Þjóðviljinn - 08.10.1986, Page 2
P— SPURNINGIN—
FRÉTTIR
Háskóli
Góðan ekki gagnlegan
Þorsteinn Gylfason: Eigum að tífalda bókakaup, stofna 300 nýjarstöður. Betur
búið að menntskælingum en háskólanemum. Naumast til vitlausara en að sníða
háskólastarf að ímyndunumframkvœmdastjóranna
Erlendir fréttamenn
spurðir:
Hvað finnst þér um valið
á Reykjavík fyrir fundar-
stað leiðtoganna?
Roberto Montoya frá Span-
ish International Network í
Bandaríkjunum:
Mér finnst valið gott því þetta er
land sem á ekki í neinum átökum við
stórveldin tvö.
Marcella v.d. Wiel frá De T el-
egraaf í Hollandi:
Stórkostlegt. Það hlýtur að vera
skemmtilegt fyrir fslendinga að vera
nú miðja alheimsins. Svo er líka ör-
yggið meira hór en nokkurs staðar
annars staðar í heiminum, eða það
vona ég alla veganna.
Stephen Ferry frá U.S News
and World Report:
Mér finnst staðurinn góður til fund-
arhaldanna. T.d. vegna þess að hér
er auðvelt að koma við öryggisráð-
stöfunum. En samt sem áður þá er
þetta ekki hlutlaust svæði, eða er
það?
Daniel Bonmariage frá sjón-
varpinu í Luxemborg:
Mér finnst valið furðulegt. Það er
gott sé túrismi hafður í huga, en sé
aðstaðan fyrir þá sem koma hingað
vegna fundarins höfð í huga þá lítur
dæmið öðru vísi út. Það vantar alla
aðstöðu.
Eric Poret frá sjónvarpinu í
Luxemborg:
Kannski endurspeglar valið það að
Gorbatjov er að stíga sitt fyrsta skref í
áttina að Bandaríkjunum.
Manni sýnist að það sé víða lít-
iil áhugi á góðum háskóla;
það sem menn vilja fá er gagn-
legur háskóli. Þeir vilja háskóla í
þágu atvinnulífsins... Það er
naumast hægt að hugsa sér vit-
lausari skipan á skólamálum en
þá að sníða skólastarfið eftir í-
myndunum einhverra fram-
kvæmdastjóra austur í bæ.
Þetta sagði Þorsteinn Gylfason
heimspekidósent meðal annars í
framsöguerindi sem hann flutti á
háskólaráðstefnu BHM -
óskabarn eða Öskubuska - á
sunnudaginn.
Þorsteinn sagði þar að
gagnsemisumræða um háskóla-
mál væri útí hött, - það væri alls
(tilefni af auglýsingu Ríkisút-
varpsins eftir 2 fréttamönnum
sendi Birna Þórðardóttir út-
varpsráði bréf þar sem hún
skýrði frá því að hún ætlaði ekki
að sækja um stöðu að þessu sinni,
en Birna hefur áður sótt 20 sinn-
um um starf hjá Ríkisútvarpinu
og jafnoft verið synjað.
Ibréfi sínu greinir Birna frá því
að þrátt fyrir margra ára starfs-
reynslu við blaðamennsku og út-
gáfustörf, og það að hún hafi
staðist próf það sem umsækjend-
ekki hægt að segja fyrir um hvað í
fræðum og vísindum kynni að
koma að gagni, og nefndi til
dæmis ýmsar „gagnslausar"
fræðigreinar sem nú væru uppi-
staða í tölvuiðnaði. Því væri góð-
ur háskóli eina skynsamlega
markmiðið.
Háskóli íslands væri varla góð-
ur háskóli, sagði Þorsteinn, - þar
gæfist stúdentum ekki færi á leið-
sögn til menntunar, sem fyrst og
fremst fer fram með sjálfsnámi á
háskólastigi, og er í raun það að
kunna að lesa og skrifa á fræða-
sviði sínu. Til dæmis væri meðal-
stúdentum við HÍ gert að sækja
um og yfir 30 kennslustundir á
viku, eftir fráleitri stundatöflu -
ur um fréttamannastarf Ríkisút-
varpsins gangast undir, hafi neiin
haldið áfram að berast til hennar
“jafn ópersónuleg og kurteis og
ævinlega“ . í bréfinu segir jafn-,
framt: “Eftir nokkrar neitanir
hélt ég að menntunarskorti væri
um að kenna og hætti að sækja
um störf á meðan ég lauk há-
skólaprófi. í ljós kom að BA-próf
í stjórnmálafræði var ekki hátt
skrifað hjá útvarpsráði og mér
hefði verið nær að ljúka Lög-
regluskólanum".
menntaskólakrakkar hefðu
miklu meira næði til lesturs og
skrifta en háskólanemar. í raun
væri níðst á góðum stúdentum
hér, það væru heldur þeir sem
eggja urðu aðra til dáða og
kveiktu líf í kringum sig en sjálfir
starfsmenn háskólans. „Við
erum umkringdir af ungu fólki“
sagði Þorsteinn „sem ætti að vera
allt annarsstaðar", í góðum há-
skólum í öðrum löndum.
Hvað er til ráða? Jú, - að
keppa að aðeins einu marki, - því
að verða eins góður háskóli á al-
þjóðlega vísu og hægt er. Til þess
þarf meðal annars að tífalda upp-
hæðina sem rennur til Háskóla-
bókasafns, sagði Þorsteinn, og
Að lokum segir í bréfinu: “Að
vísu er niðurlægjandi að búa við
sífellda höfnun, en fram til þessa
hef ég í þvermóðsku ekki viljað
gefast upp. Eftir síðustu manna-
ráðningar á fréttastofum ríkis-
fjölmiðlanna get ég hins vegar
ekki, sjálfsvirðingar minnar
vegna, sótt um þær stöður frétta-
manna sem nú eru auglýstar".
Birna var spurð að því hvort
hún væri, í niðurlagi bréfs síns, að
vísa í ákveðnar mannaráðningar,
og svaraði Birna að hún væri m.a.
bæta við að minnsta kosti 300
stöðum (nú starfa við skólann um
270 fastir kennarar og um 90 sér-
fræðingar og styrkþegar).
Þeim sem finnst þetta fráleitt
benti Þorsteinn á að í sögu há-
skólans hefur þegar farið fram
ein slík bylting, - fyrir og eftir
1970 tvöfaldaðist tala fastra
kennara við háskólann og tala
stundakennara þrefaldaðist.
„Nógir eru helvítis peningarnir"
hafði Þorsteinn eftir Konráð
gamla Gíslasyni og minnti á að á
fjárlögum í ár stendur upphæðin
500 milljónir við Háskóla ís-
lands, 600 milljónir við útflutn-
ingsbætur í landbúnaði.
að vísa í það, að ólæsi væri í
auknum mæli einkenni á þeim
sem væru ráðnir til starfa “ og ef-
það er mælikvarðinn vil ég ekki
lenda í þeim hópi“. Þá sagði
Birna að jafnframt mætti líta á
bréfið sem mótmæli gegn þeirri
hefð að í auknum mæli væri fólk
ráðið til ríkisfjölmiðlanna án aug-
lýsinga og þrátt fyrir auglýsingar
endrum og eins þá væru það yfir-
leitt þeir sem hefðu verið laus-
ráðnir án auglýsinga sem hlytu
stöðuna. K.Ól.
Jóhann
J.E.
KúM
láfinn
Einn kunnasti dálkahöfundur
Þjóðviljans um langt árabil, Jó-
hann J. E. Kúld lést í gær, 83 ára
gamall.
Jóhann var fæddur á gamlárs-
dag árið 1902 að Ökrum í
Hraunhreppi á Mýrum. Foreldr-
ar hans voru Eiríkur Kúld Jóns-
son og Sigríður Jóhannsdóttir.
Hann vann ýmis störf framan af
æfi, einkum sjómennsku og bjó
m.a. í Noregi um 3ja ára skeið.
Hann varð fiskmatsmaður árið
1950 og starfaði lengi við fiskmat
og lét málefni þess sig miklu
skipta. Eftir Jóhann liggur fjöldi
bóka og rita og er þar um að ræða
ljóð, endurminningar og fræðslu-
rit um sjávarútvegsmál.
Jóhann J.E. Kúld gerðist
snemma mikill félagsmálamaður.
Hann var stofnandi og fyrsti for-
maður Sjómannafélags Norður-
lands, síðar Sjómannafélags Ak-
ureyrar. Hann vann að stofnun
SÍBS meðan hann dvaldist á
Biöm
Þorsteins-
son
mm látinn
Kristneshæli 1936-38. Formaður
var hann í deildarstjórnum
KRON á árunum 1946-80. Hann
var framkvæmdastjóri Frjálsrar
þjóðar 1968-69. Einn stofnenda
Alþýðubandalagsins og sat í mið-
stjórn þess um árabil.
Jóhann kvæntist Halldóru Þor-
steinsdóttur árið 1927 en hún lést
árið 1934. Árið 1941 kvæntist
hann Geirþrúði Jóhönnu Ás-
geirsdóttur og lifir hún mann
sinn.
Þjóðviljinn vottar aðstandend-
um Jóhanns J.E. Kúlds samúð
sína og þakkar honum að leiðar-
lokum samfylgdina.
Björn Þorsteinsson sagnfræð-
ingur lést síðdegis í fyrradag á
Borgarspítalanum, 68 árs að
aldri. Hann hefur um nokkurt
skeið átt við erfiðan hjartasjúk-
dóm að stríða.
Björn fæddist 20. mars 1918 að
Þjótanda í Viilingaholtshreppi,
Árnessýslu. Hann varð cand.
mag. í íslenskum fræðum við há-
skólann 1947 og var við fram-
haldsnám í sagnfræði í Lundún-
um næstu vetur. Hann var kenn-
ari við gagnfræðaskóla og
menntaskóla þartil hann varð
lektor við háskólann 1971 og síð-
ar prófessor.
Björn hefur staðið í fremstu
víglínu sagnfræðinga frammá síð-
ustu ár og hafa rannsóknir hans
og kenningar markað djúp spor í
íslenskri sagnfræði. Fyrsta bók
hans var Islenska þjóðveldið
(1953) og af öðrum merkum rit-
um skulu nefnd Ævintýri Marc-
ellusar Skálholtsbiskups (1965),
Ný íslandssaga (1966), Enska
öldin f sögu Islands (1970), Tíu
þorskastríð 1415-1976 (1976), og
Island, saga fslands á dönsku,
síðasta verk Björns, sem kom út
hjá Poiitiken í fyrra. Hann hefur
séð um fjölda útgáfna, ritað
kennslubækur, skrifað greinar í
blöð og tímarit. Hann hefur veitt
forstöðu Sagnfræðistofnun há-
skólans og verið formaður Félags
íslenskra fræða.
Björns verður einnig minnst
fyrir störf að ferðamálum og far-
arstjórn. Hann var einn af stofn-
endum Tékknesk-íslenska félags-
ins og fyrsti formaður þess. Björn
hefur og komið við sögu sósíalí-
skrar hreyfingar, var meðal ann-
ars í framboði fyrir Sósíalista-
flokkinn á árum áður.
Kona Björns er Guðrún Guð-
mundsdóttir og eiga þau eina
dóttur. Þjóðviljinn vottar þeim
og öðrum aðstandendum samúð
sína og virðingu.
Ríkisútvarpið
Bima sækir ekki um stöðu
Birna Þórðardóttir hefur sent útvarpsráði bréfþar sem hún segir að hún sæki ekki um
fréttamannastöðu að þessu sinni. Hefurfengið synjun 20 sinnum
•2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. október 1986