Þjóðviljinn - 17.10.1986, Blaðsíða 16
1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA
Fðstudagur 17. oklóber 1986 236. tðlublað 51. árgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Leðjuslagurinn
Byggung
Friðrik
á blað
Bessíí2. sœti. María
hrapar. Ragnhildur
neðst. Fyrstu verðlaun
eru mynd í Þjóðviljanum
á prófkjörsdag
Auglýsingakeppni frambjóð-
endanna í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins harðnar enn og gerist
tvísýnni. Bessí Jóhannsdóttir sótti
verulega í sig veðrið í gær og
komst í annað sæti á Þjóðviljalist-
anum, sem tekur til auglýsinga í
Mogga og DV, en Albert Guð-
mundsson heldur forystu sinni.
Þá komst Friðrik Sophusson á
blað með myndarlegri DV-
auglýsingu. Ákveðið hefur verið
að þeim sem sigrar í keppninni
verði veitt þau verðlaun að fá af
sér mynd í Þjóðviljanum á
laugardaginn.
Nokkur óánægja hefur komið
upp meðal frambjóðenda um til-
högun Þjóðviljakeppninnar.
Stuðningsmenn Vilhjálms Egils-
sonar benda til dæmis á að ekki
séu reiknuð með stig af auglýs-
ingum hans á Bylgjunni, og hafa
fleiri tekið í sama streng. Þá hafa
stuðningsmenn Bessíar bent á
samtals 237 dálksentimetra af
auglýsingum um Bessí í Helgar-
póstinum, og djúpróma karlmað-
ur hringdi og tjáði Þjóðviljanum
með austrænum hreim að hann
teldi að reikna ætti frambjóðand-
anum til tekna lofsamleg ummæli
í sovésku pressunni um Lödu-
innflutning til íslands. Við sjáum
okkur ekki unnt að verða við
þessum tilmælum. Það væri órétt-
látt gagnvart hinum keppendun-
um, - til dæmis yrði þá að reikna
Ásgeiri Hannesi stig fyrir stöðuga
fjölmiðlaumræðu erlenda og inn-
lenda um íslensk pulsugæði. Nét,
tavaríts, reglur eru reglur.
Auglýsingar keppenda í
Mogga og DV frá 28. september
að telja nema nú 62,4 dálkmetr-
um og er viðbót gærdagsins 12,7
dálkmetrar. Samanlagður kostn-
aður við þessar auglýsingar er
orðinn 1,4 milljónir og er þá ekki
reiknað með aukafé vegna lita-
dýrðar.
Prófkjörslisti Þjóðviljans er nú
þannig (í sviga staðan í gær):
1(1) Albert 906 dsm
2 ( 4) Bessí 816 dsm
3 ( 2) Ásgeir H. 646 dsm
4 ( 3) Guðm. H. 640 dsm
5 ( 5) Sólveig 570 dsm
6 ( 8) María 435 dsm
7 ( 6) Jón H 434 dsm
8 ( 7) Birglr í. 401 dsm
9 ( 9) Eyjólfur K. 389 dsm
10 (11) Vllhjálmur 262 dsm
Næst koma Esther, Geir og
Rúnar. Friðrik skaust frammúr
Ragnhildi sem nú er í neðsta sæti
með aðeins 96 dsm.
Þótt Albert sé gildastur hefur
Guðmundur H. birt flestar aug-
lýsingar í Mogga/DV eða 15, Ás-
geir Hannes 14, Bessí 13.
Fylgist með í Þjóðviljanum á
morgun. Hvernig hefnir María
sín? Nær Bessí efsta sæti af Al-
bert? Kemst Friðrik frammúr
Rúnari flugstjóra? Náu þau 100
dálkmetrum? -m
Sigurvegarinn í leðjuslagnum fær
mynd af sér í Þjóðviljann. Hver verður
sá heppni?
Hlegið að endurskoðandanum
íbúarsem hafafengið bakreikningfrá Byggung upp áfleiri hundruð þúsund neita að borga.
Hafa ráðið sér endurskoðanda. Mikil reiði á fundi með forsvarsmönnumfélagsins ígœr.
Þóra Guðmundsdóttir:Hefur verið logið að okkur eða félagið klúðraðpeningamálunum
Það var hiegið að löggiltum
endurskoðanda Byggung þegar
hann sagði að íbúar Byggung-
blokkanna á Granda, sem fengið
hafa bakreikninga upp á mörg
hundruð þúsund krónur, geti
verið fullvissir um að peningarnir
rynnu eingöngu í vasa þeirra
sjálfra.
fbúarnir sem höfðu fengið
þessa bakreikninga héldu fund
með forráðamönnum Byggung í
gær og var mikil reiði ríkjandi á
fundinum og auðheyrt að íbúarn-
ir ætla ekki að gefa sig. Hafa þeir
ráðið endurskoðanda til að yfir-
fara reikninga fyrirtækisins.
Þóra Guðmundsdóttir fékk
bakreikning upp á 645 þúsund
krónur. Hún sagði við Þjóðvilj-
ann að hún sæi engan möguleika
á að borga þetta. „Við verðum
líklega að selja og byrja upp á
nýtt.“
Forsvarsmenn Byggung höfðu
lagt áherslu á að íbúðaverðið yrði
mjög lágt vegna hagkvæmni í
hönnun og byggingu en íbúða-
verðið mun nú svipað og
kaupverð íbúða á almennum
markaði. Þá hefur biðtíminn eftir
íbúðunum verið mun lengri en
talað var um.
„Annaðhvort hefur verið logið
að okkur allan tímann eða þá
hafa forsvarsmenn Byggung
klúðrað peningamálunum algjör-
lega,“ sagði Þóra.
-Sáf/K.Ól.
Endurskoðandi Byggung í pontu á fundinum I gærkvöldi. ibúarnir fylgjast með' málflutningi hans þungir á brún. Mynd E.ÓI.
Dagvistunarmál
Niðurskurður blessaður
Meirihluti borgarstjórnarfelldi tillögu um að mótmœla niðurskurði ríkisvaldsins á fé til dagvistunarstofnana
um helming. Vilja að sveitarfélög hafi algertforrœði um málefni dagvistunarstofnana
Sjálfstæðismenn I borgarstjórn
felldu f gær tillögu Kvennalista,
Alþýðubandalags og Framsóknar
um að mótmæla harðlega því að
framlag til bygginga dagvistar-
heimila skuli skuli skorið niður
um helming í fjárlagafrumvarp-
inu. Bent var á að nái þessi niður-
skurður fram að ganga hefur það
í för með sér að ríkið veltir lög-
boðnum skyldum sínum yfír á
sveitarfélögin, án þess að ætla
þeim nýjan tekjustofn til að mæta
ú tgj aldaaukningunni.
Langar og harðar umræður
urðu á borgarstjórnarfundi í gær
um þetta mál og var sérstaklega
deilt um bókun Sjálfstæðismanna
í borgarráði þar sem þeir töldu
eðlilegt að uppbygging dagvist-
arrýma væri alfarið verkefni
sveitarfélaga. Telja Sjálfstæðis-
menn að forsendur fyrir slíkri
breytingu væru bættur tekjumiss-
ir og að sveitarfélögin hafi algert
forræði um rekstur og skipan
innri málefna dagvistunarstofn-
ana. Borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins og Kvennalistans
bentu á að þama væri um algera
stefnubreytingu að ræða, m.a.
með tilvísun í samþykktir borgar-
stjómar síðastliðin 2 ár um sama
mál, þ.e. um mótmæli gegn nið-
urskurði á framlag ríkisins.
Meiriljlutinn samþykkti tillögu
Bjama P. Magnússonar, borgar-
fulltrúa Alþýðuflokks um að fela
borgarstjóra að hefja viðræður
við fjár- og menntamálaráðherra
um með hvaða hætti ríkisvaldið
tryggi Reykjavík stofnfjárfram-
lag vegna dagvistunarheimila.
vd
Bensín
Líbinn upp um 5-8 krónur
Jónas Bjarnason hjá FÍB: Aðeins fjórðungur tekna ríkisins afbifreiðum rennur til
Allt bendir til að bensínlítrinn
muni hækka um 5-8 krónur á
næstunni. Er þetta afleiðing
þeirrar stefnu sem fjármálaráð-
herra kynnti á Alþingi að afla 600
mifjón króna tekna með auknum
sköttum á innflutta orkugjafa.
Jónas Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda sagði í gær að
þessi skattheimta af notendum
bifreiða væri fráleit. Skattheimta
af bifreiðum hefði um árabil ver-
umferðarinnar aftur
ið hörð, en eftir að heimsmark-
aðsverð á bensíni fór lækkandi
hefði aðeins rofað til. „Hins veg-
ar er fyrsta tækifærið notað til að
hrifsa þennan ávinning til baka,“
sagði Jónas. Hann minnti á að
undanfarin ár hefði aðeins um
fjórðungur tekna ríkisins af bifr-
eiðum og rekstrarvörum þeirra
runnið til baka, þ.e. í vegi og þess
háttar.
„Samkvæmt tölum frá Noregi
lætur ríkið meira til umferðarinn-
ar á ári hverju en það hefur af
bifreiðum. Hér á landi er hlutfall-
ið eins og ég rakti áðan þrátt fyrir
að 95% samgangna á Islandi sé
með bifreiðum og aðeins 8% veg-
anna lagðir bundnu slitlagi. Við
þessar aðstæður búa íslenskir
bifreiðaeigendur og það er óþol-
andi að nú skuli eiga að auka
skattheimtuna enn frá því sem
áður var,“ sagði Jónas Bjamason
hjá FÍB að lokum.
-v.