Þjóðviljinn - 23.04.1986, Side 14

Þjóðviljinn - 23.04.1986, Side 14
VIÐHORF Ágætu áhrifamenn, forystu- sveit á þingi, í menningarmálum, í rétttindamálum barna, kvenna og karla, verkalýðsfrömuðir, vinnuveitendur! Ég bið ykkur í nafni okkar allra, sem höfum beðið lengi, sum uppundir heilan mannsald- ur: Farið nú að koma til leiðar staðgreiðslu opinberra gjalda, ríkisútsvari, staðgreiðsluskatti eða hvað það verður kallað. Sam- einist þar um einna þörfustu efnahagsaðgerðir sem nú er hægt að gera íslenskum almenningi til hagræðis. Pví nefni ég til baráttu- menn fyrir mannréttindum og mannúð að þetta er verðugt um- hugsunarefni og baráttumál fyrir þá, og skulu hér á eftir tilfærð nokkur atriði því til rökstuðn- ings: 1. Staðgreiðsla skatta er mikil- væg forsenda þess að menn geti gert fjárhagsáætlun af einhverju viti, að menn viti hvað af fengnu fé þeir eiga. 2. Fyrir barðinu á „eftirá“- skatti verða menn oftast þeg- ar verst stendur á: þegar þeir verða fyrir tekjulækkun eða tekjuleysi eftir tímabil með meðal- eða jafnvel há-tekjur. 3. Hér skulu taldir upp hópar fólks sem sannarlega verður fyrir barðinu á núverandi að- ferðum við opinbera gjald- heimtu á íslandi: a: Fólk sem missir atvinnu. b: Fólk sem „missir“ yfirvinnu. c: Fólk sem missir heilsu um ein- hvern tíma. d: Fólk með sveiflukennd laun, vegna „happdrættis“-þáttar í starfi þess. Hér hef ég í huga mik- inn hluta af sjómönnum og fisk- vinnslufólk, en fleiri koma til. e: Mæður sem vilja staldra við heima hjá sér lengur en fáeina mánuði er þær ganga með og fæða börn. f: Foreldrar sem vilja eða þurfa að vera meira hjá börnum sínum. g: Fólk sem vill eða þarf að vera frá launavinnu hjá sjúkum og öldruðum. h: Fólk.sem villeða þarfað byrja á einhverju nýju: s.s skólanámi, nýju fyriríæki, listiðkun, ólaunuðu leyfi, starfsdvöl eða annarri dvöl herlendis sem er- lendis, og svo mætti lengi upp telja. Gjaldheimtuaðferðirnar verða stundum óblíðar eins og með- Opið bréf Hlédís Guðmundsdóttir skrifar: „Gjaldheimtuaðferðirnar verða stundum óblíðar einsog meðfylgjandi mynd minnir á. Er sárt tilþess að hugsa aðfólkfœr oft ekki grið hjá gjaldheimtu fyrr en ofseint eða þegar það er alveg niðurbrotið að heilsu sem efnahag“ fylgjandi mynd minnir á. Er sárt til þess að hugsa að fólk fær oft ekki grið hjá gjaldheimtu fyrr en of seint eða þegar það er alveg niðurbrotið að heilsu sem efna- hag. Eg tel að flestir íslendingar til- heyri nokkrum sinnum á ævinni einhverjum þessara hópa, og að oft geti þeir ekki séð fyrir hvenær að því kemur. Þeir menn er engu skiptir um greiðsluhætti á skatti Nauöungaruppboö Nauðungaruppboð Ir’ £ 'A'\ Nauöungaruppboö Nauöungaruppboð 5!» LUft Nauöungaruppboó ÍT iú u* Nauóungaruppboó ýíj ÍT Nauóungaruppboö Nauöungaruppboö « i Nauöungaruppboð Ö/Ui Nauðungaruppboð V Á A 'LX K A A Nauóungaruppboð í Nauðungaruppboó • - /\ U Nauóungaruppboó Nauóungaruppboö A Nauöungaruppboö ílÍVudl . Nauðungaruppboö U tifa .... Nauóungaruppboö sís Cr.5? Nauöungaruppboö «/i ÍT'/i,-...- Nauðungaruppbpð MtJá......- Nauöungaruppboö Nauóungaruppboö /TY A A A í-* /' /\ ... . Nauðungaruppboö *R 'ö'ídx- Nauðungaruppboö Nauöungaruppboö CÍ>. /N I1 a" U Nauóungaruppboó />, . . /\/i /\ /V o. Nauöungaruppboð A O'AA a /\ L_4 /\ /\ 'y\ 'U Nauöungaruppboö <I?U ',} íf Nauðungaruppboö 'U'M x i Nauöungaruppboð /i A - A /i Nauóungaruppboð >0 O/V- A ,\ Nauöungaruppboö ,S ',' . . /V /V A r- Nauóungaruppboð Oííí Nauöungaruppboö '/L Nauðungaruppboð Ú'íl/ÍíU' Nauðungaruppboð /v U /lÁ'A Nauöungaruppboö ft Nauðungaruppboð /> /, a CT3 L) /i « 11 Nauðungaruppboð Nauöungaruppboó /><> . V)\ AA/ l\/\' Nauöungaruppboö rsiauoun Nauöungaruppboö • A /V O /\ . •Q'/íá'.a LJ 11 . . U a Nauðungaruppboó Nauóungaruppboð U '/( Á 'Á Nauóungaruppboó k fj1? Nauðungaruppboó Nauöungaruppboö táú u Nauðungaruppboð Ýíiteíi Nauöungaruppboö ú' Nauóungaruppboð ‘ />■/ /\ A uppbo ❖ K L1 r 'á Nauöungaruppboö 'Q' M * Það er ómannúðlegt, óþarft og óhagkvæmt að elta uppi févana fólk með skattheimtu. Ég fullyrði að lítill hagur er að því fyrir opinbera aðila, að gera menn gjaldþrota og þurfa síðan að taka að sér framfærslu þeirra þegar skaðinn er skeður. eru stórefnafólk, skattsvikarar, og öreigar undir skattleysismörk- um, en vonandi getur fækkað í tveim síðasttöldu hópunum. Peir mættu hverfa. Þetta ákall um staðgreiðslu op- inberra gjalda verður ekki langt. Rök og e.t.v. gagnrök gætu þakið margar síður. Eg verð að átelja stjórnmálamenn í öllum flokk- um, forystulið verkalýðshreyf- ingar og lika vinnuveitendur, fyrir að hafa tekið sig saman nú í mörg ár um að sitja á og þegja í hel það mikilvæga mál sem stað- greiðsluskattur er. Flogið hefur fyrir að ástæður þeirra fyrir and- stöðunni séu þessar helstar: a: að verkalýðsforystan telji launamenn hagnast á rýrnun skatta í verðbólgu! Er eyðandi orðum á svona hugmynd? Hún er hvorki skynsamleg né siðleg. b: að stjórnvalda-forystan hverju sinni hafi haft áhyggjur af „töpuðu“ skattári. - Þessi er nú með þeim bestu! Árið sem við, ríkið, töpum tekjum með þessu móti verður nefnilega árið eftir heimsendi! Ég minni á að einmitt nú er lag: Eins og allir vita stendur til að afnema tekjuskatt á næsta ári. Þá verður staðgreiðsla „ríkisút- svars" sem fasts hundraðshluta af tekjum einfaldasta og trúlega skiladrýgsta opinbera gjald- heimtuaðferðin. Atvinnuveitendur og aðrir launagreiðendur senda þá útsvar- ið beint og strax í gegnum gíró- greiðslukerfið. Ekkert mælir gegn endurgreiðslum til þeirra sem ekki ná lágmarkstekjum á ári, né aukagreiðslum frá þeim er alhæst hafa launin, þó þessi inn- heimtuaðferð sé notuð. Banda- lag jafnaðarmanna mun þegar hafa mótað tillögur um staðgreitt ríkisútsvar. Sýnið nú, öll hin, samvinnu- og framfara-vilja og gefið málinu þann forgang sem það verðskuldar svo stað- greiðsluútsvar komi fljótt til framkvæmda, helst þegar á næsta ári. Þið getið það, vilji er allt sem þarf! Reykjavík í apríl 1986, með virðingu og von um áheyrn, Hlédís Guðmundsdóttir er geðlæknir í Reykjavík. HVAÐ ER AÐ GERAST 1ALÞÝÐUBANDALAGINU? Alþýðubandalagið Hafnarfirði Opið hús Opið hús verður hjá Alþýðubandalaginu í Hafnafirði í Skálanum Strandgötu 41 á laugardagsmorgnum frá kl. 10 - 12 fram að kosningum. Féiagar og stuðningsmenn eru hvattir til að líta inn og taka þátt í kosningastarfinu. Heitt á könnunni og frambjóðendur á staðnum. - Kosningastjórnin. AB - Akureyri Kosningaskrifstofan verður fyrst um sinn oþin virka daga kl. 17.00 til 19.00 í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18. Utankjörstaða-kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins • Kærufrestur vegna kjörskrár rennur út 16. maí. • Kjörskrá liggur frammi fyrir allt landið. • Kjósendur eru hvattir til að athuga hvar og hvort þeir eru á kjörskrá. • Að láta skrifstofuna vita af þeim sem verða líklega ekki heima á kjördag 31. maí n.k. (vegna páms, atvinnu, sumarleyfa, ferða- laga o.s.frv.). • Kosningaskrifstofan er í Miðgarði Hverfisgötu 105, risi. Símarnir eru 91-12665 og 12571. Umsjónarmaður skrifstofu er Sævar Geirdal. Alþýöubandalagiö Alþýðubandalagið í Reykjavík Fáið frambjóðendur á fund! Hafið samband sem allra fyrst og fáið frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík á vinnustaðafundi því oft reynist erfitt að verða við áskorun um fundi síðustu vikurnar fyrir kjördag. Hringið í síma 17500 og ræðið við Gísla Þór. Alþýðubandalagið f Reykjavík Alþýðubandalagið Hafnarfirði Kaffi á sumardaginn fyrsta Oþið hús verður í Skálanum Strandgötu 41, á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta. Kaffi og veitingar. Húsið opnar kl. 15 og opið frameftir degi. Sama dag verður kosningaskrifstofan opnuð form- lega en hún verður fyrst í stað opin virka daga frá kl. 15-18.30 á laugardagsmorgnum. Félagar og stuðningsmenn fjölmennum í kaffi á fimmtudaginn og takið þátt í kosningastarfinu. Stjórnin AB Kópavogur Fundur í starfshópi um stjórnsýslu, skipulags- og atvinnumál, verður haldinn í Þinghóli þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30. - Kosningastjórnin. AB Akureyri Árshátíð verður haldin miðvikudaginn 23. apríl, síðasta vetrardag, í Alþýðu- húsinu við Skiþagötu, 4. hæð. Veislustjóri verður Erlingur Sig- urðarson. Hátíðin hefst kl. 20.00 með listauka. Glæsilegur þríréttaður matseðill. Fjölbreytt dagskrá. Hljómsveitin Remix leikur fyrir dansi. Miðar á árshátíðina seldir í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 laugardaginn 19. apríl og sunnudaginn 20. apríl frá kl. 14-17 báða dagana. Takið með ykkur gesti og fjölmennið á árshátíð ABA! Nefndin AB Garðabæ Félagsfundur verður í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli fimmtudaginn 24. apríl kl. 20.30. Dagskrá: Undirbúningur kosninganna. Stjórnin AB Kópavogi Kosningaskrifstofa hefurveriðopnuð í Þinghóli, Hamraborg 11. Opið fyrst um sinnfrá kl. 15-19. Síminn nú er45715. Kosningastjóri er Ásgeir Matthías- son. Kjörskrá liggur frammi! ABK AB - Vestmannaeyjar Kosningaskrifstofa hefur verið opnuð að Bárugötu 9 (Kreml). Opið fyrst um sinn kl. 20-22 á þriðjudögum og kl. 14-16 á laugardögum og sunnu- dögum. Síminn er 1570. Umsjónarmaður skrifstofunnar er Einar Birgir Steinþórsson. ABV AB Mosfellssveit Sumri fagnað í Mosfellssveit Allir í Kvennabrekku, kosningaskrifstofu G-listans í Mosfellssveit á Sumardaginn fyrsta. Börn sérstaklega velkomin með fullorðna fólkinu. Grillaðar pylsur, rakettur og fl. ef allir eru stilltir. Opnum kl. 13.00. Nefndin. ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Felagar! Undirbúningur fyrir næstu Rauðhettu er í fullum gangi. Kæru félagar, verið nú duglegir að skrifa og láta skoðanir ykkar í Ijós. Þema næsta heftis verður: Hvernig ríkisstjórn viljum við? Annars er heftið opið fyrir öllu sem þið teljið að eigi erindi til annarra ÆF-félaga, greinar, Ijóð o.s.frv., o.s.frv. En munið að við viljum ekkert stærri sneið af kökunni - við viljum allt heila helvítis bakaríið. Framkvæmdaráð 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNj Miðvikudagur 23. apríl 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.