Þjóðviljinn - 23.04.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.04.1986, Blaðsíða 9
MENNING Elfa Gísladóttir, í hlutverki Abigale Williams (á miðri mynd), læst sjá djöfulinn og áhangendur hans. Ljósm.: Sig. Þjóðleikhúsið Sjálfsblekking og ofsóknaræði Þjóðleikhúsið sýnir I deiglunni Á morgun, Sumardaginn fyrsta, frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið í deiglunni (The Crucible) eftir bandaríkjamanninn Arthur Miller. Leikstjóri er Gísli Alfreðsson, en leikritið er flutt í þýðingu Jakobs Benediktssonar. / deiglunni sem var fyrst sýnt í New York árið 1953, fjallar um atburði sem urðu í Salem í Mass- achussetts á Nýja Englandi árið 1962 þegar 19 einstaklingar voru ákærðir að ósekju fyrir galdra og samneyti við djöfulinn og voru teknir af lífi. Þegar leikritið var frumýnt í Bandaríkjunum voru pólitískar ofsóknir McCarthy- ismans að komast í hámæli og má því líta á leikrit Millers sem gagnrýni á þann hugsunarhátt og þá ógn sem ríkti á sjötta áratugn- um í Bandaríkjunum, Miller hef- ur sjálfur lagt áherslu á að megin- stef verksins sé sá harmleikur sem fólginn er í sjálfsblekkingu og ofsóknaræði valdhafa hver svo sem einkennisbúningur þeirra sé. Einn af aðalleikurum í sýning- unni er Hákon Waage. „/ deiglunni er sígilt verk eins og reyndar öll verk Millers. Þau virðast alltaf finna sér stað í nú- tímanum. Miller er höfundur sem höfðar mjög mikið til mín og þess vegna finnst mér mjög skemmti- Hákon Waage í hlutverki Proktorsins. Með honum á myndinni er Guðrún Gísladóttir í hlutverki vinnustúlkunnar á heimili Proktors. Ljósm.: Sig. legt að taka þátt í þessari sýn- ingu“, sagði Hákon. Annar leikari í sýningunni er Elfa Gísladóttir en hún er að leika á fjölum Þjóðleikhússins í fyrsta skipti. „Ég er óskaplega hrædd við þetta stóra skref. Petta er stærsta hlutverkið sem ég hef fengið fram að þessu en það verð- ur að segjast að þetta er drauma- hlutverk. Pað er erfitt en skemmtilegt því það reynir á marga þætti leiktúlkunar", sagði Elfa. Með önnur hlutverk í sýning- unni fara þau Edda Pórarinsdótt- ir, Gunnar Eyjólfsson, Sigurður Skúlason, Steinunn Jóhannes- dóttir, Guðrún Gísladóttir, Guð- laug María Bjarnadóttir, Sólveig Pálsdóttir og Sólveig Arnardótt- ir. Leikmynd og búningar eru í höndum Baltasars og Ásmundur Karlsson sér um lýsingu. - K.ÓI. Frá söngnámskeiðinu. Hanne-Lore Kuhse leiðbeinir Hlíf Káradóttur. Söngur Kuhse í Fríkirkjunni Hanne-Lore Kuhse syngur í dag í Fríkirkjunni og koma þá einnig fram tólf íslenskir söngvarar sem hafa tekið þátt í námskeiði sem þýska söngkonan hefur haldið hérfrá 14. apríl. Hanne-Lore Kuhse er prófess- or í Berlín og hefur kennt á al- þjóðlega tónlistarnámskeiðinu í Weimar í Austur-Þýskalandi sem íslendingar hafa sótt. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og undirleikarar á píanó eru Þóra Fríða Sæmundsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Akkurr’ ekki? Ronja með íslensku tali-hrósvert fordæmi Spurulu skógardvergarnir: Akurru? Akurru þa? Ronja ræningjadóttir Leikstjóri Tage Danielsson Handrit Astrid Lindgren Leikarar Hanna Zetterberg, Börje Ahlstedt, Lena Nyman o.fl. íslenskt tal undir stjórn Þórhalls Sig- urðssonar, raddir Bessa Bjarnason- ar, Önnu Þorsteinsdóttur, Guðrúnar Gísladóttur o.fl. Nýja bíó (og vonandi öli landsbyggð- arbíóin). Akkurru þa? spyrja skógar- dvergarnir sjálfa sig, Ronju og áhorfendur í allra skemmtilegustu köflunum í Ronju ræningjadóttur, og manni liggur við að taka undir: akkurr’ ekki? Pað er góð hugmynd og lofsvert framtak hjá þeim í Hinu leikhúsinu að fá Þórhall Sigurðs- son og vænan hóp annarra ís- lenskra leikara - til að tal- setja/dubba þessa ágætu barna- mynd á íslensku. Af hverju ekki fleiri? Af hverju ekki fyrr? Af hverju ekki aftur? Undntekning á þeirri siðareglu að eyðileggja ekki kvikmyndir með annarlegum tungum eru ein- mitt barnamyndir, þarsem mark- hópur áhorfenda skilur ekki út- lensku og les texta ekki eða illa. íslenskt tal er haft á slíku efni í sjónvarpi og þykir sjálfsagt, og eftir Ronju hafa bíómenn enga afsökun þegar þeir á annað borð hafa fengið í hendur verulega góðar myndir fyrir börn. Og von- andi verður þetta ekki spurning um smekk skrifborðsmanna heldur markaðsnauðsyn, á þann veg að barnamynd með íslensku tali hali meira í kassann en með útlensku tali, að jöfnum gæðum. Forsenda þess er auðvitað op- inber stuðningur sem íslensk- unarmenn Ronju hafa nú fengið, niðurfelldur söluskattur og kann- ski skemmtanaskattur líka, en þessi gjöld eru um 40% af miða- verði. Kostnaður við íslenskt tal er mér sagt að skipti milljónum og til að bera sig þarf mynd eins- og íslenska Ronja uppundir 20 þúsund áhorfendur. „Dubbunin“ í Ronju hefur tek- ist mjög þokkalega vel. Pað er erfitt að vinna slíkt verk þannig að munnhreyfingar og tallotur myndar standist fullkomlega á við það tungumál sem þýtt er á, en þó má komast allnærri með vinnu og útsjónarsemi, og það hefur verið reynt hér. Textinn er yfirleitt eðlilegur, enda fagfólk á ferð, og Þórhallur textastjóri hef- ur næstum alltaf fundið raddir sem hæfa persónum myndarinn- ar. Sérstök ástæða er til að hrósa tvífara Ronju sjálfrar, Önnu Por- steinsdóttur. Hinsvegar hefði verið ástæða til að fara yfir þýð- inguna af örlítið meiri natni, hún er stundum of stórkarlaleg, stundum of bókleg. Um myndina sjálfa er best að spyrja krakkana, - áhorfendur á íslandi eru víst orðnir um 18 þús- und. Mér fannst gaman að kvik- myndasögu Ástríðar Lindgren, þótti fullmikið um landslag og var að lokum orðinn leiður á sam- dráttarsögu stráks og stelpu í að- alhlutverkum, en á móti kættist barnssálin verulega við húskarla- dansa, kímilegar orustur og ekki síst litlu spurningakvikindin. og ég er ekki ennþá hættur að spurja óforvarandis gest og gangandi hins sama og dvergarnir: Ak- kurru þa? Miðvikudagur 23. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.