Þjóðviljinn - 17.10.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
október
1986
föstu-
dagur
236. tölublað 51. örgangur
MP
ÁTVR
ÞJÓÐMÁL
GLÆTAN
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Kagkaup stjómar Þorstemi
Hœtt við allar framkvœmdir Á TVR í Mjóddinni eftir að KR ON hófþar verslunarrekstur. Hœtt við útboð,
sökklarnir seldir. Stjórnarformaður KRON: Hagsmunir Hagkaups liggja til grundvallar
Ofstækið í þessu máli er svo yf-
irgengilegt að mönnum verð-
ur orðfátt. Það er Ijóst að hags-
munir Hagkaups liggja til grund-
vallar þeirri ákvörðun ÁTVR að
hætta við byggingu áfengisversi-
unar i Mjóddinni. í staðinn er
haldið áfram fjáraustri í stórhýs-
ið í Kringlunni. Hér er því verið
að koma höggi á Kaupstað og
ekkert hirt um hagsmuni 25 þús-
und Breiðhyltinga, sem verða
þvingaðir til að gera áfengiskaup
sín í Hagkaupshúsinu í Kringlu,
sagði Þröstur Ólafsson stjórnar-
formaður KRON, sem rekur
verslunina Kaupstað í Mjódd.
„Ríkissjóður var búinn að
bjóða út byggingu áfengisversl-
unaríMjódd. Það vareinnigbúið
að ákveða að setja 55 miljónir
króna í verkið. En þegar við
KRON menn keyptum verslun-
arhús Víðis, ákvað fjármálaráð-
herra einhliða að hætta öllum
framkvæmdum. Maður skilur
auðvitað þá ráðstöfun eftir að
hafa lesið leiðara Morgunblaðs-
Þúsund manns tóku í gær þátt í samhæfðri leit á Bláfjallasvæðinu að manni leitar erfið. Hann fannst aðeins nokkur hundruð metrum frá bíl sínum við
sem týnst hafði á rjúpnaveiðum. Maðurinn fannst látinn ( hlíðum Vífilfells um skálann Arnarsetur. (Mynd: Sig).
fjögurleytið, við þriðju leit á svæðinu. Maðurinn var dökkklæddur og skilyrði til
SRIJBHWs
ÁLBERT
ins í gær þar sem varað er við sókn
samvinnuverslunar á höfuðborg-
arsvæðinu," sagði Þröstur Ólafs-
son.
Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR sagði í gær í samtali að
hætt yrði við byggingu áfengis-
verslunar í Mjódd og sökklarnir
seldir. Ákveðið hafði verið að
verja 55 miljónum króna á fjár-
lögum til byggingarinnar en sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi er búið
að strika þá upphæð út en ákveð-
ið að verja 40 miljónum til versl-
unar í Kringlunni.
„Það eru 9 ár síðan ákveðið var
að setja upp áfengisútsölu í
Mjódd. Lítið varð um fram-
kvæmdir en skömmu áður en
Víðisbræður seidu okkur verslun
sína þar, fengu þeir loforð um að
framkvæmdum yrði haldið
áfram. Þegar við tókum við
rekstrinum lá þetta loforð fyrir,
en nú er það skyndilega svikið.
Við lítum hins vegar svo á að
þessu máli sé engan veginn lokið
og munum ganga fast eftir því að
menn standi við gefin loforð,“
sagði Þröstur ennfremur.
Þegar er búið að verja 70 milj-
ónum króna til byggingar áfeng-
isverslunar í Kringlunni og eins
og áður sagði er ætlunin að verja
40 miljónum þangað úr ríkissjóði
á næsta ári. Höskuldur Jónsson
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að ekki yrðu opnaðar áfeng-
isverslanir í Kópavogi, Garðabæ
eða Hafnarfirði á næstunni.
Hin nýja verslun ÁTVR opnar
13. ágúst á næsta ári í Hag-
kaupshúsinu í Kringlu. -v.
Nóbel
Menning
Afríku
heiðmð
Wole Soyinka, rithöf-
undurfrá Nígeríu,
hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels íár
Sænska akademían tilkynnti í
gær að Wole Soyinka, rithöfund-
ur frá Nígeríu, hefði hlotið bók-
menntaverðlaun Nóbels í ár.
Þetta er í fyrsta skipti sem rithöf-
undur frá Áfríku hlýtur þessa eft-
irsóttu viðurkenningu.
„Soyinka lýsir drama tilver-
unnar í breiðu menningarlegu
samhengi og með sterkum ljóð-
rænum hljómi," segir í forsend-
um akademíunnar.
Soyinka var staddur í París er
hann frétti af úthlutuninni. Hann
sagði að menning og hefðir Afr-
íku hefði nú hlotið viðurkenn-
ingu, sem evrópsk menning hefði
lengi látið standa á.
Sjánánarum Soyinkaábls. 13.
-Sáf
Stefnurœðan
Rjómi með vellingnum
Gottástand í Garðabœnum. Steingrímur Hermannsson: Kaupmáttur heimilanna
sá mesti í sögu þjóðarinnar. Svavar Gestsson: Ósvífnar talnablekkingar sem meta
þrœldóm sem kauphœkkun
Kosningabaráttan hófst í gær-
kvöldi á Alþingi i umræðum
um stefnuræðu forsætisráðherra.
Voru ræðumenn greinilega í
kosningaham. Annars var megin-
umræðuefni þingmannanna góð-
ærið til fólksins eða til atvinnu-
rekenda, eða hvort kjörin væru of
góð.
Steingrímur Hermannsson
sagði að um leið og góður byr
væri notaður til að ná jafnvægi í
efnahagsmálum yrði að nota góð-
ærið til að bæta afkomu þeirra
atvinnugreina sem enn eiga í
rekstrarerfiðleikum eftir verð-
bólgu undanfarinna ára. Um
stöðu heimilanna sagði ráðher-
rann hins vegar að kaupmáttur
tekna heimilanna yrði á þessu ári
sá mesti í sögu þjóðarinnar! Ef
takast mætti að halda kauphækk-
unum innan við 2% markið á
næsta ári mætti verja „þann
kaupmátt og þau góðu lífskjör
sem náðst hafa á árinu 1986.“
Fari þær hins vegar yfir 2,5%
sagði ráðherrann hættu á verð-
bólguskriðu og erlendri skulda-
söfnun.
Svavar Gestsson lagði hins veg-
ar áherslu á að skila yrði góðær-
inu til fólksins; góðærið væri af-
rakstur vinnu þess ásamt hag-
stæðum ytri skilyrðum. Svavar
benti á að inni í tölum ráðherrans
um „aukinn“ kaupmátt heimil-
anna væri síaukinn þrældómur og
gegndarlaus yfirvinna. Þessa
ósvífnu talnablekkingu stjórnar-
herranna um „hin dásamlegu og
fullkomnu lífskjör“ í landinu yrði
að afhjúpa. Svavar sagði að ekki
kæmi til greina að kaupmáttur
kauptaxta lækkaði á næsta ári
þrátt fyrir góðærið. Því yrði að
skila til fólksins, lægstu taxtarnir
yrðu að hverfa og vinnutímann
yrði að stytta kerfisbundið - fyrir
sömu laun.
Sjá bls. 9. -ÁI
Samningar
Engin sfld til Sovét
Sovétmenn vilja mikla verðlœkkun, segjasthafa lág tilboðfrá Norðmönnum og
Hollendingum. Ekkertframhald ákveðið
Saltsíldarviðræðunum við So-
vétmenn er lokið án
samkomulags og hefur ekkert
verið ákveðið um framhald. So-
vétmenn neita að kaupa á hærra
verði en frá Kanada sem í dollur-
um er 46% lægra en verðið frá
íslandi í fyrra, og í raun enn
lægra vegna gengisþróunar.
Viðræðunum lauk í fyrradag
eftir að Sovétmenn þvertóku
fyrir að greiða hærra verð en
Kanadasamningarnir kveða á
um.
Sovétmenn sögðust hafa
skjalfest norskt verðtilboð um
30% lægra verð en okkar frá í
fyrra. Þá tilkynntu þeir að enn
væri þeim óheimilt að kaupa
meira en 40 þúsund tunnur, en
keyptu í fyrra 200 þúsund.
Þessar fréttir setja verulegt
strik í reikning nýhafinnar síldar-
vertíðar, og er allt óvíst um
veiðamar framundan, hvað þá
sölu til Sovét.