Þjóðviljinn - 10.05.1986, Blaðsíða 4
LEIÐARI
stjómlausar fjárfestingar
Nesjavellir -
Eitt stórkostlegasta og stjórnlausasta fjár-
festingarævintýri landsmanna hin síðustu ár er
um þessar mundir að gerast fyrir tilstilli reyk-
vískra Sjálfstæðismanna á Nesjavöllum. Nú er
að koma í Ijós, að stjórnleysi Sjálfstæðisflokks-
ins á fjárfestingum Hitaveitunnar á svæðinu er
að leiða yfir Reykvíkinga nýja Kröflu upp á mil-
jarð króna.
■ Það er þegar búið að fjárfesta í Nesja-
völlum rúmar 700 miljónir króna.
■ Sjálfstæðisflokkurinn hefur þar að auki
heimilað hitaveitustjóra að eyða á þessu ári
nær 200 miljónum króna til viðbótar í Nesja-
velli.
■ Á næsta ári mun því fjárfestingin á svæðinu
ná jafnvirði um eins miljarðs króna.
Þrátt fyrir þessar gífurlegu framkvæmdir á
svæðinu er það samt sem áður staðreynd,
að í borgarstjórn Reykjavíkur hefur aldrei
verið tekin fullnaðarákvörðun um virkjun
Nesjavalla.
Óhófið í framkvæmdunum, og hversu dýr-
keyptar hinar ótímabæru fjárfestingar á Nesja-
völlum munu reynast okkur Reykvíkingum sést
best á því, að nú er komið í Ijós að það er hægt
að fresta Nesjavöllum að líkindum í ein tíu
ár. En þrátt fyrir það er þegar búið að eyða
miljarði í svæðið, og hann verður ekki notaður
annars staðar á meðan.
Flest það sem viðkemur Nesjavöllum er
raunar með ólíkindum, einsog sést þegar farið
er yfir málið. í tíð núverandi meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík hefur verð á heitu
vatni hækkað mjög mikið. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur með því heimilað hitaveitustjóra stórfellda
skattlagningu á Reykvíkinga, sem hefur numið
hundruðum miljóna. Einungis vegna Nesjavaila
hefur gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur hækkað í
kringum 20 prósent, auk allra annarra hækk-
ana. Árið 1983 réttlætti hitaveitustjóri hækkanir,
á hækkanir ofan með því að halda fram að ekki
væri hægt að ná frekari nýtingu á svæðum Hita-
veitunnar. Virkjun Nesjavalla væri nauðsyn,
ella dyndi „neyðarástand" yfir Reykvíkinga.
Þetta hefur hann sjálfur afsannað með því að
bæta verulega nýtinguna á svæðum Hitaveit-
unnar með ýmsum sjálfsögðum aðgerðum. En
hið fyrirsjáanlega „neyðarástand" var samt
sem áður notað sem málsvörn til að taka hundr-
uði miljóna af Reykvíkingum með stórfelldum
hækkunum á heitu vatni.
Hitaveitustjóri gerði sömuleiðis orkuspá, sem
sýndi hvernig þörfin fyrir heitt vatn myndi vaxa á
Reykjavíkursvæðinu. Þessi orkuspá var síðan
forsenda hins óhóflega framkvæmdahraða á
Nesjavöllum. En einsog Þjóðviljinn greinir frá á
forsíðu í dag, þá er orkuspá Jóhannesar Zöega,
hitaveitustjóra, einfaldlega kolröng. Hún er
snarvitlaus, einsog sést best á því, að hún gerir
ráð fyrir að þörfin fyrir heitt vatn aukist helmingi
hraðar, heldur en hægt er að lesa út úr niður-
stöðum sjálfrar orkuspárnefndar. En á þessari
röngu orkuspá hefur Sjálfstæðisflokkurinn samt
sem áður grundað hinar ótímabæru fjárfesting-
Innan Sjálfstæðisflokksins ræður sú skoðun
ferðinni, að ráðast beri í virkjunaráfanga við
Nesjavelli sem fyrst. Það er í stíl við viðhorf
hitaveitustjóra. Samt er Ijóst, að einungis fyrsti
áfanginn kostarekki undir2-3 miljörðum króna.
Einungis fjármagnskostnaðurinn af þessari
gífurlegu fjárfestingu veltir hundruðum miljón-
um króna á ári. Með þeim óhagkvæma og raun-
ar ótrúlega framkvæmdahraða sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur fallist á til þessa, þá er Ijóst að
þetta mun leiða til þess að orkuverð í Reykjavík
mun hækka um 20 til 30 prósent vegna þess að
markaðurinn er ekki orðinn nógu stórtil að bera
þessa miklu fjárfestingu, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn vill ana út í.
G-listinn í Reykjavík hefur hins vegar lagt
fram aðra áætlun. Hún miðar að því að fresta
Nesjavallavirkjun um tíu ár. Þangað til á að nýta
hina gífurlegu umframorku Landsvirkjunar til
upphitunar á vatni í rafskautskötlum, sem er
fjárhagslega mjög hagkvæmur kostur. Hvað
myndi vinnast með þessu?
Fjármagnskostnaður við byrjunaráfanga
Nesjavallavirkjunar veltir 250 til 300 miljónum
króna á ári. Árlegur sparnaður af frestun Nesja-
vallavirkjunar getur numið verulegum hluta af
þessari upphæð. Það myndi vinnast. Þess
vegna skiptir miklu máli, að framkvæmdagleði
hitaveitustjóra og Sjálfstæðisflokksins verði
hamin á Nesjavöllum - það getur sparað
Reykvíkingum miljónahundruð. - ÖS.
Mynd: Einar Ól.
LJOSOPIÐ
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing-
ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið-
þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Jónsson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. maí 1986