Þjóðviljinn - 23.04.1986, Side 16

Þjóðviljinn - 23.04.1986, Side 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. DJOÐVIUINN Miðvikudagur 23. apríl 1986 91. tölublað 51. örgangur RíkÍSStjófnUl Albert mætti ekki Iðnaðarráðherra lœtur enn ekki sjá sig áfundum ríkisstjórnarinnar. Mœti ekki nema að gefnu tilefni Albert Guðmundsson iðnaðar- ráðherra mætti ekki á fund ríkis- stjórnarinnar í gærmorgun, en hann lýsti því yfir fyrir um hálfum mánuði eftir að hafa gengið af fundi í stjórnarráðinu að hann myndi ekki mæta á ríkisstjórnar- fundi nema sérstök ástæða væri til. Iðnaðarráðherra hefur dvalið erlendis undanfarið en hann kom heim um sl. helgi. Hann vildi minnst ræða um fjarveru sína af fundi ríkisstjórnarinnar í gær en vísaði til fyrri yfirlýsingar sinnar. _____________—»g- Trillukarlar Hópast vestair Rögnvaldur Ólafsson frystihússtjóri í Rifi: Margir búnir að hafa samband við mig til að fáað leggja upp Trillukarlar eru nú farnir að hugsa sér til hreyfings, og þeir sem eru á skaki cru raunar byrj- aðir, en hinir sem aetla að vera á netum mcga byrja um miðjan maí. Mjög margir trillukarlar sækjast eftir því að gera út frá Sriæfellsnesi eða Vestfjarðar- höfnum, enda er mest veiðin á þessu svæði og styst á miðin. „Það eru margir trillukarlar búnir að hafa samband við mig og spyrja hvort við tökum ekki fisk af þeim og auðvitað tökum við við þeirn, enda má segja að allir bátar hér séu nú búnir með afla- kvóta sinn“, sagði Rögnvaldur Ólafsson frystihússtjóri í frystis- húsinu í Rifi í samtali við Þjóð- viljann í gær. Hann sagði að mörg frystihús væru ekki mjög hrifin af afla trillubátanna, vegna þess að fisk- ur veiddur á grunnslóð væri með mun meira af hringormi en fiskur sem veiddur er djúpt. En ef halda ætti frystihúsunum gangandi væri ekki um annað að ræða en taka við afla af trillubátunum vegna kvótans. Þá hefur Þjóðviljinn haft af því spurnir að margir trillukarlar hafi talað við fiskverkendur á Vest- fjörðum og spurst fyrir um að fá að leggja upp hjá þeim. -S.dór Nietzchka Keene: Það er svo mikið ævintýri í íslensku landslagi. (Mynd E.ÓI). „Eg nam fomíslensku“ Bandarískur leikstjóri tekur kvikmynd á íslandi. íslenskir leikarar. íslensk tónlist Myndin er gerð eftir Grimmsævintýri sem heitir Einiberjatréð en sögu- þráður myndarinnar er nokkuð breyttur frá upphaflega ævintýr- inu“. Þetta segir Nietzchka Keene. bandarískur kvikmyndaleikstjóri sem dvelur nú hér á landi við undirbúning kvikmyndar sem hún ætlar að taka hér í sumar. „Allir leikarar verða íslenskir, þar af eru tvö börn og má segja að aðalhlutverk myndarinnar leiki 12-13 ára stúlka. Ég nota forna íslenska tónlist í myndinni, rímur og kvæði, og hluti af starfsliði við tökur myndarinnar verður ís- lenskt“. Við spurðum hvers vegna hún hefði valið fsland. „Ég hef lengi numið forn íslensku og þegar ég var í kvikmyndanámi vann ég sem aðstoðarmaður prófessors Jesse Byock að rannsóknarverkefni í forn- íslenskum fræðum. Einnig hef ég séð margar íslenskar kvikmyndir á kvikmyndahátíðum erlendis og hreifst mjög af hinu myndræna í íslensku landslagi. Enn er ekki komið á hreint hvort myndin verður sýnd á íslandi en það er að sjálfsögðu ósk mín að svo verði“. Saga myndarinnar er í stuttu máli um tværsystur. Eldri systirin giftist ekkli sem á einn son en stjúpmæðginunum kemur ekki saman og stjúpan rekur drenginn í dauðann. Myndin verður tekin í svarthvítu en litur kemur tvisvar fyrir í henni en þá handmálaður beint á filmuna. „Slík litanotkun gefur viðkomandi senum aukna táknræna mérkingu" sagði Ni- etzchka að lokum. -IÁ Seiðasala Norðmenn boða verðlækkun Öllseiðakaup íNoregifœrð á eina hendi. Norðmenn segjastmunu lœkka kaupverðið um 20%. Skellurfyrir okkur íslendingaefafverður. Fyrirhuguð ersalaá 400-500þúsund seiðum til Noregs í ár. Fundur í Noregi í dag sker úr um málið Laxeldisstöðvar í Noregi hafa myndað með sér samband og þetta samband á eitt að annast öll seiðakaup til Noregs fyrir stöðv- arnar. Og sambandið hefur boð- að verðlækkun á seiðum um 20%. Verðið hefur verið 17 kr. norskar fyrir seiðið en boðuð er iækkun niður í 14-15 kr. norskar. Þorkell Sigurlaugsson í stjórn Arlax h.f. sagði í gær að Arlax h.f. hefði verið búið að gera samning við norskar stöðvar á hærra verðinu, en hefði nú fengið tilkynningu um að það verð gildi ekki lengur. Þá hefur Laxalón einnig gert samninga en þeim hefur verið rift. Sveinn Snorra- son lögfræðingur Laxalóns er nú í Noregi að fást við þetta mál. Markús Stefánsson stjórnar- maður í Árlaxi h.f. sagði í gær að hann hefði ekki trú á því að Norð- mönnum tækist að þrúkka verðið niður. Bæði Svíar og Finnar, sem selja Norðmönnum mikið af seiðum vildu fá verðhækkun og það vildu íslendingar líka og sagðist hann ekki sjá hvaðan Norðmenn ættu að fá seiði ef þessar þrjár þjóðir seldu þeim þau ekki, en Norðmenn kaupa árlega um 5 miljónir seiða. Héð- an er fyrirhuguð sala á 400-500 þús. seiðum í ár. Sagði Markús að vegna þessa máls hefði verið ákveðinn fundur hjá fulltrúum norsku laxeldi- stöðvanna í dag og myndi niður- staða væntanlega liggja fyrir um helgina. -S.dór Skattsvik Kerfið hriplekt Byggingariðnaðarmenn komu verst út úr könnuninni. Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingarmanna: Kann enga skýringu á þessu, en kerfið býður upp áþetta. Samband byggingarmannaþinga á Akureyri um helgina. Skattamálin koma til umrœðu þar Eg kann enga sérstaka skýringu á þessu,“ sagði Benedikt Dav- íðsson formaður Sambands bygg- ingarmanna um þá niðurstöðu, að skattsvik eru algengust í stétt byggingariðnaðarmanna. Taldi Benedikt skýringarnar ef til vill fólgna í því að í þessari grein er meira um viðskipti milli einstaklinga en gengur og gerist almennt og því væri freistingin um að skipta ránsfengnum með sér fyrir hendi. „Höfuð ástæðan er samt sú að við búum við hriplekt skattkerfi og engin tilraun er gerð til að framkvæma skattinnheimtu þó allir viti að skattsvik eru jafn al- geng og raun ber vitni.“ Benedikt sagði þessa niður- stöðu reyndar koma sér á óvart því hann hefði álitið að umfang skattsvika væri mest er kæmi að söluskattinum, en megnið af þeirri vinnu sem byggingariðnað- armenn selja er undanþegin sölu- skatti. Nú um helgina heldur Sam- band byggingarmanna þing sitt norður á Akureyri og bjóst Bene- dikt við að þessi mál beri á góma þar. Samtímis halda Meistara- samtökin ráðstefnu um byggingarstarfsemi á Akureyri og verður eflaust komið inn á um- fang skattsvika í stéttinni á þeirri ráðstefnu. „Það er ekki gaman fyrir heila stétt að sitja undir svona áburði'1, sagði Benedikt að lokum. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.