona greiðir að
sjálfsögðu ekki háa skatta og bað
um að ekki yrði samið um skatta-
fórnir í stað þeirra launahækkana
sem hún þarf á að halda. „Ég hef
mikið yndi af því að vinna með
börnum, - en ég get það ekki
lengur, - ég get ekki lifað af því“.
- Ég vil ekki samninga uppá
7% eða 9%, - ekki heldur uppá
15% - það er það langt frá því að
ég geti lifað af laununum mínum,
það verður að gjörbreyta þessu
launakerfi“.
Lesandi
HVAÐ ER AÐ GERAST IALÞÝÐUBANDALAGINU?
AB Noröurlandi vestra
Almennir fundir
Kristín Á Ólafsdóttir,
■varaformaður Alþýðu-
bandalagsins, og Ragn-
ar Arnalds alþingismað-
ur mæta á almennum
fundum:
Á Blönduósi
(Félagsheimili)
laugardag 1. mars kl.
16:00
Á Hvammstanga
(Félagsheimili)
laugardag 1. mars kl. 20:30
Á Skagaströnd
' (Félagsheimili)
sunnudag 2. mars kl. 16:00
Á Sau&árkróki
(Villa Nova)
laugardag 8. mars kl. 16:00
Á Sigluflrði
(Alþýðuhúsinu)
sunnudag 9. mars kl. 16:00
AB Norðurlandi vestra
Félagsmálanámskeið
Kristín Á Ólafsdóttir, varaformaður Alþýðubandalagsins stjórnar
félagsmálanámskeiðum á Norðurlandi vestra:
Á Hvammstanga (Grunnskólanum)
föstudagskvöld 28. febr. kl. 20:30
fimmtudagskvöld 6. mars kl. 20:00
Þátttaka tilkynnist Erni Guðjónssyni eða Fleming Jessen.
Á Skagaströnd (Félagsheimili)
laugardag 1. mars kl. 10:00
föstudagskvöld 7. mars kl. 20:30
Þátttaka tilkynnist Guðmundi H. Sigurðssyni eða Ingibjörgu Krist-
insdóttur.
Á Sauðárkróki (Villa Nova)
sunnudag 2. mars kl. 10:00
mánudagskvöld 3. mars kl. 20:30.
Þátttaka tilkynnist Ingibjörgu Hafstað eða Rúnari Bachmann.
Á Siglufirði (Suðurgötu 10)
þriðjudagskvöld 4. mars kl. 20:30
sunnudag 9. mars kl. 10:00.
Þátttaka tilkynnist Brynju Svavarsdóttur eða Benedikt Sigurðs-
syni.
Á Blönduósi (Hótel Blönduósi)
miðvikudagskvöld 5. mars kl. 20:30
laugardag 8. mars kl. 10:00.
Þátttaka tilkynnist Guðmundi Theódórssyni eða Eiríki Jónssyni.
Kristín •
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði verður haldinn mánudaginn 24. febrúar
kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu 41.
Undirbúningurfyrir bæjarstjórn og rætt um kosningaundirbúning.
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins
22. og 23. febrúar. Fundarstaður: Miðgarður Hverfisgata 105.
Laugardagur 22. febrúar.
Kl. 10.00 - Efnahags- og atvinnumál. Framsögumenn verða
Finnbogi Jónsson, Guðrún Hallgrímsdóttir, Már Guðmundsson,
Ragnar Árnason og Vilborg Haröardóttir. - Almennar umræður.
Kl. 12.00 - Matarhlé en kl. 13.00 halda umræður áfram. Kl.
15.00 verður gefið kaffihlé.
Kl. 15.20- Verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins. Önnur
mál.
Kl. 17.00 - Starfshópar um efnahags- og atvinnumál og e.t.v.
um önnur mál. Búast má við kvöldvinnu starfshóþa.
Sunnudagur 23. febrúar.
Kl. 09.00 - Starfshópar Ijúka störfum.
Kl. 10.30 - Skil starfshópa.
Kl. 12.00 - Matarhlé. Miðstjórnarkonur funda um væntanlega
kvennastefnu.
Kl. 13.00 - Afgreiðsla á efnahags- og atvinnumálum. Afgreiðsla
á öðrum málum.
Stefnt er að því að fundinum Ijúki fyrir kl. 17.00.
AB Akranes
Góufagnaður AB
verður haldinn í Rein laugardaginn 1. mars
og hefst hann kl. 20.30 með borðhaldi.
Húsið oþnað kl. 20.00.
Dagskrá: 1) Ávarp Össurar Skarphéð-
inssonar ritstjóra Þjóðviljans, 2) Fjölbreytt
skemmtiatriði, 3) Diskótekið Dísa sér um
undirleik fyrir dansi.
Miðasala í Rein mánudaginn 24. febrúar
kl. 20.30-22.00, sími 1630. Skemmti-
nefndin.
össur
Alþýðubandalagsfélag Ólafsvíkur
Forval
Vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, fer fram forval sunnudag-
inn 23. febrúar í Félagsheimili Ólafsvíkur frá kl. 13-17.
Rétt til þátttöku hafa allir félagsmenn og yfirlýstir stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins. Eftirtaldir eru í framboði í forvalinu: Guð-
mundur Jónsson, trésmiður, Haraldur Guðmundsson, skip-
stjóri, Heiðar Friðriksson, verkamaður, Herbert Hjelm, verka-
maður, Margrét Jónasdóttir, húsmóðir og verkamaður, Rúnar
Benjamínsson, vélstjóri, Sigriður Sigurðardóttir, húsmóðir og
verkamaður, Sigurjón Egilsson, sjómaður.
Þeir sem vilja kjósa utankjörstaðar snúi sér til einhvers eftirtal-
inna: Jóhannes Ragnarsson s: 6438, Heiðar Friðriksson s: 6364,
Rúnar Benjamínsson s: 6395 og Sigríður Sigurðardóttir s: 6536.
Félagar eru hvattir til að taka þátt í forvalinu. - Alþýðubanda-
lagsfélag Ólafsvíkur.
AB Selfoss
Almennur félagsfundur
verður haldinn mánudaginn 24. febrúar kl. 20.30 að Kirkjuvegi 7.
Fundarefni: Upþstillinganefnd leggurfram tillögur sínar um fram-
boðslista vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor.
Félagar eru hvattir til að mæta. Heitt á könnunni.
- Uppstillinganefnd
LAL-félagar athugið!
LAL-félagar og annað áhugafólk um landbúnaðarmál er boðað til
fundar í Miðgarði Hverfisgötu 105 4. hæð nk. föstudag 21. febrúar
á milli kl. 15 og 19.
Miðstjórnarmenn á leið í bæinn eru sérstaklega hvattir til að
mæta. Á dagskrá fundarins verður staða landbúnaðarins, bú-
marksmálið, stefnumótun í landbúnaðinum o.fl. - Stjórn LAL.
BYGGÐAMENN AB.
Ahugamenn um sveitarstjórnarmái
Ráðstefna Byggðamanna AB
Ráðstefna Byggðamanna Alþýðubandalagsins um sveitarstjórn-
armál og undirbúning kosninga verður haldin í Miðgarði Hverfis-
götu 105 dagana 15.-16. mars. Ráðstefnan stendurfrá kl. 17-19
fyrri daginn en seinni daginn frá kl. 10-16.
Fyrirhuguð dagskráratriði:
1. Kosningarundirbúningur, hagnýt atriði.
2. Sveitarstjórnarlög - réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
3. Málsmeðferð í sveitarstjórnum.
4. Bókhald og fjárreiður.
5. Samskipti sveitarstjórna og ríkisins.
6. Starf í sveitarstjórn.
7. Starf Alþýðubandalagsins að sveitarstjórnarmálum.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja þessa ráðstefnu tilkynni það til
skrifstofu Alþýðubandalagsins Hverfisgötu 105. Sími 91-17500.
Stjórn Byggðamanna Alþýðubandalagsins.
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Þriðjudagur 25. febrúar ki. 20.30
Fundaröð um
sósíalisma
Baldur Óskarsson segir frá dvöl sinni í
Tansaníu og sýnir myndir.
Allir velkonnir!
Stjórnin
Baldur
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Föstudagur 21. febrúar 1986