Þjóðviljinn - 23.04.1986, Qupperneq 5
ÞJOÐMAL
LÍN-skýrsla Sverris
Forréttíndahyggja í öndvegi
Hörð gagnrýni á tillögur menntamálaráðherra um uppstokkun á námslánakerfinu.
Steingrímur J. Sigfússon: „Hnefaréttarbarbarismi“ Kristín Halldórsdóttir: Hagur námsmanna
lítils virtur. Páll Pétursson: Styðjum ekkiþessar tillögur.
Sverrir Hermannsson: Tal Jóns Baldvins mér að skapi
Alþingi verður slitið í dag og það er kannski ekki furða þó einstakir þingmenn
séu farnir að líta út um gluggann og virða fyrir sér vorið. Stíf fundahöld hafa
verið á Alþingi undanfarna daga og þingmenn setið á fundum langt fram á
nætur. Mynd. Sig.
Þingmenn bæði stjórnar og
stjórnarandstöðu brugðust marg-
ir undrandi og reiðir við þegar
menntamálaráðherra Sverrir
Hermannsson lét dreifa á Alþingi
við upphaf þingfundar í gær
skýrslu um Lánasjóð íslenskra
námsmanna þar sem ráðherrann
tínir til þær tillögur um breytingar
á lögum sjóðsins sem hann hefur
viðrað undanfarin misseri við
vægast sagt mjög slæmar undir-
tektir námsmanna. Töldu þing-
menn það mikla óvirðingu bæði
við þingið og eins Lánasjóðinn að
skýrsla þessi skyldi tekin til um-
ræðu án þess að mönnum gæfist
tóm til að kanna innihald hennar
auk þess sem þær tillögur sem
ráðherrann viðraði væru flestar
ótækar og ýmsar staðhæfingar í
skýrslunni væru beinlínis rangar
og óviðeigandi.
í skýrslu menntamálaráðherra
sem hann segir nauðsynlega, svo
mjög hafi menn „hallað til um
afstöðu sína“, segir m.a. að „ein-
stæð kjör námslána, lélegt endur-
heimta þeirra og ófyrirséð fjölg-
un námsmanna hafi valdið því að
málefni Lánasjóðsins hafi farið
úrböndum. „Mjög mikil ásókn er
í rífleg lán, sem enga vexti bera
og lánþegar vita að verulegur
hluti lánanna verður auk þess af-
skrifaður vegna endurgreiðslu-
reglna“, segir ráðherrann. Fram
kemur í skýrslunni að stjórnar-
flokkarnir hafi ákeðið að skipa
tvo menn hvor í nefnd til að sam-
ræma sjónarmið flokkanna í
þessu máli fyrir næsta þing og að
forsætisráðherra hafi gefið
menntamálaráðherra, „heimild
til að stjórna breyttum starfshátt-
um LÍN með reglugerðum svo
langt sem þær kunna að ná.“
Hertar endurgreiðslur
Tillögur Sverris sem hann náði
ekki að bera fram í lagafrumvarpi
á þessu þingi eins og hann hafði
áður boðað, ganga út á mjög
hertar endurgreiðslureglur náms-
lána, vextir verði 3.5% ofaná
fulla verðtryggingu, tekjutillit við
afgreiðslu námslána verði fellt
niður, innheimt verði sérstaklega
Viðey
Deilt um
afmælisgjöf
Efri dcild hefur samþykkt til-
lögu menntamálaráðherra að rík-
ið afhendi Reyjavíkurborg
eignarhluta sinn í Viðey til eignar
og umsjónar í tilefni 200 ára af-
mælis borgarinnar í sumar.
Nokkrir þingmenn deildarinn-
ar gerðu athugasemdir við hvern-
ig ráðherra stæði að þessu máli nú
á síðustu dögum þingsins og töldu
þetta fordæmi hans vafasamt og
eðlilegra hefði verið að kynna F
málið áður fyrir stjórnarand-
stöðu.
í nefndaráliti menntamála-
nefndar þar sem mælt er með af-
mælisgjöfinni, segir m.a. að ríkis-
valdið hafi ekki séð sér fært að
ljúka viðreisn Viðeyjar í sam-
ræmi við þingsályktun þar að lút-
andi frá sl. þingi. í trausti þess að
Reykjavíkurborg sjái til þess að
viðreisninni veröi hraðað mæli
nefndin með samþykkt frum-
varpsins. Afmælisgjöfin verður
að líkindum afgreidd frá neðri
deild í dag.
-!«• _
1% lántöku- og innheimtugjald,
fyrsta árs nemar fái tveggja ára
skuldabréfalán sem verði síðan
að greiða upp á 12 mánuðum
standist námsmaður ekki náms-
kröfur og að endurgreiðslutími
námslána verði styttur úr 40 árum
í 30 ár. f>á leggur ráðherra til að
veittir verði sérstakir námsstyrkir
til þeirra sem ljúka lokaprófi á
framhaldsskólastigi með sérstak-
lega góðum árangri, auk ferða-
styrkja og styrkja til framhalds-
náms á háskólastigi.
Forréttindahyggja
ráðherrans
Steingrímur J. Sigfússon Ab,
sagði forréttindahyggju einkenna
tillögur menntamálaráðherra.
Pað væri „hnefaréttarbarbarism-
inn“ sem ætti að ráða því hverjir
gætu stundað nám og hverjir
ekki. Ráðherrann virtist ekki
skilja þá jafnaðarhugsun sem
Lánasjóður námsmanna væri
grundvallaður á. Öll ákvæði er
snertu rétt námsmanna væru
samkvæmt tillögu ráðherra tekn-
Loks í fyrrinótt á cinum síðasta
degi þessa þings, tókst að fá end-
anlega afgreitt frumvarp mcnnta-
málaráðherra um lögverndun á
starfsheiti og starfsréttindum
grunnskólakennara, framhalds-
skólakennara og skólastjóra en
flutningur þessa frumvarps var
einn liður í síðustu kjarasamning-
um kcnnara.
Það hve frumvarpið hefur ver-
ið lengi til afgreiðslu á þingi, eða
öllu heldur hvers vegna dróst svo
lengi að mælt yrði fyrir því, eða í
ar út og hugmyndin um 3.5%
vexti á þessi lán gengi í berhögg
við þá meginstefnu sem byggt
herfði verið á að tryggja jafnan
rétt allra til náms.
Þá minnti Steingrímur á reglu-
gerðasntíði Sverris frá byrjun árs-
ins þar sem komið hefði verið aft-
an að námsmönnum þrátt fyrir
fagrar yfirlýsingar um annað. Það
væri því engin tilviljun að nú
streymdu inn til ráðherra og þing-
manna mótmæli þúsunda náms-
manna vegna þeirrar skerðingar
sem þeir hafa mátt þola að und-
anförnu. Lagði hann áherslu á að
Alþingi afgreiddi nú þegar fyrir
þinglok tillögu Alþýðubanda-
lagsmanna um að reglugerðir
menntamálaráðherra yrðu þegar
afturkallaðar.
Gallað kerfi
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins sagði að
það væri auðvelt að slá sig til ridd-
ara með því að taka undir allar
kröfur námsmanna til námslána-
kerfisins. Námslán hérlendis
væru talsvert ríflegri en hjá öðr-
nær heilan mónuð, skýrðist á
eftirminnilegan hátt við lokaaf-
greiðslu þess. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins, varaformaður og
flestir ráðherrar flokksins sótu þá
hjá við afgreiðslu frumvarpsins
og lýstu þannig andstöðu sinni
við það. Aðeins tveir af forystu-
mönnunr sjálfstæðismanna,
menntamálaráðherra sjálfur og
þingflokksformaður greiddu
frumvarpinu atkvæöi.
Samkvæmt lögverndunarfrum-
varpinu er óheimilt að skipa.
um nágrannaþjóðum. Það væri
óeðlilegt að menn hefðu hærri lán
heldur en tekjur eftir að þeir
hefðu lokið námi og ekki nema
sanngjarnt að lánin væru greidd á
sannvirði að loknu námi. Hann
sagði núverandi kerfi að nokkru
gallað en eðlilegast væri að taka
tillit til sjónarmiða beggja aðila
við endurskoðun kerfisins.
Hagur námsmanna
ekki virtur
Kristín Halldórsdóttir Kl,
sagði að skýrsla ráðherrans eyddi
ekki kvíða og áhyggjum nranna
að vita af þessu máli í hans hönd-
um. Það væri mikil óvirðing bæði
við þingmenn og málefnið sjálft
hvernig þessi skýrsla hefði verið
lögð fyrir til umræðu án þess að
þingmenn fengju tækifæri til að
kynna sér inntak hennar nægilega
vel. Skýrslan væri stútfull af hug-
myndum en þær væru allar til að
bæta hag Lánasjóðsins en hagur
námsmanna væri lítils virtur. Nú-
verandi lög væru góð lög og hún
varaði við því að lánakerfinu yrði
breytt.
Sverrir Hermannson sagðist
ekki álasa námsntönnum fyrir
það að reyna að sækja í ókeypis
peninga. Hann sagði að allt tal
Jóns Baldvins hefði verið sér að
skapi og þeir virtust eiga sam-
stöðu um þetta mál.
Þarf ekki byltingu
Páll Pétursson F, sagðist hafa
viljað sjá þessa skýrslu ráðherr-
ans fyrr svo hægt hefði verið að
ræða hana í þingflokki Fram-
sóknarmanna. Hann sagðist ekki
geta tekið undir ýmsar þær hug-
myndir í skýrslunni og að það
væri veruleg andstaða innan
Framsóknarflokksins við ýmsar
þessar hugmyndir einkum þó
vextina. „Við Framsóknarmenn
berum að stórum hluta ábyrgð á
núverandi lögum og við erum
ekki sérstaklega óánægðir með
þau. Þetta eru allgóð lög og það
þarf enga byltingar á þeim“,
sagði Páll. Fráleitt væri að ætla að
skipa fulltrúa frá ASÍ og VSf í
stjórn LÍN og eins að ætla að
flokka nám í hagnýtt og óhagnýtt
nám. „Þetta eru gamlir og hund-
leiðir gestir sem við héldum að
værufarnir", sagði Páll Pétursson
um tillögur menntamálaráð-
herra.
Umræðunt um skýrslu mennta-
málaráðherra var tvífrestað á
fundi Sameinaðs þings í gær með-
an önnur mál komu til afgreiðslu
en umræðunni var framhaldið
síðar um kvöldið.
setja eða ráða til kennsiustarfa
annan en þann, sem uppfyllir þau
menntunarskilyröi, sem nú ei
krafist til skipunar. Hins vegar er
gert ráð fyrir að hægt sé að sækja
um undanþágu til að ráöa rétt-
indalausan aðila til kennslustarfa
ef ókleift revnist að róða réttinda-
mann og jafnframt fá þeir sem
hafa unnið við kennslu undanfar-
in ár án réttinda. tækifæri til þess
að afla þeirra á næstu árum.
-Ift-
NÝLÖG
Nú síðustu daga þingsins hafa
ný lagafrumvörp verið afgreidd í
stórum stíl frá báðum deildum
þingsins og eins úr Sameinuðu
þlngi. Hér verða nefnd þau helstu
frumvörp sem samþykkt hafa
verið á síðustu sólarhringum.
ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN
Frumvarp menntamálaráð-
herra um álagningu 0.25% eign-
arskatts til að ljúka framkvæmd-
um við Þjóðarbókhlöðuna á
næstu þremur árum.
VARNIR GEGN
MENGUN SJÁVAR
Frumvarpi þessu var mikið
breytt í meðferð beggja þing-
deilda og er álit þingntanna að
æskilegt sé að endurskoða þessi
nýju iög innan þriggja ára vegna
þess að lögin skarast nokkuö við
gildandi lög, t.d. um Hollustu-
vernd ríkisins og Náttúruvernd-
arráð.
RÍKISBORGARA-
RÉTTUR
Alþingi hefur santþykkt að veita
alls 42 einstaklingum ríkisborg-
ararétt. Áskilið er að viðkontandi
aðilar taki sér íslenskt eiginnafn
og börn viðkomandi fædd síðar
heiti íslenskum nöfnum.
ELDSPÝTNASALA
Einkaréttur ÁTVR til inn-
flutnings á eldspýtunt og vindl-
ingabréfum hefur veriö afnum-
inn. Talið er að þetta þýói tekjut-
ap fyrir ríkissjóð uppá tug milj-
óna ó ári og lögðust nokkrir þing-
menn gegn frumvarpinu vegna
þessa.
MEÐLAGS-
GREIÐSLUR
Alþingi hefur lögfest að hæstu
dráttarvextir falli á aliar vangold-
nar meðlagsgreiðslur. Til þessa
hafa verið 9% fastir vextir á van-
skilunt en þeir hækka nú uppí um
22%.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLANS
Háskólahappdrættinu hefur
verið heimilað að reka skyndi-
happdrætti með peningavinning-
um. Jafnframt hefur einkttleyfi
happdrættisins til peningavinn-
inga verið framlengt til 15 ára.
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
Alþingi hefur samþykkt að
stofna sérstakt Útflutningsráð er
hafi það hlutverk að konta á
auknu samstarfi fyrirtækja, sam-
taka og stjórnvalda í útflutnings-
málunt.
ÓKEYPIS ÚTVARP
Alþingi hefur samþykkt þá
breytingu á nýju útvarpslögunum
að aldraðir og öryrkjar eru nú
undanþegnir greiðslu afnota-
gjalda.
ÓGILDING
LÖGGERNINGA
Samþykktar hafa verið ítar-
legar breytingar á 50 ára göntlum
lögum um samningsgerð, umboð
og ógildingu löggerninga. í nýju
lögunum er kveðið ntun skýrar á
um hvenær ógilda skuli löggern-
inga.
—lg-
Kennarar
Lögvemdun loks í gegn
Miðvikudagur 23. apríl 1986 \ ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5