Þjóðviljinn - 09.10.1986, Blaðsíða 2
P—SPURNINGIN
Ætlar þú á friðarfundinn
á Lækjartorgi annað
kvöld, sem efnt er til
vegna leiðtogafundar-
ins?
jjl JBki: 1 M
Guðiaug Jónsdóttir, kennari: Ég ætla endilega að reyna að komast.
v i
Hermann Ólason,
verkamaður:
Já, ég er mjög mikill friðarsinni.
Það veitir víst ekki af því að láta
þessa menn vita hvaða hug við
berum til þessara friðarvið-
ræðna. Við viljum ýta á eftir já-
kvæðum niðurstöðum.
Ingibjörg Aðalsteins-
dóttir, gjaldkeri:
Nei, ég held ég komist ekki.
Ari Matthíasson, verka-
maður:
Það fer eftir því hvort ég er að
vinna eöa ekki. Ef ég sé mér
mögulega fært þá ætla ég að
mæta.
Erna Guðmundsdóttir,
skrifstofumaður:
Ég hugsa ekki. Ég er í vinnu og
með stórt heimili og reikna því
ekki með að komast.
FRÉTT1R
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Afangasigur kennara
Á síðasta fundi skólanefndar varákveðið aðkennarar búsettir á höfuðborgarsvœð-
inu skyldufá rútufargjöldgreidd. Magnús Ó. Ingvarsson: Sigur fyrir kennara, en
yfirborgun til kennara Flugliðabrautarinnar er ekki úr sögunni
Fólagar í Amnesty á Islandi kynna herferð samtakanna gegn mannréttindabrotum á Sri Lanka. Frá v.: Eyjólur Kjalar,
Halla Pálsdóttir og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir. Mynd: Sig.
Amnesty International
Tamilar hverfa sporlaust
Almeð herferð vegna mannréttindabrota á Sri Lanka
%
Mú er í gangi alþjóðleg herferð
Amnesty International vegna
Tamíla sem horfíð hafa sporlaust
í Sri Lanka á undanförnum tveim
árum. Felst herferðin í því að al-
menningur er hvattur til að skrifa
stjórnvöldum i landinu bréf þar
sem stjórnvöld eru hvött til að
stofna hlutlausa rannsóknar-
nefnd vegna þessara mann-
hvarfa.
Allt síðan síðla árs 1984 fór að
bera á ofbeldisverkum öryggis-
sveita í landinu og hefur Amnesty
farið í saumana á málum 272 ein-
staklinga og gefið út skýrslu um
þau. Er talið að margir hinna
horfnu hafi verið myrtir en að
aðrir séu enn á lífi í leynilegum
fangelsum.
Það eru fyrst og fremst ungir
Evrópulagið næsta verður valið
með öðrum hætti en í vor.
Sjónvarpið er farið að auglýsa
eftir lögum í keppnina sem fer
fram í maí ■ Belgíu, þar sem býr
Sandra Kim, sú sem síðast vann,
og verður íslenska lagið nú valið
af dómnefndum skipuðum „full-
trúum almennings“ samkvæmt
keppnisreglunum.
Fyrri hluti keppninnar hér
heima verður með svipuðu sniði
og áður, - menn senda sjónvarp-
inu Iög sín og texta. Tíu bestu
lögin að mati sérstakrar dóm-
nefndar fá 150 þúsund krónur til
fullvinnslu og hljóðritunar og fá
höfundar að velja flytjendurna.
Flytjendur fylgja svo laginu til
menn sem hafa orðið fyrir barð-
inu á öryggissveitunum en ríkis-
stjórn landsins hefur staðfastlega
neitað að láta rannsaka manns-
hvörfin. Þá eru uppi staðfestar
fregnir af fjöldagröfum og er
m.a. vitað um að 40 manns voru
látnir taka sína eigin gröf samtím-
is. Þá er vitað um að fólk hefur
verið brennt, barið, hengt upp á
fótum og sterkt krydd sett í augu
þess.
Tamilar eru um 18% íbúa Sri
Lanka og búa í norður- og
austurhluta landsins. Tunga
þeirra er óskild tungu Singala,
sem eru í miklum meirihluta í
landinu. Singalíska er hið opin-
bera tungumál og verða þeir sem
gegna opinberri þjónustu að tala
hana.
Belgíu.
Höfundar laganna tíu verða
kynntir í sjónvarpi í byrjun janú-
ar, lögin sjálf í febrúar, og úrslita-
þátturinn hér heima verður send-
Sjálfstæðishreyfing Tamila
berst fyrir því að norður- og
austurhluti Sri Lanka verði gert
að sjálfstæðu ríki en minnihluta-
hópur meðal þeirra telur að slíkt
gerist ekki nema með vopnuðum
átökum. Þeir eru þó í miklum
minnihluta.
Að sögn forsvarsmanna Amn-
esty er ástandið á Sri Lanka ekki
eins slæmt og í Argentínu á tím-
um herforingjastjórnarinnar.
Amnesty vill gera það sem í sínu
valdi stendur til að koma í veg
fyrir að svo verði og því er gripið
til þessarar herferðar nú.
Þeir sem hafa áhuga á að ljá
þessu málefni lið er bent á að
snúa sér til skrifstofu Amnesty
Intemational, Hafnarstræti 15 í
ur út 9. mars. í apríl verða svo
kynningarþættir Evrópukepp-
ninnar sjálfrar, og lokakeppnin í
Brússel verður háð í byrjun maí.
- m
Askólanefndarfundi Fjölbraut-
arskóla Suðurnesja í síðustu
viku var ákveðið að kennarar við
skólann sem eru búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu fái greidd rútu-
fargjöld, en fyrir því hafa kennar-
ar skólans barist í mörg ár.
Greiðsla á rútufargjöldum til
kennara tíðkast í flestöllum öðr-
um skólum á Suðurncsjum.
Hjálmar Árnason skóla-
meistari Fjölbrautaskólans sagði
að stefna skólanefndar hafi fram
að þessu verið sú að fá kennara til
þess að setjast að á Suðurnesja-
svæðinu og það hafi verið ein
ástæða þess að ferðakostnaður til
kennara hefði ekki verið
greiddur, nema þá til kennara
Flugliðabrautarinnar, enda erfið-
ara að fá kennara til starfa við þá
braut en aðrar brautir skólans. Á
síðasta skólanefndarfundi hafi
hins vegar verið ákveðið að
greiða öðrum kennurum búsett-
um á höfuðborgarsvæðinu rútu-
styrki, eða “þangað til annað
verður ákveðið“ . Þess má geta
að kennarar Flugliðabrautarinn-
ar fá greitt kílómetragjald sem
hefur fram að þessu verið 800
krónum hærra en rútugjaldið
fyrir hverja ferð sem farin er.
“Við lítum á greiðslu rútufar-
gjalda kennara sem sigur, enda
höfum við barist fyrir þessu í
mörg ár. Yfirborgun kennara á
Flugliðabrautinni er hins vegar
annað mál og engan veginn úr
sögunni“ sagði Magnús O. Ing-
varsson trúnaðarmaður kennara
við Fjölbrautaskólann í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Eins og fram hefur komið í
Þjóðviljanum hefur megn óá-
nægja ríkt meðal kennara skólans
vegna yfirborgana til kennara
Flugliðabrautarinnar í formi
ferðastyrks sem aðrir kennarar
búsettir á höfuðborgarsvæðinu
hafa ekki verið aðnjótandi. Yfir-
borganirnar sem til skamms tíma
komu úr skólasjóði hafa nú,
vegna kröftugra mótmæla kenn-
ara verið yfirteknar af Flugmála-
stjórn og þykir fæstum kennurum
það nokkur lausn og harla óeðli-
legt að Flugmálastjórn yfirborgi
kennara.
Á fundi skólanefndar var jafn-
framt ákveðið að skólameistari,
Hjálmar Árnason, skyldi kanna
það í samráði við menntamála-
ráðherra Sverri Hermannsson og
Flugmálastjórn, hvort ekki sé
tímabært að flytja brautina á höf-
uðborgarsvæðið þar sem allir
kennarar brautarinnar búa og all-
ir nemendur utan einn. “Ég
sjálfur er þeirrar skoðunnar að
það sé ástæða til þess að þrjóskast
við því að brautin verði flutt“
sagði Hjálmar Árnason í samtali
við Þjóðviljann. “Ég er það, á
grundvelli byggðastefnu. Það
þykir öllum sjálfsagt að fólk flyt-
jist frá landsbyggðinni til höfuð-
borgarsvæðisins en ef dæminu er
snúið við þá virðast málin horfa
öðruvísi við“ sagði Hjálmar.
-K.ÓI.
Reykjavík. -Sáf
Sjónvarpið
Breyttir Evró-söngvar
>2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN