Þjóðviljinn - 09.10.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
VIÐHORF
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
LANDSBYGGÐIN
Leiðtogafundurinn
Fri&arfuHtrúar fjölmenna
Krafa 60 bandarískra þingmanna um tafarlausa stöðvun kjarnorkutilrauna kynnt leiðtogunum.
Fulltrúarþekktra friðarhreyfinga hvaðanœva að úrheiminum koma til Reykjavíkur
Fjögurra manna sendinefnd
bandarísku samtakanna
FREEZE og S ANE kemur hingað
til lands á mprgun með bréf til
Reagans bandaríkjaforseta und-
irritað af 60 bandarískum þing-
mönnum, þar sem þess er krafist
að tilraunum með kjarnorku-
vopn verði hætt þegar í stað.
Meðal þeirra sem skrifa undir
kröfuna er þingmaðurinn
Edward Kennedy.
FREEZE og SANE hafa verið
öflugustu friðarhreyfingarnar í
Bandaríkjunum og hafa þær nú
sameinast í eina. Bréf þingmann-
anna verður kynnt fyrir fjölmiðl-
um á íslandi.
Auk þess er von á til landsins í
dag og á morgun fulltrúum fjölda
friðarhreyfinga hvaðanæva að úr
heiminum vegna fundar þeirra
Reagans og Gorbatsjofs. Má þar
nefna fulltrúa alþjóðasamtaka
lækna gegn kjarnorkuvá, sem
hafa fengið friðarverðlaun Nó-
bels fyrir baráttu sína fyrir af-
vopnun. Þá koma hingað konur
frá Bandaríkjunum, Grikklandi
og Norðurlöndum á vegum
Kvenna sem vilja árangursríkan
leiðtogafund, sem eins og kunn-
ugt er standa nú fyrir söfnun
undirskrifta undir yfirlýsingu
þess efnis m.a. að þær vænti þess
að þeir Reagan og Gorbatsjof
stigi þau skref á leiðtogafundin-
um í Washington sem þarf til að
ná samningum er tryggja öryggi
og frið í heiminum.
Hingað koma einnig fulltrúar
samtaka um kjarnorkuafvopnun
á Bretlandi og Þjóðverji sem
sagður er hafa fengið hvorki fleiri
né færri en 230 þúsund börn víða
að úr heiminum til að skrifa leið-
togum risaveldanna bréf og tjá
þeim þá von sína að tryggja megi
frið. t>á má ekki gleyma komu
Greenpeacemanna.
íslenskir friðarsinnar sitja
heldur ekki auðum höndum
þessa dagana. Þannig hafa
Samtök herstöðvaandstæðinga
t.d. gefið út upplýsingabækling á
ensku, þar sem skýrt er frá starfi
og stefnu samtakanna. Eins og
áður hefur verið greint frá í Þjóð-
viljanum standa íslenskar friðar-
hreyfingar að friðarstund á Lækj-
artorgi kl. 21 annað kvöld. Sams
konar fundur verður á Akranesi á
sama tíma og standa
stjórnmálaflokkarnir þar að hon-
um. -«g
Leiðtogafrúin
Raisa í sveitina
Raisa Gorbatsjofvill
hitta ungtfólk á
íslandi. Edda
Guðmundsdóttir:
Verðurgaman að
hitta þessa konu
Raisa Gorbatsjof hefur óskað
eftir því m.a. að fá að hitta
ungt fólk á íslandi dagana sem
hún verður stödd hér á landi og
ennfremur hefur hún lýst áhuga á
að heimsækja íslenskan sveitabæ.
Edda Guðmundsdóttir sagði í
gær að nú væri unnið baki brotnu
að því að skipuleggja dagskrá
fyrir heimsókn Raisu til landsins.
„Okkur bárust óskir hennar fyrir
hádegi í dag og reynum að verða
við þeim. Það er fátt hægt að
segja um hvað hún mun gera hér
á landi, en líklegt er að hún skoði
sig um í Reykjavík og skoði þá
m.a. handritasöfnin, ferð til
Þingvalla verður líklega á dag-
skránni“, sagði Edda.
Hún tekur ásamt manni sínum,
forsetanum og fleirum á móti að-
alritarahjónunum á flugvellinum
á föstudagskvöldið.
-gg
Höfði
Nágrennið
tekið
leigunámi
Ríkisstjórnin gaf síðdegis í gær
út bráðabirgðalög sem hei-
miía að öll hús í nágrenni við
fundarstað Reagans og Gorbat-
sjofs, Höfða, verði tekin leigu-
námi frá kl. 18 á morgun til kl. 18
á sunnudaginn. Búist er við að
íbúum viðkomandi húsa verði
óheimilt að fara í íbúðir sínar
nema í fylgd með öryggisvörðum.
Haft var eftir Steingrími
Hermannssyni í gær að þetta
hefði verið gert að ófrávíkjan-
legri kröfu öryggisvarða leiðtog-
anna eftir ianga og stranga fundi
með þeim um málið. Nokkrar
sjónvarpsstöðvar hafa þegar
tryggt sér afnot af húsum í ná-
grenni Höfða, en verða af þeim
samkvæmt þessum nýjustu
lögum stjórnarinnar. -gg
Mörgum fslendingum sem komnir em á efri ár er sovéska skipið Baltika
kunnugt vegna eftirminnilegrar ferðar skipsins með íslendinga suður I höf fyrir
tveimur áratugum. Baltika, sem er til hægri á þessari mynd, kom til landsins í
gær og er jafnvel talið líklegt að það verði bústaður þeirra Mikails og Raisu
Gorbatsjofs meðan á dvöl þeirra hér á landi stendur. Lögregluvörður var settur
um sovésku skipin í gær, enda mun þar gista margt mikilvægra manna næstu
daga.
-gg/Sig
Sólheimar
Þroskahjálp vill raimsókn
Landssamtökin Proskahjálp biðja félagsmálaráðherra um ítarlega
úttektá rekstri og starfsemi Sólheima. Asgeir Sigurgestsson: Viljum
koma hlutunum á hreint
Við viljum að þessi mál verði
könnuð ítarlega og hlutunum
komið á hreint, sagði Ásgeir Sig-
urgestsson framkvæmdastjóri
Landssamtakanna Þroskahjálpar
í samtali við Þjóðviljann í gær, en
samtökin hafa óskað eftir því við
félagsmálaráðherra að starfsemi
meðferðarheimilisins að Sól-
heimum í Grímsnesi verði tekin
til ítarlegrar úttektar vegna
þeirrar alvarlegu gagnrýni sem
komið hefur fram í fjölmiðlum á
starfsemina.
- Það hefur verið mikið skrifað
um starfsemina í blöðum undan-
farið og m.a. komið fram hörð
gagnrýni á stjórnunina. Við erum
ekki að dæma eitt eða neitt, held-
ur viljum við koma þessum mál-
um á hreint, ekki síst vegna þess
að fjölmargir aðilar úr ýmsurn
áttum hafa óskað eftir því að við
létum málið til okkar taka, sagði
Ásgeir.
f bréfi sem Þroskahjálp sendi ,
félagsmálaráðherra í gær kemur
m.a. fram að samtökin telji brýnt
að fyrir liggi stefna um uppbygg-
ingu og rekstur Sólheima til fram-
búðar og tryggt sé að sú stefna sé í
samræmi við alnrenna stefnu-
mörkun í málefnum fatlaðra í
landinu.
Þjóðviljanum tókst ekki að ná
tali af Halldóri Júlíussyni fram-
kvæmdastjóra að Sólheimum í
gær.
-lg-
Herflutningarnir
Öldungamir
samþykkja
í gærkvöldi samþykkti Öld-
ungadeild Bandaríkjaþings
samninga íslensku og bandarísku
ríkisstjórnanna um flutninga til
hersins. Samningana á eftir að
leggja fyrir Alþingi íslendinga.
Lagt var kapp á að leggja samn-
ingana fyrir þingið áður en Reag-
an kæmi til Islands, en hann mun
koma með samþykkt Öldunga-
deildarinnar í farteski sínu.
-m