Þjóðviljinn - 04.10.1986, Blaðsíða 5
Flóttamenn komnir í náðarfaðm krata. Guðmundur Einarsson og Stefán Ben.
Fylgi BJ einsog það mældist í ýmsum skoðanakönnunum frá október 1983
fram til þessa mánaðar. Þegar fylgið var komið niður í 1,2 þrósent ákvað forysta
BJ að skipta um flokk...
Pólitískur sólmyriori
Hvort mun hin gamlaforysta BJ muna eftir hinum fornu hugsjónum
undir skálarœðunum í Hótel Ork íkvöld?
f gær klukkan 17.58 varð sól:
myrkvi á suðvesturhorninu. í
sama bili var að hefjast flokks-
þing krata í frægasta hóteli á ís-
landi, Örk í Hveragerði. Jón
Baldvin, sem hefur gjarnan þörf
fyrir að tala opinberlega, notaði
tækifærið og benti alþjóð á að
himinfurður af þessu tæi tengdust
ósjaldan stórviðburðum. Ber-
sýnilega væri því skapari himins
og jarðar með þessum jart-
eiknum að vekja eftirtekt á
flokksþinginu í Hveragerði.
Nú er út af fyrir sig lítil ástæða
til að draga þetta í efa hjá Jóni
Baldvin, þó oft skjótist skýrum.
Hjá honum var þó bara hálf sag-
an sögð. Vestfirðingnum láðist
að geta þess að þeir viðburðir
sem sagan tengir sólmyrkvum og
öðrum stórtíðindum af gangi
himintungla eru gjarnan voveif-
legir og oft hin verstu mál.
Sirkus
Fyrir Alþýðuflokkinn getur
flokksþingið hins vegar tæpast
talist mjög vond tíðindi. Pöpul-
linn fær að sjá gamla fjandmenn
úr forystu krata fallast í faðma,
og sirkusinn í kringum sættir ætt-
anna og handaband þeirra Gylfa
Þ. og Hannibals mun ef Ámundi
stendur sig jafn vel og endranær
væntanlega slá út tívolíið sem
Helgi Pór byggði við Hótel Örk.
Jafnvel með illum vilja væri tæp-
ast hægt að flokka þann partinn
af leikriti Ámunda til þeirra vá-
legu tíðinda, sem sumir kynnu að
tengja hinum pólitíska sólmyrkva
sem Jón Baldvin leit yfir Suður-
landi í gær.
Fyrir ýmsa mun þó flokksþing
krata væntanlega skilja eftir súrt
bragð í munni - verða eins konar
endalok, uppgjöf, jafnvel póli-
tískt skipbrot.
Tæpast mun til dæmis hinum
gamla forystumanni Bandalags
jafnaðarmanna Guðmundi Ein-
arsyni, verða mikil gleði í huga
þegar hann fær fyrir náð Jóns
Baldvins og Ámunda að flytja
ávarp sitt til flokksþingsins, og
kasta þar endanlega rekuna á BJ.
Þegar honum verður litið til
hægri handar með hann flytur
ávarpið mun hann sjá glað-
hlakkalegt brosið á ásjónu sonar
Hannibals. Honum hlýtur þó að
verða hugsað til hugsjónanna
sem Bandalagið fæddist í kring-
um, til félaganna vítt um landið
sem skildir eru eftir vængbrotnir
og fengu ekki einu sinni ráðrúm
til að segja skoðun sína á sinna-
skiptunum, - til sonar Gylfa, Vil-
mundar.
Söguleg
sinnaskipti
Væntanlega munu hinir gömlu
samstarfsmenn Vilmundar eiga
þess góðan kost á að halda þeim
frama sem þátttakan í BJ fleytti
þeim til. Og ekki þarf að efa að
þeir munu sóma sér vel á þingi.
En hugsjónirnar? - Var einhver
að tala um hugsjónir?
Viðbrögð fólks við hinum
sögulegu sinnaskiptum forystu-
manna BJ, sem heimullega á næt-
urfundum sömdu sig inn í Alþýð-
uflokkinn án þess að ráðfæra sig
við fólkið em kaus þá til forystu,
hafa mjög verið á eina lund.
Menn eru hissa. Vægast sagt.
Fólk man ennþá eftir hörðum
árásum úr herbúðum BJ á það
sem flokksmenn kölluðu fjór-
flokkana. Fólk man eftir hvöss-
um greinum, þrungnum af innri
sannfæringu, sem forystumenn
og leiðtogar BJ skrifuðu gegn
spillingunni og samtryggingunni.
Þeir skírðu sjálfa sig talsmenn
hreinleikans í íslenskri pólitík, og
vissulega tókst þeim um skeið að
halda um sig undarlega púri-
tanskri áru. Einmitt sökum þess
er skipbrotið sorglegra, - einmitt
þess vegna á vissan hátt flekk-
aðra. Því flokkurinn var ekki
lagður niður einsog aðrir flokkar
sem ekki hafa lengur mikinn til-
gang. Þess í stað hlupust forystu-
menn í skjóli nætur undan merkj-
um og yfir í herbúðir andstæð-
ingsins, hins fyrrum hataða fjór-
flokks. Sínu eigin fólki fullkom-
lega að óvörum.
Vafalaust munu þingsætin
bíða. En hreinleikinn heyrir sög-
unni til. Þeir eru því miður af
margir sem líta á stjórnmál sem
illan og soralegan leik, en þeir
hljóta nú að fyllast dulinni þórð-
argleði. Fyrir þeim hljóta hin
sögulegu sinnaskipti BJ-aranna
að vera kærkomin staðfesting á
óhreinleika stjórnmálanna.
Pólitískur skoðunarmaður,
Haukur Helgason á DV, sem oft
hefur tekið undir málflutning BJ
tók forystu BJ til athugunar í rit-
stjórnargrein í vikunni. Niður-
staða hans var þessi:
„Spurning er, hversu mjög
menn geta treyst mönnum sem
taka slíkum sinnaskiptum“.
Hentistefna
Þegar litið er til nýlegra um-
mæla Guðmundar Einarssonar
hljóta menn enn frekar að taka
undir orð leiðarahöfundar DV.
Fyrr í vikunni rifjuðum við nefni-
lega upp mánaðargamalt viðtal
sem við hann var tekið í HP. En
þar ásakaði hann meðal annarra
Alþýðuflokkinn fyrir að taka þátt
í samtryggingunni í þjóðfélaginu,
kvaðst fyrir hönd BJ hafna sam-
starfi við gömlu flokkana og
þarmeð auðvitað Alþýðuflokk-
inn, enda væri engin samleið með
BJ og þeim.
Síðan bætti lífeðlisfræðingur-
inn og þingmaðurinn Guðmund-
ur Einarsson við þessari fleygu
setningu: „... mig langar alls ekki
í framboð fyrir slíka flokka“.
Tæpum mánuði síðar er hann
búinn að leggja sinn laup og BJ,
kominn í himinsæng krata, og
íhugar meira að segja framboð
fyrir þá.
Hvað gerðist í millitíðinni?
Hvers vegna tók ekki nema mán-
uð að fá Guðmund Einarsson,
talsmann flekkleysisins í íslenskri
pólitík til að skipta um skoðun og
éta ofan í sig allt það sem hann lét
út úr sér fjórum vikum fyrr?
Það kom skoðanakönnun og
hún hieypti sannarlega meirihátt-
ar titringi í taugakerfi BJ-
forystunnar. Því hún sýndi svo
ekki varð um villst, að BJ og for-
ysta þess var gersamlega rúin
trausti meðal fólksins. Aðeins 1,2
prósent kjósenda voru líkleg til
að gjalda þeim atkvæði sitt. Jón
Baldvin nýtti sér uppnámið til
hins ýtrasta, veifaði lítilli gulrót í
gervi prófkjörsstuðnings og þing-
stóla fyrir framan þinglið BJ. Og
það var nóg.
íslandsmet í hentistefnu segja
sumir. Svik, segja bálreiðir BJ-
arar sem ekki fengu að segja neitt
um málið. Aðrir yppta öxlum,
saddir af kratískum hrossa-
kaupum.
Þverstæður
Ef til vill skilja menn þó gleggst
tækifærismennskuna sem birtist í
breytni þingliðs BJ, þegar stefna
Alþýðuflokksins í ýmsum hinna
stærstu mála er borin saman við
þá stefnu sem BJ hefur barist
fyrir frá stofnun.
Eitt þeirra mála sem Vilmund-
ur heitinn lagði af stað með voru
vinnustaðasamningar. Af fyrri
skrifum þeirra sem nýskroppnir
eru yfir í hinn kratíska náðarfaðm
má ráða, að einnig fyrir þeim var
þetta mikið og einlægt hjartans
mál. Alþýðuflokkurinn er hins
vegar alfarið gegn vinnustaða-
samningum. Því gelyma nú ofur-
hugarnir úr BJ.
Bandalag jafnaðarmanna
barðist einnig mjög harkalega
gegn afskiptum ríkisins af kjara-
samningum. Þetta kom glöggt
fram þegar ríkisstjórnin afnam
verðbætur á laun árið 1983. Tals-
menn BJ lögðust harkalega gegn
þessari ósvinnu, hinni eiginlegu
kjaraskerðingu, sem enn í dag er
við lýði. En Jón Baldvin Hanni-
balsson, sem nú hefur brugðið sér
í sírenugervi og seitt til sín BJ-
forystuna var hins vegar einn
þeirra sem mæltu fyrir því að
verðtrygging á launum yrði af-
numin. Gamla liðið úr BJ er
greinilega búið að gleyma því.
Kjarasamningarnir fyrr á þessu
ári voru sannarlega umdeildir.
En livað sem menn annars segja
um þá er tvennt ljóst: Þeir voru
lofaðir og prísaðir hátt og í hljóði
af forystu Alþýðuflokksins. For-
ysta BJ lagðist á hinn bóginn
harkalega gegn þeim. Stefán
Benediktsson og Guðmundur
Einarsson skrifuðu tilfinninga-
þrungnar greinar þar sem lensum
var Iyft af grimmúð gegn forvígis-
mönnum kjarasamninganna. En
einsog hjá Þormóði Kolbrúnar-
skáldi forðum mun það væntan-
lega horfið úr huga þeirra yngisp-
iltannaþegar söngurinn byrjar að
Hótel Ork í kvöld.
Að síðustu mætti svo ef til vill
minna kurteislega á að Vilmund-
ur heitinn Gylfason var einkar
fcmdsnúinn nánum tengslum á
milli verkalýðshreyfingarinnar
og Alþýðuflokksins. Og einmitt
það var á meðal þeirra úrslita-
þátta sem vissulega leiddu til þess
að hann lét af stuðningi við Al-
þýðuflokkinn og ákvað að koma
hjörð sinni í bithaga annars stað-
ar. BJ varð til, meðal annars út af
þessu, og ekki bar á öðru en fé-
lagar hans væru honum hjartan-
lega sammála. Innan Alþýðu-
flokksins hefur þróunin hins veg-
ar verið á hinn veginn í tíð Jóns
Baldvins, - að efla tengslin með
verkalýðsforystunni og flokkn-
um. En kannski það renni líka
ljúflega niður með veigunum að
Hótel Örk, þegar skálaræður
verða haldnar yfir hinum hólpnu,
flóttamönnunum sem sneru aftur
og bættu þannig úr „mistökum"
Vilmundar Gylfasonar, einsog
Jón Baldvin hefur orðað það.
Það brýtur víða með BJ og Al-
þýðuflokknum. í sumum efnum
er reginmunur á flokkunum. Og
Alþýðuflokkurinn er yfirlýstur
hluti þess fjórflokkakerfis sem BJ
hefur barist af hörku gegn, allt
fram á þennan dag einsog marg-
frægt viðtal við Guðmund Ein-
arsson vottar.
Aftur komu þeir samt. Þing-
sætin heilla. Útí móa geta svo
hugsjónirnar orpist í moldu og
ryki. Þær skipta ekki lengur máli.
Össur Skarphéðinsson
Laugardagur 4. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5