Þjóðviljinn - 09.10.1986, Side 16
MÖBVIUINN
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Flmmtudaour 9. október 1986 229. tölublað 51. órgangur Aðalsíml: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Eskifjörður
Sfldarsöltun
hafin
Bjartsýni ríkjandi á
Austfjörðum
Sfldarsöltun hófst í gær hjá Pól-
arsfld á Fáskrúðsfirði en á
Eskifirði er öll sfld fryst í beitu.
Þrír bátar hafa farið á miðin
síðan á laugardag og leggja þeir
upp á Hornafirði, Fáskrúðsfirði
og á Eskifirði. Afli hefur verið
ágætur og í gær landaði Snæfari
RE 30 tonnum á Fáskrúðsfirði.
„Landið er gersamlega beitu-
laust og það sem við erum að
frysta núna fer á staði úti um allt
land“, sagði Kristinn Aðalsteins-
son hjá Hraðfyrstihúsinu á Eski-
firði í samtali við Þjóðviljann.
„Það bíða allir eftir því að síldar-
verð verði ákveðið og hvernig
semst við Rússa. Menn eru mjög
bjartsýnir hér fyrir austan á að
þeir.vilji kaupa af okkur 250.000
tunnur en samkvæmt upplýsing-
um frá sendiráðinu í Noregi
sögðu Rússar við Norðmenn að
þeir ætluðu ekki að kaupa nema
100.000 tunnur af íslendingum.
Það er þó mjög gott hljóð í
mönnum hér og menn trúa því að
það verði saltað", sagði Kristinn.
-vd.
Sirius
Ekkert pláss
Það er litið pláss í höfninni
núna, það er búið að loka
innri höfninni og skipin þaðan
hafa flutt sig í Sundahöfn. Auk
þess hafa Sovétmenn krafist þess
að það verði sem minnst umferð
við Reykjavíkurhöfn, sagði Ingvi
S. Ingvason ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins í samtali
við blaðið í gær, en Sirius, skip
Grænfriðunga sótti um hafnar-
leyfi á þriðjudag og kemur hingað
til lands á laugardag.
„Það er spurning um hvort á að
hleypa þessu fólki inn í landið ef
það ætlar að koma hér með ein-
hverjum ófriði, en það er hafnar-
stjóra að segja til um hvort pláss
er fyrir skipið“, sagði Ingvi. Að-
spurður sagði hann að ekki hefði
verið kannað hvort Grænfriðung-
ar ætli að hafa mótmælaaðgerðir í
frammi, né endanleg ákvörðun
verið tekin varðandi hafnarleyfi.
„Við bíðum enn eftir form-
legum svörum frá íslenskum yfir-
völdum“, sagði talsmaður Gre-
enpeace í samtali við blaðið í gær.
„Við höfum alls ekki hugsað okk-
ur að hafa í frammi neinar að-
gerðir aðrar en þær að minna á
andstöðu okkar við tilraunir með
kjarnorkuvopn með nærveru
skipsins“. -vd.
Stálvík hf
Ríkið vill méira hlutafé
Fulltrúar ríkisvaldsins sem hafa átt í viðrœðum við forsvarsmenn
Stálvíkur hf. gera hlutafjáraukningu að skilyrðifyrir ríkisábyrgð lána.
Starfsmenn sjá ekki lausn ísjónmáli
Afundi forsvarsmanna Stálvík-
ur hf. og starfsmanna fyrir-
tækisins í gær voru niðurstöður
viðræðna við fulltrúa ríkisvald-
sins kynntar, en fulltrúarnir hafa
sett fram kröfur um 15-20 miljón
króna hlutafjáraukningu í fyrir-
tækinu sem skilyrði fyrir ríkisá-
byrgð á lánum sem fyrirtækið
vonast eftir að fá til þess að Iosa
sig úr lausafjárskuldum.
Að sögn starfsmanna sem sátu
fundinn, kom þar í ljós að sú hlut-
afjáraukning sem nefnd hefur
verið myndi hjálpa fyrirtækinu til
þess að halda áfram að rúlla, en
40 miljónir væri sú lágmarksupp-
hæð sem þyrfti til þess að losa
lausafjárskuldir fyrirtækisins.
Hlutafjárstaða þess er nú metin á
30 miljónir, og- eigið fé á 30-32
miljónir.
Jón Sveinsson forstjóri Stálvík-
ur hf. sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann að þótt embættismenn ríkis-
valdsins væru búnir að leggja
fram sitt álit þá væri það engan
veginn endanlegt. Fjármálaráð-
herra ætti eftir að meta það og
niðurstöðu frá honum væri von-
andi að vænta á morgunn. „Það
er enginn beygur í okkur. Það er
alla veganna engin hætta á því að
við hættum rekstri fyrirtækisins“
sagði Jón.
Hvernig œtlið þið, á meðan
lausn liggur ekki fyrir, að bregð-
ast við gagnvart því starfsfólki
sem enn á ógreidd laun hjá fyrir-
tœkinu?
“Það mál er ekki í okkar hönd-
um eins og stendur og verður það
ekki fyrr en niðurstöður frá ríkis-
valdinu liggja fyrir“ sagði Jón að
lokum.
„Frá okkar sjónarhóli er á-
standið óbreytt ennþá. Við sjáum
enga lausn í sjónmáli. Ef lausnin
á að felast í hlutafjáraukningu þá
tekur slík söfnun tíma og við get-
um ekki beðið eftir því“ sögðu
nokkrir starfsmenn íyrirtækisins í
samtali við Þjóðviljann, en starfs-
menn voru almennt mjög svart-
sýnir og nokkrir töldu fyrirtækið í
dauðateygjunum. Stærsti hluti
starfsmannna Stálvíkur eru enn í
verkfalli, en nokkrir hafa ákveð-
ið að hverfa aftur til vinnu á með-
an viðræður standa yfir.
-K.Ól.
Enn eru starfsmenn Stálvíkur I biðstöðu. Þegar þessir menn voru spurðir álits á framtíðarhorfum fyrirtækisins bentu þeir á
dauða drottningu og sögðu ekki orð. F.v Aðalsteinn Einarsson, Benedikt Gunnarsson og Sigurjón Þórisson. Mynd Sig.
Hallgrímskirkja
Umframbirgðir
af spariskirteinum
Beðið um peninga til styrktar Hallgrímskirkju. Pétur Sigurgeirsson
biskup: Sé ekkert athugavert við þetta
Allt fram að þessu hefur verið
hægt að vinna við smíði Hall-
grímskirkju án þess að safna
skuldum við bygginguna. Það
finnst mér aðdáunarvert. Hins
vegar harðnar nú á dalnum að
þessu leyti og Hermann veit
gleggst um fjárþörfina, sagði hr.
Pétur Sigurgeirsson biskup í sam-
tali við blaðið í gær þegar hann
var spurður álits á grein Her-
manns Þorsteinssonar formanns
bygginganefndar Hallgríms-
kirkju sem birtist í Morgunblað-
inu á þriðjudag.
í greininni er farið fram á að
fólk veiti kirkjubyggingunni fjár-
stuðning með svofelldum hætti:
„Og hvernig getur þú hjálpað?
Með margvíslegum hætti: Með
því að biðja fyrir kirkjusmiðun-
um og komandi vígsluhátíð. Með
því að senda byggingarsjóðnum
fjármuni, stóra eða smáa. Sumir
eiga e.t.v. umframbirgðir af spar-
iskírteinum! Ýmsir hafa í gegnum
árin ánafnað kirkjunni íbúðum
sínum.“
„Ég sé ekkert athugavert við
það þó Hermann bendi á ýmsar
leiðir að þessu marki, meðal ann-
ars þær sem fólk hefur sjálft þeg-
ar valið til að styðja kirkjuna",
sagði Pétur Sigurgeirsson biskup.
-vd.
Síldarútvegsnefnd
Fundað í
allan gærdag
Undirnefnd sfldarútvegsnefnd-
ar og sendinefndar Rússa fundaði
í allan gærdag en að sögn Gunn-
ars Flovenz hafa þesir aðilar gert
með sér eitt samkomulag nú þeg-
ar og það er að segja ekkert frá
því hvernig samningaviðræður
ganga.
„Þeir segja „No comment“ og
það gerum við Iíka“, sagði Gunn-
ar í samtalið við blaðið. Hann
sagðist engu geta svarað um
hvort samningar tækjust fljót-
lega, en síldarverkendur bíða
spenntir eftir því hvað kemur út
úr þessum viðræðum. Að sögn
Kristins Aðalsteinssonar, hjá
Hraðfrystihúsinu á Eskifirði hafa
Norðmenn boðið mun lægra verð
en íslendingar en samist hefur
um að selja héðan samtals 51.000
tunnur til Svíþjóðar og Finn-
lands. -vd.
WE OFFER EXPERTISE
FOREIGN EXCHANGE SERVICES
Branch Offíces in
two major Reykjavík hotels
Hotel Saga Branch
Hotel Esja Branch
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
The Agricultural Bank of Iceland
Head Office - Austurstræti 5