Þjóðviljinn - 02.08.1986, Blaðsíða 15
Ég get ekki kvartað, því okkur
hefur satt að segja gengið ótrú-
lega vel með regnbogasilunginn í
flotkvíunum hér í Hvammsvík.
Hann hefur tvöfaidað þyngd sína
á einum mánuði, úr 80 grömmum
í 160 grömm. Fóðurnýtingin hef-
ur líka verið frábær, því fyrir
hvert eitt kfló af fóðri sem kostar
26 krónur höfum við fengið eitt
kfló af físki.
Þetta sagði fiskeldismaðurinn
Ólafur Skúlason (Ólafssonar frá
Laxalóni), þegar Þjóðviljinn
hafði tal af honum þar sem hann
var að störfum við flotkvíar sínar
í Hvammsvík í Hvalfirði. En auk
Hvammsvíkur rekur Ólafur Lax-
alón ofan við Reykjavík og Fiska-
lón í Ölfusi.
í Hvammsvík kvaðst Ólafur
vera með átta flotkvíar, og regn-
bogasilung í þeim öllum. „Við
setjum hann út um 80 grömm, og
byrjum að slátra í september,
þegar meðalþyngdin ætti að losa
300 grömm. Svo slátrum við hon-
um frameftir vetri, allt upp í 600
gramma meðalstærð. Alls von-
umst við til að setja 150 tonn á
markað.“
Regnbogasilungurinn sem
alinn er í sjó er yfirleitt mun betri
en sá sem kemur úr ferskvatni, og
Ólafur kvað lítinn vanda að koma
silungnum út. „Hluta seljum við
innanlands sjálfir, en Norður-
stjarnan tekur einnig nokkuð og
sýður niður. Þeir fengu tíu tonna
tilraunaskammt árið 1984 og það
gekk vel. Árið eftir urðum við því
miður að selja fiskinn sem seiði til
Noregs því okkur skorti fé, og
gátum því ekki séð Norðurstjörn-
Morten Ottesen, starfsmaöur
öllum. Mynd SigMar.
fiskeldisstöövarinnar aö Hvammsvík í Hvalfirði úti á einni flotkvínni. Alls eru átta slíkar í víkinni, og regnbogasilungsseiöi i
Regnbogasilungur
Tvöfaldaði þyngdina á mánuði
Ólafur Skúlason, fiskeldismaður: Regnbogasilungurinn hentar íslenskum aðstæðum.
Má slátra við 200 gramma stærð. Hægtaðalaíöllum íslenskum fjörðum aðsumarlagi.
unni fyrir silung. En við gerum það sem sagt þetta árið.“ ungseldi mætti stunda um allt land með litlum tilkostnaði. Það
Meiri áherslu á regnbogasilunginn „Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að silungseldi hentaði íslenskum aðstæðum mjög vel. er markaður fyrir regnbogasil- unginn í Evrópu, þar sem nú eru framleidd um 130 þúsund tonn. Við gætum líka haft sterka stöðu á Bandaríkjamarkaði því þangað er öðrum Evrópumönnum óheimilt að flytja regnbogasilung ÖSSUR ^4 SKARPHÉÐINSSON
Silungurinn er seldur allt niður í 200 gramma stærð til neyslu. út af sérstakri bakteríusýkingu, sem fylgir oft jarðtjörnunum sem
svokallaður „portiond“fiskur. Þetta þýðir að fiskinn má ala að sumarlagi í næstum því hvaða firði sem er á landinu. Fjárfesting í flotkvíum er lítil, þannig að sil- yfirleitt eru notaðar í Evrópu. Undantekning er þó Noregur, þar sem silungurinn er ræktaður í flotkvíum, einsog við gerum hér í Hvammsvíkinni“. i FISI (ELDI
Sílagöngur bæta
fóðurnýtinguna
Sjórinn í Hvalfirði hefur verið
ákjósanlegur fyrir regnbogasil-
ungseldið í sumar eða um 11 til 12
gráður. Auk fóðursins sem
Ólafur og starfsmenn hans gefa
silungnum nýtur hann góðs af
miklum sandsíla- og trönusíla-
göngum sem flýta mjög vexti og
bæta að sjálfsögðu fóðurnýting-
una!
í dag er Ólafur og félagar hans
eina stöðin sem selur regnboga-
silungsseiði innanlands. „Ég
fellst fúslega á að þau eru ekki
ódýr. Við miðum við norska
markaðsverðið. Sé gert ráð fyrir
slátrun við 300 gramma stærð
borgar sig ekki að kaupa 80 gram-
ma seiði, enda miðast norska
verðið við slátrun í tveggja kílóa
stærð. Mörgum finnst þetta dýrt
hjá okkur, en fjandinn hafi það,
við erum búnir að ala þennan
regnbogasilung í þrjátíu ár og
alltaf keyrt hann beint í gúanó.
Svo við erum ekkert að gefa
hann“.
-ÖS
Fiskeldisfréttir
Gífurlegur áhugi er nú á fisk-
eldi í Kína. Árið 1985 voru fram-
leidd þar alls sjö miljón tonn af
físki og skeldýrum. Sérstök fímm
ára áætlun var sama ár gangsett,
og samkvæmt henni mun árleg
framleiðsla aukast um 400 þús-
und tonn á ári. Kringum 1990
verður því ársframleiðslan orðin
nær níu miljón tonn.
Sérstakt átak verður gert í
framleiðslu á vatnarækjum. Kín-
verjar hyggjast leggja 33 þúsund
hektara undir tjarnir, sem eiga að
verða uppeldisstöðvar fyrir eldis-
rækjuna. Þeir vonast til að geta
innan tíðar flutt árlega út 100 þús-
und tonn af henni.
Danskurregnbogi
í stórkvíum
Bridgestone stórkvíarnar ryðja
sér nú víða til rúms. f Danmörku
voru tvær fyrstu kvíarnar settar í
sjó við eyna Sejerö í maíbyrjun.
Kvíarnar eru í sameign Færey-
inga og eyjarskeggja, og ætlunin
er að framleiða árlega um 200
tonn af regnbogasilungi í þeim.
Gangi framleiðslan vel fyrstu
árin, er fyrirhugað að kaupa tvær
aðra kvíar og auka eldið upp í
4-500 tonn á ári.
Dönsk hrogn
Danir standa sig vel í fram-
leiðslu á regnbogasilungi. Nýlega
hafa þeir einnig byrjað sölu á
hrognum um allan heim. Mark-
aðurinn er góður, því yfirleitt er
hrygningartíminn í sérhverju
landi nokkuð stuttur, en hins veg-
ar yfirleitt á mismunandi árstíma.
Með því að flytja inn hrogn frá
örum löndum geta eldismenn því
jafnað framleiðslu sína betur yfir
árið. Danir selja nú árlega yfir 50
miljón hrogn til margra landa, og
salan er í öðrum vexti. Hrognin
eru tekin úr stórum, fimm ára
klakfiskum. Þeim fylgir vottorð
dýralæknis um heilbrigði.
Ennþá eru lausar
nokkrar kennarastöður við Grunnskólann á ísa-
firði. Kennslugreinar m.a. myndmennt, íþróttir,
tónmennt, enska og almenn bekkjarkennsla.
Á ísafjörð geturðu komið þér að kostnaðarlausu
því við greiðum flutninginn og þess utan færðu
ódýrt leiguhúsnæði.
Allar nánari upplýsingar gefur skólastjóri Jón
Baldvin Hannesson s. 94-4294 og 94-3031.
|| Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboð-
um í lóðarlögun við brú á Bústaðavegi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000.- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 13. ágúst nk. kl. 11. _______
INNKAUPASTOFNUN REYK JAVIKURBOROAR
F11k11 kjuvt'Cji 3 Smn 25800
Laugardagur 2. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍOA 15