Þjóðviljinn - 04.10.1986, Blaðsíða 14
MINNING
ALÞYÐUBANDALAGHE)
Vesturland
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á
Vesturlandi verður haldinn í Rein á Akranesi,
sunnudaginn 5. október kl. 14.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Skipun í verkalýðsmálaráð Abl.
3) Umræður um þriðja stjórnsýslustigið.
Framsaga Skúli Alexandersson.
4) önnur mál. - Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðsins á Norðurlandi vestra verður um næstu
helgi á Siglufirði og hefst laugardaginn 4. október kl. 14.00 í Suðurgötu 10.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins verður á fundinum.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnln.
Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður haldinn laugar-
daginn 4. október n.k. í Alþýðuhúsinu og hefst hann kl. 13.30.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. Mætum öll. stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
mánudaginn 6. október. Dagskrá: 1) Bæjarstjórnarfundur 7. október. 2)
Kjaramál bæjarstarfsmanna. Félagar fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akureyri
Almennur félagsfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 9. október
klukkan 20.30. Fundarefni auglýst síðar. - Stjórnln.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til aðalfundar fimmtudaginn 9. októ-
ber kl. 20.30 á Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breytingar á reglum bæjarmálaráðs
3. Stjórnmálaviðhorfið, kosningar og þingsetning. Framsaga: Geir Gunn- i
arsson
4. Önnur mál. Stjórnln
Alþýðubandalagið Siglufirði
Almennur fundur
Almennur stjómmálafundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði nk.
laugardag 4. október og hefst kl. 16.30.
Svavar Gestsson og Ragnar Arnalds verða á fundinum. Fundurinn er
öllum opinn.
Alþýðubandalagið
Suðurland
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs AB á Suðurlandi verður haldinn í Ölfusborgum
dagana 11 .-12. október. Aðalmál fundarins, aðalfundarstörf, forvalsreglur,
forvalsdagar, önnur mál. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson.
Matur og gisting á staðnum, svo tilkynna þarf þátttöku í tíma, vegna undir-
búnings. Stjórn kjördæmisráðs
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Dagskrá landsþings ÆFAB
3. - 5. okt. 1986 í Olfusborgum
Föstudagur 3. okt.:
20.00 Setning Kristín Ólafsdóttir. 20.20 Skýrslur fluttar, umræður: a) fram-
kvæmdaráðs, b) gjaldkera, c) deilda, d) Utanríkismálanefndar, e) Verka-
lýðsmálanefndar, f) Birtis. 23.00 Lagabreytingar og hópvinna kynnt. 23.30
Hlé.
Laugardagur 4. okt.:
9.00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 10.00 Hópavinna: a) unnið að þingmál-
um, b) Almenn stjórnmálaályktun, c) lagabreytingar. 12.00 Matur. 13.00
Nýjar aðferðir í baráttunni gegn vígbúnaðarkapphlaupinu og efnahag-
skreppunni í heiminum, framsaga: Olafur Ragnar Grímsson.
14.45 hlé.
15.00 Verkalýðshreyfingin og viðfangsefni hennar á komandi vetri, fram-
saga: Ásmundur Stefánsson.
16.45 hlé.
17.00 Hópavinnu framhaldið. 20.00 matur. 21.30 kvöldbæn.
Sunnudagur 5. okt.:
9.00 Lagabreytingar seinni umræða. 10.00 Hópavinna, niðurstöður. 12.00
Matur. 13.00 Kosningar framundan og Alþýðubandalagið, framsaga:
Svavar Gestsson. 14.45 hlé. 15.00 Kosningar. 16.30 Þingslit.
Þingið er opið öllum ÆF-fólögum. Þátttökugjald er 1.500 kr., innifalin ein
heit máltíð á laugardagskvöldinu. Fólagar sem greiða þurfa háan ferða-
kostnað utan af landi fá Vz fargjaldið greitt.
Skráið ykkur sem allra fyrst, vegna takmarkaðs fjölda svefnplássa. Nánari
upplýsingar færð þú hjá önnu á skrifstofunni í síma 17500. - Framkvæmd-
aráö ÆFAB.
Skúll
Ami Sæmundsson
hreppstjóri Stóru-Mörk
fœddur 30. nóv. 1909 - dáinn 28. sept. 1986
Að lýsa sínum nánustu er erfitt
og alltaf hlutdrægt, en getur gefið
mynd, sem aðrir þekkja síður.
Faðir okkar var hæglætismað-
ur, sem ekki bar tilfinningar sínar
á torg, en hlýjuna mátti samt
skynja, þó ekki væru mörg orð
þar um höfð. Þessi fáu orð sögðu
oft mikið.
Hann var bóndi og vann starf
sitt sem siíkur. Ekki síður vann
hann fyrir bændur, því hann trúði
á félagslegt framtak, var enda ó-
sínkur á tíma sinn og heilsu í þess
þágu. Það var ekki ósjaidan að
sest var við skriftir þegar aðrir
tóku sér hvfld að dagsverki
ioknu. Það voru oftast skriftir er
snertu hans félagslegu embætti.
Þau voru Iíka mörg dagsverkin,
sem fóru í ferðir á aðra bæi varð-
andi þetta félagsmálavafstur.
Fundirnir voru líka ófáir, sem
sækja varð.
Við krakkarnir ergðum okkur
oft yfir þessu, þegar við vorum
sett í verk, en hann farinn á fund
eða bæi. Með aldrinum og
aukinni lífsreynslu var okkur það
ljóst, að hér var í reynd um fórn-
fúst starf að ræða, sem sjaldnast
gaf nokkuð í aðra hönd í mynd
peninga. Honum var vel ljóst að
við búum í samfélagi og það
krefst fórna að viðhalda því og
bæta. Það sannaðist hinsvegar á
honum, að á slíka menn hlaðast
oft fleiri félagsleg störf en góðu
hófi gegnir og væri æskilegt að
dreifa þeim á fleiri herðar. Okkur
býður í grun, að hann hafi ekki
endilega verið valinn í þessi störf
af því að hinir hafi viljað losna við
þau, heldur hafi honum verið
treyst fyrir þeim. Hann gerði ör-
ugglega sitt besta.
„Ber er hver að baki nema sér
bróður eigi“, var sagt um gamlan
nágranna okkar, Björn úr Mörk,
og þótti tvírætt hrós.
Hitt orkar ekki tvímælis að
móðir okkar, Lilja Ólafsdóttir,
tók oft að sér hlutverk húsbónd-
ans, þegar hann var af bæ. Þetta
var ekki alltaf auðvelt með mikla
ómegð, því við systkinin erum
níu. Fyrri hluta ævinnar vann
hann á búi foreldra sinna í Stóru-
Mörk, Sæmundar Einarssonar,
hreppstjóra og konu hans Guð-
bjargar Jónsdóttur, en stundaði
auk þess sjóróðra eins og þá tíðk-
aðist. Árið 1943 gerðist hann
bóndi í Stóru-Mörk.
Hin féiagslegu störf hans voru
Ölfusborgir
Fylkingin
þingar
Svavar, Ásmundur og
Ólafur Ragnar tala hjá
ÆF
í gærkvöldi hófst í Ölfusborg-
um landsþing Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins og flutti
Kristín Á. Ólafsdóttir setningar-
ræðuna.
Auk venjulegra þingstarfa fá
Fylkingarfélagar til sín þrjá gesti
til erindisflutnings, þá Ólaf
Ragnar Grímsson, sem ræðir um
baráttu gegn vígbúnaðarkapp-
hlaupi og efnahagskreppu, Ás-
mund Stefánsson, sem ræðir um
verkalýðshreyfinguna og við-
fangsefni hennar á komandi
vetri, og Svavar Gestsson, sem
talar um AB og kosningamar.
Þingið stendur frameftir
sunnudegi.
margþætt. Hreppstjóri í Vestur-
Eyjafjallahreppi 1943-1984, í
hreppsnefnd 1954-1962. Hann
sat í stjórn Jarðræktarsambands
Eyfeilinga og Mýrdælinga og síð-
ar ræktunarsambandinu Hjörleifi
1950-1986. Formaður Búnað-
arfélags Merkurbæja í Vestur-.
Eyjafjallahreppi 1946-1984.
Hann var í stjórn Skógræktarfé-
lags Rangæinga frá 1946, hann
var formaður skólanefndar 1967-
1986, endurskoðandi Kaupfélags
Rangæinga 1976-1983, fulltrúi á
aðalfundum Sláturfélags Suður-
lands og Mjólkurbús Flóamanna
frá 1943-1984.
Eitt þeirra starfa, sem mikinn
tíma tók, var starf í skattanefnd,
mikið starf síðara hluta vetrar og
ekki erum við viss um að þar hafí
hann nokkuð nálgast laun þeirra
sem í dag telja fram fyrir menn, ef
þau vom þá nokkur. Auk þessara
starfa var hann sláturhússtjóri í
Djúpadal í meira en 40 ár. Þetta
starf gaf nauðsynlegar aukatekj-
ur til að halda svo stórri fjöl-
skyldu uppi, enda var hér lagður
dagur við nótt meðan á slátmn
stóð. Það skipulags- og verk-
stjómarstarf, sem hann vann
þama, var ekki unnið með
neinum hávaða eða bægslagangi,
en það virtist þó ganga snurðu-
laust, eins og af sjálfu sér.
Sláturhúslífið minnti á heimil-
islíf og þeir senv því lifðu voru
eins og stór fjölskylda, að
minnsta kosti áður fyrr, meðan
búið var á staðnum. Hann var
þarna eins og húsbóndi á stóm
heimili, fyrstur á fætur og síðast-
ur í rúmið, leit eftir öllu á sinn
hægláta hátt og stýrði mönnum til
verka að því er virtist fyrirhafnar-
laust. Hitt má vera að þessi
stjórnunaraðferð, sem er svo
þægileg fyrir starfsmenn, reyni all
nokkuð á stjórnandann og má
vera að hluti af því magasári sem
hrjáði hann í mörg ár hafi átt ræt-
ur þar.
Sem faðir og heimilisfaðir var
hann rólyndur og hlýr og sýndi
oft af sér hægláta kímni. Okkur
börnunum verkstýrði hann þann-
ig, að oft var frekar fylgt for-
dæmi, en hlýtt fyrirmælum.
Samvistir okkar með honum
voru fyrst og fremst í starfi eins og
títt er í sveitum.
Hann veitti sér ekki mikinn
munað utan þess að lesa bækur.
Hann las mikið, þó oft væru stop-
ular stundir til slíks, en líklega
hefur hann ekki oft lagst til svefns
án þess að Iíta í bók. Á fyrri árum
las hann oft upphátt fyrir okkur.
Á síðari árum hafði hann mest
gaman af ævisögum og ræddi oft
um efni þeirra, sérstaklega ef um
samferðamenn var að ræða.
Hann tók lífinu eins og það kom
með æðruleysi og dauðanum
líka.
Blessuð sé minning hans.
Börnin.
A mölinni mætumst með
bros á vör — ef bensíngjöfin
er tempruð.
~\jCj
vl' "
tfUMFEROAR
RÁÐ
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. október 1986