Þjóðviljinn - 06.07.1986, Blaðsíða 13
Eru þeir mesta ógnunin í varp-
inu?“
„Já vargfugl - örn, hrafn og
ekki síst svartbakurinn hafa gert
gífurlegan óskunda á varpsvæð-
um, en einnig tófa og minkur.
Veiðistjóri á að sjá um að fram-
fylgja lögum um eyðingu svart-
baks en embættið er fjárvana og
því erfitt um framkvæmd lag-
anna. Bændur eiga að snúa sér til
veiðistjóra eða sveitarstjórna
sem ber skylda til að fylgja lögun-
um eftir. Auk vargsins getur
veður farið mjög illa með æðar-
varpið og yfirleitt öll truflun. Pað
sem skiptir mestu máli er kyrrð
og ró, nærgætni og natni.“
„Nú þykir æðardúnn munaðar-
vara í flestum löndum - hvernig
eru söluhorfur í dag?“
„Markaðurinn er sveiflu-
kenndur, en hann var í toppi í
fyrra og mér sýnist árið í ár ætla
að verða gott líka. Verðið var
mjög gott í fyrra, eða allt að 18
þúsund krónur fyrir kílóið. Dúnn
úr 50-60 hreiðrum fer í sængina,
eða um 1 kíló af hreinsuðum dún.
Við flytjum aðallega út til V-
Þýskalands en einnig hafa Japan-
ir sýnt áhuga og meira að segja
hefur verið sendur íslenskur
dúnn til Taiwan (Formósu). Það
er mikið atriði að halda gæðunum
stöðugum. Héðan á enginn dúnn
að fara nema fyrsta flokks og all-
an dún á að gæðameta. Pegar
gerviefnin fóru að ryðja sér til
rúms og mikið framboð var á
sængum með ýmsum gervifyl-
lingum vorum við hrædd um að
dúnninn yrði undir, en hann hef-
ur haldið velli, enda ekkert sem
kemur í staðinn fyrir hann. ís-
lenski æðardúnninn þykir ein-
hver sá albesti í heiminum og það
má ekkert verða til að draga úr
gæðunum.
Á seinni árum hafa menn kom-
ið fram með ýmsar nýjungar til að
bæta varpskilyrði með skýlum
eða skjólum, en Árni Snæbjörns-
son æðarræktarráðunautur Bún-
aðarfélagsins hefur unnið
gagnmerkt starf við að aðstoða
varpbændur á þessu sviði. Þá má
ekki gleyma Baldvin Jónssyni í
Sylgju, sem var merkur hugvits-
maður og fann upp dúnhreinsi-
vél, sem hefur reynst mjög vel og
margir bændur hafa heima hjá
sér.“
„Hvaða svæþi landsins er
mesta varpsvæði æðarfuglsins?“
„Það má segja að hann verpi
allt í kringum landið, nema sára-
lítið við suðurströndina. í öllum
landshlutum nema á Suðurlandi
eru æðarræktunardeildir, eða
samtals 10 deildir. Breiðafjarðar-
svæðið er þó helsta varpsvæðið
nú sem fyrr. í dag eru um 400
varpjarðir á öllu landinu og fer
þeim fjölgandi?"
„Er eftirspurn eftir íslenskum
æðardún fullnægt?“
„Nei, ég tel að það sé markað-
ur fyrir mun meira en við seljum í
dag. Ráðamenn virðast líta á æð-
arrækt sem einkamál bænda, en
þetta er þjóðhagslegt atriði og
fáar búgreinar sem kosta eins litla
fjárfestingu og röskun á um-
hverfi. Það eina sem æðarfuglinn
krefst er friður. Menn eru
stöðugt að barma sér - harma-
grátur þeirra sem stunda hefð-
bundnar búgreina rættu að sýna
mönnum fram á nauðsyn þess að
efla framtíðargreinar eins og
dúntekjuna. En það er stundum
eins og menn sjái lítið út yfir loð-
dýr og fiskeldi,“ sagði Sigurlaug
að lokum. þs
Sumarferðalag
Verkakvennafélagsins Framsóknar 7.-10. ágúst
n.k. um Vestfirði.
Upplýsingar á skrifstofu í símum 688930 og
688931.
Tilkynnið þátttöku fljótt. Mikil eftirspurn.
Ferðanefnd.
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
óskar eftir tilboðum í lokað sjónvarpskerfi fyrir
nýju flugstöðina í Keflavík og nefnist verkið
FLUGSTÖÐ Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
LOKAÐ SJÓNVARPSKERFI
FK- 17
Verkið nær til:
a) Lokaðs sjónvarpskerfis
b) Hönnunar og smíði, uppsetningar, prófunar
og viðhalds í flugstöðvarbyggingunni í sam-
ræmi við útboðsgögn.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. mars 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Rafhönnun hf., Ár-
múla 42, Reykjavík, gegn 10.000.- króna skila-
tryggingu frá og með miðvikudeginum 2. júlí
1986.
Tilboðum skal skila til:
Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
Skúlagötu 63
105 Reykjavík
eigi síðar en 22. ágúst 1986, kl. 16.00.
Reykjavík 24. júní 1986
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli
<n^ Havre-Fras 375 g
ÍTTf Lingonberry sulta vSpí? 450 8 , OD Cranberry sulta RUSSNESK 450 g
1M5I ||Súkkulaðikex 3oog Vanillukex 3oog
/^^Mintellikex 150 g ^^Hazelnutkex 125 g
AA íva þvottaduft 2,3kg | Þvol þvottalögur a,5i I FRIGG Dún mýkingarefni 2,01 í
Lesið _ &
19 lúni
í sumarfríinu
Meðal efnis:
Eru karlar líka menn? Kvenfrelsast karlar? - Hvernig eru mjúkir karlmenn? Eg
ætla sko að lesa um þetta allt í 19. júní - sérstaklega þessa mjúku!
Tiifinningalíf karla? umhum. Lesið 19. júní og fræðist um sálarlíf karla.
Hefur kynhlutverk breyst? Hvað segja þeir um jafnréttið? Ævar Kjartansson,
Þórarinn Eldjárn og Heiðar Jónsson velta upp ýmsum hliðum í 19. júní.
Kvenréttindafélag íslands
Sunnudagur 6. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13