Þjóðviljinn - 23.04.1986, Qupperneq 3
Borgin
Stofna
húsverndunar-
sjóð
Borgarráð hefur samþykkt að
koma á húsverndunarsjóði, sem
mun hafa það hlutverk að lána
fólki sem hyggst endurbyggja eða
lagfæra gömul hús, sem eru talin
geyma söguleg verðmæti. Tillaga
um þetta kom frá umhverfismála-
ráði, og var samþykkt samhljóða
í borgarráði. -gg
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
FRETTIR
Hafnarfjörður
Viðræðum hafnað
Meirihlutinn og Framsókn hafna viðrœðum um Bolungarvíkursamkomulagið. Vísa
tilþess aðþegarsé búið að semja við starfsmenn bœjarins. Sigurður T. Sigurðsson,
formaður Hlífar: Pað er ekki rétt, enn ekki verið gengið frá sérkjarasamningum
Bæjarráð Hafnarfjarðar hafn-
aði viðræðum um 30.000 kr. lág-
markslaun, sem Verkamannafé-
lagið Hlíf, Félag byggingariðnað-
armanna og Járniðnaðar-
mannafélag Hafnarfjarðar fóru
fram á. Kröfur þessar voru
byggðar á Bolungarvíkursam-
komulaginu svokallaða, en einsog
fyrr sagði þá var meirihluti
bæjarráðs ekki til viðræðu um
þessar kröfur. Alþýðubandalag
og Alþýðuflokkur mótmæltu
þessari afgreiðslu en Framsókn
stóð með meirihlutanum.
Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Hlífar, sagði við Þjóðvilj-
ann í gær, að samtímis því að
kröfurnar um viðræður um
Bolungarvíkursamkomulagið
voru sendar bæjarstjórn, fór Hlíf
fram á viðræður um sérkjara-
samning fyrir verkamenn hjá
bænum, en þeir höfðu hafnað
ákveðnum hugmyndum í sér-
kjarasamningi sem bæjaryfirvöld
höfðu lagt fram. Sagði Sigurður
að þessi atriði væru lítilfjörleg í
samanburði við það sem starfs-
menn á Bolungarvík fengu.
Sagði Sigurður að þeir hefðu
farið fram á viðræður um þennan
sérkjarasamning þegar 7. apríl en
enn hefði ekkert svar borist frá
bæjarstjórn.
Þegar bæjarstjórn hafnar
Bolungarvíkursamkomulaginu
er vitnað í að þegar sé búið að
semja við starfsmenn bæjarins,
en það er ekki rétt því enn hefur
ekki verið gengið frá sérkjara-
samningum, sagði Sigurður T. að
lokum. -Sáf
Sambandið
Eysteinn
á Tímann
Eysteinn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Sambandsins mun
hefja störf á dagblaðinu Tíman-
um um næstu mánaðamót. Enn
er óvíst hvaða titil hann mun hafa
á blaöimi,
Eysteinn sagði við Þjóðviljann
að hann myndi fyrst og fremst
fjalla um samvinnumál á Tíman-
um. -Sáf
Vegagerð
Aukinni
skattheimtu
mótmælt
Fulltrúar
stjórnarandstöðunnar
mótmœla auknum
bifreiðasköttum á sama
tíma ogframlög til
vegagerðar eru skorin
niður
Þeir Svavar Gestsson Ab, Jón
Baldvin Hannibalsson A og
Kristófer Már Kristinsson Bj,
hafa lýst andstöðu sinni við frum-
varp ríkisstjórnarinnar um fjár-
öflun til vegagerðar. Frumvarpið
er til staðafestingar á bráða-
birgðalögum stjórnarinnar frá í
fyrrahust um hækkun þunga-
skatts.
í sameiginlegu áliti minnihlut-
ans segir að hann sé andvígur því
að skattheimta á bifreiðar sé
aukin á sama tíma og útgjöld til
vegamála eru skorin niður.
Frumvarpið gangi þvert á þá
stefnu sem nú er uppi, að færa
niður verðlag í landinu og standa
gegn öllum hækkunum. —lg.