Þjóðviljinn - 13.04.1986, Side 17
FRÉTTASKÝRING
Stúdentapólitík
Pólitísk reyfarasaga
Ný hœgri stjórn ístúdentaróði þrótt fyrir kosningasigur vinstri manna. Juku fylgi sitt úr 31.4% í41.1 %
Sá einstaki atburður gerðist í
stjórnmálum stúdenta í Háskóla
Islands, að fjórir af fimm fulltrú-
um Félags umbótasinna í SHÍ,
gengu þvert á vilja félagsmanna
sinna og mynduðu stjórn með
Vöku. Að því loknu bættist svo
fjórða fylkingin við í stúdenta-
ráði, Stúdentafélagið Stígandi,
og var klofningur umba þá orðinn
alger.
Nú á Félag umbótasinnaðra
stúdenta ekki langa sögu að baki,
og ekki fyrirséð að hún muni yfir-
leitt verða löng, eða lífdagar fé-
lagsins sælir. Félagið er saman-
sett af einstaklingum sem hafa
mjög mismunandi áherslur í
stjórnmálum, en það hefur í raun
og veru haft það í hendi sér
hverju sinni hvernig meirihluti er
saman settur. Fví hefur mörgum
ekki þótt það ófýsilegur kostur að
starfa í þessu félagi og halda
friðinn. Nú hefur hins vegar soð-
ið uppúr, en þó má telja fullvíst
að það sem olli klofningnum nú í
vikunni eigi ekki aðeins rætur að
rekja til grundvallarágreinings í
pólitík.
Atburðirnir í janúar
Menn hallast að því að þarna sé
um að ræða eftirköst þeirra at-
burða sem urðu í stúdentaráði í
janúar. Þá komst mikil hreyfing á
málefni Lánasjóðs námsmanna,
þáverandi stjórn umba og vöku-
manna algjörlega á óvart, enda
kunni sú stjórn ekki að bregðast
við þeim átökum þannig að stúd-
entar gætu sætt sig við. Þetta varð
til þess að þeir umbar sem höfðu
bein í nefinu að því er varðar slíka
baráttu ákváðu í samráði við Fé-
lag vinstri manna að koma þess-
ari stjórn frá og mynda vinstri
stjórn, sem gæti verið öflugt and-
svar við þeirri aðför að kjörum
námsmanna sem Sverrir Her-
mannsson og hans nótar stóðu
fyr" Vinstri stjórn
Það varð úr eftir mikil átök að
mynduð var ný stjórn vinstri
manna og umba, sem síðan lagði
megin áherslu á baráttuna gegn
skerðingu námslána, með all
góðum árangri eins og síðar hefur
komið í ljós. Þessi einarða stefna
nýju stjórnarinnar skilaði sér
fyrst og fremst til vinstri manna í
geysilegri vinstri sveiflu í kosn-
ingum til stúdentaráðs í mars.
En það var fráleitt að allir umb-
ar hafi verið sáttir við þessa nýju
stjórn. Umbar áttu nefnilega sína
fulltrúa í hægri stjórninni, sem
voru undir sömu sökina seldir og
íhaldið, og sátu uppi með sömu
skömmina þegar ný stjórn var
komin á. Þar verður að telja
fyrstan Ara Edwald, sem var
varaformaður hægristjórnarinn-
Fréttaskýring
ar, og gerði allt sem í hans valdi
stóð til að koma í veg fyrir þá
byltingu. Ari lýsti þeirri skoðun
sínni þá að hann teldi stjórn
Vöku og umba einmitt hafa stað-
ið sig með ágætum í lánamálabar-
Söguleg stjórnarskipti fara fram. Mynd E.ÓI.
áttunni og brást hinn versti við
þegar hann var settur af.
Vinstri sveifla
Það gerðist síðan markverðast
næst að vinstri menn unnu kosn-
ingasigur í mars, og þakka menn
það fyrst og fremst baráttunni í
lánamálum. Vinstri menn juku
þar fylgi sitt úr 31.4% í 41.1%,
meðan fylgi Vöku hrapaði úr
36.6% í 31.3%. Björk Vilhelms-
dóttir formaður stúdentaráðs var
iðin við að koma sjónarmiðum
námsmanna á framfæri og var
mikið í sviðljósinu þær vikur sem
hún gegndi þessu embætti.
í ljósi þessara kosningaúrslita
bjuggust menn við að samstarf
umba og vinstri manna gæti hald-
ið áfram, eða eins og Þorsteinn
Húnbogason umbi sagði í samtali
við Þjóðviljann nýlega, annað
væri ekki í pólitísku samhengi við
kosningaúrslitin. Það varengu að
síður ljóst að hluti umba stefndi
mjög ákveðið að því að koma á
samstarfi við Vöku á ný, og
herma heimildir Þjóðviljans, að
Ari Edwald hafi verið þar fremst-
ur í flokki og lagt á það ofurkapp.
Heitt í hamsi
Eftir að vinstri menn höfðu
hafnað þjóðstjórnarhugmynd
umbótasinna, kom það enda á
daginn að hafnar voru viöræður
við hægri menn undir forystu
Ara. Það spurðist út að hug-
myndin í þeim viðræðum væri sú
að ieggja megin áherslu á fé-
lagsmál námsmanna, að halda
íþróttamót og eitthvað í þeim
dúr. Og þegar málefnasamningur
var svo borinn undir félagsfund
sagði yfirgnæfandi meirihluti um-
bótasinna þvert nei, en ákvað
þess í stað að hefja viðræður við
vinstri menn. Þetta var á rnánu-
dagskvöldið í síðustu viku og
mönnum farið að hitna í hamsi.
Ari Edwald og Asdís Guðmunds-
dóttir sem einnig á sæti í SHI
lýstu yfir því á fundinum að þau
myndu segja af sér í stúdentaráði
ef umbótasinnar samþykktu ekki
málefnasamning þeirra við
Vöku. Einnig var Ijóst að Gylfi
Astbjartsson, sem nýlega hafði
verið kosinn formaður félagsins,
og Arna Guðmundsdóttir, efsti
maður á lista þeirra fyrir síðustu
kosningar. hölluðust frekar að
hægri stjórn. Aðeins fjórir
fundarmanna greiddu atkvæði
með hægra samstarfi.
Ekið um Suðurland
En eftir þessa samþykkt félags-
fundar hjá umbótasinnum upp-
hófst rnikið fjaðrafok. Setið var
að samningaviðræðum við vinstri
menn nóttina alla þar á eftir og
síðdegis næsta dag hafði náðst
samkomulag rnilli aðila. En
björninn hafði ekki þar með ver-
ið unninn, því sama dag hafði
Eyjólfur Sveinsson vökumaður
farið með umbana fjóra í ökuferð
um Suðurland og virðist hafa
beitt þá listilegum fortölum.
Ökuferðin skilaði vökumönnum
svo þeim árangri, að þeim tókst
að mynda stjórn í SHÍ urn kvöld-
ið, með aðild og stuðningi þess-
ara fjögurra undanvillinga sem
svo hafa verið kallaðir af ónafn-
greinduni umbótasinna. Öllum
hugmyndum félags umbótasinna
hafði verið kollvarpað, og ný
hægri stjórn hafði verið mynduð.
Það er ekki að ástæðulausu að
menn hafa líkt atburðum undan-
farinna mánaða við pólitíska
reyfarasögu og auðvitaða er Stíg-
andi ekki annað en dæmi um pól-
itíska ævintýramennsku, hvaða
skoðun svo sem menn hafa á
slíku. Þaðersamteinsogságrun-
ur læðist að manni að enn meiri
og merkilegri atburðir séu i
vændum uppi í Háskóla. Sagan er
ekki öll sögð. —gg
LEIÐARI
œvintýr á ökuferð
Stígandi
í stúdentapólitík endurspeglast oft sú póli-
tíska gerjun sem verður annars staðar í þjóðfé-
laginu. Á undanförnum árum hefur stúdentafé-
lagið Vaka, sem er útibú frá Sjálfstæðisflokkn-
um, haldið völdum í stúdentaráði með aðstoð
Umbótasinnaðra, sem er eins konar millifram-
sóknarflokkur með óglöggum pólitískum skil-
um.
Vaka hefur keyrt áfram sína pólitík í anda
frjálshyggjunnarog helstu niðurskurðameistara
ríkisstjórnarinnar og hugmyndafræðingar
skortsins á vegum stjórnarinnar hafa fengið sitt
pólitíska uppeldi í Vöku.
Stefna Vöku hefur mætt vaxandi andbyr í
háskólanum svosem frjálshyggjan annars stað-
ar í þjóðfélaginu nú allra síðustu misseri. Þeir
hafa keyrt með offorsi gegn félagshyggju í
skólanum og á táknrænan hátt stutt og verið
hluti af ofstækisfyllstu öflunum í Sjálfstæðis-
flokknum. Máske er talandi dæmi um þetta,
þráseta fulltrúa Vöku gegn vilja stúdenta í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna nú í vetur.
Þessi fulltrúi var jafnframt forstjóri fyrirtækis
sem hugðist flytja inn lúxusbíla, Islenskir eðal-
vagnar hf. Sú táknræna aukavinna Vöku-
mannsins, sýndi máske betur en annað fram á
hvora þjóðina hægri menn í Háskóla íslands
styðja. Þeir eru einfaldlega andsnúnir launa-
þjóðinni íslensku.
Umbótasinnar voru að vonum á báðum áttum
þegar þeim og öllum öðrum varð Ijóst að með
stuðningi sínum voru þeir að halda mestu of-
stækisölfum í Sjálfstæðisflokknum til áhrifa í
Háskóla íslands. I lánasjóðsdeilunni í vetur
tókst samstarf með Umbótasinnum og Vinstri
mönnum sem mynduðu meirihluta þartil í kosn-
ingum til stúdentaráðs á dögunum.
Á hverjum vetri er helmingur stúdentaráðs-
liða kosinn listakosningu. í kosningunum kom
greinilega fram að vinstri sveifla er í uppsiglingu
í háskólanum sem annars staðar í þjóðfélaginu.
Hægri mennirnir í Vöku fengu líka verulegan
skell, - þeir töpuðu rúmlega 5% atkvæða.
Vinstri menn unnu á hinn bóginn rúmlega 10%
atkvæða.
Umbótasinnar létu ekki annað á sér skilja í
kosningabaráttunni en þeir væru opnir fyrir á-
framhaldandi samstarfi við vinstri menn. Hins
vegar hafa þeir átt í einhverjum erfiðleikum með
að lesa í vilja stúdenta í gegnum kosningaúr-
slitin. Þeir byrjuðu á (dví að bjóða uppá „þjóð-
stjórn“, og upphófst mikill skollaleikur í háskóla-
pólitíkinni.
Vinstri menn héldu fast við tilboð sitt til um-
bótasinna um samstarf um stjórn stúdentaráðs.
Á félagsfundi Umbótasinna var samstarfstilboði
við hægri menn hafnað með öllum greiddum
atkvæðum gegn fjórum. Umbótasinnar áttu
fimm fulltrúa í stúdentaráði.
En nú koma „eða!vagnar“ íhaldsins í háskól-
anum aftur til sögunnar. í DV fyrir helgina er
upplýst, að fjórum fulltrúum Umbótasinna hafi
verið boðið í bíltúr með einum oddvita hægri
manna í Vöku. Þessari ævintýralegu ökuferð á
að hafa lokið með því, að fulltrúarnir fjórir á-
kváðu að halda samstarfi við hægri menn til
streitu, hvað sem vilja félagsmanna liði.
Stofnuðu þeir nýtt félag, Stígandi og sögðu
skilið við Félag Umbótasinnaðra. Og þannig er
nú málum háttað í stúdentaráði að Félag um-
bótasinnaðra hefur aðeins einn fulltrúa í krafti
tæplega 19% atkvæða, en meirihluti hægri
manna styðst nú við rúmlega 30% atkvæða
samkvæmt þeim listakosningum sem fram hafa
farið. Meirihluti sem þannig er kominn er auðvit-
að veikari en nokkru sinni - og vinstri menn
munu veita honum öflugt aðhald.
Forystumenn Vöku hafa gert sér grein fyrir
óförunum og í málgagni þeirra, Morgunblaðinu,
reyndi einn oddviti þeirra frá umliðnum árum, að
koma sökinni alfarið yfir á ráðherra og forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins, sem ráðist hafa
gegn hagsmunamálum námsmanna á þessu
kjörtímabili af óbilgirni og hörku.
í samræmi við meirihlutann nýja í Stúdenta-
ráði er hins vegar þess að vænta, að innan
Sjálfstæðisflokksins náist sættir um áframhald-
andi aðför að hagsmunamálum stúdenta, -
stígandi ævintýr á ökuferð með eðalvögnum
íhaldsins. -óg
Sunnudagur 13. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17