Þjóðviljinn - 10.09.1986, Side 3

Þjóðviljinn - 10.09.1986, Side 3
FRETTIR Það logaði glatt í Mörkinni, en að sögn lögreglu voru nærliggjandi hús aldrei í hættu. Eitt sinn var þetta hús með reisulegri húsum á Skaganum. Mynd Árni Árnason. Húsbruni Ikveikja á Akranesi Svanur Geirdalyfirlögregluþjónn: Húsið brann til kaldra kola. Grunur um íkveikju. Málið í rannsókn Húsið brann til grunna og er þar með úr sögunni. Við höfum grun um að um íkveikju hafi ver- ið að ræða, cn málið er í rann- sókn og ekkert hægt að segja um það enn scm koniið er, sagði Svanur Geirdal yfirlögrcgluþjónn á Akranesi í samtali við Þjóðvilj- ann, en laust fyrir hádegi í gær kom upp cldur í gömlu Mörkinni á Akranesi. Mörkin var eitt sinn með reisulegustu húsum bæjarins, en hefur nú um langt skeið verið í algjörri niðurníðslu og óíbúðar- hæf. Síðustu mánuöi hefur húsið verið stórháskaleg slysagildra og algengt að börn væru þar að leik. Að sögn Svans bendir allt til íkveikju. Húsið brann til kaldra kola á skömmum tíma og standa nú aðeins veggstúfar upp af grunninum. Mörkin var úr timbri og eldinum því auðveld bráð. Nærliggjandi hús voru aldrei í hættu af völdum brunans enda veður með besta móti. -gg Tillögu um að bæta úr ófremd- arástandinu á barnaheimilunum í Reykjavík var vísað frá í Stjórn dagvistar barna í fyrradag. I til- lögunni kemur fram að nú í vetrarbyrjun vantar milli 10 og 20 prósent starfsliðs á heimilin. Kristín Á. Ólafsdóttir flutti til- löguna sem meirihluti Sjálfstæð- isflokks vísaði frá gegn at- kvæðum fulltrúa Alþýðubanda- lags og Framsóknar. I þessari til- lögu segir meðal annars að í sept- emberbyrjun hafi vantað fólk í 10% stöðugilda dagheimila, 17% á leikskóla, tæp 10% á blönduðu heimilin (dagheimili/leikskóla) og 15% stöðugilda á skóladagheimili. Þannig sé stað- an þrátt fyrir síendurteknar auglýsingar eftir starfsfólki. í tillögunni segir enn fremur: „Þessar tölur um ómannaðar stöður segja þó ekki alla vand- ræðasöguna. Hlutfall fóstra fer minnkandi meðal starfsfólks á dagvistarheimilum. Þeim fjölgar meðal ófaglærða fólksins sem dvelja tiltölulega stutt í starfi. Þetta hefur valdið miklu vjnnu- álagi á fóstrur og annað starfsfólk sem stöðugt þarf að setja nýtt fólk inn í störfin. Það alvarlegasta við þessi tíðu mannaskipti er þó öryggisleysið sem af hlýst fyrir börnin. í tillögunni segir að þetta ástand skapist vegna ósæmandi launa sem starfsfólki dagvistar- heimila er boðið upp á. Fram kemur að fóstrur fá ekki nenta 27.600 krónur í mánaðarlaun og ófaglært fólk á byrjunarlaunum fær 23-24 þúsund. Því var lagt til að Stjórn dagvistar beini þeim til- mælum til borgarráðs að nú þegar verði gripið til ráðstafana svo sinna megi uppeldisstarfi á dag- vistarheimilum borgarinnar með eðlilegum hætti, sem erfitt er með óbreyttum launagreiðslum. SA Húsnœðisstofnun Aldrei staðið á okkur Sigurður E. Guðmundsson segir framkvœmdahraðann ónógan hjá Verkamannabústöðum Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofnunar hefur beðið fyrir þessa athugasemd vegna Þjóðviljafrétt- ar um verkamannabústaði: „f Þjóðviljanum hinn 5. sept- ember sl. er birt viðtal við Pál R. Magnússon, formann Stjórnar verkamannabústaða í Reykjavík. Fyrirsögn þess er Kerfið í fjár- svelti. Síðan segir m.a.: „okkar vandi (liggur) fyrst og fremst í því, að ekki er veitt nœgilega miklu fjár- Hrafnhildur ráðin Hrafnhildur Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin forstöðumaður á Drop- laugarstöðum. Félagsmálaráð tók Hrafnhildi fram yfir tvo aðra umsækjendur á fundi sínum í síð- ustu viku og var ráðning Hrafn- hildar staðfest í borgarráði í gær. -gg magni í þetta kerfi". Af þessu til- efni er nauðsynlegt að taka eftir- farandi fram: Á síðasta ári og til þessa hefur Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík fengið umsamin fram- kvæmdalán úr Byggingarsjóði verkamanna greidd í hendur í fullu samræmi við framkvæmda- hraða. Á þessu tímabili hefur aldrei staðið á slíkum fjármagns- greiðslum frá Húsnæðisstofnun- inni. Hún hefur því til fulls staðið við fyrirliggjandi framkvæmda- lánssamninga vegna fjármagns úr Byggingarsjóði verkamanna og mun halda því áfram í fullu sam- ræmi við verkhraða. Mikið vant- ar hins vegar á, að framkvæmd- um hafi miðað jafn vel og ráðgert var. Hefur það leitt til þess, að milljónatugir króna liggja óaf- greiddar í stofnuninni, sem ella væri búið að framkvæma fyrir. Sama ástand er víðar fyrir hendi hjá stjórnum verkamannabú- staða í landinu. Þetta þykir stofn- uninni miður en hefur ekkert fengið að gert“. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Eggið fær peninga Eggleikhúsið hyggur á ferðalag út um lönd og í gær samþykkti borgarráð að styrkja leikhúsið með 50 þúsund króna fjárfram- lagi. Menntamálaráðuneytið hef- ur þegar lagt fram fjárstyrk til að standa straum af ferðakostnaði. -gg ~ r DJOÐWUINN Kæri blaðberi! __ í tilefni 50 ára afmælis Þjóðviljans hefur verið ákveðið að hafa sérstaka bamahátíð þann 13. september. Hátíðin verður haldin í Sóknarsalnum Skipholti 50a og hefst kl. 15.00 (3.00). Dagskrá: FÖNDUR: Herdís Egilsdóttir sér um þann þátt hátíðarinnar. UPPLESTUR: Guðrún Helgadóttir les úr nýrri bók sinni og Guðmundur Ólafsson les úr verðlaunabók sinni. GOS OG POPP. BRÚÐULEIKHÚS: Hallveig Thorlacius sér um og stýrir. ALLI <DG HEIÐA SPRELLA. BINGÓ. Vegleg verðlaun. DISKÓ. Kær kveðja. - Afmælisnefnd Þjóðviljans. Barnaheimili Engar launaúrbætur Sjálfstæðisflokkurinn gegn úrbótatillögu vegna starfsmannaskorts á barnaheimilunum. 10-20% starfsliðs vantar á heimilin

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.