Þjóðviljinn - 09.10.1986, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Krlstján Halldórsson, línumaður í Breiðabliki, reynir að brjótast framhjá FH-ingunum Héðni Gilssyni og Þorqils
Ottari Mathiesen. Mynd: Ari.
gr 1. deild
Otrúlega auðvelt
1. deild
Góð byrjun
meistaranna
Stórgóður kafli Víkinga og að sama
skapi slakur kafli KR-inga færði þeim
fyrrnefndu öruggan sigur þegar fé-
lögin hófu íslandsmótið í gærkvöldi.
A tólf mínútum skoruðu Víkingar sex
mörk gegn engu, komust í 23-15 og
sigruðu 23-17 þegar upp var staðið.
Góð byrjun íslandsmeistaranna sem
flestir höfðu afskrifað fyrir mótið.
Víkingar léku mjög góðan varnar-
leik lengst af þótt hann kostaði 8
brottvísanir. Kristján Sigmundsson
varði vel, 16 skot og þar af tvö víta-
köst og lokaði markinu á 12 mínútna
kaflanum. Guðmundur Guðmunds-
son, Kristján og Árni Friðleifsson
voru bestu menn Vfkinga ásamt
Hilmari Sigurgíslasyni sem lék vel í
vörninni.
KR-ingar byrjuðu ágætlega en
leikur þeirra losnaði úr reipunum
þegar á leið. Framanaf stilltu þeir upp
mikið breyttu liði frá því í fyrra en það
fór að koma kunnuglegar fyrir sjónir
þegar á leið þótt ekki væri breytingin
til bóta. Liðið gerði mikið af mistök-
um, klaufaskapur og kæruleysi í
skotum varð því að falli. Jóhannes
Stefánsson og Konráð Ólafsson voru
bestir KR-inga í leiknum.
-Ibe
Laugardalshöll 8. október
Víkingur-KR 23-17 (11-8)
3-4, 7-7, 11 -7, 11 -8 - 13-12, 16-13,
17-15, 23-15, 23-17.
Mörk Viklngs: Guðmundur Guð-
mundsson 5, Árni Friðleifsson 4, Bjarki
Sigurðsson 4, Karl Þráinsson 4(3v),
Siggeir Magnússon 3, Hilmar Sigur-
gíslason 2, Einar Jóhannesson 1.
Mörk KR: Jóhannes Stefánsson
5(2v), Konráð Ólafsson 3(1 v), Guð-
mundur Albertsson 2, Sverrir Sverris-
son 2, Hans Guðmundsson 2, Guð-
mundur Pálmason 2, Þorsteinn Guð-
jónsson 1.
Dómarar: Rögnvaldur Erlingsson
og Gunnar Kjartansson - slakir.
Maður leikslns: Guömundur Guö-
mundsson, Vikingi.
1. deild
Bara í lokin
hjá Blikum gegn FH
Gerðu útum leikinn áfyrstu 20 mínútunum
Nýliðar Breiðabliks voru 20 mínút-
ur að ganga frá FH-ingum í 1. umferð
1. deildarinnar í gærkvöldi. Eftir
þann tíma voru þeir komnir með yfir-
burðaforystu og þótt FH næði að
minnka muninn í síðari hálfleik var
sigur Kópavogsliðsins aldrei í hættu
og minnsti munur á liðunum var í lok-
in, 23-19.
Það var augljóst í byrjun að Blikar
voru ákveðnir í að sýna og sanna hváð
þeir gætu. Góð vörn truflaði sókn FH
mjög og fjölbreytileikinn í sókninni
var mikill - oft stórskemmtilegar
sóknarfléttur. Bestu tilþrifin átti þó
Björn Jónsson, gullsendingar á lín-
una sem minntu á læriföður hans,
Geir Hallsteinsson, þegar hann var
uppá sitt besta. Guðmundur
Hrafnkelsson varði vel og Jón Þórir
Jónsson var eldsnöggur í hraðaupp-
hlaupum og í horninu. Það skýrist í
næstu leikjum hvort Blikarnir eru
virkilega svona góðir en ekki getur
byrjunin verið betri.
í fyrra var talað um að ungt FH-
liðið myndi springa út í vetur. Ekki
gerðist það í gærkvöldi og
Hafnfirðingana vantaði alla baráttu
og fjölbreytni í leik sinn. Hornaspil
sást t.d. ekki og strax í byrjun sást
hvert stefndi. Þá sjaldan FH-ingar
hittu á markið í fyrri hálfleik varði
Guðmundur yfirleitt. Þeir tóku sig á
eftir hlé en það dugði engan veginn
til. Ekki náði FH einu sinni að nýta
sér þann liðsmun að vera manni fleiri
f 6 mínútur í fyrri hálfleik og 4 mínút-
ur í þeim síðari. -gsm
1. deild
Nóg af möriaim
Ármann stóð lengi í Stjörnunni
Þaö vantaði ekki mörkin þegar
Stjarnan tók á móti nýliðum Ármanns
í Digranesinu í gærkvöldi. Stjörnu-
menn voru ákveðnir í að láta ekki það
sama henda sig og FH-ingana á
undan, Ármenningar voru staðráðnir
í að berjast fyrir sínum hlut og útkom-
an varð mikil keyrsla og barátta og
nóg af mörkum. Stjarnan sigraði 36-
27.
Barátta Ármenninga og slakur
varnarieikur Stjörnunnar héldu
leiknum jöfnum framanaf. Þegar
reynsla og ákveðni Stjörnumanna
fóru að segja til sín skildu leiðir og í
seinni hálfleik var sigur þeirra í lítilli
hættu.
Ef Stjarnan lagar varnarleikinn
getur liðið náð langt. Ekki vantar
stórskytturnar og svo er ekki amalegt
að eiga Pál Björgvinsson að þegar í
hart fer. Hannes og Gylfi voru bestir,
Hannes stjórnaði leik Stjörnunnar
einsog herforingi.
Ármenningar eiga nokkra ágæta
menn, svo sem Einar Naabye sem
gerði fimm falleg mörk í seinni hálf-
Ieik. Guðmundur Friðriksson varði
vel og nýliðarnir munu greinilega
selja sig dýrt í vetur. -gsm
Digranes 8. október
Brei&ablik-FH 23-19 (12-6)
3-0, 8-1, 10-2, 12-6 - 14-9, 16-12,
21-14, 22-16, 23-19.
Mörk Breiðabliks: Jón Þórir Jóns-
son 6, Björn Jónsson 5(1 v), Aðal-
steinn Jónsson3, Kristján Halldórsson
3, Magnús Magnússon 3, Sigþór Jó-
hannesson 2, Svavar Magnússon 1.
Mörk FH: Óskar Armannsson
6(6v), Héðinn Gilsson 4, Guðjón Árna-
son 4, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Ósk-
ar Helgason 1, Pétur Pedersen 1.
Dómarar: Guðmundur Hjálmars-
son og Þorgeir Pálsson - góðir.
Maður leiksins: Björn Jónsson,
Breiöabliki.
Lokatölurnar segja ekki nærri því
allt um viðureign nýliða Hauka við
Reykjavíkurmeistara Vals í 1.
deildinni í gærkvöldi. Það var aðeins
á síðustu 10 mínútunum sem Vals-
menn náðu að stinga baráttuglaða
Haukana af og sigra 30-21.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
Valsliðinu í vetur. Skrýtin blanda,
fjórir hornamenn en enginn
leikstjórnandi og hver sókn má helst
ekki standa lengur en í 10 sekúndur.
Mikið um mistök en líka falleg tilþrif
þegar allt gengur upp. Elías Haralds-
son varði ágætlega þegar á leið en
vörnin fyrir framan hann var lengi
mistæk. Júlíus er tromp númer eitt og
skoraði úr flestum skota sinna í gær-
kvöldi.
Haukarnir léku vel og skynsamlega
lengst af með Sigurjón Sigurðsson í
aðalhlutverki. Árni Sverrisson hefur
litlu gleymt og læddi inn góðum
mörkum og Ólafur Guðjónsson sem
kom í markið um miðjan fyrri hálfleik
varði vel. Helgi Harðarson kom inná
og skoraði fimm mörk í röð, ágæt
skytta. Haukaliðið á að geta staðið
flestum liðum snúning á góðum degi
og fær örugglega stig hér og þar í vet-
ur.
-VS
Hafnarfjðrður 8. október
Haukar-Valur 21 -30 (10-10)
1-0, 1-2, 4-4, 5-8, 8-9, 10-10-11-
10,12-11,13-16,15-16,16-17,18-19,
19-20, 20-22, 20-26, 21-26, 21-30.
Mörk Hauka: Helgi Harðarson 6,
Árni Sverrisson 4, Sigurjón Sigurðs-
son 3(1v), Sindri Karlsson 3, Ingimar
Haraldsson 2, Pétur Guðnason 2,
Eggert (sfeld 1.
Mörk Vals: Júlíus Jónasson 9, Jak-
ob Sigurðsson 8, Valdimar Grimsson
6, Stefán Halldórsson 5(4v), Gísli Ósk-
arsson 2.
Dómarar: Björn Jóhannsson og
Sigurður Baldursson - þokkalegir.
Maður leiksins: Júlíus Jónasson,
Val.
1. deild
Köttur og mus
Framarar léku sér að KA eins og
köttur að mús, án þess að sýna neitt
alltof góðan leik. Það segir sitt um
frammistöðu norðanmanna sem
munu eiga í miklum erfiðleikum í 1.
Kvennahandbolti
Stórtap hjá nýliðunum!
FH vann 40-10. Fram og Stjarnan unnu KR og Víking
Digranes 8. október
Stjarnan-Ármann 36-27
(15-13)
2-2, 3-5, 6-6,11-10, 14-10,15-13-
19-15, 23-18, 25-21, 30-23, 36-27.
Mörk Stjörnunnar: Hannes Leifs-
son 12(6v), Gylfi Birgisson 8, Sigurjón
Guðmundsson 6(2v), Skúli Gunn-
steinsson 3, Hafsteinn Bragason 3,
Hermundur Sigmundsson 2, Magnús
Teitsson 1, Páll Björgvinsson 1.
Mörk Ármanns: Öskar Ásmunds-
son 8(4v), Einar Naabye 5, Þráinn Ás-
mundsson 5, Bragi Sigurðsson 4,
Bragi Jóhannesson 4, Björgvin Barð-
dal 1.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og
Gunnar Viöarsson - þokkalegir.
Maður leiksins: Hannes Leifsson,
Stjörnunni.
Nýliðar Ármanns í 1. deild byrjuðu
ekki beint vel. Þeir töpuðu 40-10 fyrir
FH í sínum fyrsta leik í Hafnarfirði í
gærkvöldi. Tölurnar segja allt um
leikinn, einstefna FH var alger og
staðan í háifleik 15-5.
Mörk FH: Rut 7, Hildur 6, Arndís 6, Anna
5, Eva 5, Kristín 3, Sigurborg 3, Inga 2,
María 2, Helga 1.
Mörk Ármanns: Margrét H. 7, Helga 1,
Ellen 1, Margrót E. 1.
Fram vann KR í ágætum leik í
Seljaskóla 21-16. Fyrri hálfleikur var
England
Newcastle féll
Newcastle, botnlið 1. deildar, Aston Villa-Reading.4-1 (5-2)
féll útúr enska deildabikarnum í Chelsea-York.....3-0 (3-1)
knattspyrnu í gærkvöldi, fyrir 2. Leeds-Oldham..........0-1 (2-4)
Bradr„rd c.„ B8agr:::::::::::::.Ana
NcwcM.le vann reyndar Bradf.rd Macch.CltySculherri..2-1 (2-1)
1-0 en það dugði ekki til þar sem Newcastle-Bradford C.1-0 (1-2)
2. deildarliðið hafði unnið fyrri Norwich-Peterborough..1-0 (1-0)
leikinn 2-0. Nottm.Forest-Brighton.3-0 (3-0)
Úrslit í 2. umferð deildabikars- Stoke-Shrewsbury.0 0(1-2)
ins í gærkvöldi, síðari leikjum. Swindon-Southampton.22Í2 cí
Samanlogð urslit t svigum, 7 ' '
feitletraða liðið í 3. umferð: -VS/Reuter
mjög jafn en Fram hafði undirtökin
og í síðari hálfleik gáfust KR-stúlkur
upp og Fram gekk á lagið.
Mörk Fram: Guðríður 10, Arna 5, Ing-
unn 3, Ósk 1, Súsanna 1, Margrét 1.
Mörk KR: Sigurbjörg 8, Elsa 2, Aldís 2,
Snjólaug 1, Anetta 1, Arna G. 1, Bryndís 1.
Stjarnan vann Víking 23-20 í
skemmtilegum leik í Seljaskóla.
Leikurinn var mjög jafn en þegar 20
mín. voru eftir var Stjarnan komin
með 3ja marka forskot og hélt því allt
til leiksloka. Margrét, Erla og Fjóla
voru bestar hjá Stjörnunni en lið Vík-
ings var jafnt.
Mörk Stjörnunnar: Erla 9(3v), Margrét
6, Hrund 4, Drífa 3, Steinunn 1.
Mörk Víklngs: Jóna 5, Inga 5, Svava 4,
Rannveig 2, Sigurrós 2, Eiríka 1, Valdís 1.
Með þessum úrslitum er Fram eina
liðið í deildinni sem ekki hefur tapað
leik og er með 4 stig. Valur, Víkingur,
Stjarnan, KR og FH eru með 2 stig
hvert en ÍBV og Ármann ekkert.
-MHM
deildinni í vetur með þessu áfram-
haldi. Frarn sigraði 25-16 eftir að hafa
náð 13 marka forystu í síðari hálf-
leiknum.
Það voru nýju mennirnir sem léku
stærstu hlutverkin hjá Fram. Per Ska-
arup stjórnar spilinu vel og átti góð
mörk og línusendingar, sérstaklega á
Birgi Sigurðsson sem er með gott grip
og átti góðan leik. Guðmundur A.
Jónsson gerði sitt til að halda marka-
skori KA niðri með stöðugri og góðri
markvörslu. Hann varði 25 skot, þar
af 2 vítaköst. Hornamennirnir Her-
mann og Jón Árni voru líflegir en í
heild gerði Framliðið mikið af mis-
tökum og þarf að sýna meira til að
blanda sér í toppbaráttuna.
Hjá KA getur leiðin aðeins legið
uppávið. Varla var heil brú í leik liðs-
ins og ráðleysið í sóknarleiknum
mikið. Jóhannes Bjarnason og
Friðjón Jónsson voru þeir einu sem
sýndu eitthvað af viti.
-Ibe
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Laugardalshöll 8. október
Fram-KA 25-16 (15-7)
3-2, 8-2, 12-6, 15-7 - 16-9, 20-9,
23-10, 24-15, 25-16.
Mörk Fram: Per Skaarup 6, Birgir
Sigurðsson 5, Egill Jóhannesson
4(2v), Hermann Björnsson 3, Jón Árni
Rúnarsson 3, Július Gunnarsson 2,
Tryggvi Tryggvason 1, Ólafur Vil-
hjálmsson 1.
Mörk KA: Jóhannes Bjarnason 5,
Friðjón Jónsson 4, Jón Kristjánsson 2,
Gunnar Gíslason 2(1 v), Hafþór
Heimisson 1, Anton Jóhannesson 1,
Pétur Bjarnason 1.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og
Guðjón Sigurðsson - slakir.
Maður lelkslns: Guðmundur A.
Jónsson, Fram.