Þjóðviljinn - 08.10.1986, Side 9

Þjóðviljinn - 08.10.1986, Side 9
iainv«ð(\i »iw 11 ly i iuaiur\u a i uiiiiiiin. Fómin sýnd á Islandi Guðrún Gísladóttir: Held að Tarkovskí muni þykja vænt um að myndin sé sýnd hér á meðan á leiðtogafundinum stendur Þessi kvikmynd þótti víst ekki vænleg til þess aö skila kvik- myndahúsaeigendum hérá landi hagnaði og ég vissi að það stóð ekki til að fá hana hingað. En þegar leiðtoga- fundurinn var ákveðinn hugs- aði ég með mér að ef ein- hvern tíma væri tækifæri til þess að fá myndina sýnda hér, þá væri það núna. Ég hafði því samband við Frið- bert Pálsson í Háskólabíói og framleiðendur myndarinnar úti í Svíþjóð og stakk upp á því að þeir notuðu tækifærið til þess að sýna og kynna mynd- ina á meðan á leiðtogafundin- umstæði. Þetta sagði Guðrún Gísladóttir leikkona í samtali við Þjóðviljann um tilurð þess að kvikmyndin „Fórnin" eftir Tarkovskí verður sýnd hér seinnipartinn í vikunni, en sem kunnugt .er fer Guðrún með eitt aðalhlutverkanna í myndinni. Myndin verður aðeins sýnd hér í 2-3 daga. Kvikmyndin Fórnin var frum- sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes síðastliðið vor og vakti þar mesta athygli allra kvik- mynda á hátíðinni. Guðrún sagði að myndin gerð- ist á 55 ára afmælisdegi leikara og fyrirlesara sem væri búinn að draga sig í hlé frá opinberu lífi og helgaði sig einkaiífinu með konu sinni og syni í afskekktu húsi. Ýmsir gestir koma í afmælið, meðal annars pósturinn Ottó, sem er fyrrverandi kennari og heimildasafnari um dulræn fyrir- bæri. Sonurinn 5 ára, sem er eftir- læti föður síns er tímabundið mál- laus á afmælisdeginum vegna hálsaðgerðar. Á heimilinu er einnig vinnukonan Marta, og þangað kemur einnig vikastúlkan María í íhlaupum, en hún er frá íslandi komin. Þegar afmælisveislan stendur sem hæst er tilkynnt um það í sjónvarpinu að heimsendir sé á næsta leyti þar sem alvarlegt kjarnorkuslys hafi orðið á ótil- teknum stað. Örvænting grípur um sig meðal gesta og það kemur nú yfir afmælisbarnið að hann biður til Guðs í fyrsta skiptið og býðst til þess að fórna því sem honum sé kærast með því að yfir- gefa hús sitt og fjölskyldu og aldrei segja orð framar, megi slysinu verða afstýrt. Leggst hann síðan til sængur í örvængingu sinni. Þá gerist það að sendiboð- inn Ottó, sem kunni fyrir sér í dulrænum fræðum, kemur til hans og segir við hann að við þessum hörmungum sé aðeins eitt ráð hugsanlegt. Hann verði að fara á fund vinnukonunnar Maríu frá íslandi, hún ein búi yfir þeim dulræna krafti er bægt gæti voðanum frá. Án þess að vera trúaður á árangurinn fer hann að ráðum Ottós og þegar hann vakn- ar morguninn eftir er allt eins og ekkert hefði í skorist... Guðrún sagðist ekki vilja segja nánar frá lokaatriði myndarinn- ar, sjón væri sögu ríkari. Guðrún sagði um reynslu sína af samvinnunni við Tarkovskí að hún væri þakklát fyrir þá reynslu. Hún vissi í rauninni ekki hvort hún hefði verið valin í þetta vegna leikarahæfileikanna eða einfaldlega vegna þess að hún væri íslensk. Hitt færi hins vegar ekki á milli mála að Tarkovskí væri í miklu sambandi og hefði miklu að miðla. Tarkovskí hefur sem kunnugt er átt við alvarleg veikindi að stríða undanfarna mánuði og vart hugað líf á tíma- bili. Guðrún sagði að hann dveldi nú á Ítalíu sér til hressingar og heilsaðist framar bjartsýnustu vonum. Ég held að honum muni þykja vænt um að við sýnum myndina hérna núna meðan á leiðtoga- fundinum stendur. Mín heitasta von er að fundurinn leiði til friðar og að Tarkovskí muni ná heilsu sagði Guðrún að lokum. Guðrún Gísladóttir leikkona í hlutverki vinnukonunnar Maríu bíður eftir að upptaka hefjist. Grafík í vanda íslensk grafík að Kjarvalsstöðum Nýlega er hafin sýning félags- ins íslensk grafík í vestursal Kjar- valsstaða. Á fjórða tug meðlima sýna þar verk sín og fylgir ýegleg sýningarskrá framtakinu. Eins og segir í formála Ingunnar Eydal, formanns félagsins, á íslensk grafík nú 17 ára afmæli og er þessi 7. félagssýning því afmælissýning hinna „ungu og blómlegu" sam- taka. „Ungt og blómlegt" eru orð formannsins og væri betur ef svo væri. Staðreyndin er hins vegar sú að einhver óskiljanlegur kyrk- ingur er kominn í starfsemi fé- lagsins og stendur í vegi fyrir eðli- legri endurnýjun. Hér er ekki átt við meðlimatöluna. Hún hefur svo sannarlega vaxið og er orðin einnar blaðsíðu löng, þótt letrið sé smátt. Það sem verið er að segja er hitt, að „unga blóðinu" hefur ekki tekist að pumpa lífi í íslenska grafík, hvorki þá sem er með stórum staf né hina sem er með litlum. Þrátt fyrir það er margt gott um nýliðana að segja og einnig þá sem eldri eru í hettunni. En gall- inn er sá að „rjómanurrí' tekst ekki að drífa heildina upp af doð- anum þannig að sýningin verði jafnþykk. Hann hangir í kekkj- um hingað og þangað innan um yfirþyrmandi, en því miður lap- þunna undanrennu, sem ber sýn- inguna ofurliði. En leitum ástæðna fyrir dep- urðinni. Það er greinilegt að obb- inn af félagsmönnunt hefur ekki velt fyrir sér hvað hann vill með list sinni. „Lifa af henni til að geta framleitt meira“, hrópa veggirnir á Kjarvalsstöðum. En svo lágkúrulegu svari vill maður ekki trúa, því það er ekki samboðið listamönnum þótt fullsæmandi sé handverksmönnum. Það þarf að fara aftur fyrir daga Michelange- los til að finna réttlætingu þess háttar fflósófíu. Samt er það svo að þótt leitað sé með logandi ljósi, reynist erfitt að finna önnur svör. Stór hluti sýnenda er svo ofurseldur tækni- nni að sýningin ininnir á kappleik í brellum: „Sjáið hvað þetta er vandað hjá mér. Getið hvernig ég fór að þessu. Hér er nú enginn hrákafrágangur. Ég er sko ekki að svindla á tilvonandi kúnnum. Ónei; ekkert minna en japanskur pappír og ekta álrammi..." Og satt er það. Frágangurinn er ekki verri en hjá fínustu aug- lýsingastofum og innihaldið er síst lakara en gengur og gerist hjá hinum bestu í þeim bransa. í viss- um skilningi hefur allstórum hluta félagsmanna teki$t að mægja líf oglist, í fullkomnu sam- ræmi við drauma fyrrverandi menntamálaráðherra um hlut- verk íslenskra lista í framtíðinni. Þar með hlýtur björninn að vera unninn. En hvers vegna er þá verið að tromma með pró- dúktið á sýningu? Það er spurn- ing, því yfirleitt hafa menn vanist því að sýningum fylgi ákveðinn boðskapur um nýtt innihald, el- legar staðfesting og þróun á innra gildi þess sem áður hefur verið sýnt. En endurnýjun á þessari 7. sýningu íslenskrar grafíkur er í lágmarki og meðlimirnir sem hafa uppi þess háttar tilburði, kafna einfaldlega í hinni yfirgnæ- fandi ládeyðu. Slík útþynning er nánast orðin regla á íslenskum samsýningum í seinni tíð. Það er augljóst að ekki er á dagskrá félagsins að hrista upp í áhorfendum. Hitt virðist fremur takmarkið að koma þeim sem allra minnst á óvart. Reynt er að læða því að gestum að þrátt fyrir ólgu og umbrot í listum síðustu ára, megi þeir bóka að ein sé kjöl- festan sem aldrei gefi. sig og sú heiti íslensk grafík. En þótt ýmislegt hafi breyst í hinu menningarlega ölduróti, eru fertug ummæli hins skelegga gagnrýnanda, Clements Green- bergs, enn í fullu gildi. Hann sagði að sýningar sem ekki kæmu á óvart væru svik við áhorfendur. Og þessu hélt hann fram í Banda- ríkjunum, landi sem Marshall Blonsky nefnir „land gleym- skunnar"; því þar geri fólk sér að góðu sömu tugguna ár eftir ár, með því hún fer inn um annað eyrað og jafnharðan, ómelt út um hitt. Hvað segðu þeir um okkur, kumpánarnir Greenberg og Blonsky, ef þeir hefðu haft tæki- færi til að fylgjast með starfsemi íslenskrar grafíkur gegnum tíð- ina? Það er néfnilega eitthvað svo kauðalegt þegar listamenn van- meta gáfnafar gesta sinna. Und- antekningarlaust daprast þeim flugið og þeir fara að vinna undir getu. Það er einmitt það sem hrjáir íslenska grafík og ekki er mér örgrannt um að meðlimirnir skynji það sjálfir. Nú er svo komið að þeir eiga erfitt með að venja sig af vélræn- urn vinnubrögðum, sem þóttu fín þegar félagið var ungt. En það er eitt af einkennum okkar síð- móderníska tíma að gera nokk- urn greinarmun á manni og vél. Betur væri ef fleiri félagar ís- ienskrar grafíkur gerðu sér þetta ljóst. Þá og um leið mundi þeim farnast vel. HBR. Miðvikudagur 8. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.