Þjóðviljinn - 09.10.1986, Page 14
FLÓAMARKAÐURINN
VIÐHORF
Til sölu 4
hálfslitin vetrardekk. Stærð: 6,45 x
14. Verð pr. stk. kr. 700. Uppl. í
síma 25859.
Óska eftir að kaupa
ódýran og góðan barnavagn. Sími
41492.
Rafmagnsofnar, 3 stk.
til sölu. 2 stk. 50 x 110 og 1 stk. 50 x
170 sm. Gardínubrautir og kappar
úr við, ca. 15 m. Heimasími 46124,
vinnusími 20606.
Óska eftir kennara
á munnhörpu
Hef áhuga á að læra á munnhörpu.
Sími 25488.
Hitakútur til sölu
200 I hitakútur til sölu á kr. 8000. Á
sama stað eru tii sölu 3 rafmagns-
þilofnar, 600, 1200 og 1500 wött.
Uppl. í síma 667098 eftir kl. 16.
Vantar notað
vel með farið skrifborð
Á sama stað er til sölu Árbók Há-
skóla íslands frá 1911 -1968. Uppl. í
síma 82183 eftir kl. 16.00.
Til sölu
Volvo árg. ’71 ógangfær. Einnig
fæst á sama stað útblástursvifta í
eldhús. Selst ódýrt. Uppl. í síma
39361.
6 borðstofustólar
til sölu. Sími 22564.
Furu-hjónarúm
til sölu, stærð 140 x 200 sm. Uppl. í
síma 641141 eftir kl. 17.
Mig vantar
plötuspilara, magnara og sæmi-
lega hátalara, má ekki vera mjög
dýrt. Upplýs. í síma 20158.
Sjá einnig á síðu 12
Að mana á sig fjandann
Sigurður Þór Guðjónsson skrifar
„Þetta er óneitanlega stórt skrefífrœgð-
arátt. Igamla daga hétþetta að mana á
sigfjandann. Hamingja einnarþjóðar
felst ekki ífrœgð hennar. Hún leynist í
daglegu lífi við venjuleg störf. “
íbúð óskast
Starfsmaður Þjóðviljans óskar eftir að taka á
leigu 2-3ja herb. íbúð sem fyrst. Tvennt í heimili.
Reglusemi og öruggar mánaðargreiðslur. Uppl. í
síma 28825.
Alúðarþakkir til sjúkrahússprests, lækna og hjúkrunarfólks á
deild 2 A Borgarspítala fyrir veitta aðstoð við fráfall og útför
sonar míns
Einar Gíslasonar
Guð blessi ykkur öll
Sigurborg Hansdóttir
Nú fer höfuðborgin að fyllast
af vopnuðum mönnum. Og þeir
eru tilbúnir að skjóta ef það verð-
ur talið nauðsynlegt. Hvað þýðir
það? Aðeins dálítið blóðbað í
bænum. Nú mætti ætla að auðvelt
sé að koma í veg fyrir ferðir
hættulegra manna til landsins.
Vopnunum verður því beitt gegn
íslendingum ef til þess kemur.
Reyndar sé ég engan mun á lífi
íslendinga og þegna annrra
þjóða. En vonandi verður nú
enginn skotinn. Menn eru samt
reiðubúnir til manndrápa. Það
liggur í augum uppi að ekki væri
verið að flytja vopn til landsins
nema kæmi til mála að beita
þeim. Mig undrar að enginn skuli
hafa hugsað út afleiðingarnar ef
----------------------------------1
Frostvarin
vörugeymsla
er
hitamál
Flytjir þú inn viðkvæma vöru er
kominn tími til að líta á hitamælinn,
því nú fer að frysta. Skipadeild Sam-
bandsins hugsar vel um viðkvæmar
vörur innflytjenda, og býður því
frostvarðar vörugeymslur.
Gangir þú rétt frá vörum þínum
þarftu ekki að hafa áhyggjur af að
þær verði fyrir frostskemmdum þrátt
fyrir kaldan vetur. Frostvarðar
geymslur Skipadeildar Sambandsins
sjá til þess.
Ekki brenna inni með vörur þínar í
fyrstu frostum.
Hafðu samband við Skipadeildina.
<
\n
Tákn traustra flutninga
SK/PADE/LD
SAMBANDS/NS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SIMI 28200
illa færi. Og hvað þyrfti til?
Kannski ekki annað en það að
unglingskjáni undir áhrifum vím-
uefna yrði með stæla. Þessi ann-
álaði stórveldafundur gæti því
snúist upp í grimman harmleik.
Ekki í augum heimsins því hann
tæki varla eftir því. En íslenskt
mannlíf myndi aldrei bíða þess
bætur. En að þessu er hugsanlega
stefnt vegna þeirrar einföldu
staðreyndar að leiðtogafundur-
inn verður haldinn hér á landi.
Það þýðir ekkert að segja að
vopnin verði ekki notuð. Af
hverju eru menn þá ekki vopn-
lausir?
Það er auðvitað mál stórveld-
anna að detta ísland í hug sem
fundarstaður. En það var undir
íslendingum komið hvernig slíkri
beiðni var svarað. Að sjálfsögðu
átti að synja henni kurteislega.
Það er hreint ekkert sniðugt að
fylla hér allt af vopnuðum
mönnum, prílandi uppi á þökum
út um allan bæ. Stundum fríka
slíkir gaurar út þegar verst gegn-
ir, ekki síst á húsþökum. Slíks eru
mörg dæmi. Og þá væri annað en
gaman að standa í vegi þeirra. Ef
risar vilja endilega ræðast við af-
hverju spjalla þeir þá ekki heima
hjá sér? Mér dettur t.d. í hug
borgin Verkojansk í Síberíu þar
sem nú er komið svona tuttugu
stiga frost og því ólíklegt að menn
nenni að standa í manndrápum
eða þá eyja heilags Lárusar í Ber-
ingshafi mitt á milli Sovétríkj-
anna og Bandaríkj anna sem varla
er hægt að finna á landakorti
hvað þá til að komast. Þarna
myndi áreiðanlega fara vel um
leiðtogana. Þessir staðir eru
helmingi meira út úr en ísland og
íbúamir helmingi skringilegri. I
þessu máli hafa þó komið í ljós
grátbroslegustu eiginleikar ís-
lendingseðlisins: undirlægj uhátt-
urinn, höfðingjasmjaðrið,
græðgin, minnimáttarkenndin og
hégómagirndin. Nú verðum við
ríkir og frægir! Forsætisráðherra
er í sjöunda himni yfir þessari
miklu landkynningu og gerir
mikið úr ábata þjóðarinnar. En
hverjir græða? Alþýða manna til
lands og sjávar fær ekki eyri. En
það er að vísu rétt að nokkrir að-
ilar sem fást við verslun og þjón-
ustu hirða gróðann. Hins vegar er
því ekki að leyna að vel kynntir
munum við nú vera í veröldinni.
Og er ekki að efa að hingað munu
margir leggja leið sína næstu árin
t.d. hermdarverkamenn sem yfir-
leitt ráðast á garðinn þar sem
hann er lægstur en vissu barasta
ekki af útskeri þessu. En þetta er
óneitanlega stórt skref í frægð-
arátt. í gamla daga hét þetta að
mana á sig fjandann. Hamingja
einnar þjóðar felst ekki í frægð
hennar. Hún leynist í daglegu lífi
við venjuleg störf. Eins og al-
þjóðamálum er nú háttað er sú
þjóð sælust sem fæstir þekkja.
Það er vonandi að allt fari vel í
Reykjavík og samið verði um fín-
an frið öllum til handa. En það
væri betur að íslendingar létu sér
þetta frumhlaup að kenningu
verða og leitist ekki við í framtíð-
inni að gera ísland að frægasta
stað í heimi. Því þá yrði landið
okkar versta í land í heimi.
Reykjavík 8.10. 1986.
Sigurður Þór Guðjónsson
Tónleikar og dans
í Hlégarði
Söng- og dansflokkurinn „Lazgí“ frá sovétlýðveldinu
Úzbekistan heldur kveðjutónleika og danssýningu í
félagsheimilinu Hlégarði í Mosfellssveit föstudags-
kvöldið 10. okt. kl. 20.30. Fjölbreytt efnisskrá. Missið
ekki af sérstæðri skemmtun.
MÍR
Auglýsið í Þjóðviljanum
-----------Sími 681333-----