Þjóðviljinn - 23.04.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.04.1986, Blaðsíða 1
AKUREYRI MENNING ÞJÓÐMÁL Ítalía Ástir í aftursæti Napólí- Bæjarfulltrúi hefur bor- ið upp tillögu í borgarráði um að setja upp víggirtan garð þar sem fólk getur stundað ástalíf sitt án áreitni annarra. Bæjarfulltrúinn, Maurizio Cardano, sagði í gær að slíkur garður væri nauðsynlegur vegna árása sem fólk yrði fyrir þegar það væri að láta vel hvort að öðru. Ástandið væri nú orðið þannig að fólk þjappaði bílum sínum saman þannig að ekki væri hægt að komast inn í bílana og setti síðan dagblöð á bílrúðurnar. Þessar athafnir hafa nú valdið kvörtunum annarra notenda garðsins. Cardano leggur til að sett verði upp rammgerð girðing á af- skekktum stað þar sem fólk geti lagt bílum sínum. Verðir gæti þess síðan að engir óviðkomandi komist að. IH/Reuter VorwerkstarfsmannaReykjavíkurborgareruþegarbyrjuð. Þessastarfsmenn hittum við á Austurvelli í gær þar sem þeir voru að planta trjám og einn Ijósmyndari Moggans, Ólafur K. Magnússon fylgdist grannt með. Ljósm. Sig. Vorið Gróður tekur við sér Góð tíð undanfarið og gott veðurútlit. Vor í lofti Þetta má teljast hið bærilegasta góðæri“, sagði Páll Bergþórsson um vorkomuna í ár. Hann sagðist telja að vorgróðurinn væri að taka við sér, nú síðari hluta apr- ílmánaðar. „Enn þá á ég við hér sunnan- lands. Norðanlands er vorgróður að taka við sér um það bil 20 dögum síðar, rnánuði síðar á annesjum norðanlands. Þar hef- ur verið kalt undanfarið". Þá sagðist Páll hafa heyrt af því að undir Eyjafjöllum væri nú þíð jörð. „Mér skilst að á Þorvalds- stöðum hafi þeir t.d. ætlað sér að hefja plægingu fyrir um það bil 10 dögum“, sagði Páll. Garðyrkjustjórinn í Reykja- vík, Jóhann Pálsson sagði að sér litist mjög vel á ástandið. Hann sagði að það væri erfitt að átta sig á vissum runnum en það virtist ekki vera mikið um skemmdir. „Einu skemmdirnar á gróðrinunt eru eiginlega lúsarskemmdir og þær eru vegna góðæris. Það var góð tíð síðasta sumar og því á ég von á kröftugri gróðurtíð í sum- ar“, sagði Jóhann. -IH Reykjavíkurborg Davíð var plataður HÍjómflutningstœkin sem borgin er að kaupa kosta með innflutningsgjöldum rúmar20 miljónir króna. Borginfer fram á niðurfellingu aðflutningsgjalda uppá rúmarlO miljónir. Hörð gagnrýni innflytjenda hljómflutningstœkja á tœkjakaupin. Hvers vegna voruþau ekki boðin út? Verðið á tækjunum talið alltofhátt Reykjavíkurborg er að kaupa hljómflutningstæki fyrir af- mælishátíðina í sumar, sem sögð Lánasjóðurinn gestir Menntamálaráðherra boðar3,5% vexti ofan á verðtryggingu hertar endurgreiðslur og styttri lánstíma. Páll Pétursson þingflokksformaður Framsóknar: Gamlir og hundleiðir gestir sem við héldum að vœrufarnir I skýrslu sem Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra lagði fram á Alþingi í gær um Lánasjóð íslenskra námsmanna leggur hann m.a. til að tekjutillit við ákvörðun námslána verði fellt niður, vextir af verðtryggðum námslánum verði 3,5%, endur- greiðslukröfur verði hertar, tekið verði upp 1% lántöku- og inn- heimtugjald og að fulltrúar Al- þýðusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins skipi sinn hvorn fulltrúann í stjórn LIN. Miklar umræður urðu um þessa skýrslu ráðherrans og lýsti Páll Pétursson þingflokksfor- maður Framsóknar því m.a. yfir að Framsóknarflokkurinn myndi aldrei fallast á vaxtatillögu Sverr- is og ýmsar aðrar tillögur sem ráðherrann viðraði í skýrslu sinni. Sjá bls. 5. eru kosta 10 miljónir króna. Það er þó hálf sagan, tækin kosta ef grcidd eru af þeim öll venjuleg aðflutningsgjöld, rúmar 20 milj- ónir króna. En ef sú niðurfelling aðflutningsgjalda fæst, sem sótt er um til ríkisins þá verður verðið 10 miljónir. Mikil og hörð gagnrýni hefur komið fram hjá þeim aðilum, sem flytja inn hijÓffifiuíSÍagStsgki, á þessi kaup. Steini Daníelsson eigandi versl- unarinnar Hjá Steina segir að það fyrirtæki sem Reykjavíkurborg kaupir tækin af, sé heimsþekkt fyrir okurverð. Hann segist hafa borið þetta verð, 238 þúsund dollara undir erlenda sérfræð- inga, miðað við hvaða tæki er verið að kaupa, og ber þeim öllum saman um að hér sé urn fáheyrt verð að ræða. Fyrir helm- ing þessa verðs hefði verið hægt að fá jafn góð tæki. „Mér þykir það líka furðulegt að þessi tækjakaup skuli ekki hafa verið boðin út og það þykir fleirum en mér. Við fengum bréf frá Æskulýðsráði í júní í fyrra þar scm s.kýrt var frá fvrirhueuöum tækjakaupum og ófullkomfn iýs- ing á þeim tækjum sem kaupa átti fylgdi. Við hljómtækjainnflytj- endur vorum beðnir um hug- myndir, við vorum 18 sem feng- um bréf og 8 skiluöu inn hug- myndum. Eg var með hugmynd uppá 6 miljónir króna í tækja- kaup. En það vantaði hinsvegar öll gögn, þ.e. útboðsgögn og ekk- ert útboð var framkvæmt. Ef svo hefði verið, þá hefði verið hægt að átta sig á hvað þetta átti að vera og hvað það myndi kosta nákvæmlega. En þetta verö fyrir þessi tæki er fáránlegt. Ég er á því að Davíð Oddsson og Óntar Ein- arsson, sem fóru í heimsókn til þessa breska fyrirtækis hafi látið þlata sia", sagði Steini. Omar Einarsson framkvæmda stjóri Æskulýðsráðs staðfesti í samtali við Þjóðviljann að ákveð- ið hefði verið að láta útboð ekki fara fram. -S.dór Vísitölur Lánin vaxa Lánskjaravísitalan hœkkar um 0,49% í maímánuði. Áfengið hœkkaði um 10% ígœr. r Afengið hækkaði að mcðaltali um 10% í gær. Hækkunin fel- ur í sér 0,13% hækkun á vísitölu framfærslukostnaðar, - og sú hækkun leiðir til hækkunar á lánskjaravísitölu um 0,1% Lánskjaravísitalan fyrir ntaí- mánuð var nýlega reiknuð út og er hún 0,49% hærri en fyrir apríl- mánuð. Hækkunin á áfenginu kemur á eftir útreikningi láns- kjaravísitölu fyrir maímánuð, þannig að 0,1% hækkunin vegna áfengisins reiknast fyrir lánskjar- avísitölu í júnímánuði. Fyrir skuldara þýðir þessi hækkun á lánskjaravísiiölu seiri varð í maí og vitað er unt í júní u.þ.b. 12000 krónur í verðtrygg- ingu á 2ja miljön króna láni á ársgrundveili. -óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.