Þjóðviljinn - 09.10.1986, Blaðsíða 6
LANDSBYGGÐIN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Aðalfundur
Alþýðubandalagiö í Hafnarfirði boðar til aðalfundar
fimmtudaginn 9. október kl. 20.30 í Skálanum,
Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Breytingar
á reglum bæjarmálaráðs. 3) Stjómmálaviðhorfið,
kosningar og þingsetning. Framsaga: Geir Gunn-
arsson. 4) Onnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Aðalfundur bæjarmálaráðs
Aðalfundur bæjarmálaráðs Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður hald-
inn mánudaginn 13. október kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Rætt um starfsskipulag í vetur. 3)
Nefndarmenn og bæjarfulltrúi segja af gangi helstu mála. 4) önnur mál. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Aðalfundur
Alþýðubandalag Akraness boðar til aðalfundar sunnudaginn 12. október
kl. 14.00 í Rein.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Umræður um forval - drög að
kjörskrá. 3) Önnur mál. Félagar fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akureyri
Félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18,
fimmtudaginn 9. september kl. 20.30.
Fundarefni: 1) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 2) Forval eða hvað? 3)
Norðurland. Aríðandi er að félagar fjölmenni. - Stjórn ABA.
Alþýðubandalagið Hveragerði
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í Hveragerði boðar til aðalfundar fimmtudaginn 9. októ-
ber kl. 20.30 í Félagsheimili Ölfusinga.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Inntaka nýrra félaga. 3) Kosning
fulltrúa á kjördæmisþing. 4) Önnur mál. - Stjómin.
Suðurland
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs AB á Suðurlandi verður haldinn í Ölfusborgum
dagana 11.-12. október. Aðalmál fundarins, aðalfundarstörf, forvalsreglur,
forvalsdagar, önnur mál. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson.
Matur og gisting á staðnum, svo tilkynna þarf þátttöku í tíma, vegna undir-
búnings. Stjórn kjördæmisráðs
Austurland
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs AB í Austurlandskjördæmi verður haldinn í
félagsheimilinu Skrúð á Fáskrúðsfirði helgina 11.-12. október.
Dagskrá:
Laugardagur kl. 13.30 Setning, kjör starfsmanna fundarins. 13.45 Skýrsla
stjórnar, reikningar - umræður. 14.30 Ávörp gesta. 15.00 Austurjand,
skýrsla ritstjórnar. 15.30 Kaffihlé. 16.00 Mál lögð fyrir fundinn. 19.00 Kvöld-
verðarhlé. 20.00 Nefndarstörf. 22.00 Fundarhlé.
Sunnudagur 12. okt. kl. 9.00 Nefndarstörf. 12.00 Matarhlé. 13.00 Nefndir
< skila áliti, umræður, afgreiðsla. 14.30 Kosningar. 15.00 Önnur mál. 15.30
Fundarslit.
Gestur fundarins verður Þráinn Bertelsson.
Framkvæmdanefnd
i Rey kja víkurhöfn
Tilkynning um umferð
skipa um Reykjavíkur-
höfn
Dagana 11. og 12. október 1986 gilda eftirfarandi
ákvæöi um umferð á hafnarsvæöi Reykjavíkur-
hafnar.
1.
öll skip og bátar skulu um örbylgjurás 12 tilkynna
til skipaþjónustu komu, brottför eða fyrirhugaðar
hreyfingar um hafnarsvæðið.
2.
öll umferð er bönnuð um sundið milli Engeyjar og
Laugarness.
3.
öll umferð skemmtibáta er bönnuð um „Gömlu
höfnina" og Engeyjarsund ásamt Rauðarárvík
allt að Laugarnesi.
Hafnarstjórinn í Reykjavík
8. október 1986
Gunnar B. Guðmundsson
Og nú geta menn farið að hressa sig. Omega-3 komið á markaðinn.
kemur fyrir í mjög miklu magni í
sjónhimnu augans, heila og sáð-
frumum og er talin geta minnkað
líkurnar á skyndidauða af völd-
um hjártatitrings og hjartadreps.
Pví ekki að reyna
Samfara auknum áhuga er-
lendis og vaxandi eftirspurn eftir
Omega-3 fjölómettuðum fitusýr-
um fóru ráðamenn Lýsis h.f. að
hugleiða hvort ekki mundi unnt
að framleiða hér lýsi, sem hefði
svipað innihald og Max-EPA, en
Lýsi h.f. er stærsti framleiðandi
meðalalýsis í heiminum. Peir
sneru sér til Raunvísindastofnun-
ar, en þar hafði dr. Sigmundur
Guðbjarnarson, núverandi
Háskólarektor, unnið í meira en
áratug að rannsóknum á áhrifum
lýsis á tilraunadýr og aflað sér
mikilvægrar reynslu og þekking-
ar um þau efni og sem nú komu
að góðum notum.
Þessi samvinna Lýsis h.f. og
Raunvísindastofnunar hófst svo
haustið 1984, undirstjórn dr. Sig-
mundar. í upphafi miðuðust
rannsóknirnar eingðngu við til-
raunastofurnar. Okkur tókst
fljótlega, á tiltölulega auðveldan
hátt, að þróa aðferð til fram-
leiðslu á afurð, sem innihélt vel
yfir 30% þessara umræddu fitu-
sýra.
Næsta skref var að koma á fót
tilraunaverksmiðju í samvinnu
við tæknideild Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins. Og sumarið
1985 tókst okkur síðan að fram-
leiða í tilraunaverksmiðjunni eitt
tonn af afurðinni, sem nú er ný-
komin á markaðinn og nefnist
Omega 3. Ástæðan til þess að
markaðssetningin hefur dregist
er sú, að ýmsar frekari rannsókn-
ir þurfti að gera áður, svo sem
tilraunir á dýrum, efnagreiningar
ýmiss konar og svo að koma vö-
runni í perlur, sem aðeins er hægt
erlendis.
Eins og sagði áðan er aðferðin
við þessa framleiðslu fremur ein-
föld í sniðum. í sem stystu máli er
hún þannig, að þorskalýsið er
leyst upp í Iífrænni leysisblöndu,
blandan kæld niður fyrir 30°C,
þannig að úr henni fellur mett-
aðri hluti lýsins, sem síðan er að-
greindum með síum. Ómettaði
hlutinn, þ.e. afurðin, næst síðan
úr leysiblöndunni með eimingu
og þvotti. Þannig höfum við
afurð með 34% EPA og DHA og
38% heildarhlutfalli Omega-3
fjölómettaðra fitusýra, og er það
vel yfir því lágmarki, sem við
stefndum að í upphafi.
Og áfram
er haldið
Þessum rannsóknum lauk á til-
raunastofunni fyrir ári síðan. En
þær voru aðeins fyrsti áfanginn.
Við töldum okkur þurfa að gera
betur, komast helst fram úr er-
lendum framleiðendum til þess
að standa betur að vígi í sam-
keppninni. Og það hefur okkur
nú tekist, að því er við best vitum.
Á s.l. ári höfum við þróað að-
ferð, byggða á líftækni, til fram-
leiðslu á afurð með miklum mun
meira magni af EPA og DHA en
áður hefur þekkst. í þessari nýju
afurð er hlutfall EPA og DHA
vel yfir 50%. Það ætti að skapa
okkur allgóða samkeppnisað-
stöðu. Og við sjáum ekkert því til
fyrirstöðu að okkur takist að gera
betur, með frekari rannsóknum.
í þeim efnum stöndum við síður
en svo að baki þeim, sem lengst
eru komnir á þessu sviði erlendis.
Markmið okkar er að framleiða
vöru með sem hæstu hlutfalli
þessara þýðingamiklu efna. Og
lokatakmarkið er að framleiða
afurðir með sem næst hreinu
EPA innihaldi annarsvegar og
hreinu DHA innihaldi hinsvegar.
Og við teljum, að með það séum
við komnir allnokkuð á veg.
Að sjálfsögðu hafa ýmsir lagt
hönd á plóginn við þessar rann-
sóknir. Við höfum áður getið dr.
Sigmundar Guðbjarnarsonar,
Háskólarektors. Lýsi h.f. hefur í
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
sinni þjónustu unga, áhugasama
og vel menntaða menn og eiga
þeir sinn þátt í þróun þessara
mála. Og auk viðmælanda okkar,
Guðmundar G. Haraldssonar,
má svo nefna matvælafræðingana
Þröst Reynisson og Elínu Guð-
mundsdóttur og Freygarð Þor-
steinsson, efnafræðing, en hann
vinnur nú alfarið að þessum rann-
sóknum.
-mhg
Ríkisútvarpið-sjönvarp auglýsir
hér með eftir sönglagi til þátttöku
í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
í Evrópu 1987.
Þátttökuskilyrði:
Lagið má ekki taka nema þrjár mínutur í flutningi. Frumsam-
inn texti á íslensku skal fylgja. Lagið má hvorki hafa komið út
á nótum, hljómplötum, snældum né myndböndum og það
má ekki hafa verið leikið í útvarpi eða sjónvarpi.
Laginu skal skilað á hljóðsnældu. Þar skal það flutt sem líkast
því sem höfundur ætlar því að vera í endanlegri gerð.
Snælda og texti skulu merkt heiti lagsins og dulnefni höfund-
ar. Rétt nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer skulu
fylgja með í lokuðu umslagi merktu sama dulnefni.
Sendi höfundur fleiri en eitt lag skulu þau send inn hvert í
sínu lagi og hvert undir sínu dulnefni.
Skilafrestur er til 31. desember 1986.
Utanáskrift: Ríkisútvarpið-sjónvarp, „Söngvakeppni“,
Laugavegi 176, 105 Reykjavík.
/
Dómnefnd skipuð fulltrúum frá Félagi tónskálda og textahöf-
unda, Félaqi íslenskra hljómlistamanna, Félagi hljómplötuút-
gefenda á Islandi og Ríkisútvarpinu velur 10 lög til áfram-
haldandi þátttöku.
Breytt tilhögun:
Að þessu sinni er ætlunin að lag og flutningur fylgist að. Flér
er því ekki einungis leitað eftir lagi heldur fullbúnu tónlistar-
atriði.
Sjónvarpið mun hvorki annast útsetningar laganna
né val flytjenda eða sjá um hljóðritun.
Það er alfarið í höndum höfunda og samstarfsaðila þeirra að
búa lögin til flutnings og keppni i endanlegri gerð.
f janúar 1987 verða þeir 10 höfundar, sem valdir hafa verið
til áframhaldandi keppni, kynntir í sérstökum sjónvarpsþætti.
Þar mun sjónvarpið veita hverju lagi styrk að upphæð
kr. 150.000.- til að viðkomandi geti fullunnið laqið, ráðið
flytjendur og hljóðritað það i endanlegri gerð í sam-
vinnu við hljómplötuútgefendur.
Skilafrestur á fullunnum lögum er til
15. febrúar 1987.
Fyrir þessa styrkupphæð skal viðkomandi skila eftirfarandi:
Hljóðritun lagsins í endanlegri gerð, útsetningu á nótum,
texta á íslensku, ensku og frönsku ásamt greinargóðum
upplýsingum um höfunda lags og texta og flytjendur, sem
ekki mega vera fleiri en sex.
Lagið skal vera fullæft og tilbúið til myndatöku í sjónvarpi.
Engar sérstakar greiðslur koma til flytjenda við myndvinnslu
lagsins eða fiutning í kynningu og keppni, enda greiðsla fyrir
það innifalin í styrknum.
Ríkisútvarpið áskilur sér einkarétt til flutnings laganna i
útvarpi og sjónvarpi meðan á keppni stendur.
Kynning og úrslit:
Lögin 10 verða kynnt í fimm sjonvarpsþáttum í lok febrúar
1987.
Úrslit ráðast í beinni útsendingu mánudaginn 9. mars 1987.
Þá munu dómnefndir skipaöar fulltrúum almennings á átta
stöðum á landinu greiða atkvæði um lögin.
Það lag og þeir flytjendur, sem hlióta flest stig, fá í verð-
laun kr. 300.000.- og verða fulltruar íslenska sjónvarps-
ins í „Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1987.“
Lokaúrslit keppninnar fara fram í Belgíu í byrjun maí 1987.
Upplýsinaar um tilhögun keppninnar liggja frammi hjá
simaveráí sjónvarpsins, Laugavegi 176, Reykjavík.