Þjóðviljinn - 09.10.1986, Qupperneq 13
HEIMURINN
Leiðtogafundurinn
Sovétmenn draga í land
Iritstjórnargrein íPrövdu, málgagni sovéska kommúnistaflokksins, var ígær breytt um tón
varðandi vonir um áþreifanlegan árangur af mini-leiðtogafundinum í Reykjavík um helgina
Moskvu - í gær birtist í Prövdu,
málgagni sovéska kommún-
istaflokksins, grein eftir aðal-
ritstjóra blaðsins, þar sem var-
að er við of mikilli bjartsýni
varðandi niðurstöður af fundi
Gorbatsjofs og Reagans um
næstu helgi. Hingað til hafa
hins vegar opinberir embætt-
ismenn og fjölmiðlar í Sovét-
ríkjunum látið í Ijós miklar von-
ir um að áþreifanlegur árangur
yrði af fundinum.
Aðalritstjórinn, Viktor Afana-
sjef, sagði í grein sinni að vonir
heimsins væru bundnar við
leiðtogafundinn um helgina. En
hann bætti hins vegar við, að
heimurinn hefði einnig áhyggjur
af því hversu lítil þróun hefði átt
sér stað í afvopnunarumræðunni
frá því á síðasta fundi leiðtoganna
í Genf í fyrra. „Vonimar sem
bundnar eru við Reykjavík eru
miklar en áhyggjur og kvíði eru ef
til vill alveg jafn miklar“, segir
Afanasjef í grein sinni.
í síðustu viku sögðu sovéskir
embættismenn að Reagan og
Gorbatsjof myndu ef til vill ná
saman útlínum að samkomulagi
um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Eins og kunnugt
er, hafa Sovétmenn stöðvað til-
raunir með kjamorkuvopn í um
það bil ár en Bandaríkjamenn
hafa neitað að fylgja fordæmi
þeirra. f>á sagði einnig í Prövdu 4.
október, að nú væru að koma
fram „ákveðnar líkur á því að bú-
ast mætti við árangri í viðræðum
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
um kjarnorku og geimvopn.“
Þessi ummæli komu dipló-
mötum nokkuð á óvart þar sem
mikill ágreiningur ríkir nú meðal
stórveldanna um geimvarnaáætl-
un Bandaríkjanna (SDI). Banda-
rískir embættismenn hafa sem
kunnugt er mótmælt því að búast
megi við miklum árangri á fund-
inum £ Reykjavík, segja hann
fyrst og fremst ætlaðan sem vinn-
ufund til undirbúnings raunveru-
legum fundi í Bandaríkjunum,
mögulega á þessu ári. I grein
Prövdu í gær er hins vegar dregið
úr þessum vonum og sagt að
leiðtogarnir muni um helgina
„greina ástandið og draga upp
ákveðnar línur sem tryggðu fram-
þróun í nokkrum málum sem
tengjast kjarnorkuvopnum.“
Hans Blix
Kjarnorka
eina leiðin
Cannes - Hans Blix, forstöðu-
maður Alþjóðakjarnorkumála-
ráðsins sagði í gær að hann
byggist við að fólk fengi innan
tíðar aftur trú á kjarnorku sem
aflgjafa, þrátt fyrir Tsjernóbíl
slysið.
Blix var að tala á Alþjóða ork-
uþinginu sem nú er haldið í
Frakklandi. Blix sagði að eini
orkugjafinn sém nú um stundir
gæti komið í stað kjarnorku, væri
orka frá kolum og fólk teldi þann
kost ekki vænlegan vegna mikil-
lar mengunar frá kolabrennslu.
Vegna þessa myndi almenningur
smátt og smátt snúast á sveif með
kjarnorku á ný. Ekki er vitað
hvort einhver benti Blix á sólar-
orku eða aðra möguleika í orku-
öflun framtíðarinnar.
Weinberger/Afganistan
Segir Sovét svíkja
Peking - Varnamálaráðherra
Bandaríkjanna, Caspar
Weinberger, sakaði í gær So-
vétríkin um að hafa nýlega
bætt við herafla sinn í Afgan-
istan, einnig sakaði hann So-
vétríkin um að undirbúa svik á
ýfirlýsingum um áætlun um að
fækka í herafla sínum i Afgan-
istan á næstunni.
Bandarískur embættismaður
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið, sagði þetta í gær. Hann sagði
að Weinberger sem er nú í opin-
berri heimsókn í Kína, hefði látið
þessi orð falla í samtali við kín-
verska varnarmálaráðherrann,
Zhang Aiping.
„Við búumst við að Sovét-
menn beiti þeim klækjum að
bæta við hersveitum svo talið
verði að þeir séu að fækka her-
mönnum í raun, þó sami fjöldi
verði í landinu eftir sem áður“,
hafði embættimaðurinn eftir
Weinberger. Embættismaðurinn
sagði ennfremur að Sovétmenn
hefðu sent fjölmargar hersveitir
til landsins á síðustu vikum og þar
með aukið við þá 118.000 her-
menn sem verið hafa í Afganist-
an.
Leiðtogi Sovétríkjanna, Mik-
hafl Gorbatsjof, tilkynnti þann
28. júlí í sumar, í ræðu sem hann
hélt í Vladivostok, að sovésk yfir-
völd hefðu í hyggju að flytja sex
hersveitir sínar frá Afganistan
fyrir lok þessa árs.
Caspar Weinberger. Harðorður í
garð Sovétmanna, sem fyrr.
Skœruliðar á Filippseyjum
Sagðir hafa drepið
600 af eigin mönnum
Yfirmaður ífilippinska hernum sagði í gœr að skœruliðar kommúnista
íhinum svonefnda „Nýja Þjóðarher“ hefðuframiðfjöldamorð nýlega
á 600 mönnum í eigin hersem taldir voru uppljóstrarar stjórnvalda
Peking - Háttsettur yfirmaður í
her Filippseyja sagði í gær að
kommúnískir skæruliðar
hefðu myrt 600 menn úr eigin
liði á þessu ári í þeim tilgangi
að hreinsa hreyfinguna, „Nýja
Þjóðarherinn“ af uppljóstrur-
um yfirvalda í Manila.
„Nýja fréttastofan" á Filipps-
eyjum hafði þetta eftir undirhers-
höfðingjanum Mariano Adalem,
að „Nýi Þjóðarherinn" hefði
drepið 600 menn í „fjöldamorði"
á eyjunni Mindanao en Adalem
er yfirmaður hersins á norður
hluta þeirrar eyju. Hann sagði á
ráðstefnu yfirmanna hersins að
fjöldagrafir hefðu fundist á suður
hluta eyjunnar og talið væri að
fórnarlömbin væru fulltrúar eða
útsendarar stjórnvalda. Ekki hef-
ur frést af tilkynningu um þetta
mál frá sveitum kommúnista.
Adalem sagði að ein gröf hefði
fundist í Misamis héraði með lík-
um að minnsta kosti 100 manna.
Skæruliðasveitir kommúnista
hafa barist við stjórnvöld á Fil-
ippseyjum síðastliðin 17 ár og
átök þeirra við hersveitir halda
Mótmæli viðx
v-þýska sendiraoið
áfram þrátt fyrir hvatningar frá
báðum aðilum um vopnahlé.
Rúmlega 3000 manns hafa nú lát-
ist í átökum á þessu ári og eru þau
sérstaklega hörð á Mindanao.
Ásakanir um dráp kommún-
ista á eigin félögum hafa oft kom-
ið fram áður en hingað til hafa
ekki verið gefnar upp tölur um
fjölda þeirra sem eiga að hafa
verið drepnir. Adalem sagðist
áætla að fjöldi manna í „Nýja
í*jóðarhernum“ á Filippseyjum
væri nú um það bil 800 eftir morð-
in á grunuðum uppljóstrurum.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörleífsson/R EUIER
Shimon
Peres, fráfarandi forsætisráð-
herra (sraels (víkur úr embætti á
morgun fyrir harðlínumanningum
Ytzak Shamir sem hingað til hef-
ur verið utanríkisráðherra) kom í
gær til Parísar í opinbera heim-
sókn og voru gerðar gífurlegar
öryggisráðstafanir í París af því
tilefni. Fjöldi hermannafylgdi þot-
unni á bílum eftir að hún var lent
og lögreglumenn stilltu sér upp í
röðum eftir þeim götum sem Per-
es ók inn í París frá Orly flugvelli.
Þessar öryggisráðstafanir eru
ekki taldar óeðlilegar í Ijósi þeirra
miklu hermdarverka sem framin
hafa verið í París að undanförnu.
(fyrradag var gerð opinber orð-
sending frá armenskri neðanj-
arðarhreyfingu þar sem sagði að
Mitterrand Frakklandsforseti
væri á dauðalista þeirra. í þessari
orðsendingu voru Jihad samtök-
in í Líbanon hvött til að lífláta einn
sinna frönsku gísla meðan Peres
væri í Frakklandsheimsókn sinni.
Sendiherrar Arabaríkja í Frakk-
landi hafa lýst yfir áhyggjum sín-
um vegna óvildar fjölmiðla í garð
Araba sem búsettir eru í Frakk-
landi. Nokkrir sendiherrar Ara-
baríkja fara á morgun í heimsókn
til Chiracs, forsætisráherra
Frakklands, til að kvarta yfir
þessari óvild sem þeir segja að
hafi jafnvel komið fram í málflutn-
ingi franskra ráðherra í kjölfar
skemmdarverkanna i París að
undanförnu. „Við mótmælum því
að litið sé á hvern einasta Araba
sem hryðjuverkamann eða
tengdan hryðjuverkamanni",
sagði einn sendiherranna við
fréttamenn í gær.
Skordýraeitur
varð nýlega 30.000 farfuglum að
bana á friðlýstu svæði í Andalús-
íu á Spáni. I tilkynningu frá fylkis-
stjórn Andalúsíu í gær sagði, að
athuganir sýndu að blanda
leyfðra og bannaðra eiturefna
hefði orðið fuglunum að bana.
Það var í ágúst í sumar sem þús-
undir af öndum og öðrum farfugl-
um fundust dauöir á mýrum og
ökrum við mörk Donana garðsins
sem er eitt af mikilvægustu nátt-
úruverndarsvæðum Evrópu.
Ekki er vitað hverjir stóðu fyrir
þessu ódæði en rannsókn mun
vera hafin í þessu máli.
Teheran - Nokkur hundruð
ungir háskólaborgarar í Tehe-
ranháskóla sem nefna sig
„Hizbollah stúdentar Tehe-
ranháskóla" réðust að v-þýska
sendiráðinu í Teheran í gær.
Stúdentarnir reyndu að brjóta
niður aðaldyr sendiráðsbygging-
arinnar en menn í öryggiseftirliti
sendiráðsins héldu aftur af fólk-
inu með táragassprengjum.
Starfsmaður í v-þýska sendi-
ráðinu sagði í viðtali við frétta-
mann Reuters að um það bil 500
manns hefðu safnast saman fyrir
framan sendiráðið og kallað víg-
orð á borð við „Niður með Þýska-
land“, „Niður með fasistalög-
reglu Þýskalands".
Ástæðan fyrir þessum aðgerð-
um mun vera sú að írönsk yfir-
völd hafa tilkynnt að ráðist hafi
verið á fulltrúa þeirra á alþjóð-
legri bókasýningu í Frankfurt í
síðustu viku. Þar hafi verið að
verki menn sem berjast gegn nú-
verandi stjórnvöldum í fran.
Sendifulltrúi v-þýska sendiráðs-
ins í Teheran var fyrir nokkru
boðaður í utanríkisráðuneytið í
Teheran þar sem honum var af-
hent orðsending þar sem v-þýska
lögreglan var sökuð um að hafa
mistekist í vernd sinni á írönsku
fulltrúunum.
í gær lagði V-Þýskaland fram
mótmælaorðsendingu vegna til-
rauna írönsku stúdentanna til að
ráðast inn í sendiráð landsins í
Teheran.
T
Miðvikudagur 8. október 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 13
Sovéskir dagar 1986:
Fyrirlestur
Dr. Einar I. Siggeirsson flytur erindi í húsakynnum MÍR
að Vatnsstíg 10 í kvöld, fimmtud. 9. okt. kl. 20.30.
Erindið nefnir hann: „Vísindaleg og atvinnuleg áhrif,
ættuð frá Úzbekistan, á íslenskar framfarir". Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
MÍR.