Þjóðviljinn - 10.05.1986, Blaðsíða 17
HEIMURINN
Noregur
8 konur í nýju stjóminni
Aðaláherslan verður á efnahagsmálin og Brundtland boðar harðar aðhaldsaðgerðir
Osló — Ný minnihlutastjórn
Verkamannaflokksins og
Vinstri sósíalista kom til valda
í gær í Noregi undir forsæti
Gro Harlem Brundtland.
Af átján ráðherrum stjórnar-
innar eru átta konur og hafa þær
ekki verið svo margar í norskri
ríkisstjórn fyrr. Brundtland sagði
á fréttamannafundi í gær:„Sparn-
aðaraðgerðir er ekki rétt orð yfir
þá víðtæku efnahagslegu endur-
skipulagningu í efnahagslífinu
sem nú þarf að framkvæma.“
Hún sagði að Verkamannafl-
okkurinn yrði að leggja til hliðar
þá miklu útþensluáætlun sem
flokkurinn hafði sett á stefnuskrá
sína fyrir síðustu kosningar. Þá
var hagnaður Norðmanna af olíu
nær helmingi meiri en hann er nú.
Stjórn Brundtlands hefur nú,
með stuðningi Vinstri Sósíalista,
77 sæti af 157 sætum á norska
þinginu. Enn er það Framfara-
flokkurinn sem er í oddaaðstöðu
á þinginu með sín tvö þingsæti.
Brundtland sagði í gær að stjórn
hennar hefði í hyggju mun
strangari aðhaldsaðgerðir í ríkis-
fjármálum en þær sem felldu
stjórn Willochs. Hún endurtók
fyrri ummæli sín að aðgerðir
stjórnar Willochs hefðu komið
mun verr niður á láglaunafólki en
þeim ríku.
Nýi olíu- og orkumálaráðherr-
ann, Arne Oien, sagði frétta-
mönnum að hann vildi gjarnan
halda fund með fulltrúum OPEC
ríkja og að Norðmenn ættu að
velta því fyrir sér hvernig þeir
gætu átt þátt í að koma jafnvægi á
olíverðið, það væri í þeirra eigin
þágu. Opec hefur áður hvatt
Norðmenn til samstarfs um fram-
leiðslumagn og til að hækka verð.
Þessu hafði stjórn Willochs neit-
að. Verðfall á olíu hefur neytt
olíufyrirtæki í Norðursjó til að
draga úr kostnaðarsömu þróun-
arstarfi sem hefði orðið norskum
iðnaði mikil lyftistöng.
Knut Frydenlund er aftur orð-
inn utanríkisráðherra eftir nokk-
urra ára hlé og Johan Jörgen
Holst er varnarmálaráðherra í
nýju ríkisstjórninni.
Kjarnorkuslysið
Eldar slokknaðir í Tsjemóbíl
Sérfrœðingarfrá Alþjóðakjarnorkuráðinu hafa verið ískoðunarferð
til Tsjernóbíl kjarnorkuversins í Úkraínu ogþeirtelja að eldarlogi
ekki lengur íkjarnaofninum sem sprenging varð íþann 26. apríl.
Geislavirkni hefurminnkað mikið
Moskvu — Kjarnorkusérfræð-
ingar Alþjóðakjarnorkuráðs-
ins (IAEA) sögðu í gær að tek-
ist hefði að slökkva þann eld
sem var í kjarnaofninum í
Tsjernóbílkjarnorkuverinu og
að geislavirkni færi sífellt
minnkandi í og umhverfis ver-
ið.
Hópur sérfræðinga frá IAEA
sem heimsótt hefur Tsjernóbíl
hélt fréttamannafund í gær í Mos-
kvu. Sérfræðingarnir sögðu á
fundinum að enn væri mikill hiti í
kjarnakljúfinum en ekki væri tal-
in hætta á bráðnun. Sérfræðing-
arnir frá IAEA eru fyrstu útlend-
ingarnir sem leyft hefur verið að
koma nálægt verinu síðan slysið
átti sér stað26. apríl síðastliðinn.
Þeir lögðu áherslu á að mat þeirra
á aðstæðum í verinu væri byggt á
tölulegum upplýsingum frá Sov-
étmönnum, ekki þeirra eigin.
Þeir fóru einnig í flugferð í þyrlu
yfir verið.
Sérfræðingarnir sögðu að ekki
hefði verið gerð kerfisbundin
rannsókn á því hversu mikil
geislavirknin væri við kjarnorku-
verið en sæmkvæmt þeim tölum
sem Sovétmenn hefðu látið þeim
í té virtist sem almenneingur væri
ekki í hættu. Yfirvöld í Sovétríkj-
unum samþykktu að gefa daglega
skýrslu um geislavirkni frá
rannsóknarstöð í 60 km. fjarlægð
frá Tsjernóbíl og á sex öðrum
stöðum á vesturlandamærum
Sovétríkjanná og hófust þær í
mælingar í gær. Þá sagði for-
stöðumaður IAEA, Hans Blix,
að sovésk yfirvöld hefðu heitið
því að senda helstu kjarnorkus-
érfræðinga sína til Vínar ein-
hvern tíma á næstu mánuðum til
að greina frá því hvað hefði farið
úrskeiðis.
Sérfræðingar IAEA sögðu í
gær að Sovétmenn hefðu ekki
lokað öðrum kjarnaofnum en
þeim þremur sem enn eru heilir í
Tsjernóbíl verinu. Það sem gerð-
ist var í grófum dráttum það að
sprenging varð í fjórða hluta
kjarnorkuversins. Ekki er enn
Ijóst hver ástæðan fyrir spreng-
ingunni var. Af varð mikill eldur
og bygging kjarnaofnsins, ýmis
tæki, kjarnaofninn sjálfur og
kjarnakljúfurinn skemmdust
mikið. Afleiðingin varð mikil
geislavirkni sem barst víða.
Keðjuverkan í kjarnaofninum
stöðvaðist strax eftirað spreng-
ing varð. Eldur kom upp í grafít-
blökkinni (sjá nr. 11 á teikningu).
Þessir eldar hafa nú verið slökktir
en hitinn er enn mjög hár. Ekki
er þó talið að hætta stafi af því.
Nú er unnið að þvði að steypa
utan um allan kjarnaofninn.
Þegar Blix var spurður að því
hvort hann væri ánægður með
þær upplýsingar sem þeir hefðu
fengið sagði hann svo vera. „Við
áttum mjög einlægar og opinská-
ar viðræður við ráðherra og sér-
fræðinga." Blix neitaði hins vegar
ásökunum Sovétmanna um að
vestræn ríki hefðu gert of mikið
úr slysinu. „Það er ljóst að geisla-
virkni vegna slyssins er mun meiri
en áður hefur orðið í kj arnorkusl-
ysum. Það er því rétt að veita
þessu fulla athygli.“
Tass fréttastofan sagði í gær að
sovésk matvæli væri ekki menguð
geislavirkni og gagnrýndi harka-
lega ráðstafanir Evrópubanda-
lagsins um timabundið bann á
innflutning matvæla frá Sovét-
ríkjunum. í opinberri tilkynn-
ingu sagði að slíkar aðgerðir væru
aðeins til að grafa undan alþjóð-
legum samningum um verslun og
að þær samrýmdust ekki þeim
hefðum sem venjulega væri farið
eftir þegar fundin væri lausn á
vandamálum í alþjóðaverslun.
Evrópubandalagið ákvað í gær að
banna innflutning á fersku kjöti
og lifandi dýrum frá Austur-
Evrópulöndum.
Þetta
líka...
Kiev — Embættismenn í Úkraínu
fyrirskipuðu snemmbært skóla-
leyfi fyrir 250.000 börn í Kiev en
sögöu að geislavirkni frá kjarn-
orkuverinu í Tsjernóbíl væri fyrir
neðan hættumörk i Kiev.
Aþenu — Andreas Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands,
hvatti í gær til þess að endir yrði
bundinn á tilraunir með kjarnorku-
vopn og að í framtíðinni gengju
skilaboð um kjarnorkuver betur
fyrir sig en nú er.
Dhaka — Helsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn í Bangladesh, Awami
bandalagið, hvatti í g'ær til sex
klukkustunda allsherjarverkfalls á
miðvikudaginn næsta til að mót-
mæla því sem flokkurinn nefndi
kosningasvik i þingkosningunum
þar í landi fyrir þremur dögum.
Larnaca, Kýþur — Líbanskur karl-
maður var í gær handtekinn á
Larnacaflugvelli þegar hann
reyndi að fara um borð í flugvél
franska flugféiagsins Air France
með vopn.
Bonn — Vestur-Þjóðverjar eru að
athuga þann möguleika að koma á
alþjóðlegri ráðstefnu sem ákveði
alþjóðiega öryggisstaðla fyrir
kjarnorkuver víða um heim.
ERLENDAR
PRÉniR
hjórleífsson/ R E U ~I E R
k^RARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-86008: 75 stk. 25 kVA einfasa staura-
dreifispennar.
Opnunardagur: Þriðjudagur 10 júní 1986, kl.
14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn-
unartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá
og með mánudegi 12. maí 1986 og kosta kr.
300,- hvert eintak.
Reykjavík 7. maí 1986
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Kjarnaofninn: grafítblökk með
1693 lóðréttum vinnslurásum.
Inn i þær er rennt úranstöngum,
þe. eldsneytinu. Hæð blakkar-
innar er 7 metrar, breidd 11,8 m.
j vatnslelðslur til ofns j
Við kjarnklofninginn hitnar vatnið sem rennur upp í gegnum þlökkina upp í 284 gráður. Gufuskiljur leiða gufuna inn í
hverfla sem framleiöa orkuna. Átta dælur halda kælivatnsrennslinu í gangi. Með því að renna 179 stýripinnum niður í
Plökkina má hægja á eða stöðva kjarnaklofninginn. Steinsteypukápan utan um kjarnann er loftþétt og klædd utan
kápu úr Plöndu af stáli og blýi. Inni í kápunni er bianda af vetni og köfnunarefni sem heldur súrefninu frá kjarnanum en
ef það kemst að honum getur þaö leitt til íkveikju, eins og gerðist í Tsérnobil á dögunum.
Laugardagur 10. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17