Þjóðviljinn - 07.03.1986, Qupperneq 5
Umsjón:
Álfheiður Ingadóttir
Spurtum...
DJODVIIJINN
Helgi Seljan: Heimamönnum og smærri verktökum verði tryggður aðgangur að
smærri verkefnum.
Opinberar framkvœmdir
Utboðsstefnan hættuleg
byggðaþróun í landinu
Þingsályktunartillaga um að heimamönnum og smœrri verktökum verði tryggður
aðgangur að opinberum framkvœmdum. Helgi Seljan: Spurning um eðlilega
hlutdeild íbúa og verktaka landsbyggðarinnar í atvinnulífi í heimabyggð
Sex landsbyggðarþingmenn úr
Alþýðubandalagi, Framsóknar-
flokki og Alþýðuflokki hafa lagt
fram þingsályktunartillögu um
könnun á hagkvæmni útboða og
um nánari reglur um framkvæmd
þeirra. Skal athugunin miða að
því að kanna hvort aðrar leiðir en
útboð séu heppilegri og æskilegri
fyrir byggðarlög og þjóðarheild.
Áhrif útboða á byggðaþróun í
landinu skulu einnig athuguð og
settar skýrar reglur um fram-
kvæmd þeirra þannig að smærri
verktakar og aðilar í heimahéraði
hafi sem besta möguleika á að
taka að sér verkefni í nágrenni
sínu.
í greinargerð er minnt á að út-
boð á vegum hins opinbera hafa
færst mjög í vöxt á undanförnum
árum og hin almenna stefna hefur
verið að verk skuli boðin út og
tekið skuli lægsta tilboði. Sam-
keppnin á útboðsmarkaðinum sé
grimm og miskunnarlaus og lög-
málið um hinn sterka og betur
setta gildi þar ríkulega. Smærri
verktakar sjái oft þá einu leið
færa til að brjótast inn á markað-
inn að bjóða svo lágt að útboðið
hefur falið í sér endalokin fyrir þá
og oft hafi ekki tekist að ljúka við
verk sem þannig er ástatt um. Út-
boðsleiðin valdi því að verkefni
hafa flust frá heimamönnum með
tilviljanakenndum hætti og fram-
kvæmdaféð flust úr heimabyggð.
Flutningsmenn óttast að þjón-
usta ýmissa aðila á landsbyggð-
inni leggist af vegna þessarar þró-
unar. Bent er á að hvert meðal-
stórt sveitarfélag þarf á þjónustu-
aðilum að halda, svo sem vinnu-
vélareigendum og vörúbíl-
stjórum þó verkefnin kunni að
vera stopul. Ýmis verk á vegum
hins opinbera, svo sem hafnar-
gerð, flugvallargerð en þó eink-
um vegagerð hafa gert þessum
aðilum kleift að halda þjónustu
við heimamenn áfram. Missi þeir
alla möguleika til þátttöku vegna
harðrar samkeppni á útboðs-
markaði leggist starfsemi þeirra
einfaldlega niður. Telja flutn-
ingsmenn því nauðsynlegt að
settar verði reglur sem tryggi hlut
heimamanna og aðild þeirra að
verkum sem hið opinbera hafi
með höndum. Leggja flutnings-
menn áherslu á að líta verði til
þjóðhagslegrar hagkvæmni fyrir
heildina þegar teknar eru ákvarð-
anir um útboð. Óttast þeir ekki
óhagkvæmni af annarri skipan
mála en nú gildir ef tekið er tillit
til allra þátta þessa máls.
Flutningsmenn tillögunnar
eru: Helgi Sejjan, Jón Kristjáns-
son, Skúli Alexandersson, Karvel
Pálmason, Steingrímur J. Sigfús-
son og Davíð Aðalsteinsson.
-ÁI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
...sláturhúsið á Fagur-
hólsmýri.
Hjörleifur Guttormsson og
Helgi Seljan spyrja landbúnað-
arráðherra hvort hann sé reiðu-
búinn að stuðla að því í samvinnu
við heimamenn að gerðar verði
viðunandi endurbætur á slátur-
húsinu á Fagurhólsmýri og veita
því síðan starfsleyfi til frambúð-
ar. Vitnað er til ályktunar alþing-
is um þetta mál frá 8. maí 1984 og
umsögn sauðfjársjúkdómanefnd-
ar um tillögur Búnaðarfélags
Hofhrepps frá 2. desember 1981.
...skattalagningu á raf-
orku til húshitunar.
Jóhanna Sigurðardóttir og
Kjartan Jóhannsson spyrja
fjármála- og iðnaðarráðherra
hvort þeir telji frekari þörf
endurskoðunar á lögum unt gjöld
á raforkusölu. f greinargerð er
vitnað til hæstaréttardóms 16.
des. sl. þar sem úrskurðað var að
Rafveitu Hafnarfjarðar væri
heimilt að afmarka í gjaldskrá
hvaða raforkunotkun teldist ra-
forka til húshitunar. Það felur
m.a. í sér að raforkunotkun
vegna varntadælna eða tækja til
varmaflutnings í loftræstikerfum
eða lofthitakerfum telst ekki með
raforkunotkun til húshitunar. í
september 1983 úrskurðaði
fjármálaráðuneytið hins vegar að
rafmagn til þessara nota væri
söluskattfrjálst og í nóvember
sama ár úrskurðaði iðnaðarráðu-
neytið að ekki skyldi greiða verð-
jöfnunargjald af rafmgni til
varmadælna hjá Hitaveitu Akur-
eyrar. Með dómi hæstaréttar sé
það lagt í hendur rafveitnanna en
ekki ráðuneyta að úrskurða um
þessi efni og telja fyrirspyrjendur
að það geti leitt til ójöfnuðar milli
veitukerfa.
...erlend leiguskip.
Eiður Guðnason spyr viðskipt-
aráðherra hversu mörg erlend
leiguskip hafi verið í förum að og
frá íslandi á vegum íslenskra að-
ila undanfarna tvo mánuði.
...ráðgjafarþjónustu
Húsnæðisstofnunar
Guðrún Agnarsdóttir spyr fé-
lagsmálaráðherra hve margir hafi
leitað til ráðgjafarþjónustunnar
eftir að hún var opnuð öðru sinni.
Hvort hér sé sama fólk á ferðinni
og fékk viðbótarlán á síðasta ári,
hvaða skilyrði ráðgjafarþjónust-
an setji fyrir viðbótarlánum,
hvað sé gert fyrir það fólk sem
ekki fullnægir þeim skilyrðum og
getur ekki staðið undir fjárhags-
legum skuldbindingum sínum. Þá
spyr Guðrún félagsmálaráðherra
hvort vitað sé hversu margir hafa
misst húsnæði sitt á síðustu miss-
erum.
...sendiráð í Japan
Gunnar G. Schram spyr utan-
ríkisráðherra hvaða áform séu
uppi um stofnun sendiráðs í Jap-
an sem hafi það meginhlutverk
að annast markaðsleit fyrir ís-
lenskar afurðir í Austur-
Asíulöndum.
...milliþinganefnd
um húsnæðismál
Guðrún Agnarsdóttir spyr fé-
lagsmálaráðherra hvernig störf-
um milliþinganefndar um hús-
næðismál sem skipuð var 11. júlí
1985 miði og hvenær áætlað sé að
hún ljúki störfum.
Útflutningsráðið
Verkalýðshreyfing útilokuð
Skúli Alexandersson: Helsti tekjustofn ráðsins er sá
sem sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt að fella niður!
„Það er fagnaðarefni að enn
skuli þessi íhaldsstjórn halda
áfram að bera fram tillögur um
ríkisaðstoð við einkageirann“,
sagði Skúli Alexandersson m.a. í
umræðum um Útflutningsráð.
„Þetta er sá pilsfaldakapítalismi
sem við búum við og ríkisstjórnin
gengst fyrir!“
Skúli gagnrýndi einkum tvo
þætti í frumvarpinu um útflutn-
ingsráð. f fyrsta lagi að það skal
byggt upp án samráðs við
launþegasamtökin. ASÍ fær allra
náðarsamlegast að vera í ráðinu
sjálfu en engin verkalýðsfélög
eru þar tii nefnd. ASÍ er hins veg-
ar útilokað frá stjórninni, þar
sem einungis fulltrúar stórfyrir-
tækja eiga sæti. í öðru lagi
gagnrýndi Skúli að helsti tekju-
stofn útflutningsráðs er sam-
kvæmt frumvarpinu 15% af út-
flutningsverðmæti sjávarafurða,
þ.e. útflutningsgjaldið sem hann
sagði myndi nema 15 miljónum
króna. Sjávarútvegsráðherra
hefur hins vegar lýst því yfir að
útflutningsgjald verði fellt niður,
sagði Skúli, og hefur starfandi
nefnd undir forsæti Jóns Sigurðs-
sonar, forstöðumanns Þjóðhags-
stofnunar, til að vinna að því.
Taldi Skúli frumvarpið illa undir-
búið að þessu tvennu leyti, en
þess má geta að AB hefur nú lagt
fram frumvarp um stofnun
Rannsóknastofnunar
útflutnings- og markaðsmála, þar
sem m.a. er gert ráð fyrir jafnri
aðild verkalýðsfélaga og atvinnu-
rekenda. -ÁI