Þjóðviljinn - 02.07.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Þungun
Prófmál til læknamðs
ASÍhöfðarprófmál á hendur Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum
vegna ógreiddra launa í veikindaforföllum verkakonu. ASItelurað
afstaða Vinnslustöðvarinnar sé brot ájafnréttislögum
Prófmáli ASÍ gegn Vinnslu-
stöðinni hf. í Vestmannaeyj-
um vegna veikinda þungaðrar
verkakonu hjá fyrirtækinu hefur
verið vísað til umsagnar lækna-
ráðs.
Vinnslustöðin neitaði að
greiða konunni veikindadaga
vegna þungunarinnar. Hún fékk
eggjahvítu í þvag, blóðþrýstingur
hennar hækkaði og að auki fékk
hún bjúg vegna þungunarinnar,
og varð samkvæmt læknisráði að
taka sér algjöra hvíld frá vinnu
fram að fæðingu barnsins.
Vinnslustöðin neitar að viður-
kenna þetta sem veikindi, en Al-
þýðusambandið krefst þess að
konunni verði greiddir þessir
veikindadagar.
Atli Gíslason lögfræðingur,
sem rekur málið fyrir hönd ASÍ,
sagði í samtali við blaðið í gær að
einnig væri þess krafist að þessi
afstaða Vinnslustöðvarinnar
verði úrskurðuð brot á
jafnréttislögunum, á þeirri for-
sendu að þarna væri verið að mis-
muna kynjunum.
„Við viljum meina að fæðing-
areitrun sé eins og hver önnur
veikindi og að atvinnurekandan-
um beri að greiða laun í veikind-
aforföllum af þessum sökurn",
sagði Atli í gær.
Ekki hefur áður verið höfðað
mál á hendur atvinnurekendum
vegna þessa.
—gg
VIÐHORF
MENNING
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Bílaeign
Met skráning
„Mér þykir líklegt að við séum
að slá fyrri met okkar í bílaeign
þessa dagana“ sagði Heiðar Vigg-
ósson skrifstofustjóri hjá Bif-
reiðaeftirliti ríkisins í samtali við
blaðamanna í gær.
Nýskráningar bíla frá ára-
mótum og til síðustu mánaða-
móta eru með því hæsta sem hef-
ur verið eða 7.236. Þetta er næst-
um jafn mikið og var skráð allt
árið í fyrra en þá voru skráðir um
8000 nýir bílar. í heild hefur bíla-
eign landsmanna aukist um 3,4%
miðað við síðustu áramót eða úr
115.072 bílum í 119.063 bfla.
Þetta þýðir að hverjir þúsund
íbúar eiga 431 fólksbfl og hvorki
meira né minna en 52 vörubfla.
-vd.
Abl.
Dapuiieg
uppákoma
Ragnar Arnalds:
Hver og einn verður
að dœmafyrirsig
Mál Guðmundar J. Guð-
mundssonar alþingismanns verð-
ur tekið fyrir á sameiginlegum
fundi þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubanda-
lagsins í næstu viku.
Ragnar Arnalds formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins
sagði í gær að þetta mál væri í
ákveðinni biðstöðu nú meðan
það væri til rannsóknar og því rétt
að doka við um stund. Hann
kvaðst því sem minnst um málið
vilja segja.
Það þekkja allir málavexti,
sagði Ragnar, og auðvitað er það
dapurleg uppákoma að Guð-
mundur skildi taka við þessu fé
og ekki átta sig á hvaðan það
kom. En í svona máli, þar sem
ekkert lögbrot liggur fyrir, verð-
ur hver og einn að leggja dóm á
málin fyrir sig. Það er ekkert
launungarmál að mér hefur frá
upphafi fundist fráleitt að við
samþingmenn Guðmundar gerð-
umst sérstakur dómstóll í þessu
máli.
Þetta er mín skoðun, sagði
Ragnar, en í næstu viku fáum við
tækifæri til að skiptast á skoðun-
um um það hvort ástæða er fyrir
æðstu stofnanir flokksins að
álykta um málið. Það er vafalaust
umdeilt. G.Sv.
Leiðangursmenn völdu stað nýjum skála, sem væntanlega verður rlsinn á Grímsfjalli næsta vor.
Jöklarannsóknafélagið
Skeiöarárhlaup í vændum?
Vatnshœð í Grímsvötnum að nálgastþá hæð sem verið hefurfyrir
Skeiðarárhlaup. Stæði valiðfyrir nýjan skála á Grímsfjalli
Þetta var góð ferð. Við fengum
feykilega gott veður, líklega
það besta í þessum vorferðum
okkar í langan tíma, sagði Helgi
Björnsson varaformaður Jökla-
rannsóknafélagsins í samtali við
Þjóðviljann í gær, en árlegri vor-
ferð félagsins á Vatnajökul er ný-
lokið.
Það var 30 manna hópur sem
fór á jökulinn að þessu sinni og
var unnið að ýmsum rannsóknum
við Grímsvötn. Auk þess valdi
hópurinn stæði fyrir nýjan skála
félagsins á Grímsfjalli og er stefnt
að því að flytja hann á fjallið
næsta vor.
„Við mældum þarna vatnshæð
í Grímsvötnum, en þaðan koma
Skeiðarárhlaup. Hún reyndist
vera 1426 metrar yfir sjávarmáli
og er því að nálgast það sem hún
hefur verið þegar hlaup hafa orð-
ið. En það er erfitt að segja nák-
væmlega til um hvenær næsta
hlaup verður. Síðasta hlaup varð
í desember árið 1983.
Þá mældum við hvað snjóaði
mikið á þessum vetri. Slíkar mæl-
ingar hafa verið gerðar þarna
samfleytt síðan árið 1950. Þetta
reyndust vera 2140 millimetrar af
vatni, sem er nokkuð undir með-
altali.
Það voru gerðar ýmsar aðrar
mælingar og það er óhætt að
segja að ferðin hafi verið mjög
árangursrík“, sagði Helgi.
Þetta gekk þó ekki áfallalaust,
því hópurinn missti snjóbíl ofan í
sprungu eina mikla í jöklinum.
Bíllinn náðist upp, en það var
ekki laust við að það hafi farið um
suma þegar þeir horfðu ofan í
jökulinn. Þeir sem vanari voru
kipptu sér ekki upp við þetta
atvik, þetta gerist að sögn Helga í
nærri hverri ferð. —gg
Þrotabú Hafskips
Fyrstu kröfumar greiddar
25 miljónir greiddar í síðustu viku vegna vangoldinna launa ogorlofs.
Þrotabú Hafskips greiddi í síð-
ustu viku rúmar 25 miljónir
króna vegna krafna sem bú-
stjórar hafa samþykkt að séu for-
gangskröfur í búið. Aðallega er
um að ræða laun til starfsmanna
vegna uppsagnarfrests og orlofs-
greiðslur. Þetta eru fyrstu kröf-
urnar sem þrotabúið samþykkir
að greiða.
Stærstur hluti þessarar upp-
hæðar gengur til verkalýðsfélaga
sem lýstu kröfum í búið fyrir
hönd sinna umbjóðenda. Þannig
greiddi þrotabúið Dagsbrún rúm-
ar 5 miljónir sem verða greiddar
út á skrifstofu félagsins nú á
föstudaginn. Einnig komu
greiðslur til VR, sjómannafélag-
anna og fleiri. 5,7 miljónir runnu
í ríkissjóð vegna endurgreiðslu á
launum sem greidd höfðu verið
út á ríkisábyrgð.
Eftir sem áður liggja fyrir kröf-
ur frá verkalýðsfélögunum á
hendur þrotabúinu að sögn
Ragnars Hall skiptaráðanda.
—gg
Þjófnaður
Hafði ekki
við
þeirri gömlu
New York — Fyrir nokkru lenti
87 ára gömul kona í því að ráðist
var á hana og handtöskunni henn-
ar rænt.
Slíkt þykir mörgum kannski
ekki í frásögur færandi, svona á
þessum síðustu og verstu. Merki-
legra er hins vegar að konan elti
þjófinn uppi, barði hann í gang-
stéttina með regnhlíf sinni og hélt
honum þar til lögreglan kom á
vettvang og handtók manninn
sem er þrítugur að aldri. Og þjóf-
urinn var á reiðhjóli.
IH/Reuter