Þjóðviljinn - 10.05.1986, Síða 19
Geislavirkni
Ráðtil
ferða-
manna
Landlœknir og Geisla-
varnir ríkisins gefaút
ráðleggingar tilfólks sem
œtlar til Austur-Evrópu
Geislavarnir ríkisins og Land-
læknir hafa sent frá sér
ráðleggingar til fólks sem hyggur
á ferðalag til Austur-Evrópu. Er
ferðamönnum ráðið frá því að
dveljast innan 500 km radíuss frá
kjarnorkuverinu I Chernobyl
sem er skammt frá Kiev.
Ferðamenn sem erindi eiga til
staða innan framangreinda
marka, til norð-austur Rúmeníu
eða svæða sem markast af
Gdansk, Varsjá, Lublin í Pól-
landi ættu að hafa eftirfarandi í
huga: *•'
1. Ekki neyta yfirborðsvatns eða
mjólkur.
2. Þvo allt grænmeti.
3. Gæta hreinlætis.
4. Sums staðar (t.d. í austur
Rúmeníu) er fólki ráðlagt að vera
sem minnst utanhúss.
Á ríkisstjómarfundi 6. maí
gerði ríkisstjórnin ályktun þar
sem hún harmar slysið í Cherno-
byl og gagnrýnir viðbrögð sov-
éskra stjórnvalda að tilkynna
hvorki né viðurkenna slysið þeg-
ar í stað. Ríkisstjórnin lýsir yfir
áhyggjum af öryggisbúnaði
kjarnorkuvera og hvetur til að
komið verði á tryggara öryggis-
kerfi í orkuverum.
Leiðrétting
Um daginn kom prentvillu-
púkinn enn á óvart, og hækkaði
Björn Pálsson á lista félags-
hyggjufólks í Hveragerði um eitt
sæti, - úr fimmta í fjórða. Hið
rétta er að Björn er sumsé fimmti
maður á lista en í fjórða sæti er
Sigríður Kristjánsdóttir. Við-
komandi eru beðnir velvirðingar.
Byggingafulltrúar
Félag stofnað
Nýstofnað félag byggingafull-
trúa hélt aðalfund sinn 28. aprfl
sl. í Reykjavík. Formaður var
kjörinn Olafur Guðmundsson
byggingafulltrúi í Snæfells- og
Hnappadalssýslum.
Ólafur sagði í samtali við Þjóð-
viljann að tilgangur félagsins,
sem var stofnað í nóvember sl.
væri að auka samskipti milli starf-
andi byggingafulltrúa og að ann-
ast fræðslustarf og endur-
menntunarmál innan stéttarinn-
ar.
Með Ólafi í stjórn eru Ingvar
G. Jónsson ritari, byggingafull-
trúi í Skagafirði og gjaldkeri er
Sigtryggur Stefánsson bygginga-
fulltrúi á Eyjafjarðarsvæði. í
varastjórn eru Ásbjörn Þorvalds-
son Mosfellssveit, Gunnar
Sigurðsson Reykjavík og Pálmi
Þorsteinsson Húsavík.
Atvinnumiðlun
námsmanna
Atvinnumiðlun námsmanna
tók til starfa föstudaginn 2. maí.
Eru atvinnurekendur hvattir til
að notfæra sér þessa þjónustu.
AN er til húsa í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut og verð-
ur opin alla virka daga frá kl. 9.00
til kl. 17.00. Síminn er 621080 og
621081.
ÞJÓÐVILJINN - SlÐA
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd bygg-
ingadeildar, óskar eftir tilboðum í fullnaðarfrágang á
Granda- og Selásskóla.
Innifalið í útboði þessu er málun, dúkalögn, allar
innréttingar, léttir innveggir, hreinlætistæki, raflagnir,
loftræstilögn o.fl.
Byggingastig er frá húsunum tilbúnum undir tréverk í
fullgerð hús.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboð-
in verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 22. maí nk.
kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
F11k11k|uvcgi 3 Simi 25800
Kópavogsbúar
- heimilisþjónusta
Okkur vantar starfsfólk nú þegar.
Einnig starfsfólk til sumarafleysinga. Heimilis-
þjónusta felst í aðstoð við aldraða og sjúka í
heimahúsum.
Vinnutími eftir samkomulagi 4-40 tímar á viku.
Vinsamlegast hafið samband við forstöðumann í
síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Hertz
...býðurbetur!
Hertz
Okeypis hjá í Danmörku
• Ókeypis vegakort/bók
• Tölvuútskrift með leiðbeiningum um stystu
leiðir til þeirra áfangastaða sem þú hefur
valið þér.
• Afsláttarbók sem veitir margs konar afslátt á
veitingastöðum, gististöðum, skemmtistöð-
um, leikhúsum, skemmtigörðum og víðar.
Afsláttarbókin getur hæglega sparað þér
margar þúsundir króna.
• Handhæg taska fyrir léttan farangur - fram-
tíðareign sem alltaf kallar á góðar ferða-
minningar.
Práfaðuflugog “ bfl
íDunmötku
• •• að vera á nýjum eða nýlegum bíl, traustum
og skemmtilegum og líða eftir hinum full-
komnu akvegum Evrópu.
• •• að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af
kílómetragjaldi, lélegum merkingum eða
bilunum.
• •• að geta skotist á stuttum tíma til spennandi
áfangastaða um alla álfuna; borga, bæja,
skemmtigarða, veitingastaða, baðstranda -
hvert sem er.
• •• að skipta um veður, menningu, þjóðtungur,
eftir því sem hentar hverju sinni.
• •• að vera í Kaupmannahöfn í dag og Rínar-
dalnum ámorgun.
• •• að njóta aðstoðar SL-veganestisins, (Euro-
guide bókarinnar) þar sem þú hefur ógrynni
upplýsinga um fallegar ökuleiðir og athygl-
isverða staði, borgakort, gististaðaskrár og
fleira og fleira.
• •• að borga aðeins krónur 15.900,- fyrir flug og
Ford Escort í 2 vikur, svo dæmi sé tekið.
• •• að borga ekkert fyrir þriðju vikuna þegar fjórir
eða fimm eru í btlnum.
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÓTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727