Þjóðviljinn - 16.08.1986, Síða 12

Þjóðviljinn - 16.08.1986, Síða 12
NÁMSKEIÐ FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS auglýsir: VÖKVAKERFI Námskeið um vökvakerfi, 60 stundir, verður haldið dagana 22.-30. ágúst, kl. 9.00-16.00 alla dagana, reynist þátttaka næg. Námskeiðsstaður: Borgartún 6, 4. hæð. Verð kr. 12.000.-. Innifalin vönduð hand- og kennslubók, léttur hádegisverður og kaffi. Upplýsingar og innritun í símum 687440 og 687000. Ræktun íslenska melrakkans Refahús eða annað hentugt húsnæði á Suðvest- urlandi óskast á leigu vegna ræktunar íslenska melrakkans. Æskileg stærð a.m.k. 400 fermetr- ar. Nánari upplýsingar gefnar í síma 91-82230. RANNSÓKNASTOFNUN LANDBÚNAÐARINS KELDNAHOLTI 5AMVINNU TRYGGINGAR Sölumaður Óskum eftir sölumanni í bifreiöadeild. Sam- vinnuskólapróf eöa hliðstæð menntun æskileg, ásamt hæfileikum í mannlegum samskiptum. Allar frekari upplýsingar hjá starfsmanna- haldi Ármúla 3, sími 681411. Samvinnutryggingar g.t. lAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa: Staða félagsráðgjafa við fjölskyldudeild fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir föstudaginn 5. september 1986. ísafjarðarkaupstaður vill ráða fóstrur til eftirtalinna starfa nú þegar, eða eftir nánara samkomulagi. Laun skv. kjarasamn- ingi B.S.R.B. og FOS. Vest. Húsnæði í boði. 1. Staða forstöðumanns við Bakkaskjól v/ Bakkaveg. 2. Staða forstöðumanns við Hlíðarskjól v/ Hlíðarveg. 3. Fóstrustöður við eftirtalin heimili: Dagh. og leiksk. Eyrarskjól v/Eyrargötu. Leikskólann Bakkaskjól v/Bakkaveg. Leikskólann Hlíðarskjól v/Hlíðarveg. Upplýsingar veita forstöðumenn í símum 94- 3685 og 94-3185, einnig félagsmálastjóri og dagvistarfulltrúi t síma 94-3722. Félagsmálastjóri. Brandarakarlar Hér segir af þrem smábreið- skífum íslenskum, sem allar eiga það sameiginlegt að inni- halds einhverskonar húmor, hvort sem fólk er nú sammála um ágæti hans eða endingu. En látum oss byrja, og við tökum þær náttúrulega fyrir í stafrófsröð: Typpafaraldur ... Faraldur er genginn yfir og fyrir ætternisstapann, en með fjögurra laga afleiðingu, eða eiginlega bara þriggja, þar sem eitt lagið er í tveim útgáfum, á smábreiðskífu þessarar sumar- hljómsveitar. Það er besta lag, eða a.m.k. skemmtilegasta lag plötunnar, sungið og samið af Eggert Þorleifssyni, um lítil typpi sem lengjast mest. Eggert hefur þarna með Heilræðavísum Stan- leys tekist að gera það sem fáum poppurum íslenskum hefur tek- ist, að búa til neðanmittisbrand- ara án þess að vera karlalega klúr. Þetta er sætt typpalag, og skemmtilega flutt hjá Eggert, ekki síður í lengri (6,08 mín.) en skemmri útgáfunni (3,37). Annars er töluverð fljótaskrift á Faraldri, sem, einkennilegt nokk, kemur fram í því að bless- að fólkið hefur gert allt of mikið á þeim stutta tíma sem til verksins gafst-ofhlaðið lögin. Helst kem- ur þetta fram í útsetningu lag- anna, og þá mætti hljóðblöndun vera betri. Hinsvegar eru hér góðir hljóðfæraleikarar á ferð og vil ég fyrsta telja gítarleikarann Þorstein Magnússon (nú með Bubba í MX 21) og svo Jens Hansson saxófónleikara. Aðrir og góðir fagmenn eru Pétur Hjaltested á hljómborð, Sigurð- ur Reynisson trommari, Gunn- laugur Briem trommari og Eyþór Gunnarsson hljómborðsleikari, báðir í því ágæta lagi en ofhlaðna, Draugar á ferð, og Tryggvi Hú- bner sem spilar á gítar í Fiskí- landinu, sem mér finnst sísta lagið á plötunni, svona klisjur- okk. Bæði lögin eru eftir Magnús Eiríksson. Pálmi Gunnarsson spilar á bassa, og syngur ásamt Eiríki Haukssyni og Eggert sem áður er getið. Þeir Pálmi og Eiríkur eru góðir söngvarar, en megá báðir fara að passa sig á því, og þótt fyrr hefði verið, að syngja ekki eins og eftir pöntun, jafnvei þótt þeir séu að því. Umslag Björgvins Ólafssonar er með því besta sem hérlendis gerist, þótt einfalt virðist. ... óstéttvísi Sumarið ’86 hefur verið upp- gripatími fyrir Greifana reykhús- víksku. Verk þeirra um Útihátfð ber þar hæst, sem margur hefur skemmt sér við illa drukkinn hvar sem er. Þrjú lög til viðbótar fljóta með á Bláu blóði Greifanna, í sama létta stílnum, og enda þótt textarnir teljist ekki til stórtíð- inda, eru meira að segja á bulllínunni, þá falla þeir vel að lögunum og eru eðlilegir í munni. Um spilamennskuna er hins veg- ar það að segja að þótt hún sé ekki vond, þá þyrftu þeir drengir meira aðhald í þeim efnum, bæði utan frá og að innan. Festuna vantar, þetta er dálítið kæru- leysislegt... þeirmættu takaeigið nafn og plötunnar hátíðlegar. og fleiri og stærri typpi Pétur poppari og Bjartmar Sumarliða leiða saman reiðhesta sfna á smábreiðskífunni Þá sjald- an maður lyftir sér upp, og mikið óttalega fannst mér þetta eitthvað smástrákalegt uppátæki en þó karlalegt fyrst þegar ég fór að heyra ávæning af þessu í radjó- inu. Reyndarfinnstmérþeirbáð- ir tveir hafa sjarmerandi söng- raddir, en það er mórallinn í text- unum, sem fer fyrir brjóstið á mér... þeir eru eitthvað svo karlpungslegir, þótt þeir séu ágætlega saman settir hjá Bjartmari. Hitt verður að segjast að þetta er vel spilað og útsett, sem sagt vel unnið músiklega séð á íslensk- an mælikvarða: Mezzoforte- mennirnir Jóhann Ásmundsson bassaleikari, Gunnlaugur Briem ásláttumaður og Eyþór Gunnars- son hljómbyrðill sjá um undir- leikinn ásamt Kristjáni Edel- stein, sem leikur á hljómborð, bakraddir og hvaðbest á gítarinn; Sigurður Bjóla hljómblandaði ágæta vel. A. Roxzý Astralskt rokk á leidinni íslenskir rokkunnendur eiga von á óvæntri stórgjöf þann 21. ágúst en þá mun ástralski kvintettinn Crime & the City Solution halda hljómleika f veitingastaðnum Rosxy. Crime & the City Solution kom fram á sjónvarsviðið í upþhafi síðasta árs en forsaga sveitarinnar nær þó allt aftur tilársins 1976og einnarvirt- ustu rokksveitarsem andfæt- lingar okkar hafa alið: Birth- day Party. Hún gaf gaf út plötur sínar á fyrri hluta þessa áratugar, tónlist sem á köflum var undir áhrifum frá Iggy Pop, Captain Beefheartog Pere Ubu; hafði til að bera áræði og frumleika, sem orðið hefur fyrirmynd seinni tíma hljómsveita. Birthday Party lagði upp laupa árið 1984 en tveir fyrrum meðlim- ir stofnuðu síðar hljómsveitina Crime & the City Solution. Þetta voru Mick Harvey, gítar og hljómborðsleikari, og Roland S. Howard sem þykir í hópi bestu gítarleikara heims. Roland fékk Harry bróður sinn til að leika á bassa og Simon Bonney var ráð- inn söngpípa, en sumir segja að hann hafi haft veruleg áhrif á Crime and the City Solution sem treður upp í Roxzý á fimmtudag ásamt íslenskum rokkurum, t.d. Svart/hvítum draumi. hinn sérstæða söngvara Birthday Party; Nick Cave, þegar þeir voru að stíga sín fyrstu skref á tónlistarsviðinu í Melbourne um miðjan áratuginn. Vorið 1985 sendu Crime & the City Solution frá sér fyrstu smá- skífuna, The Dangling Man, og vakti hún þegar athygli manna í Bretlandi á hljómsveitinni. Hljómleikaferðir um Bretland og Evrópu fylgdu í kjölfarið og síðan bættist sveitinni góður liðsauki með fyrrum trymbli ensku hljóm- sveitarinnar Swell Maps Epic So- undtrack. Þannig skipuð gaf Crime & the City Solution svo út smábreiðskífuna Just south of Heaven í september síðastliðnum og fékk hún mjög lofsamlegar umsagnir í bresu popppressunni, auk þess sem poppgagnrýnandi New York Times valdi hana sjö- undu bestu af slíkum skífum árs- ins 1985. Platan inniheldur 6 lög við til- finningaþrungna texta Bonneys og er tónlistin blúsað, seiðmagn- að rokk með djúpri undiröldu og öflugum ryþma sem verkar gríð- arlega sterkt á hlustandann. Söngur Bonneys minnir um margt á stíl Jims Morrison enda hefur sveitinni ósjaldan verið líkt við Doors og verður það seint tal- inn ónýtur vitnisburður um gæði hennar. Nýjasta afurð Crime & the City Solution er svo þriggja laga 12” plata sem gefin var út í júní- mánuði síðastliðnum. Advent- ure, It takes two to burn og The Kentucky Click eru allt fyrsta flokks lagasmíðar og af þeim má draga að Crime & the City Soluti- on er orðin hljómsveit sem hefur alla burði til að tryggja sér varan- legan sess í rokksögunni sem skapandi afl. Það er því mikið lán fyrir ís- lenska rokkunnendur að kynnast segulmögnuðu aðdráttarafli Crime & the City Solution af eigin raun og á þeim tíma er sveitin virðist líkleg til stór- afreka. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.