Þjóðviljinn - 09.10.1986, Page 4
LEIÐARI
Friður óttans
Það væri synd að segja að allir séu jafnbjart-
sýnir á skjótan og góðan árangur af friðarvið-
ræðum þeirra Reagans og Gorbatsjovs í
Reykjavík nú um helgina. Bæði vegna þess að
fátt eitt virðist benda til þess að hið langvarandi
vígbúnaðarbrjálæði fái skjótan endi og vegna
þess að leiðtogarnir sjálfir virðast ekki vera
nema hóflega vongóðir um áþreifanlegan ár-
angur.
I útvarpsræðu sem Reagan Bandaríkjaforseti
flutti 4. okt. síðastliðinn sagði hann meðal ann-
ars við þjóð sína:
„Þið munið kannski eftir því að hr. Gorbatsjov
og ég hittumst fyrst fyrir ári síðan í Genf. Þar
ræddum við saman einslega í um fjórar klukku-
stundir, og meira en fimmtán stundir fóru í við-
ræður með þátttöku sendinefnda okkar. Þið
megið trúa því að enn á ný fengum við staðfest-
ingu á sannleiksgildi þeirrar staðhæfingar, að
þjóðir tortryggi ekki hver aðra vegna víg-
búnaðar, heldur séu þjóðir vígbúnar vegna
þess að þær tortryggja hver aðra. Um þetta
efni var ég bæði berorður og hreinskilinn við hr.
Gorbatsjov, og tjáði honum þá skoðun okkar,
að undirrót tortryggninnar sé að leita í Ijósi
þeirrar reynslu að Sovétríkin sækist eftir því að
þröngva hugmyndafræði sinni og stjórnarhátt-
um upp á aðra.“
Og Reagan heldur áfram: „En ég tók einnig
skýrt fram, að þrátt fyrir að Bandaríkin krefjist
þess staðfastlega, að allar þjóðir heims búi við
frelsi og sjálfsákvörðunarrétt, þá viljum við einn-
ig vinna með Sovétríkjunum að því að forðast
stríð og halda frið.“
Ef nokkuð er að marka ræðuhöld af þessu
tagi þá kemur Reagan til fundarins fullur með
tortryggni í garð Sovétmanna og innilega
sannfærður um að Bandaríkin séu í lögreglu-
hlutverki til að tryggja frelsi og sjálfsákvörðun-
arrétt þjóða.
Það er einnig mjög ósennilegt að Gorbatsjov
telji Reagan vera alþjóðlegan „sheriff“ („lög-
gæslumann") á sviði frelsis og sjálfsákvörðun-
arréttar.
Þótt Reagan haldi því fram, að vígbúnaðurinn
sé ekki frumorsök fyrir tortryggni meðal þjóða,
er rétt að hyggja að því að vígbúnaðurinn er eins
og olía á eld tortryggninnar.
Stórveldin tvö tortryggja hvort annað. Þau
vígbúast, en halda friðinn. Vígbúnaðarsinnar
segja að friðurinn byggist á gagnkvæmum ótta.
Ekki ótta við tvísýna styrjöld heldur ótta við út-
rýmingu alls mannkyns.
Sá friður sem við búum við er friður óttans.
Sú réttláta krafa sem íbúar heimsins gera til
leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna er að
þeir dragi úr þeirri angist og þeim kvíða, sem
tortryggnin milli ríkja þeirra hefur vakið í brjóst-
um fólks í öllum löndum heims.
Friður á jörðu er ekki einkamál Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna. Það eru ekki aðeins
Bandaríkjamenn og Sovétmenn sem geta gert
þá kröfu til leiðtoga sinna að fundir þeirra séu
skref í afvopnunarátt. Allir þeir sem fundið hafa
til angistar og kvíða vegna tortímingarmáttar
þessara þjóða hafa fullan rétt til þess að krefjast
þess að hinni vopnuðu tortryggni verði eytt með
undanbragðalausum ráðstöfunum.
Leiðtogarnir Reagan og Gorbatsjov eru ekki
einvörðungu ábyrgir gagnvart hinum fjölmennu
þjóðum sem þeir ráða fyrir, heldur einnig
gagnvart öllum heimsins foreldrum sem hafa
þurft að svara spurningu barna sinna: Hvað
verður um okkur ef það kemur stríð?
Það er von manna að sú ábyrgð sem hvílir á
þessum tveimur mönnum sé ekki orðin ofvaxin
mannlegum mætti.
Menn vilja trúa á ákveðna þíðu í samskiptum
stórveldanna. Við skulum vona að tortryggni og
stífni séu á undanhaldi, og þar með ástæðulaus
orðin sú svartsýni eða kaldhæðni sem finna má
í 99 ára gömlum Ijóðlínum þjóðskáldsins Þor-
steins Erlingssonar:
Viö tölum aldrei orð um frið,
uns allt við fengið höfum.
Við sættumst fúsir féndur við
- en fyrst á þeirra gröfum.
-Þráinn
KUPPT OG SKORIÐ
Ibsen og
hagskýrslurnar
í nýjusta heftinu af Mannlífi er
fróðlegt viðtal við félaga Ragnar
Arnalds, um pólitík og ekki síður
um leikhús í tilefni af upp-
reisninni sem hann stóð fyrir á
ísafirði. Ragnar segir raunar í
viðtalinu að andinn hafi komið
yfir hann í fjármálaráðuneytinu,
og í annan stað segist Ragnar
hafa hrifist af Ibsen á menntaskó-
laárum: Pétur Gautur hleypir
skáldhreininum glæfraleg einstigi
yfir flatneskjum hagskýrslnanna,
- það er kannski engin furða að
Ragnar er sá síðari tíma
stjórnmálamanna sem komist
hefur úr fjármálaráðuneytinu
nokkurn veginn heill heilsu á sál
og líkama og meira að segja
aukist vinsældir nema hjá Mogg-
anum og Jóni Baldvini.
Myndarlegur
alþýðukór
Þingflokksformaðurinn Ragn-
ar Arnalds er líka í viðtali með
leikskáldinu, og er spurður um
óróatíma í flokknum sínum: „Það
er verið að tala um klofning og
ósætti núna“, segir Ragnar, rifjar
upp hannibalsgaldurinn eftir að
hann tók við formennsku ný-
stofnaðs Aiþýðubandalags, og
segir að í samanburði við þá tíma
sé „beinlínis friðsælt í Alþýðu-
bandalaginu um þessar mundir“.
Raunar sé miklu meira gert úr
tíðindum úr flokknum síðustu
misseri en ástæða er til: ,yKuðvit-
að er Alþýðubandalagið engin
haleljújasamtök þar sem allir eru
sammála. Þetta er baráttuglalt lif-
andi fólk sem hefur mismunandi
áherslur. Þetta er bara einsog í
myndarlegum alþýðukór - stund-
um getur verið erfitt að fá sam-
hljóm. Það eiga ekki allir að
syngja sama stefið. Þetta er marg-
radda kór og tóntegundirnar ólík-
ar. Aðalatriðið er að syngja nokk-
urn veginn í takt. “
Þjóðviljinn
gerir skyldu sína
Samkvæmt Ragnari er samt
eitthvert ósætti um lagavalið í
kórnum: „Það er ágreiningur um
verkalýðsmálin og kannski sá eini
sem eitthvert mark er á takandi.
Ég er ekkert hissa áþví þótt það sé
ágreiningur, m.a. um síðustu
kjarasamninga. Deilur um þá í
Alþýðubandalaginu eru frekar
hraustleikamerki en hitt. “ Ragnar
er spurður álits á ályktun Dags-
brúnarstjórnar um fréttaflutning
Þjóðviljans af síðustu samning-
um, - Ragnar telur að umfjöllun
Þjóðviljans hafi stundum verið
„of einhliða" en segist mjög lítið
hrifinn af ályktuninni: „Eg sá
ekki betur en Þjóðviljinn gerði
skyldu sína með því að varpa Ijósi
á málin frá öllum hliðum. “
Dapurleg
uppákoma
Ragnar er líka spurður um tíð-
indi sumarsins, meðal annars um
Guðmund Joð og þær fréttir sem
urðu tilefni ályktunar tíutíma
miðstjórnarfundar flokksins í
júlí. Ragnar segist hafa verið á
móti því að flokkurinn setti sig í
dómarasæti og gæfi Guðmundi
fyrirskipanir, - í samþykkt mið-
stjórnarinnar hafi aðeins falist
siðferðilegt og pólitískt mat á
slíkum viðskiptum. „Þessi við-
skipti Guðmundar við Albert
voru heldur dapurleg uppákoma"
segir Ragnar „og mér þóttu við-
brögð hans við samþykktinni af-
leit. Ég held að hann hafifyrst og
fremst gert sjálfum sér skaða með
þeim yfirlýsingum sem hann lét
frá sér fara um hana. “
Formennskan
Enn er Gaggi spurður í þaula
um innanflokksmál, - blaðamað-
ur Mannlífs segir óljóst hvort
Svavar Gestsson haldi áfram for-
mennsku í Alþýðubandalaginu,
og gerir því skóna að svo gæti
farið að um formennskuna yrðu
átök milli „tveggja andstæðra
hópa“, sem til dæmis kristölluð-
ust í persónunum Ásmundi Stef-
ánssyni og Ólafi Ragnari
Grímssyni. Síðan segir í Mann-
lífi:
„Ragnar Arnalds er að margra
dómi eini maðurinn sem gæti sætt
þau átök. í fyrstu tekur hann
þessu fj arri. „Mérfinnst þessi um-
rœða út í bláinn og fullkomlega
ótímabœr. Á tímabilinu munu
þingkosningar fara fram og því er
útilokað að vera að spá í þetta
núna, í öðru lagi þykir mér lang
líklegast að Svavar fari aftur
fram. Ég tel einsýnt að við mun-
um leggja að honum að sitja
áfram."
- Telur hann að Svavar hafi
nægilegt traust til að sitja þriðja
kjörtímabilið?
Já, ég er viss um það. og ég vil
ekkert gefa undir fótinn með það
að við skiptum umformann,"
segir hann ákveðinn. Eg bið hann
að velta fyrir sér þeim möguleika
að til hans yrði leitað sem sátta-
semjara í því tilfelli að ekki næð-
ist samstaða um aðra...
„Ég var formaður í níu ár og
hef engan sérstakan áhuga á að
verða aftur formaður. “ Svo
stendur hann upp. „En ég útiloka
þann möguleika ekki. Það er
rangt að vera með svardaga langt
fram í tímann. Ég tel þó heppi-
legast að Svavar sitji áfram, eða
þá að nýr maður komi í hans stað
ef hann hættir. ““
Höfuðand-
stæðingurinn
Formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins er líka spurður um
væntanlegar kosningar, og er
ófús til spádóma um samstarf
eftir þær, en segist telja lítinn
grundvöll fyrir samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og að hann
óski ekki eftir að Alþýðubanda-
lagið verði fimmta hjól undir
stjórnvagni þar sem Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur ráði
ferðinni: „ákaflega lítið hrifinn af
þeirri hugmynd. Við lítum auðvit-
að á Sjálfstæðisflokkinn sem
höfuðandstœðing okkar. “
Leikur Ragnars um Skúlamál-
in er gamanleikur um alvarleg
efni. Ragnar hefur í blaðavið-
tölum lýst áhuga á að halda áfram
á leikskáldsbraut, en næst muni
efniviðurinn annar, - þar á hann
vonandi við örlítinn gamanleik
um alvarleg efni sem settur verð-
ur upp á Norðurlandi vestra á
vori komanda. Eftir það er bara
að bíða þess að andinn komi enn
einusinni yfir hann í ráðherra-
stóli... -«n
DJODVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufólag Þjódviljans.
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, Ossur Skarphéöins-
,son.
FréttBstjóri: Lúðvík Geirsson. ______ á
Blaöamonn: Garöar Guöjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristm Olafs-
dóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, ólafur Gíslason.
Siguröur A. Friðþjófsson, Valþór Hlööversson, Vilborg Davíðsdóttir,
Vfoir Sigurösson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri)
Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Siguröur Mar Halldórsson.
Útlit8telknarar: Sævar Guöbjömsson, Garöar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofustjóri: Jóhannes Haröarson.
Skrifstofa: Guðrún Guövaröardóttir, Magnús Loftsson.
Auglýsinga8tjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guöbergur Þorvaldsson, Olga
Ciausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húamóðir: Ólöf HúnQörö.
Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríöarson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskrlftarverð ó mónuði: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Fimmtudagur 9. október 1986