Þjóðviljinn - 10.05.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.05.1986, Blaðsíða 6
ÍÞRÓTTIR Fri&rik Friðriksson og Pétur Ormslev, hetjur Fram í úrslitaleiknum, lyfta bikarnum. Mynd: Framarar vörðu titilinn Skoruðu tvö gegn 10 KR-ingum íframlengingu Brasilía Leandro sat heima! Mœtti ekki á flugvöllinn Leandro, besti og reyndasti varnarmaður Brasilíu, neitaði að fara með landsliðinu til Mexíkó í fyrrakvöld. Hann mætti ekki á flugvöllinn í Ríó, Zico og Junior voru sendir heim til hans til að reyna að tala um fyrir honum en för þeirra varð til einskis — engu tauti varð við Leandro komið og hann neitaði að gefa nokkra skýr- ingu á framferði sínu. Forseti Flamengo, liðs Leandros, sagði að leikmaðurinn hefði verið mjög þunglyndur undanfarið en vissi ekki um ástæðurnar fyrir því. Það er því Ijóst að Leandro leikur ekki með Brasilíumönnum í Mex- íkó og þeir máttu síst við því að missa sinn traustasta varnar- mann. —VS/Reuter Framarar urðu Reykjavík- urmeistarar í meistaraflokki karla annað árið í röð þegar þeir sigruðu KR-inga 3-1 í framlengd- um úrslitaleik á gervigrasinu í Laugardal í fyrrakvöld. Framarar byrjuðu mjög vel og Pétur Ormslev slapp fljótlega í gegnum vörn KR ogskoraði. Júl- íus Þorfinnsson jafnaði fyrir KR í fyrri hálfleiknum. Harka og óþarfa brot settu fljótlega svip sinn á leikinn og gula spjaldið fór oft á loft. Það rauða leit síðan dagsins ljós 10 mínútum fyrir leikslok þegar Þor- steini Guðjónssyni, varnarmanni KR, var vísað af leikvelli fyrir að kasta boltanum í mótherja. Tíu KR-ingar börðust vel og sóttu nokkuð í framlengingunni en Framarar voru beittari og skoruðu tvisvar. Pétur Ormslev fyrst með laglegum skalla eftir fyrirgjöf Þórðar Marelssonar og síðan kom Guðmundur Torfason inná sem varamaður og lét það vera sitt fyrsta verk að renna sér innfyrir vörn KR og innsigla sig- urinn, 3-1. Friðrik Friðriksson átti stórleik í marki Fram og átti drjúgan þátt í sigrinum. —VS Skotland Óvænt HM-val Hansen og Archibald ekki með Valsstúlkurnar tryggöu sér Fteykjavíkurmeistaratitilinn í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu í fyrradag, eina ferðina enn. Þær sigruðu Fram 1 -0 í lokaleiknum. E.ÓI. tók myndina af þeim eftir að þeim hafði verið afhentur bikarinn í leikslok. Fteykjavíkurmeistarar 1986. Mynd: E.ÓI. Knattspyrna Karfa Holland vann Hoilendingar sigruðu Islcndinga 98-80 í seinni vináttuleik þjóðanna sem fram fór í gær í Hollandi. Holland vann fyrri leikinn með sjö stigum einsog fram kemur annars staðar á síðunni. Staðan í hálfleik var 56-47 heimamönnum í hag. Birgir Mikaelsson skoraði 22 stig, Torfi Magnússon 12, Pálmar Sigurðsson, Páll Kol- beinsson og Hreinn Þorkelsson gerðu 11 stig hver. - VS Meistarakeppnin Fram-Valur í Kópavogi Islandsmeistarar Vals og bikarmeistarar Fram mætast annað kvöld, sunnudagskvöld, í hinni árlegu Meistarakeppni KSI. Leikurinn fer fram á Kópavogsvellinum og hefst kl. 19. Framarar sigruðu Skagamenn í Meistara- keppninni í fyrra og þeir urðu Reykjavíkur- meistarar í fyrrakvöld. Körfubolti Lakers í úrslit Góður leikur hjá Pétri Pétur Guðmundsson átti góðan leik þegar Los Angeles Lakers tryggðu sér sigur í einvíginu gegn Dailas Mavericks í fyrrakvöld. Hann skoraði 8 stig og tók 6 frá- köst og Lakers unnu 120-107. Lakers unnu því 4 leiki en Maver- icks 2 og Pétur og félagar leika því til úrslita við Houston Rockets um meistaratitil vesturhluta NBA- íslendingar töpuðu óvænt fyrir Færeyingum 2-3 á Norðurland- amótinu í blaki í Digranesskóla. Færeyingar unnu tvær fyrstu lot- urnar 15-3 og 15-11, en Islending- ar unnu tvær næstu 15-8 og 15-5. íslendingar náðu svo góðri for- ustu í síðustu lotunni, 10-2, en deildarinnar. Rockets unnu Denver Nuggets eftir tvær framlengingar, 126- 122, og unnu því einvígið 4-2. Boston Celtics eru komnir í úrslit í austurhlutanum og leika þar lík- lega við Milwaukee Bucks sem hafa 3-2 forystu í einvíginu við Philadelphia 76ers. —VS/Reuter Færeyingar skoruðu 13 stig í röð og sigruðu 15-10. íslendingar töpuðu fyrir Svíum í gær og Norðmönnum á fimmtudag og munu því leika við Færeyinga um 5.-6. sætið í dag. Hefst leikurinn klukkan 12.30. Svíar og Finnar hafa verið í Knattspyrna FH-ingar unnu ÍA FH sigraði ÍA 1-0 í lokaleik Litlu bikarkeppninnar í Hafn- arfirði í fyrradag. Ingi Björn Aibertsson skoraði sigur- markið. Lokastaðan varð því sú að ÍBK fékk 7 stig, FH 5, Breiðablik 5, ÍA 3 og Haukar ekkert stig. —VS sérflokki á þessu móti. Bæði liðin hafa sigrað í sínum riðlum og leika að öllum líkindum til úr- slita. Danir og Norðmenn leika svo líklega um 3.-4. sæti. Leikur- inn um 3.-4. sætið hefst klukkan 14.30, en úrslitaleikurinn kl. 17.00. - Logi Alex Ferguson, landsliðseinvaldur Skota, kom mjög á óvart í fyrradag þegar hann tilkynnti 22ja manna hóp sinn fyrir lokakeppni HM í Mexíkó. Steve Archibald, Barcelona og Alan Hansen, Liverpool, eru ekki í hópnum, og ekki heldur David Spee- die frá Chelsea sem reiknað var með að færi með. Þeir eru allir í sex manna bakvarðasveit, tilbúnir ef einhverjir detta útúr hópnum. Ferguson valdi eftirtalda leik- menn: Markverðir: Jim Leighton (Aberdeen), Alan Rough (Hiberni- an) og Andy Goram (Oldham). Aðrir Körfubolti Gottí Hollandi Holland vann nauman sigur á íslandi, 94-87, í vináttulandsleik í körfuknattleik sem fram fór í Hollandi I fyrradag. Þetta er mjög góð frammistaða hjá íslenska lið- inu en Holland hefur jafnan verið hátt skrifað í evrópskum körfu- knattleik. Leikurinn var hnífjafn allan tímann og Holland leiddi 56-55 í hléi. Heimamenn skoruðu fimm síðustu stig leiksins á lokamínút- unni og tryggðu sér þar með sigur. Valur Ingimundarson skoraði 34 stig fyrir ísland, Guðni Guðnason 11 og Torfi Magnús- son 8. —VS leikmenn: Richard Gough (Dundee Utd), Steve Nicol (Liverpool), Maurice Malpas (Dundee Utd), Alex McLeish (Aberdeen), Willie Miller (Aberdeen), David Narey (Dundee Utd), Arthur Albiston (Man.Utd), Graeme Souness (Rangers), Gordon Strachan (Man.Utd), Paul McStay (Celtic), Jim Bett (Aberdeen), Roy Aitken (Celtic), Eamonn Bannon (Dundee Utd), Kenny Dalglish (Li- verpool), Frank McAvennie (West Ham), Charlie Nicholas (Arsenal), Graeme Sharp (Everton), Paul Sturr- ock (Dundee Utd) og Davie Cooper (Rangers). —VS/Reuter Spánn Hercules úr leik Pétur Pétursson og félagar í Hercu- les voru slegnir útúr spænska deilda- bikarnum í knattspyrnu á miðviku- dagskvöldið. Þeir töpuðu 0-2 á heima- velli fyrir hinum nýkrýndu bikar- meisturum Real Zaragoza. Hercules hafði tapað útileiknum naumlega, 2- 1, en náði ekki að nýta sér það. Real Sociedad sló Atletico Bilb'ao út með 2-2 jafntefli eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Bilbao 2-1. Real Ovideo og Sestao úr 2. deild slógu út 1. deildarliðin Racing Santander og Las Palmas og Valencia, Valladolid, Esp- anol, Real Betis og Sporting Gijon tryggðu sér einnig sæti í 2. umferð keppninnar. —VS/Reuter Blak Töpuðu fyrír Færeyingum 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. maí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.