Þjóðviljinn - 23.09.1986, Qupperneq 3
FRETTIR
Höfðabakkaljósin
Þing
Bóka-
þjóð á
krossgötum
Bókaþing haldið í dag
Bókin hefur löngum verið
bókaþjóðinni kær. Nú stendur
þetta óskabarn okkar allra
frammi fyrir mjög öflugri sam-
keppni ýmissa áhrifamikilla
miðla, og hefur Bókasamband ís-
lands efnt til sérstaks bókaþings
sem hefst í dag og verða þar
ræddar helstu leiðir bókarinnar
til að standa þetta stríð af sér og
helst gott betur.
Yfirskrift Bókaþings ’86 er
Bókaþjóð á krossgötum og verð-
ur fluttur fjöldi athyglisverðra
ávarpa. Munu þar koma fram rit-
höfundar, bókaútgefendur,
bókaverðir, gagnrýnendur,
bókagerðarmenn, tölvufræðing-
ar og verkalýðsleiðtogar svo
helstu stéttir séu nefndar. Fáein
nöfn framsegjenda: Pétur Gunn-
arsson, Árni Kr. Einarsson,
Hörður Bergmann, Aðalsteinn
Ingólfsson og Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir. Er ekki að efa að
þarna mun margt athyglisverðra
hugmynda koma fram og er
ástæða til að hvetja alla bókavini
til að fjölmenna á Hótel Loft-
leiðum. -pv
Er þettaekki einhver misskiln-
ingur? Á blaðið ekki að heita
Ljóðviljinn.
ÚTBOÐ
PRENTUN VISA-SÖLUNÓTNA
Þessi gatnamót Höfðabakka og Vesturlandsvegar eru nú orðin ein mesta slysagildran í Reykjavík. Um helgina og
í gær urðu þar fjölmargir árekstrar. Svo hefur einnig verið undanfarnar vikur. Mynd. Sig.
Nicaragua
Mikil slysagildra
Fjölmörg umferðarhöpp urðu um helgina við umferðarljósin á mótum Höfðabakka og Vestur-
landsvegar, slys tíð við þessigatnamótað undanförnu. Lögreglan: engar skýringar
Miklar annir voru hjá umferð-
arlögreglunni um helgina. Sér-
staklega var mikið um árekstra
við umferðarljósin á mótum
Höfðabakka og Vesturlandsveg-
ar. A laugardeginum skullu þar
saman fjórir bílar á Vesturlands-
veginum við umferðarljósin.
Sama dag varð harður árekstur
við þessi gatnamót þegar ekið var
í veg fyrir fólksbíl sem var að
beygja inn á Vesturlandsveginn.
Kona og lítið barn voru í fólks-
bílnum og sluppu þau að mestu
ómeidd þar sem þau voru í örygg-
isbeltum.
í gærmorgun varð síðan enn
eitt óhappið á þessum gatna-
mótum þegar bifreið ók á Ijósa-
staur. Ökumaðurinn var að reyna
að forða árekstri við bifreið sem
kom á móti honum þegar hann
ætlaði að beygja af Höfðabakka
inn á Vesturlandsveginn. Hann
mun ekki hafa slasast að ráði.
Innan lögreglunnar hafa menn
rætt um þessa auknu slysatíðni
undanfarna daga á þessum gatna-
mótum og hafa þeir ekki getað
fundið neina sérstaka skýringu
þessu. Ekki hefur verið tekin
nein ákvörðun um breytingar á
gatnamótunum til að koma í veg
fyrir slys. Ástæða þykir til að
vara fólk sérstaklega við miklum
umferðarþunga í Reykjavík
þessa dagana. Sætúnið er nú að-
eins opið til austurs og hefur það
beint umferð á nærliggjandi göt-
ur og aukið umferðarþungann
mikið. Friðrik Gunnarsson hjá
Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík sagði að vegna
lokunar Sætúnsins hefði umferð
til dæmis stóraukist um Borgart-
únið. Sagði hann að þar væri nú
allt of mikil umferð. „Það er eins
og fólk eigi nokkuð erfitt með að
venjast því þegar umferð er beint
af hefðbundnum leiðum“, sagði
hann. -IH
Stuðningur
sjálfsagður
Nicaragua-ályktun alkirkjuráðsins
tekin upp í utanríkismálanefnd
Afundi utanríkisinálanefndar
alþingis í dag verður að frum-
kvæði Hjörleifs Guttormssonar
tekin til umræðu ályktun al-
kirkjuráðsins í fyrri viku um Nic-
aragua. - Ég vonast eftir sam-
stöðu í nefndinni um að taka
undir með alkirkjuráðinu í þessu
máli, sagði Hjörleifur Þjóðviljan-
um í gær.
Margeir efstur
Úrslit í 7. umferð Skákþingsins í
Grundarflrði urðu þessi: Margeir
vann Hannes Hlífar og Þröstur Árna-
son vann Karl Þorsteinsson. Jafntefli
gerðu Jón L. og Jóhann og Dan og
Davíð Ólafsson. í bið fóru skákir
þeirra Björgvins Jónssonar og Þrast-
ar Þórhallssonar og þeirra Guðmund-
ar og Sævars.
Margeir er þá efstur með 5'/2 v.,
næstir honum koma Guðmundur og
Þröstur Þórhalls með 4 og biðskák.
- HHjv.
Á síðasta fundardegi alkirkju-
ráðsins í Reykjavík á föstudag
var samþykkt ályktun þarsem
Bandaríkjastjórn er hvött til að
hætta íhlutunum sínum í Nicarag-
ua, og ítrekuð samstaða ráðsins
„með þjóð Nicaragua í tilraun
hennar til þess að velja stjórnar-
fyrirkomulag í samhengi við
hennar eigin sögu og menningu,
sjálfstætt og óháð, lýðræðislegt
og með efnahagsstefnu sem kem-
ur hinum fátæku til góða“.
- Það er full ástæða til að kanna
á vettvangi nefndarinnar hvort
utanríkisráðherra er ekki tilbú-
inn að beita sér fyrir því við
Bandaríkjastjórn að hætta efna-
hagslegri og hernaðarlegri íhlut-
un gegn Nicaragua, sagði Hjör-
leifur í gær. - Taki ríkisstjórnin
ekki undir ályktun alkirkjuráðs-
ins með jákvæðum hætti er
nauðsynlegt að alþingi álykti um
málið til að styðja stefnu al-
kirkjuráðsins. -m
Tilboð óskast í prentun VISA-sölunótna
fyrir VISA ísland — Greiðslumiðlun hf.,
Um er að ræða prentun a.m.k. 5 milljóna
sölunótna á ári, næstu þrjú árin.
Útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu
undirritaðs.
Tilboð verða opnuð 10. nóv. n.k. kl. 14 á
skrifstofu VISA íslands, Höfðabakka 9,
Reykjavík.
Gt IDNIIÓNSSON
RÁÐGJÓF &RÁÐN1NCARMÓNUSTA
TUNGÖTU 5. 101 REYKJAViK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Þriðjudagur 23. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3