Þjóðviljinn - 14.05.1986, Qupperneq 13
MINNING
Kristján Bimir Sigurðsson
Fœddur 2. mars 1937 - Dáinn 5. apríl 1986
Kristján á Ármúla, hví þurfti
hann að kveðja svo í skyndi, elsk-
aður, virtur og dáður? Það veit
enginn, nema sá sem öllu ræður.
Er öllum fyllilega ljóst hvað
það er, sem gerir menn vinsæla?
Vafalaust er það líkamleg
hreysti, dugnaður og sem mest
umsvif í öllum athöfnum. - En
skyldi það duga til að syrgja
Kristján svo mjög, var hann bú-
inn að sýna á sér verri hliðina
þann skamma tíma sem við
kynntumst honum? Fáir held ég
klæðist svo fallegu reyfi að ekki
smjúgi úlfshárin út, og því síður
svo illum úlfsham að ekki finnist
ylríkt þelið sem inni býr. Þó ekki
sé nema fjögur ár.
Það skyldi þó aldrei hafa verið
meðal annarra dyggða hans
„bara“ þetta kærleiksríka og
drengilega viðmót, sem hann átti
erfitt með að dylja.
Það er nú svo þegar ábúenda-
skipti verða á einhverjum bæ, að
beðið er með fögnuði og kvíða
hvort sá næsti reynist eins góður
nágranni og sveitungi sem sá er
burtu fór. Auðvitað var kvíðinn
fljótur að hverfa og fögnuðurinn
því fyllri þegar Kristján var kom-
inn að Ármúla með fjölskyldu
sína, en hans vera var þar of stutt,
eða ef til vill er það mín eigin-
girni.
Ég minnist varla að hafa harm-
að meira fráfall annars manns
vandalauss og skammast ég mín
ekki að gráta þennan dreng hátt
eða í hljóði. - En hvað er ég að
kveina, hvað um fjölskyldu hans
konu og börn og aðra nánustu?
Ég bið almáttugan Guð að gefa
þeim styrk til að bera sinn þunga
harm í Guðs fríði.
Engilbert Guðmundsson,
Hallsstöðum.
/ daga og nœtur skiptist skákborð
eitt.
Af skapavöldum er þar manntafl
þreytt.
Þau fœra oss til og fella oss, gera
oss mát.
Og frú og kóngi er loks í stokkinn
þeytt.
M.Á.
Laugardagurinn 5. apríl sl. að
afliðnu hádegi. Ég var útistadd-
ur. Það var komin hláka og hvöss
sunnanátt kembdi regnþrúngin
og óheillavænleg kólguský um
fjallabrúnir og veðurhíjóðið
blandaðist þúngum sjávardyn
neðan frá ströndinni. Þá barst
flugvélarhljóð til mín utan úr
sortanum og um mig fór ónota
hrollur. Og meðan vélarhljóðið
fjarlægðist til suðurs og dó loks
út, hugsaði ég um hvað við
vestfirðingar höfum alist upp við
og vanist á að tefla á tæp vöð í
samgöngum, komist nauðulega
undan snjóflóðum og grjóthruni,
hrakist að landamerkjum lífs og
dauða á válegum fjallvegum sem
nóg er af hér, kjölrekið á bátkæn-
um tímum saman í hríð og
skammdegismyrkri. Allt þetta og
margt fleira af svipuðum toga er
reynsluheimur fólks hér um slóð-
ir svo fremi við viljum komast
leiðar okkar. Og svo, að fljúga í
næstum hvaða veðri sem er. Og
oftast slampast þetta - en ekki
alltaf. Tæknin bregst, árveknin
dottar eða höfuðskepnurnar
koma aftan að okkur. Og þá
verður höggið þungt.
Síðdegis þennan sama dag
barst sú fregn um sveitina að flug-
vélar á leið suður væri saknað og
að nágranni minn Kristján Sig-
urðsson bóndi á Ármúla hefði
verið meðal farþega.
Það kvöld og sú nótt sem í hönd
fór var ömurleg bið eftir fregnum
sem varla gátu orðið nema á einn
veg við þessar aðstæður.
Það voru nú á páskum rétt 4 ár
síðan kynni okkar Kristjáns hóf-
ust, en hann hafði þá fest kaup á
jörðunum Ármúla 1-2 og fjöl-
skyldan kom inneftir að dvelja
þar hátíðisdagana.
Það kom í minn hlut að verða
fyrsti gestur Kristjáns og Gerðar
Kristinsdóttur konu hans á þeirra
nýja heimili.
Þetta var á skírdag 1982 sent þá
'bar uppá 8. apríl.
Ég ók þeim síðan frammundir
landamerki Ármúla og Skjald-
fannar og greindi þeim frá stað-
háttum og örnefnum einsog til
sást, en veturinn hafði verið snjó-
þúngur og miklar fannir í hlíðum.
Þetta kvöld var fagurt veður og
vor í lofti og þau vildu ganga til
baka.
Ég hélt heim gagntekinn þeirri
tilfinningu að hér hefði sveitin og
þá ekki síst við nágrannarnir
hreppt stóra vinninginn við komu
þessarar fjölskyldu að Ármúla.
Þetta snöggsoðna mat mitt átti
svo sannarlega ekki eftir að verða
sér til skammar.
Betri, hjálpsamari og elsku-
legri nágranna en Kristján og
Gerði og stóra barnahópinn
þeirra er naumast hægt að hugsa
sér.
Þeir sem búa í sveit, eða hafa
alist þar upp, vita, hvað gott ná-
grenni og góð samvinna er mikil-
væg og ekki hvað síst á þetta við á
einangruðum og strjálbyggðum
stöðum.
Hér hagar svo til, að Ármúli,
sem stendur niður við sjó og
Skjaldfönn framm í dalnum, eru
nokkuð sér á parti, milli jökul-
vatnanna Mórillu í Kaldalóni og
Selár í Skjaldfannardal og góð
samvinna því mikilvæg um smala-
mennsku, heyskap og aðdrætti.
Á þessum sviðum sem og öðrum
góðra granna sat hlutur Kristjáns
aldrei aftur.
Þær eru ótaldar ferðirnar sem
hann kom hingað frammeftir
óbeðinn, færandi hendi, póst og
vöru sem komið hafði með Djúp-
bát eða bílum og gjarnan lét hann
þá í veðri vaka að hann hefði bara
verið að skoða færðina.
Mikil og góð samvinna var
milli heimilanna um heyskap og
smalamennskur, og oftar en einu
sinni kom Kristján inní Kaldalón
að hyggja að mér ef ég lenti í
myrkri við fjárleitir eða rjúpna-
stúss.
Þannig nágranni var Kristján
og um hann mátti vissulega segja
að ef þú baðst hann að fara með
þér dagleið þá fór hann með þér
tvær hið minnsta.
Á ísafirði hafði Kristján verið
umsvifamikill í verslun og útgerð,
en var, að því er hann sagði, orð-
inn dauðþreyttur á pappírsvinnu
og vildi breyta til.
Þau hjónin höfðu verið með
hænsnabú í Hnífsdal og gengið
vel.
Nú var fyrirhugað að eggja-
framleiðsla yrði megin búgrein á
Ármúla. Það fór þó saman, að
þegar búið var að koma upp stóru
hænsnabúi á vestfirskan mæli-
kvarða og það kornið í fullan
rekstur, féll eggjaverðið og það
svo mjög að afraksturinn var lítill
eða enginn umfram tilkostnað.
Samt var þraukað með hænsnin í
von um betri tíð sem enn er ekki
komin, en samhliða unnið að því
að skjóta fleiri stoðum undir af-
komu, svo sem með kálfaeldi,
angórakanínurækt og heysölu.
Einnig keyptu þau hálfan þriðja
tug lamba haustið 1983 og fengu
strax fyrsta haustið fáheyrðar
afurðir eftir þau. í haust skilaði
svo tvævetluhópurinn að meðal-
tali um 33 kg. kjöts hver ær, og
mætti það vera mörgum fordæmi
um hvaða afurðum er hægt að ná
með góðri fóðrun og umhirðu,
enda hugði Kristján á fjölgun fjár
næsta haust.
Ármúli við ísafjarðardjúp er
um margt sérstæð og kostarík bú-
jörð, og í þjóðbraut. Víðsýni er
þar mikil af bæjarhlaði inn og út
allt Djúp og til Snæfjallastrandar.
Þar rís sól snemma og sest seint.
Sumarfagurt og heillandi um-
hverfi hið næsta, lyng og birki-
vaxinn Múlinn sem rís þverbratt-
ur ofan við túnið. Inni í Kaldalóni
og frammí Skjaldfannarhlíð falla
klingjandi bergvatnslindir niður
grösugar og kjarrivaxnar hlíðar.
Síst er því að undra að Sigvaldi
Stefánsson læknir, sem sat á Ár-
múla frá 1911-1921, en varð þá
að flytjast þaðan vegna heilsu-
brests, samdi mörg af sínum feg-
urstu lögum þar og kenndi sig síð-
an við Kaldalón.
í bókinni um Sigvalda Kalda-
lóns hefur höfundur hennar
Gunnar M. Magnúss þetta eftir
tónskáldinu: „Ég veit ekki hvað
hefði lyft undir mig sem lista-
mann ef örlögin hefðu ekki leitt
mig vestur á þessum bestu árum
æfinnarí'.
Tvö íbúðarhús eru á Ármúla,
hið eldra að hluta til frá árum
Sigvalda þar, og hafði að mestu
staðið ónotað undanfarið.
í fyrravetur gerðist Kristján
aðili að „Ferðaþjónustu bænda"
og var ráðist í mikla lagfæringu á
„Kaldalónshúsi" og þar komið á
fót vistlegu gistiheimili fyrir
ferðafólk og einnig sett upp bens-
ínstöð, en hvortveggja þessa
þjónustu hafði sárlega vantað
hér. Kom enda á daginn að fjöldi
næturgesta á síðasta sumri fór
framúr björtustu vonum Ármúla-
fólks og er ekki að efa að sem
sumargististaður á „Kaldalóns-
hús" framtíðina fyrir sér.
En fleiri járn hafði Kristján í
eldinum. Snemma árs 1983 hafði
hann forgöngu um það að stofnað
var félag, sem í voru bæði heima-
menn og einstaklingar syðra, um
kaupá ylræktarbýlinu Laugarási í
Skjaldfannardal af þeim hjónum
Jóni F. Þórðarsyni og Margréti
Magnúsdóttur, sem af miklum
dugnaði og harðfylgi höfðu byggt
þar nýbýli og rekið gróðurhús í
rúma tvo áratugi. Er af því
brautryðjandastarfi þeirra mikil
saga sem ekki verður rakin hér,
aðeins fullyrt að slík starfsemi er
ekki heiglum hent eins og veður-
guðirnir haga sér á stundum hér í
dalnum.
Eftir að áðurnefnt félag,
Laugarás h/f, keypti jörðina hef-
ur starfræksla gróðurhúsanna
verið með svipuðum hætti og
áður.
Á árunum uppúr 1980 var sú
fiskræktaralda að rísa sem nú ber
við himin og hvað helst er litið
vonaraugum til, með framtíðar-
atvinnuuppbyggingu í sveit og við
sjó, þar sem heitt vatn er í boði.
Aðaltilgangur Kristjáns og fé-
laga með kaupunum á Laugarási
voru þau heitavatnsréttindi sem
þar fylgdu með og þá að nýta
vatnið til fiskeldis. Hefur síðan
verið unnið að undirbúningi og
frumhönnun á stórri eldisstöð að
Ármúla í samráði og félagsskap
við norska aðila. Nú í ársbyrjun
var stofnað hlutafélagið Dragás
sem er að meirihluta í eigu íslend-
inga og var Kristján ráðinn fram-
kvæmdastjóri þess. Það er óhætt
að segja að við sveitungar Krist-
jáns og raunar fleiri fylgdumst
með af miklum áhuga og velvild
með hinum fyrirhuguðu fram-
kvæmdum Ármúlabóndans og
félaga hans. Þegar hann er allur
spyr maður, hvað nú?
En vona verður að merkið
standi þó maðurinn falli.
Ég hef hér farið fljótt yfir sögu
um athafnir Kristjáns á Ármúla
þau 4 ár sem þetta sveitarfélag
naut krafta hans og hæfileika.
Ég hika ekki við að fullyrða að
koma Ármúlafjölskyldunnar hafi
verkað sem vítamínsprauta á ná-
grennið og eflt bjartsýni og tiltrú
á framtíð og tilvist byggðarinnar.
Strj álbyggðri sveit má líkja við
grjótvörðu. Steinarnir í vörðunni
- einstaklingarnir - eru mismikil-
vægir, sumir eru bara til uppfyll-
ingar, aðrir binda hleðsluna sam-
an. Síðast en ekki síst eru svo
horn- eða undirstöðusteinarnir.
Ef þeir skreppa úr skorðum er
allri vörðunni hætt. Nú er hart
sótt að hinum dreifðu byggðum.
Fjármagnið sogið suður, fram-
kvæmdir hins opinbera nánast
engar, kvóti til sjávar og sveita,
íbúðir ill- eða óseljanlegar í sjáv-
arplássunum, bújarðir gerðar
verðlausar með skerðingu á
framleiðslurétti og forustumenn
bænda löngu hættir að standa
undir nafni.
Á tímum slíkra gerningaveðra,
sem vafalaust eiga eftir að harðna
að mun á komandi árum, er vörð-
unum á útjöðrum byggðarinnar
hætt, ekki síst þegar hornsteinum
er svipt burt með svo skjótum og
sorglegum hætti sem hér er orð-
inn.
Kristján á Ármúla sóttist ekki
eftir vegtyllum eða nefndar-
mennsku hér, reyndi þvert á móti
að hliðra sér hjá slíku eftir föng-
um. Benti réttilega á að hann
þyrfti fyrst að kynnast mönnum
og málefnum, hefði auk þess nóg
á sinni könnu. Okkur sveitungum
hans duldist þó ekki að hér var
kominn maður sem var vel til for-
ustu fallinn, skarpgreindur, ver-
aldarvanur og með víðtæka
starfs- og félagsmálareynslu.
Kristján var hamingjumaður í
einkalífi, umhyggjusamur og
nærgætinn fjölskyldufaðir, mjög
orðvar og laus við dómgirni og ég
man aldrei til að hann legði að
fyrra bragði íllt orð til nokkurs
manns. Jafnan var hann glaður
og reifur með glettnisblik í
augum og gamanyrði á vör, enda
sjálfsagður kynnir og veislustjóri
á skemmtunum og manna-
mótum. Söngvinn var hann og
tónelskur, og tók, við komu sína
hingað, strax að sér organista-
störf við Melgraseyrarkirkju og
fleiri kirkjur hér í Djúpinu, þegar
þess þurfti með. Hann æfði
kirkjukór Melgraseyrarkirkju og
kom honum til furðanlegs þroska
miðað við að í litlum söfnuði er
auðvitað takmarkað úrval söng-
fólks. Ég minnist margra glaðra
og góðra stunda við söngæfingar
á Ármúla með húsbóndann upp-
örvandi og gamansaman við org-
elið.
Og við orgelið í Melgras-
eyrarkirkju, á annan dag páska,
sá ég hann síðast. Ég þurfti að
hraða mér á fund að messu lok-
inni, hann á flugvöllinn áleiðis
suður, til fundarhalda vegna fisk-
eldisstöðvarinnar. Það átti ekki
fyrir honum að liggja að koma
heim úr þeirri ferð. Tónar út-
göngusálmsins fylgdu mér sem
öðrum út í bjartan og heiðan út-
mánaðardaginn. Þessi sama birta
og heiðríkja einkenndi öll mín
kynni af Kristjáni Sigurðssyni,
frá fyrsta degi til hins síðasta.
Hans mun ég jafnan minnast
þegar ég heyri góðs manns getið.
Indriði Aðalsteinsson
Skjaldfönn
Kennarar - Kennarar
Sérkennara og íþróttakennara vantar til starfa viö
Seyðisfjarðarskóla.
Hringið og kynnið ykkur kjörin, upplýsingar gefur
skólastjórinn í símum 97-2172 eða 97-2365 og
formaður skólanefndar í síma 97-2291.
Skólastjóri
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns
Þórarins Helga Jónssonar
Jenny Ó. Jónsson og aðstandendur.
Sumarvinna
Efnafræðikennari eða efnafræðistúdent (langt
kominn í námi) óskast í 2 til 3 mánuði.
Upplýsingar í síma 681844 milli kl. 8.00 til 16.00
virka daga.